Tíminn - 30.04.1961, Blaðsíða 12
12
T I M I N N, sunnudagnm 30. april 1961.
Rabbað við Magnús Stefánsson sjötugan
(Framhaid af 6 síðu)
lafandi skottið. Að vísu gat ég
fengið góða jörð og ágætan bú-
stofn. En það kostaði æma pen-
inga og ekki viðlit að fá lán. Bank
inn gaf mér það svar að nú mætti
ekki lána í landbúnað .aðeins út-
gerð. Ég fór til Eskifjarðar í úti-
búið þar, fékk sömu svör. Og þar
var búið að lána út alla peninga
í smávíxlum sem ekki fengust inn
heimtir. Ég skrifaði bankanum í
Reykjavík, þeir skrifuðu mér aft
ur og sögðu mér að það væru
útibú á Seyðisfirði og Eskifirði.
Svo fór ég suður.
Malarastörf og húsakaup
— Hvað tók þar við?
— Þá hafði mjólkurfélagið ný-
lega keypt kornmyllu til landsins,
Mn var höfð í húsi við Vatnsstíg.
Ég réðist til þeirra sem malari og
hélt það út í 2 ár. Það er versta
vinna sem ég hef komizt í. Ég
varð oft að vinna á nóttunum, því
við höfðum ekki undan að mala.
Þarna voru fjórar dyr opnar all-
an daginn, kornið var flutt þar út.
En af þessu varð mikið ryk og
ég varð vondur fyrir brjósti. Mér
fannst orðið erfitt að standa í
þessu hvíldarlaust og leitaði til
læknis. Hann skipaði mér að
hætta. Og þá fór ég í Ríkið. Þar
var ég í 7 ár, fram til ársins 1935.
Ég réðst i að kaupa lítið hús hér
í Laugarásnum þegar ég kom suð-
ur, það kostaði 7000 krónur en
ég átti ekki eyri. Þá fór ég á
fund Magnúsar Sigurðssonar
bankastjóra og hann lánaði mér
5000 krónur fyrir útborguninni.
Næsta ár átti ég að standa í skil
um með afganginn en átti ekki
eyri. Ég fór til Magnúsar á ný
og bar mig upp við hann. Magnús
•$agði mér að koiha á mörgunn
Eg fór heim í þungum þönkum
og þá tók konan á móti dauð-
skelfd. Sagði mér að þarna hefðu
komið tveir menn um daginn,
gengið allt í kringum húsið og
gert alls konar mælingar. Hún
þóttist sannfærð um að nú ætti
að taka kofann lögtaki. — Næsta
dag fór ég til Magnúsar, Iánið
fékk ég og það kom í Ijós að menn,
irnir tveir höfðu verið frá hon-
um.
Hinir fimmtán ofnar
stjórnarráðsins
— Þú starfaðir við nýja dag
blaðið?
— Það var ekki nema stutt,
tvö ár. Raunar átti ég ekki að
vera lengur en nokkra mánuði.
Og árið 1938 gerðist ég dyra- j
vörður í Stjórnarráðinu. Ég ætl-
aði aldrei þangað inn, ég var eig-
inlega rekinn í þetta. Og mér|
leiddist svo í fyrstu að ég var
alveg að verða snarvitlaus. Til
marks um það er lítið dæmi: Ég
tók dálítið í nefið og átti gríðar-
stórar silfurdósir sporöskjulagað-
ar. Ég skipti við Jón í tóbaks- 1
búðinni Havana. „Þetta er
í þriðja sinn sem þú kemur í dag
að fá í dósimar", sagði Jón við
mig og var alveg gáttaður á því t
hvað ég gat i mig látð.
Og launin voru heldur lág. En.
við hjónin rákum dálítinn búskap
um þetta leyti. Höfðum 6—8 belj-
ur og um 600 hænur. Krakkarnir
unnu við þetta með okkur en þó
bitnaði það fyrst og fremst á kon-
unni .Þetta var ákaflega erfitt því |
ég þurfti að vera kominn niðuri
eftir kl 9 og þá voru ekki strætis
vagnarnir úr Laugarásnum. Þar
við bættist að ég var oft að flækj
ast í félagsmálum í bænum og þá
varð ég að vita af konunni bera
vatn í gripina. En samkomulagið
var gott og við gengum að þessu
með oddi og egg, strákamir fóru
að slá um leið og þeir náðu niður
á spaðann á sláttuvélinni.
Seinna fluttum við í lítinn bú-
stað bak við stjórnarráðið og höfð
um fría husaleigu, ljós og hita. Þó
var þar galli á gjöf Njarðar, kola-
geymsla stjórnarráðsins var undir
hjónaherberginu og upp úr klukk
an fjögur á hverjum morgni fóru
stúlkurnar að brjóta þar kol í
þessa 15 ofna stjórnarinnar. Eftir
það var náttúrlega ekki svefnfrið-
ur og einkum lagðist svefnleysið
þungt á konuna.
Heiðursmenn í fasteignamati
— Urðu engin skemmtileg atvik
í dyravarðarstarfinu?
— Ekki svo að í frásögur sé
færandi, mitt starf var aðallega
í því fólgið að leiðbeina gestum
sem áttu erindi í stjórnarráðið.
Um eitt skeið hafði ég aukastarf
á hendi, var skipaður í fasteigna-
mat ásamt tveimur velmetnum
og virðulegum borgumm sem þá
voru orðnir heldur aldurhnignir
og búnir að lifa sitt fegursta. í
fyrsta sinn sem við fómm út, kom
í Ijós að annar þeirra var því sem
næst blindur, hann sá ekki hvort
vom gluggar á húsi sem við stóð-
um við. -Hinn hafði góða sjón en
gat ekki unnið nema hálftíma í
einu, eftir það fór hann bara að
fletta blöðunum í bókinni fram
og aftur. Þar við bætist að sá
blindi var sífellt að leita aðstoðar
hans og hjálpar, svo vinnan gekk
heldur treglega. En þetta vora
báðir heiðursmenn.
