Tíminn - 04.06.1961, Page 11
TÍMINN, aunnudaginn 4. júiií 1961.
T1
Þa5 vaf æði fjörugt í Stokk-
hólmi á laugardaginn annan er
var.1 Þá tók lögreglan 161 mann
úr umferð fyrir ölvun á almanna
færi, en annað eins hefur ekki
sézt í „kjallaranum“ hjá þeim
sænsku árum saman. Einn þeirra,
sem þeir tóku, var 30 ára gamall
trésmiður, sem hafði „dottið í
það“ á leiðinni heim til sín. Hann
var þó ekki mjög slæmur, og
(Framhald á 15 síðu)
Skoda er farinn að framleiða stafionbíla, sem líta að mestu út eins og
Skoda Oktavia, sem er þekktur bíll hér heima.
— Og nýjar geríir koma á markafönn
11. síðcm
*
Og loks: Simca er með leynd
að vinna að því að fullgera lítinn
fjögurra dyra bíl með lbftkæld-
um tvígengismótor. Þessi litli
Simcabíll á að vera til samkeppni
við hinn litla Renault og Citroen
8 CV — sem #r óþekktur hér
heima.
20 bílar á
42 fermetrum
Svisslendingar hafa nú komið
fram í dagsljósið með nokkuð
góða lausn á vandamálinu varð-
andi lagningu bíla. Þeir hafa
fundið upp bílalyftu, sem helzt
væri hægt að líkja við Parísar-
hjól, nema hvað hún er ekki á
hjóli, heldur færibandi. Sá, sem
vill koma bílnum sínum í
geymslu, ekur inn í klefa á band
inu, en þegar hann er farinn út,
færir fótósella klefann einni
„hæð“ ofar, þannig að næsti
klefi liggur tilbúinn til þess að
aka inn í. Fótósellan gætir þess
lika, að færa ekki, meðan nokk-
ur maður er inni í klefanum hjá
bílnum. Þegar maðurinn kemur
aftur, getur hann rennt bandinu
til, þar til rétti bíllmn kemur.
Þá þarf hann ekki að gera annað
en að stinga því gjaldi, sem þá
er á hann fallið, reiknað út sam
kvæimt tímalengd, í þar til gerða
rifu, og þá opnast dymar og
hann getur ekið brott. Hægt er
að gera þessa bílalyftu svo úr
garði, að ekki þurfi eftirlits-
mann við hana.
Nú er verið að gera fyrstu bíla
lyfturnar af þessari gerð í Þýzka
landi og Ítalíu. Sagt er, að þessi
aðferð taki ekki nema einn tí-
unda þess grunnflatar, sem
þyrfti ef leggja ætti bílunum
hlið við hlið. Þannig er hægt að
leggja 20 bílum á svæði, sem er
ekki nema 6x7 metrar að flatar-
máli.
Þa8 er allt útlit fyrir, að
árið 1961 ætli að leiða í Ijós
meira af nýjum bílmódelum
en mðrg undanfarin ár. Nú
ætlum við okkur það mikla
verkefni að segja svolítið
fyrir um það, hvernig þessi
nýju bílmódel munu verða,
og styðjumst þar við það,
sem við höfum undanfarið
séð á síðum bílablaðanna er-
lendu:
Við höfum þegar sagt frá nýja
Volkswagenbílnum, en hann mun
koma á markaðinn í haust. Um
Ieið kemur nýr Ford Konsúll,
tegundin ber einkennisnúmerið
315, en blöðin eru þögul um það,
hvernig sá bíll muni líta út, og
sömuleiðis heyrist fátt um hið
nýja útlit Ford Zephyr og
Zodiac. Þetta er nú um brezka
Fordinn, en í Bandaríkjunum
mun Ford koma á markaðinn
með nýjan bíl, sem heitir Cardin-
al. Hann verður heldur minni en
Ford Falcon, með mótorinn fram-
an í og framhjóladrif.
★
Austin kemur með nýja gerð
af Sprite, og reiknað er með að
um leið komi á markaðinn ný
gerð af MG, en hann hefur alltaf
verið svo að segja nákvæmlega
eins og Austin Sprite, að undan-
teknu nafninu og örlítið að
breyttri vasskassahlíf.
