Tíminn - 15.04.1961, Qupperneq 14

Tíminn - 15.04.1961, Qupperneq 14
TÍMINN, langardaginn 15. aprfl 1961. — ÞaB var engfci rlspa á byssnnnl, sem drap Roy — handfangið var slétt og fellt. Og það var líka melra til. Eg vár með honum i bókaher- berginu morguninn sem hann var myrfeur. Eg var þá ný- búfci að fara upp og tala við Lorel .... Loru. Hann spurði mlg hvemlg henni liði og ég sagði að hún væri niðurbrot in manneskja, og að hún vildi helzt fara strax, en ég héldi samt hún myndi taka þátt í þessu .... auglýslngaatriði — vegna hennar sjálfrar. Hann tók upp byssuna úr skrifborðsskúffunni — sina eigin byssu — og ég sá risp- una um leið og hann sagði: Það er eins gott að hún er ekki hlaðin þessi. Það er aldrei að vita hvað svona stelpur gætu fundið upp á. Svo stakk hann byssunni í vasann og ég horfðl á eftir honum og hugsaði með sjálfri mér að kannski væri það öll- um fyrlr beztu að hún væri hlaðin . . . . ég hafeaði hann svo innilega . . . næst þegar ég sá hann . . . fáeinum mín útum síðar var hann dáfctn. Það var löng þögn. Mark starði fram fyrir sig. Þegar hún hóf aftur máls var rödd hennar hljómvana: — Teið verður kalt, sagðl hún. Hann lyfti tekatllnum skjálfandi höndum og megn- aði ekki að líta á hana með- an hann hellti í bollana. Hann var ringlaður og utan vlð sig . . . honum fannst hann hafa elzt um mörg ár. Hann óskaði'af öllu hjarta að hann hefði fartð að ráð um hennar og reynt að gleyma öllu saman. Þegar hann rétti henni te bollan, leit hann loks til henn ar. — Vissu hin ekkert um þetta? Hún hristi höfuðlð: — Nei. Þau bjuggust öll við því að þetta væri byssa Roys. Eg hef aldrei komizt að því hvað varð af hans byssu. — Þér sáuð hann stinga byssunni I vasann áður en hann gekk út . . . aðgættuð þér hvort hún var þar enn þegar þér sáuð líkið? Hún leit undrandi á hann: — Auðvitað ekki. Eg taldi víst hann hefði verið skotinn með sinnl byssu. Það var ekki fyrr en mér var sýnd byss- an fyrlr réttinum — þá sá ég að það var ekki sú byssa sem hann stakk í vasa sfcrn. Mér brá óskaplega ... ég vissi ekki hvað ég átti að segja . . . svo að ég sagði bara að þetta væri hans byssa. — Hvers vegna nefnduð þér ekkert um það sem þér viss- uð? spurði Mark fljótmælt- ur. — Vegna þess að ég vildi ekki að Lora yrði hengd vegna drullukarakter eins og Roy var, sagði hún kuldalega. — Hún var niðurbrotfci mann eskja ,ég sá hana nokkrum mínútum eftir að hún skaut hann og ég held satt að segja hún hafi alls ekki gert sér ljóst hvað hún hafði gert. ur. Þá var hann nýbúinn að hitta Mollie . . . og Mollie var auðug. Hún var ekkja . . . . ung og glæsileg. Auðug ekkja. Hún tók köku af diskinum og muldi hana hugsunarlaust niður: — Sjáið þér til, það er eins konar sjúkdómur . . . við getum kallað það barna- sjúkdóm . . . að verða hrifin af Roy. Hann var drauma- prlns allra stúlkna, myndar- legur, frægur, skemmtilegur, ríkur .... þótt hann væri hvorki frægur né ríkur þegar við vorum trúlofuð . . . þá vár hann bara ungur og óþekkt- Eg náðl mér eftir það. Eg hefði ekki getað leikið á móti honum hvað eftir annað, ef mér