Tíminn - 27.04.1961, Page 11

Tíminn - 27.04.1961, Page 11
T.ÍM3NN, fimmtudaginn Jt%. aprfl !961, Nýjar fréttir af hinu og þessu 1717 svarar ekki meira Símanúmerið Vín 1717 svarar eki framar. — Þetta númer hef- ur áratugum saman verið frægt víða um heim, því með því að hringja í það, gátu menn fengið nýjasta brandarann í Vín, nýjan á hverjum degi. Austurríski síminn hefur ým- iss konar þjónustu þessu svipaða á staifsemi sinni. Það er hægt að fá matseðilinn í veitingahúsinu, sem maður ætlar að fara á, það er hægt að fá fallegar sögur til að segja litlu bömunum, áður en þau fara að sofa, verðið á kál- inu á grænmetismarkaðinum, nýjustu fréttir, o.s.frv., en ekki fleiri brandara. Yfiimaður símans segir, að það sé ekki vegna þess, að svo fáir hringi í númerið, að þetta hefur verið lagt niður. Það eru erfiðleikarnir við að finan góðan brandara á hverjum degi, sem hefur bundið enda á starfsemi 1717. — Það er svo fátt skemmti legt, sem gerist nú á dögum, seg- ir hann að lokum. Vinir og ættingjar Kennedys Það er athyglisvert, að svo til allir karlkyns ættingjar og vinir Kennedys Bandaríkjaforseta hafa fengið vinnu hjá hinni nýju stjórn. Það var þess vegna, sem Demokratinn Herbert Legg frá Seattle Iét sér eftirfarandi um munn fara: Kennedy er eins og Englend- ingur að því leyti, að hann hefur mjög ákveðhar hugmyndir um vini sína og ættingja. Hann veit, að vinir hans og ættingjar eru hæfir til vandasamra starfa, — ella væru þeir ekki vinir hans og ættingjar! Lítil sala ! benzíninu Maður, sem er nýkominn heim eftir farðalag í Bandaríkjunum, segist hafa séð spjald við benzín- stöð í Georgíafylki með þessari athyglisverðu áletrun: VIÐ SELJUM EKKI BENZÍN Á IIELGUM DÖGUM — OG ALLTOF LÍTIÐ Á VIRKUM DÖGUM Hæsta flughöfn Evrópu Hæsta flughöfn Evrópu — og sú fyrsta í heimi, sem gerð er uppi á jökli— er nú nærri full- gerð. Hún er í Alpafjöllunum, skammt austan við Genfarvatn. Þessi flughöfn, sem einkum mun ætluð skíðamönum og jöklaför- um, er í 3000 metra hæð yfir sjávarmáli. Skíðamennirnir og jöklafararnir geta komizt með flugvélum alla leið upp á jökul- inn, og langi þá að' skreppa niður í bæina fyrir neðan. Lausanne, Vevey og Montreux, geta þeir skroppið það með svifbrautum, sem í þremur áföngum flytja far- þegana niður í 1500 metra hæð. Vegna þess, hve flugvöllur þessi er ofarlega, er loftið orðið mun þynnra en á jafnsléttu, og þess vegna verður að hafa lendingar- brautirnar lengri en venjulegt er í hinum stóru, alþjóðlegu flug- höfnum. En þess í stað er búizt við óvenju stöðugu og góðu veðri þarna uppi. Gjafirnar sótthreinsaðar Ef dæma skal eftir póstinum, sem honum berst, er John Kenn- edy vinsælasti forsetinn, sem setið hefur í Bandaríkjunum. Hann fær hvorki meira né minna en 30 þús. bréf á dag. Meira að segja Ike komst aldrei hærra en í 15 þús. bréf á dag — sem sagt ekki nema hálfdrætt- ingur við Kennedy, jafnvel ekki meðan han var vinsælastur. Og einkaritari frú Kennedys fær einnig álitlegan búnka bréfa til að svara, þar af svo sem 30 á dag á frönsku. Og Carolína litla fær einnig sitt. 300 bréf á viku og sand af gjöfum, sem öryggis- eftirlitið hefur þó harla mikinn ýmugust á. Canolína litla fær engar gjafir afhentar, fyrr en bú ið er að gegnumlýsa þær með röntgengeislum. Stálu benzíni á stol- inn bíl til að keyra á þýfi Sjálfsalaeigendur á Norður- Sjálandi áttu ekki sjö adgana sæla nú fyrir skemmstu. Dag eftir dag voru sjálfsalarnir