Tíminn - 27.04.1961, Page 5

Tíminn - 27.04.1961, Page 5
TÍMINN, fímmtudaginn 27. aprfl 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Fulltrúi rit- stjómar: Tómas Karlsson. Auglýsinga- stjóri: Egill Bjamason. — Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Hví eru kjörin verri nú en 1958? Margt hefur verið ritað og rætt um slit og viðskiln- að vinstri stjórnarinnar. Um eitt meginatriði þarf þó ekki að deila. Málið, sem ágreiningi olli, var óeðlilega mikil hækkun kaupgjalds síðari hluta ársinsl958,er leiddi af kauphækkunum þeim, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði haft forystu um að knýja fram, studdur af Moskvukomm- únistum og hægri krötum. Stjórnarflokkarnir voru ó- sammála um, hvernig brugðizt skyldi við þessum vanda. Þess vegna rofnaði stjórnin. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók að sér athugun á stjórnarmyndun eftir fall vinstri stjórnarinnar í des- ember 1958, lét hann hagfræðinga sína gera úttekt á efnahagsástandinu. Niðurstaða þeirra var sú, að hægt yrði að halda áfram hallalausum rekstri atvinnuveganna og ríkisins, án nýrra skatta, ef kaup yrði almennt lækkað um 6% eða sem svaraði hækkun þeirri, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hafði nýlega knúið fram. Þetta þýddi raun- verulega, að kaupmáttur launa gæti haldist hinn sami og hann var í október 1958, eins og Framsóknarmenn höfðu lagt til í vinstri stjórninni, að stefnt yrði að. Þessi kauplækkun, sem hagfræðingar Sjálfstæðis- flokksins töldu nauðsynlega, var svo framkvæmd í febr- úar 1959. Kaupgjaldi var þá raunverulega komið í það horf, sem samræmdist getu atvinnuveganna og ríkissjóðs, eins og hún var, þegar vinstri stjórnin lét af völdum. Kaupmáttur launanna varð eftir þessa lækkun, svipaður og hann hafði verið í október 1958 og hélzt svo allt árið 1959. Reynslan sýndi þannig, að sú stefna hafði verið raun- hæf og vel framkvæmanleg, er Framsóknarmenn beittu sér fyrir, er vinstri stjórnin rofnaði. Upplýsingar, sem síðar hafa komið fram, sýna einnig, að þessu ástandi hefði mátt halda áfram, þannig að kaup- getan hefði ekki þurft að minnka frá því, sem hún var í október 1958 eða febrúar 1959. Það blasir hins vegar við nú, að kaupgetan hefur minnkað um 15—20% síðan í október 1958, auk þess, sem kjör margra hafa skerzt vegna stórminnkaðrar eftir- vinnu. Hvað veldur þessu? Fyrst og fremst það, að með „viðreisninni“ í fyrra- vetur, var tekin upp alröng efnahagsstefna. í stað þess, að halda ástandinu sem mest óbreyttu, t. d. þannig, að gengislækkunin hefði ekki verið öllu meiri en svaraði yfirfærslugjaldinu og hóflega hefði verið dregið úr ó- eðlilegri fjárfestingu, var gerð stökkbreyting, sem stefndi fyrst og fremst að breyttu þjóðskipulagi — þ. e. skipu- lagi hinna fáu ríku og mörgu fátæku. Gengið var lækk- að úr hófi fram, bætt var ofan á gengislækkunina stór- felldum nýjum sölusköttum, teknir voru upp okurvextir og dregið hóflaust úr bankalánum. Afleiðing þessarar heimskulegu og afturhaldssömu aðgerða er sú, að lífs- kjörin hafa stórversnað, afkoma