Tíminn - 11.06.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 11.06.1961, Blaðsíða 11
 11 „Aldrei spurt um brennivín hér” Rætt um benzín, brennivínssölu, blaðasölu, segulbönd, sem hægt er að hafa í vasa, rigningu og fleira. ÞaS var ágætis veður á föstudaginn var, þegar ég lagSi af stað til þess aS reyna aS vera mér úti um eitthvaS til aS skrifa um í sunnudags- blaSiS. ÞaS var ekki sól, en lygnt og fremur hlýtt. Á Lindargötunni stóSu þrjú ungmenni og veltu því fyrir sér, hvaS þau ættu aS gera sér til afþreyingar um kvöld- iS. Eg heyrSi aS þau voru aS tala um Sígaunabaróninn, svo ég var viss um, aS þau voru ekki úr Reykjavík. HefSu þau veriS þaS, hefSu þau talaS um Þórskaffi eSa VetrargarSinn! Á Arnarhóli voru ungar mæður með ennþá yngri börn sín og skammt ofan við bílastæði strætis vagnanna við Katkofnsveg lá full- táknrænn fyrir menn, þegar þeir eru beðnir um að svara blaða- mönnum. Þeir litu hver á annan og urðu kindarlegir, bæði spenntir og forvitnir og um leið vildlu þeir helzt vera lausir við svona lagað stapp. Hver vísaði á annan, unz þelm kom saman um að visa mér á stöðvarformanninn, Magnús Oddsson. Hann sagði ekkert, þótt þeir vísuðu á hann en gaf mér hornauga. Ég horfði á hann á móti. Hann var ekki árennilegur á svipinn. Eg er viss um, að hann var að velta því fyrir sér, hvemig hann ætti að bita mig sem fyrst af sér. Allsherjar rabb En ég hóf spurningamar ótrauð ur staðráðinn i því að birta hvert það orð, sem hann létl út úr sér, hversu óprenthæft sem það kynni að verða. En ég þurfti engu að kvíða, Magnús var hinn viðræðu- bezti og ekki leið á löngu þar til — Hkki stöðinl Ég segi ekkert fyrir einstaklingana. Höfum bara ósmurt — En hvað með smurningu, þið fáið hana ekki heldur? — Nei. -r Hvað gerið þið þá? — Höfum bara ósmurt, segir einn bílstjóranna. Nú voru þeir að byrja að þiöna. — Það er nú ekki nema rétt að koma að því, að það þurfi að smyrja, segir annar bílstjóri. — Jú hjá þeim sem smyrja vikulega, segir sá þriðjji. — Er ekki farið að ískra hjá þeim eftir þennan tíma? — Það er nú ekki víst, að þeir þurfi að smyrja svona þétt. Farinn aí> selja Vísi! f þessu kom einn bílstjórinn ennþá þjótandi inn. — Vísir, sam bandið semur við Dagsbrún, kall- ar hann um leið og hann hendist — Nei, segir einn enn, — hann skrifar það ekki hann er með segulband I vasanum. — Nel grip ég fram í, — því er nú ver. Mig vantar svoleiðis. — En það hef ég, segir Magnús brúnaþungur og grípur sér fyrir brjóst og gefur mér órætt augna- ráð. Hægt aÖ nefna númer............. — Jæja, segi ég, og þykif nú sem samtalið hafi tekið óvænlega stefnu. — Selst brennivín vel um þessar mundir? Þögn um allt herbergið. Svo svarar einn bílstjórinn, ungur maður og glaðlegur. — Þeir sögðu HvaS verÖur, ef SÍS semur? Nú þótti Magnúsi mál að breyta um umræðuefni og spurði: — Segðu mér, ef SÍS semur nú við Dagsbrún, verður þá ekki opnað fyrir benzínið? ' — Ja — nú veit ég ekki. — Þeir hljóta að gera það, segir einn. — Þeir geta ekki unnið nema að hafa benzín. — Já, en geta þeir opnað einir? Verður það ekki bara sér fyrir þá? spyr annar. — Það yrði svo dýrt fyrir þá, segir sá fyrri. — Það kostar miijnsta kosti 200 þúsund. orðinn karlmaður með samanbrot- in klofstígvél yfir hausnum. Á B.S.