★
Þá hefur Studebaker látið það
frá sér fara, að þaðan muni koma
smábíll. Hann er sagður vera eins
og DWK' junior að framan, Fíat
Lögregluþjónn
í gráum buxum
1300 í miðjunni og Chevrolet
Corvair að aftan. Þar er mótor-
inn staðsettur, 70 hestöfl, og tal-
ið er að bíllinn verði í flestu til-
liti ákaflega líkur Corvair.
★
Mercedes Benz vinnur nú að
breytingum á 180 og 190. Talið
er, að Daimler Benz fylgi for-
dæmi hins ítalska Fíats að því
leyti, að láta bílana líta eins út,
þótt þeim sé breytt að einhverju
leyti, en láta mismunandi stærð-
ir og skraut gera mismuninn.
★
Úr því að við minntumst á
Fíatinn, er ekki úr vegi að geta
þess, að nú er væntanlegur nýr
Fíat 500. En hann á að verða
ákaflega líkur því sem var, lík-
lega jafnfrábrugðinn gamla 500-
módelinu og 600 D er frábrugð-
inn 600!
★
Vauxhall Velox mun einnig
breyta um útlit, og verður að
líkindum ekki ósvipaður hinum
nýja Volkswagen, ákaflega
straumlínulagaður með stóra og
þægilega glugga.
★
Volvo er að endui'bæta Amazon
bílinn. Helztu breytingar eru
þær, að hinn nýi hefur aðeins
tvær dyr í staðinn fyrir fjórar
áður, en ekki er reiknað með
öðrum stórfelldum breytingum.
Ekki verður öðru breytt en út-
liti.
★
NSU Prinz er lítt þekktur hér
heima, nema þar sem Ómar
Ragnarsson hefur látið sjá sig á
sínum gula prinsi. Nú er von á
nýrri gerð af NSU Prinz, stærri,
með endurbættum mótor, og
gei'ður í svokölluðum sápukassa-
stíl, en táknrænn bíll fyrir þann
stíl er Chevrolet Corvair.
Það er orðið langt siðan, að =
við höfum birt mynd af ís-1
lenzkri hljómsveit hér á síð-jj
unni, en hér bætum við úrj
þeirri vanrækslu með því aðí
birta stóra mynd af hljómsveit?
Finns Eydal. Og ekki dugir?
annað en láta einhverja frétt afj
fyrirtækinu fylgja. — Eins ogj
menn muna, var skipt nm
nokkra meðlimi hljómsveitar-
innar síðast liðið haust, og um
Ieið breyttist nafnið úr Atlantik
kvintett í Hljómsveit Finns Ey-
dal. Um leið flutti hljómsveitin
verksvið sitt frá Akureyri til
Suðurlandsins, og lék í vetur
f Silfurtunglinu og í Stork-
klúbbnum, og núna tvo síðustu
mánuðina á Keflavíkurflugvelli.
Nú er hljómsveitin á förum til
Akureyrar, og mun nú aftuTi
hverfa til síns fyrra nafns, og'
nefna sig Atlantik kvintett. Um
leið koma tveir nýir meðlimir
í hópinn, sem rcyndar eru ckki
nýir í Atlantik, það eru þeir
Ingimar Eydal og Óðinn Valdi-
marsson. Atlantik kvintett mun:
í sumar leika í Alþýðuhúsinu á
Akureyri. Síðasta frægðarverkj
hljómsveitar Finns Eydal hér fl
Reykjavík var að leika inn áj
þrjár hljómplötur með söng
þeirra Helenu Eyjólfsdóttur og
Óðins Valdimarssonar. Þar eru
m. a. lög úr gleðileiknum Allra
meina bót, nýtt lag eftir Jón j
Sigurðsson og loks lagið Bjór-
kjallarinn (Im tiefen Keller ..)
en það lag hefur náð miklum
vinsældum í útfærslu hljóm-
sveitarinnar. lyöturnar eru
gefnar út á ve’um fslenzkra
tóna.
Bílarnir breyta
um útlit i ár
Hinn nýi Austin Sprite. MG er sagSur vera alveg eins, nema hvaS vatnskassahlífin (griiliS) er öSru vísi.