atvinnuveganna hefur stórversnað og við blasir, ef þannig heldur áfram, að fjöldi manna missir eignir sínar. En þá rennur líka upp blómatími hinna fáu ríku til þess að klófesta þær. ,,Viðreisnin“ er þannig meginorsök þeirra vandræða, sem nú er glímt við. Jafnvel þótt nú væri snúið við, yrði það erfitt við- fangs. Það er auðveldara að eyðileggja með samdráttar- I stefnu en að rétta við aftur. Þetta sést vel í Bandaríkj- unum, þar sem hinni nýju stjórn ætlar að reynast full- erfitt að vinna bug á atvinnuleysinu. En erfiðleikarnir við það að rétta við aftur, verða þó því verri, sem það Lippmann ræðir við Krútsjoff: 3. grein Krútsjoff legpr megináherzlu á að Þýzkalandsmálin verði leyst Hér birtist þriðja og síðasta grein Lippmanns um viðræð- ur hans við Krútsjoff og er hér Þýzkalandsmálið fyrst og fremst tekið til meðferðar. EFTIR langar viðræður var -mér orðið það fullljóst, að framtíð Þýzkalands var í augum Krútsjoffs það vandamál nú, sem mest áríð- andi væri að finna lausn á. Aðeins með lausn þess yrðu opnaðar leiðir til frekari samninga á öðr- um sviðum. Þetta var lykilmál. Ég reyndi fyrst að skilja, hvers vegna hann teldi Þýzkalandsmálið svo áríðandi, og siðan spurði ég forsætisi'óðherrann, hvort ekki gæti verið hagstætt að halda ó- breyttu ástandi í 5—10 ár, þar sem samokmulag virtist hvort eð vera svo langt undan. Þetta sagði Krútsjoff að værri með öllu ó- mögulegt. Hvers vegna? Vegna þess, sagði Krútsjoff, að við verð- um að hafa fundið lausn á Þýzka- landsmálinu, áður en herforingj- ar Hitlers með sínar 12 NATO- hei'edildir fá kjarnorkuvopn frá Bandaríkjamönnum eða Frökkum. Áður en þetta gerizt, hélt forsæt- isráðherrann áfram, verður að vera búið að undirrita friðarsamn- ing, þar sem ákveðin eru landa- mæri Tékkóslóvákíu og Póllands og staðfest tilvera Austur-Þýzka- lands sem ríkis út af fyrir sig. Ef þetta verður ekki gert, mun Vest- ur-Þýzkaland draga Atlantshafs- bandalagið með sér út í styrjöld til þess að ná Austur-Þýzkalandi á sitt vald og endurheimta hin gömlu landamæri í austri. Það liggja sem sagt tvær ástæð- ur til þess, að Krútsjoff telur svo nauðsynlegt að hraða lausn Þýzka- landsmálsins. í fyrsta lagi vill hann tryggja tilveru hins komm- únistíska Austur-Þýzkalands, og í öðru lagi telur hann nauðsynlegt að gera þetta, áður en endurher- væðing hefur átt sér stað í Vestur Þýzkalandi. Krútsjoff sagði hvað eftir annað, að hann myndi brátt æskja umræðu um Þýzkalandsmál- ið. Það verður' að teljast augljóst,1 að Vestur-Þýzkaland mun ekki hafa yfir að ráða kjarnorkuvopn-! um fyrst um sinn. Bonnstjórnin hefur enn ekki slík vopn, en ekki j er hægt að ganga fram hjá þeirri staðreynd, að hún hefur mögu-1 leika til þess að fá þau í hendur. En hvað, sem því líður, væri tæp- lega sú hætta á ferðum, að öi'fáir mánuðir réðu úrslitum. Við hljót- um því án mikils efa að álykta, að fyrsta ástæðan til þess, að Krút- sjoff vill flýta lausn Þýzkalands- málsins liggi í því að fá staðfest- ingu á tilveru Austur-Þýzkalands sem sjálfstæðs ríkis, ekki hvað sízt með tilliti til flóttamanna- straumsins