hefði ekki staðið alger- lega á sama um hann. En þeg ar ég kynntist Loru og sá hvernig hann fór með hana, fannst mér ég vera komin tuttugu ár aftur í tlmann. — En þér hefðuð getað sagt henni — hvernig hann kom fram við yður .... já og allar hinar? Hún hristi höfuðið: — Það hefði verið vita til- gangslaust. Konur geta verið svo blindar í ást sinni. Hvað — Þér trúið hecinl ekki, sagði hann rólega. — En það gerðum við, ég og Clive. Þess vegna vill hann láta taka þessa mynd . . . til að komast að því hver myrti Faversham og lét Loru taka á sig sök- ina. Spurningin er því bara: jViljið þér hjálpa okkur? Hún andvarpaði: — Þið eruð brjálaðir, sagði hún óþolinmóð. — Auðvitað var það Lora, sem skaut Roy. Hastings sá hana . . . hann tók myndina . . . . af henni með byssuna í hendinni og hún miðar á Roy. KATE WADE: LEYNDARDÓMUR 17 Italska h.ússins Auðvitað héldu allir að þetta hefði verið slys . . . að Roy hefði hlaðið byssuna og síðan gleymt að geta um það. Og mér fannst bezt að fólk stæði áfram í þeirri trú. Mark virti hana fyrir sér. Óþægilegum grun hafði skot ið upp í huga hans. Hann trúði því varla hún hefði far ið að þegja yfir svo mikils verðu atriði eingöngu vegna Loru. Og hvers vegna hafði Antonia Brent hatað Roy Faversham? spurði hann. Hún leit á hann og hló stuttaralega: — Eg skil. Þér trúið ekki að ég hafi þagað af manngæzku og góð- mennsku einni saman? Hann hrísti höfuðið: — Var nokkur ástæða til þess? Þér þekktuð Loru ekki svo náið. En hann . . . hann höfðuð þér þekkt árum sam- an . . . og oft leikið á móti honum. Hún brosti dapurlega: — Þér hafið á réttu að standa. Eg þagði yfir því vegna þess að ég hataði Roy . . . skiljið þér hr. Clare. Fyrir tuttugu árum, þegar ég var bara átján ára var ég önnur Lora. En hann var ekki kvænt ur þá. Við vorum trúlofuð. Hann sparkaði mér viku áður en við ætluðum að gifta okk- ur leikari. En auðæfi Molliar hjálpuðu honum til að ná toppnum fyrr . . . en ef hann hefði þurft að vinna sig upp með mig við hlið sina. Eg strengdi þess heit að ég skyldi verða eins fræg og hann . . . og mér tókst það. Eg ætti kannski að vera hon um þakklát. Ef hann hefði ekki auðmýkt mig er mjög sennilegt ég væri enn bara annars eða þriðja flokks leik kona. Eg var særð . . . og sært stolt getur oft hjálpað manni ótrúlega til að ná upp efsta tindinn. — Svo það var þess vegna sem þér hvöttuð Loru til að taka þátt í auglýsingaatrið- inu, sagði Mark. — Fylgja þeirri átt sem vindur stæði af. Hún leit spyrjandi á hann: — Sagði hún yður það? Hann kinkaði kolli og hug- leiddi hvort það væri vogandi að nefna að Lora hefði enn fremur sagt honum að hún hefði átt þrjá eiginmenn. Hún hafði sýnilega látið hugg ast þótt Roy gengi henni úr greipum. Það var engu lík- ara en hún hefði lesið hjigs- anir hans, því að hún sagði: — Eg vil ekkl að þér haldið að ég hafi þjáðzt af ástar- sorg út af Roy í öll þessi ár. viðkemur til dæmis Mary Favelle og Rosette, þá var það annað. Þær voru að vísu ung ar, en þær voru bara ástfangn ar af vinsældum Roys og frægð. Lora var öðruvísi . . . það var þá sem ég fór