Í. stóðu margir langferðabílar og utan við einn þeirra nokkrir bílstjórar í hóp. Einn þeirra spark aði í hjól á Keflavíkurrútu og spýtti um tönn. Hinir töluðu. ★ Þegar ég gekk fram hjá bíla- stæði Borgarbíls tók ég eftir því, að það var nærri fullt. Það er ekki algeng sjón. Fyrst datt mér I hug, að þeir væru allir benzín- láusir, en svo sá ég að það gat ekki verið. Þá stæðu þeir ein- hvers staðar annars staðar. Það var bezt að skreppa inn og tala við strákana. ★ Inni í afgreiðslunni var stór hóp- ur manna. Allt saman bilstjórar. Ég tjáði þeim erindi mitt að mig langaði að spjalla svolítið við þá í þeim tligangi að rekja þær samræður í blaðinu. Þá færð- ist yfir þá svipurinn, sem er svo allir strákarnir voru farnir að svara mér og úr þessu varð eitt allsherjar rabb. Ekki út í sveit — Eigið þið eitthvað eftir af benzini, sem heitið geti? — Nei, það er lítið svaraði Magnús. — Ég fékk leyfi hjá Dagsbrún til þess að fá á tank suður í Hraunsholti (Nei Lyng- holti, greip einhver fram í) — já, Lyngholt heitir það víst en það er nú að verða búið. Dagsbrún gerði þetta fyrir okkur vegna þess að við höfum ekki okkar eig- in tank eins og hinar stöðvarnar, en þær fengu að fylla á sína tanka og nota af þeim. Við erum Dagsbrún ákaflega þakklátir fyrir þessa lipurð. — Og hvað verður, þegar það er búið, ef verkfallið verður þá enn? — Við vonumst til þess að Dags brún sjái sér fært að leggja okk- ur eitthvað lið. — Þið farið ekki út í sveitirn ar með tunnur? — Þeir taka það nú inn á ein- um degi, ef þeir fá einir að opna benzínsölu, segir annar. — Varið ykkur piltar segir Magnús það er allt skrifað niður, sem þið segið. Ég sá, að ég var farinn að trufla samræðurnar, svo ég hypj aði mig. Það var bezt að fara yfir á B.S.R. samkvæmt ábend- ingu þeirra á Borgarbíl og heyra í þeim hljóðið þar. Regnið þungt......... En nú var orðið illt í efni. Úti var komin úrhellis rigning, rétt (Framhald á 13. síðu). Bílastæðið hjá Borgarbíl. inn úr dyrunum. — Hvað! segtr einn starfsbróðir hans, — ertu nú orðinn svo aðþrengdur, að þú sért farinn að selja Vísi? — Varaðu þig segir annar, — það er þarna maður sem skrifar allt niður, sem þú segir! mér i Nýborg, að það væri bara engin sala! — Það er aldrei spurt um brennivín hér, segir annar. v — Nú, ég hélt að hér væri salan fjörul'ust. — Það er bara Guðmundur Her- mannsson sem segir það. Hann hefur sagt í blaðaviðtali, að það væru bara Borgarbíll og Hreyfill, sem seldu en það væri nú hægt að nefna þér númer á bílum bæði á B.S.R. og Bæjarleiðum sem hafa verið teknir fyrir sölu . . . — Á ég þá að spyrja um brenni vínssöluna á B.S.R.? — Já, reyndu það! Ég lofaði að segja ekkert um það, hvernig biistjórarnir hyggðust hafa benzín, ef verkfaliinu iyk iekkl í íæka iíð 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.