fullir af fölskum tveggja krónu pen- ingum, og búið að hirða úr þeim allt það, sem átti að færa tekj- urnar. Það var ekki fyrr en búið var að ræna 43 sjálfsala á þenn- an hátt, að lögreglan hafði hend- ur í hári ræningjanna, og reynd- ust það vera hjón. Bil höfðu þau undir ránsfeng sinn, en hann var stolinn líka. Og til þess að kór- óna allt saman, höfðu þau ekið honum 5000 km vegalengd — og stolið öllu bensíninu, sem til þess þurfti! Aladrgamall þræll kvænist í 8. sinn Það var einkennilegt brúð- kaup, sem haldið var í kapellu einni í Chicago í síðustu viku. Þar giftust þau Cornelius Hanks Williams Jones og Annie Wardne. Annie er 72 ára að aldri. En það sögulega við brúð- kaupið' var það, að brúðguminn er fyrrverandi þræli, og kvæntist nú í áttunda sinn. Hann er ná- kvæmlega 100 ára gamall. Nú er veturinn giftusamtega liðinn, og vlS flýtum okkur að galopna gluggana til þess aS hleypa sólskinlnu Inn. ÞaS er ekki amalegt veSrið þessa dagana. Er hættulegt að anda djúpt við sjóinn? Sýnishorn aí bréfaskriftum í Bandaríkjunum Flest tímarit ,sem vilja telja sig með þeim betri, hafa svokallaða bréfakassa, sem svara til Póstsins í Vik- unni hér, þar sem fólk getur fengið lausn á ýmsum vanda- málum sínum og komið sumu á framfæri, sem ekki fellur sérstaklega undir annan lið. Oft eru þessi bréf harla hlægileg, séð frá sjónarhóli móttakandans, bæði vegna skrýtilegs ritháttar og fram- sagnar, auk furðulegra hug- mynda, sem skjóta upp koll- inum. En fleiri fá undarleg og bros- leg bréf en blöðin. Bandarískur höfundur hefur gert sér það til dundurs að taka saman heil þannig bréf og brot úr öðrum, og gefið þau út, almenningi til skemmtilesturs. Hér á eftir fara nokkur bréf úr bók hans, sem hann kallar Kæri læknir. Bréfin eru í bréfasafni nokkurra banda- rískra lækna, sem gáfu honum leyfi til þess að hnýsast í safnið: Kæri læknir. Hvað á ég að gera? Ég hef á- hyggjur út af syni mínum, því að hann hefur áhyggjur af því, að ég hafi áhyggjur út af honum. N.O. Kæri læknir. Þér sögðuð mér að fara til sál- fræðings. Getur hann læknað mig í fötunum? Juanita. Kæri læknir. Pabi minn, sem er 60 ára, er að missa tennurnar, og það sama er að 6 ára syni mínum. Getur það verið, að gamli maðurinn hafi smitað hann? J.D. Kæri læknir. Mér líður ekki vel. Hvernig lýsa þessir nýju sjúkdómar sér? Lísa. Kæri læknir. Ég stama afskaplega mikið. Getið þér læknað mig af því, áð- ur en strákurinn, sem ég er með, kemst að því? Fanny. Kæri læknir. Eins og yður rekur ef til vill minni til, ráðlögðuð þér mér að forðast salt. Nú langar mig að spyrja yður að því, hvort það myndi vera hættulegt fyrir mig að anda djúpt, þegar ég er við sjóinn? John. Kæri læknir. Eftir allt, sem þér gerðuð við mig, varð' ég loksins ófrísk. Inni- legar þakkir. Winnie E. Kæri læknir. Ég þarf að panta hjá yður tíma til tannviðgerða. Það skal tekið fram, að skemmdin er mjög lítil, og ég vonast til, að reikningur yðar verð'i af sam- bærilegri stærð. Virðingarfyllst Lester D. Kæri læknir. Ég þjáist af svefnsýki. Ætti ég að taka mér frí og sofa hana úr mér? R.N. Kæri læknir. Mér þykir fyrir því, að ég hef ekki handbæra peninga til þess að borga yður núna. — Þér setj- ið skemmda nýrað vonandi ekki í mig aftur fyrir því? Harvey C. systkinin sfn, þegar mamma er aS verzla, ekki hvaS sízt, þegar maS- ur þarf líka að hugsa um litla brúðu í vagni . . .

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.