að hata hann á ný. Það fór hrollur um hana og áður en Mark vissi af hafði hann sagt: — Myrtuð þér Roy Favers- ham, ungfrú Brent? Nokkur augnablik sat hún eins og steinrunnin og horfði á hann: — Eruð þér . . . eruð þér að tala í alvöru? sagði hún að lokum. — Fyrirgefið mér, ég veit ekki hvers vegna ég spurði . . . þetta var ófyrirgefanlegt — ruddalegt. — En yður datt það í hug . . . að ég hefði myrt hann, hrópaði hún. Hann yppti öxlum ráðleysis lega: — Einhver myrti hann . . . og það var ekki Lora. Hlustið á mig. Nú skal ég segja yður Loru útgáfu af því sem gerð- ist þennan morgun. Hann gerði svo og horfði eftirváentfcigarfullur á hana á meðan. En þegar hann hafði lokið frásögn sinni sá hann bar spurn í augum hennar. — Myndin sýnir kvenmann með byssu í hendinnl, eu það gæti verið hvaða kvenmaður sem er. Hafið þér séð mynd- ina? Hún brosti þreytulega: — Já. Myndin birtist í öll- um blöðum. — Eg hef hana mörgum sinnum stækkaða, sagði hann og náði í myndina og rétti henni. — Þarna sjáið þér. Þetta gæti verið hvaða kven- maður sem er. Hann virti hana nákvæm- lega fyrir sér meðan hún skoð aði myndina. Fyrst kæruleys islega, svo með meiri athygli og þegar hún rétti myndina Laugardagur 15. ap.ríl: 8.00 Morgunútvarp. 8.30 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 12.50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdéttir). 14.30 Liaugardagslögin. 15.00 Fréttir. 15.20 Skákþáttur (Guðmundur Am- laugsson). 16.05 Brfdgeþáttur (Stefán Guðjohn sen). 16.30 Danskennsla (Heiðar Ástvalds son danskennari). 17.00 Lög unga fóiksins (Guðrún Ás mundsdóttir). 18.00 Útvarpssaga bamanna: „Petra liiial" eftir Gunvor Fossum; Vm. (Sígurður Gunnarsson kennari). 18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18.50 Tilíkynningar. 19.20. Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.20 Nafnkunnir söngvarar firá gamalli tfð (Guðmundur Jóns- son kynnir). 20.40 Lelkrit: „Fablan opnar hliðin" eftir Valentin ChoreH, í þýð- ingu Bjarna Benedfktssonar frá Hofteigi — LeBostjóri: Gísli Halldórsson 22.00 Fróttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFÖRLI Hvíti hrafninn 66 „Hjálp, þið verðið að hjálpa mér,“ hrópaði hinn ókunni æstur. „Þetta er ekki okkar maður,“ sagði einn Skotanna. „Hvaða hjálp talar þú um?“ spurði Eiríkur. Maðurinn leit óttasleginn í augu Eiríks. .Herra, það er betra að standa augliti til auglitis við óvin en að láta vin sinn deyja. Komið með mér til hans.“ Eiríkur sneri sér að mönnum sínum. „Þrír ykkar verða hér kyrrir, og aðvarið mig ef þið sjáið nokkur merki svika. Hinir fylgja mér.“ Hinn ókunni fjar- lægði stein, og þá varð gat í jörð- ina sýnilegt. „Við verðum að fara hér niður, heira, sagði hann, og gekk sjálfur á undan. Fyrst komu þeir í lítinn gang, sem tæpast var nógu stór til að rúma þá alla. Að lokum komu þeir inn í lítinn helli, og þar sá Eiríkur þrjá mer.n um- hverfis bál. Þá varð Eiríkur undr- andi, því einn mannanna staiði á hann með sársaukafullu augna- ráði: Það var livíti hrafninn!!! '. K l i i..

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.