þaðan. ÞAÐ var og skoðun mín, að' Krútsjoff væri staðráðinn í og e.1 t.v. óafturkallanlega skuldbund- inn til þess að setja Þýzkalands- málið á oddinn. En jafnframt var augljóst, að hann óttaðist hina miklu spennu — og vitnaði til þess hvað eftir annað — og leitar stöðugt fyiir sér um samninga, ! er' gætu komið til leiðar frestun og einhverri málamið'lun. Eins og hann ræddi þetta mál skein í gegn, að hann taldi þrjár leiðir hugsanlegar til lausnar. Hin fyrsta er sú, sem Krútsjoff álítur raunverulega lausn og e.t.v. ' náist samkomulag um. Hins vegar er nú svo komið, að hann gerir sér litlar vonir um, að Vestur- I veldin muni fallast á þessa leið, ! en hún er í stuttu máli þessi: Austur- og Vestur-Þzkaland verða ekki sameinuð að nýju. Vesturveld in munu ekki samþykkja samruna við kommúnískt Þýzkaland, og Sovétríkin samþykkja ekki að Vestur-Þýzkaland fái að gleypa og eyðileggja Austur-Þýzkaland. Tvö þýzk ríki eru fyrir hendi. Það er staðreynd. Það verður því að halda þann veg áfram að staðfesta þetta ástand og gera síðan friðar- samninga við Austur-Þýzkaland, Vestur-Þýzkaland og Vestur-Berl- ín. Þetta eru nú, sagði Krútsjoff, hinar þrjár fmmeindir Þýzka- lands. Þessi skipan myndi hafa í för með sér de facto viðurkenningu á Austur-Þzýkalandi, enda þótt það hlyti ekki stjórnmálalega viður- kenningu. Með alþjóðalögum yrði staða Vestur-Berlínar sem fríborg- ar staðfest. Frjálsra samgangna við borgina og innra öryggi henn- ar yrði gætt með nálægð franskra brezkra, bandarískra og sovézkra hersveita auk hlutlausra hersveita á vegum S.Þ. og með undirskrift þýzku ríkjanna beggja og her- námsveldanna fjögurra. EINS OG ég hef þegar getið um, býzt Krútsjoff ekki við, að sam- komulag náist um þessa lausn. Hann hefur því aðra tillögu til vara, en hún er nær óbreytt frá þeirri tillögu, er Sovétríkin báru fram á fundi utanríkisráðherra stórveldanna í Genf um Þýzka- landsmálin. í þessaii tillögu er krafizt tímabundins samkomulags. Frá sjónarmiði Vesturveldanna á hér að vera um skamman tíma að ræða, eða 2—3 ár. Á þessum tíma skal hinum þýzku ríkjum boðið að reyna samkomulag um einhvers konar sameiningu, jafnvel lauslegt ríkjasamband. Þetta síðastnefnda fannst mér ég geta lesið úr orðum Krútsjoffs, enda þótt hann segði það ekki berum orðum. Ef svo við lok þessa tímabils hefur náðst sam komulag um stöðu Vestur-Berlínar í anda þess, er ég hef þegar greint frá, verður gert ráð fyrir bor'g- inni sem aðila að frekari samn- ingum. Ef ekkert samkomulag liggur hins vegar fyrir við lok þessa tímabils, fellur úr gildi laga- legur réttur heinámsveldanna í borginni. EF NÚ hvorug þessara tillagna fæst samþykkt, hefur Krútsjoff þriðju leiðina í huga. Hún er sú, að hann undirriti sérstakan friðar- sáttmála við Austur-Þýzkaland eitt. Ef til þessa kæmi, lítur Sovét stjórnin svo á, að Austur-Þýzka- land hafi í hendi sér allar sam- göngur við Vestur-Berlín. Ef Vest- urveldin neita eftir sem áður að semja við Austur-Þýzkaland og beita valdi til þess að halda uppi dregst lengur. Þess vegna verður þjóðin að