Tíminn - 27.04.1961, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.04.1961, Blaðsíða 7
VETT'WA.NIaUR ÆSKUNNAR RITSTJÓRI: JÓN ÓSKARSSON ÚTGEFANDl: SAMBAND UNGRA FRAMSOKNARMANNA TÍMINN, fimmtudaginn ... apríl 1961. Herinn hverfi af landi brott Ef heppnin er með? Framsóknarflokkurinn hefur á undanförnum áratug- um gegnt forystuhlutverki í íslenzkum stjórnmálum. Hann hefur stutt og barizt fyrir hverju því máli, sem til hags- bóta hefur mátt ver8a fyrir þjóðina. Hann hefur stutt sam vinnuhreyfinguna og verka- lýðssamtökin í baráttu þeirra fyrir þeim bættu lífskjörum, sem þjóðin hefur öðlazt á und anförnum áratugum. Hið glæsi lega framfaratímabil, sem nú er að baki, er ekki hvað sízt tímabil Framsóknarflokksins. Svo sem getið var í síðasta Vettvangi, er aðalfundi sambandsstjórnar S.U.F. nýlokið. — Vettvangurinn hef- ur góðfúslega fengið leyfi formanns S.U.F. til að birta lokaorðin í skýrslu þeirri, er hann flutti fundinum. tökin og samvinnuhreyfing- una, sem hvort tveggja hafa átt drýgstan þátt í að skapa þjóöinni þau lífskjör, sem hún hefur búið við að undan förnu. Framsóknarflokkurin'n er eini öfgalausi vinstriflokk lurinn í landinu, þar sem at- vinnuþiggjendur og atvinnu- ■ veitendur geta tekið hönd- ! um saman. Nokkur atriði úr skýrslu formanns S.U.F. ÖRLYGUR HÁLFDÁNARSON, formaður S.U.F. Um þessar mundir eru veð- ur válynd í íslenzkum stjórn málum. Hver holskeflan á fætur annarri ríður yfir hið íslenzka þjóðfélag. Öfl aftur- halds og einokunar hafa setzt að völdum með þeim afleið- ingum, sem hvarvetna blasa við. Þessi óheilla öfl hyggj- ast taka aftur af almenningi allt það, sem áunnizt hefur í lífskjarabaráttu hans síð- ustu árin. Völdin og eignirn ar hyggjast þessi öfl nú færa aftur á fárra hendur. Sú ó- gæfa hefur hent Alþýðuflokk inn að gerast afturhaldssam- asta deild íhaldsins og hverfa algjörlega frá uppruna sln- um. Alþýðuflokkurinn, sem á sínum tíma gegndi merkilegu hlutverki í kjarabaráttunni lýtur senn þeim örlögum að hverfa algjörlega af sjónar- sviðinu. Þjónkun kommúnista við erlent vald dæmir þá al- gjözlega frá forustu í málum hinna vinnandi stétta og um hinn svokallaða Sjálfstæðis- flokk þarf vart aö fara mörg um orðum. Hin réttu eyrna- mörk hans koma alltaf fram undan dulargerfinu, hversu mikið sem reynt er að fela þau. Framsóknarflokkurinn hef- ur ætíð stutt verkalýðssam- Ungir Framsóknarmenn mótmæla ráðstöfunum ríkis- stjómarinnar í efnahagsmál- um og þeirri skerðingu lífs- kjara, sem þær hafa í för með sér. Ungir Framsóknarmenn mótmæla svikum ríkisstjórn- arinnar í landhelgismálunum og fordæma alla undanláts- semi við erlendar þjóðir, jafnt í austri sem vestri. Ungir Framsóknarmenn vilja að varnarsamningnum sé sagt upp og að hinn er- lendi her hverfi úr landinu þegar í stað, en að kappkost- uð sé góð samvinna við allar þjóðir, einkum þær sem okk ur eru skildastar menningar- og stjórnarfarslega. Ungir Framsóknarmenn munv, var'öa braut Fram- sóknarflokksins og styðja hann í farsœlli vinstri- stefnu, stefnu framsóknar, fmmfara og frelsis. Innan skamms verður veltuhappdræíti F.U.F. í Rvík hleypt af stokkunum. Margir góðir vinningar eru í boði og má þar á meðal nefna ferð á hina glæsilegu tónlistar* tónlistarhátíð í Edinborg, ásamt ferð um skozku há- löndin, sem eru rómuð fyrir fegurð. Áformað er, að dregið verði í happdrættinu þrisvar á þessu ári og fá þeir, sem þátt taka í öll skiptin, félags- skírteini F.U.F. í kaupbæti. Nokkrir fundarmanna á aöalfundi sambandsstjórnar S.U.F. Gera þarf úttekt á íhaidsand- stæðingum, sem íhaldið hrósar Eftirfarandi bréf barst Vett- vangnum ekki alls fyzir löngu. | Við birtum bréfið ýmsum til i umhugsunar. Ég sá núna á dögunum grein í ísafold, sem var eftir Pál Kolk-a, og fór að rælni að lesa hana. Þetta var, eins og Um nokkurt skeið hefur verið starfrækt niálfundanámskei'ð í Hafnarfirði á vegum F.U.F. þar. Leiðbeinandi á námskeið'inu hefur verið Hörður Gunnarsson, erindr. S.U.F. Námskeiðinu lauk sl. fimmtudag. Þá mættu á námskeið inu Jón Skaftason, alþm. og Guð- mundur Þorláksson, form. Fram- Málfundanámskeiði FUF I Hafnarfirði lokið sóknarfél. Hafnarfjarðar. Arnór Valgeirsson mætti af hálfu S.U.F. Fluttu þeir allir ávörp. Þátttak- endur færðu leiðbeinanda að gjöf ljósmynd af Hafnarfirði. Að lok- um var þátttakendum og gestum námskeiðisins boðið til kaffi- drykkju. vænta mátti, órökstudd skammargrein af mjög svo subbulegri tegund og þarf ekki að lýsa því frekar, en hún hófst á þessum orðum:. „Lífið væri miklu'einfaldara ef maðurinn hefði enga sál“. Af þessu tilefni urðu til þrjár vísur og set ég þær hér til gamans. Það er, vona ég, frek ar stutt ræða, en mér skilst að sumír á stjórnarheimilinu vilji hafa ræður stuttar. Ég var að lesa eftir Pál, því enn er karl að skrifa að, ef menn hefðu enga sál einfalt væri að lifa. Eigi veit ég um hann Pál en það finnst í sögum, að ekki höfðu allir sál áð'ur fyrr á dögum. i j Þetta skýra má það mál, ! að maöurinn ekkert víti j hræðist, fyrir herra Pál hann þó liðugt kríti. | Þetta er lítið tilefni til skriftar en ég vil líka geta þess, að í þessari sömu grein gamla læknisins, segir hann að yngri framsóknarmennirn ir séu mikið verri en þeir 1 gömlu. Þetta gladdi mig. — Ekki af því að ég er orðinn gamall, heldur af því að mér finnst jafnan þurfa, og auð- vitað án allra hleypidóma, að gera eins konar úttekt á þeim íhaldsandstæðingum, sem verða fyrir þeim ósköpum að íhaldið fer að hæla þeim, þó í litlu sé. Með beztu árnaðaróskum til ungu Framsóknarmannanna. Þórarinn Þorleifsson, Skúfi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.