★
Nú hefur Magnús reist sér stórj;
og vandað hús ásamt börnum sín
um og tengdabörnum í Laugar-
ásnum og gamli kofinn sem kost-
aði 7000 krónur stendur í hlað-
varpanum, heldur umkomulaus
innan um reisn nýja tímans. Það
er lærdómsríkt að virða fyrir sér
afmælisbarnið, sem eitt sinn stóð
sólarhringinn allan yfir fé .kirtla-
sjúkur með innfallið brjóst og sár
sem aldrei greri. Það er erfitt að
ímynda sér að hér standi þessi
sami smaladrengur, sjötugur ung
lingur .hávaxinn og teinréttur,
léttur á fæti, glaðlegur og hýr,
meðan hann lætur hugann reika
og það snarkar þægilega í pípunni
hans.
Jökull.
Fljótum ekki sofandi
(Framhaid aí 5. síðu.)
eða til að afla lýðhylli, þar sem
stórir hópar fólks koma saman, er
ekki alltaf það, sem fólkið vantar.
Loforð, sem gefin em við slík
tækifæri, vilja því miður alltof oft
gleymast.
Staðreynd er það, að þegar sér-
stök tilefni gefast, eins og t.d. á
þeim dögum, sem hinar ýmsu stétt
ir hafa valið sér að baráttu- og
hátíðisdögum, þá er fólkið stéttvís-
ara en ella. Menn staldra þá gjarn-
ann við, líta til baka og fram á
veg. Brjóta vandamálin til mergj-
ar. Komast að ákveðinni niður-
stöðu, um orsakir, afleiðingar og
útbætur.
Síðan líður hið sérstaka tilefni
framhjá. Lífið færist aftur í sinn
vana reglubundna farveg. fhyggli
manna og þörf til að brjóta vanda-
málin til mergjar minnkar, orsak-
ir og afleiðingar gleymast, og úr-
bætur korna aldrei til fram-
kvæmda.
Þetta er rifjað upp nú í dag,
til að undirstrika í meðvitund
manna, þann sígilda sannleika, að
orsakir þess, hvað íslenzkum verka
lýð hefur sótzt hægt á braut til
bættra lífskjara, miðað við þá bar-
áttu, sem að baki er, liggja í því,
að stéttvísi verkalðýsins hefur
ekki verið nægilega mikil. Orð og
athafnir hafa ekki farið saman.
Stéttvísina hefur aðeins verið að
finna á hinum stóru stundum. Þess
á milli hafa ýmiss konar persónu-
leg sjónarmið, velvilji til atvinnu-
rekandans, eða þægð við flokks-
forustuna, ráðið meiru um afstöðu
manna.
Þetta er rifjað upp til að minna
á það, að því aðeins er að vænta
jákvæðs árangurs af starfi, að
1. MAÍ
1961
Álþýðusamband Islands
flytur öllum sambandsfélögum
sínum og' öðru landsfólki beztu
árnaðaróskir í tilefni dagsins.
MiÖstjórn Alþýðusavibands Islands
Orgelfréttir
Lindholm kirkjuorgel
hafa 3—19 raddir og 14—33
registur. Þau hafa reynzt prýði
lega t íslenzkum kirkjum, enda
eiga bau að þola alls konar
loftslag og mishituð húsakynni.
Nánan vitneskja fæst hjá
undirrituðum.
Elías Bjarnason,
sími 14155.
Framtiðarlandið
segja margir að sé bezta
bók Vigfúsar. Eignist þessa
fróðlegu og skemmtilegu
ferðabók meðan þess er
kostur.
Bifreiðasala
Björgúifs Sigurðssonar —
Hann selur bíiana. Simar
18085 — 19615
starfið sé þrotlaust og sjálfu sér
samikvæmt, og það sé ekki látið
viðgangast, að það sé rifið niður
í dag, sem byggt var upp í gær.
Það verður aldrei of oft brýnt
fyrir þeim verkamönnum og þeim
verkakonum, sem telja sig vita
hverjar orsakir liggja til þess, að
þeirra launakjör og lífsafkomu-
möguleikar eru miklu lakari en
gerist í nálægum löndum, hverjar
afleiðingar sú þróun muni hafa í
för með sér, og hverra úrbóta sé
kostur, að það er heilög skylda
þeirra, að fljóta ekki sofandi að
feigðarósi.
Hinir, ef einhveijir em, sem
ekkert sjá að í þessum efnm, leita
engra orsaka, skynja ekki afleið-
ingar og teija því úrbóta ekki
þörf, — þeim ber að halda að sér
höndum, og hafast ekkert að. En
um þá og við þá mætti segja eins
og frelsarinn sagði forðum:
„Faðir, fyrirgef þeim því þeir
vita ekki hvað þeir gera.“
V«V*V«V‘V*V«V«V«V« V»V*V»V*V •V*W*‘
.*v*v*v*v*v«v*v*v
Dagsbrúnarmenn
Allir undir fána félagsins í
1. MAÍ
hátíðahöldunum
Eining er afl
Gleðilega hátíð
Verkamannafélagið Dagsbrón
,*v*v*v»v*v»v»v»v»v»v*v»v»v
Húsvorður óskast
við fjölbýlishús í Reykjavík. — Upplýsingar í
síma 35186 kl. 8—9 næstu kvöld.
•V*V*V*V*VV*V*V*‘
Matsveina-
og veitingaþjónaskólanum
verður slitið í dag kl. 3 síðdegis.
Skólastjóri