knýja fram, að nú þegar verði snúið við aftur, og fyrst verði stefnt að því, að ástandið verði ekki lakara en það var t. d. í október 1958. samgöngum við Vestur-Berlín, mun Sovétstjórnin nota Rauða her inn til þess að loka öllum leiðum til Vestur-Berlínar. Enda þótt það væri heimskulegt að vanmeta þessa ákvörðun, er þó hótunin ekki jafnalvarleg og hún kann að þljóma. Krútsjoff vill á- reiðanlega ekki beita hervaldi ,og hann notar ekki strangt heldur mjög sveigjanlegt orðalag í sam- bandi vio áðurnefnda samninga Vesturveldanna og Austur-Þýzka- lands. ÉG HEF í framanskráðu taka- markað frásögn mína við skilning minn á stefnu Sovétstjórnarinnar í Þýzkalandsmálunum eins og þessi stefna hefur virzt mér. Leyf- ist mér að setja fram persónuleg- ar skoðanir í þessu sambandi, vil ég leggja áherzlu á þessi atriði: f fyrsta lagi mun Krútsjoff ekki láta til skarar skríða og stofna til vandræða, fyrr en eftir að hann hefur fengið tækifæri til þess að ræða persónulega við Kennedy forseta. f öðru lagi mun Krútsjoff ör- ugglega gera sérstakan friðarsamn ing vig Austur.-Þýzkaland, ef hann fær ekki fram samkomulag um tímabundna málamiðlun, sem hann gerir ráð fyrir skv. annarri tillögu sinni, er rakin hefur verið hér að framan. f þriðja lagi munu þau atriði ráða úrslitum um, hvort Þýzka- landsmálin verða leyst með samn- ingum eða verða að enn meiri vanda en nú er, hvort vaxandi eða minnkandi líkur verða til þess að Vestur-Þýzkaland fái vetnisvopn, og hvort við höldum fast við það, að frelsi Vestur-Berlínar, sem við höfum skuldbundið okkur að á- byrgjast, verði aðeins varðveitt með því að neita að semja um framtíð borgarinnar. FRÁ ÞVÍ, er ég kom til Lund- úna frá Sovétríkjunum eftir þessa sögulegu heimsókn hefi ég hvað eftir annað verið um það spurður, hvort heldur mér hafi fundizt við- ræður mínar við Krútsjoff vera uppörvandi eða hið gagnstæða. Svar mitt er þetta: Mér fannst vera mælt af hreinskilni. Annars vegar finnst mér augljóst og er sannfærður um, að Sovétiíkin undirbúa ekki styrjöld og vinna einlæglega að því að koma í veg fyrir meiriháttar vandræði, hvort heldur er í Laos, á Kúbu eða í Þýzkalandi. Þau vilja alls staðar varna því, að slíkt vandræðaástand kunni að skapast, að ekki verði við neitt ráðið. Á hinn bóginn er enginn vafi á því að efla eftir mætti byltingahreyfingar í van- þróuðum löndum. Þessi ófrávíkj- anlega ákvörðun stafar af þeim einlæga átrúnaði valdhafanna, að hinum vanþróuðu ríkjum séu fyrir fram ætluð þau örlög, að taka upp kommúnistískt stjórnarfar. Sovét- stjórnin ber mikið og einlægt traust til hernaðarmáttar síns. en hún lítur Rauða herinn ekki þeim augum, að hann sé tælci til þess að leggja heiminn að fótum Sovét- ríkjanna, heldur vörn gegn íhlut- un Bandaríkjanna til þess að reyna að sporna gegn óhjákvæmi- legri þróun — fyrir fram ákveð- inni heimsbyltingu. Ég varð á margan hátt fróðari eftir þessar viðræður — ekki hvað sízt vegna þess, að ég er viss um, að við ræddumst við í einlægni og ekki var reynt að blekkja.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.