Tíminn - 15.06.1961, Blaðsíða 3
Vlwilfr w, fimmtnðaginn
Aðalfundi S. í. S. lokið:
Samkomulaginu við verka-
lýðshreyfinguna fagnað
Götudeirðir
Algeirsborg
i
HÆSTI RETTU R
Sigurðssonar úr gulli
Aðalfundi Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga var
fram haldið að Bifrösf í gær
og hófst fundur klukkan 9 ár-
degis. Til umræðu voru skýrsl
ur þær, sem fluttar voru í
gær af formanni, forstjóra og
framkvæmdastjórum. í
skýrslu framkvæmdastjóra
sjávarafurðadeildar, Valgarðs
J. Ólafssonar, kom fram, að
þátttaka samvinnufélaganna í
framleiðslu og sölu sjávaraf-
urða hefur verið vaxandi und
anfarin ár.
Á síðasta ári jókst sala freð-
fisks á vegum Sambandsins úr
11 þúsund smálestum í 12,178 smá
lestir. Fyrstu fimm mánuði þessa
árs\hefur framleiðsla freðfisks á
vegum frystihúsa SambandsLnS
enn aukizt nokkuð, samanborið
við sama tímabil á fyrra ári, enda
þótt heildarframleiijslan í land-
inu yrði miklu minni á vetrar-
vertíðinni en verið hefur í mörg
ár.
Kjöfsölumiðstöðjn
Á aðalfundinum voru gerðar
eftirfarandi samþykktir:
Aðalfundur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, haldinn að Bif-
röst í Borgarfirði dagana 13.—14.
júní 1961, skorar á bæjaryfirvöld
Reykjavíkur ag hraða svo ákvörð-
un um endanlegt skipulag fyrir-
hugaðrar kjötsölumiðstöðvar borg-
arinnar, að ekki þurfi að dragast
lengur en orðið er, að hefjast
handa um byggingu kjötiðnaðar-
stöðvar, er Sambandið hefur um
mörg ár leitað eftix að fá að
byggja, og hvorki neytendur
Reykjavíkur né bændur landsins
mega lengur án vera.
Lán til greiðslu á lausa-
skuldum
Aðalfundur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, haldinn að Bif-
röst í Borgarfirði dagana 13.—14.
júní 1961, beinir þeirri áskorun
til ríkisstjómarinnar, að hún
hlutist til um ,að bændur fái föst
lán til greiðslu á lausaskuldum
mes sömu kjörum og útvegsmenn
njóta samkvæmt lögum frá síðasta
þingi, og enn fremur, að fyrirtæki,
sem éiga vinnslustöðvar fyrir
landbúnaðarafurðir, fái sl£k lán
á sama hátt og eigendur vinnslu-
stöðva fyrir sjávarafurðir.
Vinnudeilan og kjara-
samningarnir
Aðalfundur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, haldinn að Bif-
röst í Borgarfirði dagana 13.—14.
júní 1961, vill ag gefnu tilefni
vara við því stórfellda tjóni, sem
ætið er samfara almennum verk-
föllum eins og þeim, sem hófust
á s.l. vori og víða eru enn yfir-
standandi.
Fundurinn telur mjög mikils-
verða þá samninga, sem samvinnu
félögin hafa gert við verkalýðs-
félögin til lausnar á vinnudeilun-
um. Telur fundurinn, að með þess
um samningum hafi verið afstýrt
miklu tjóni og komið á sann-
gjarnan hátt til móts við kröfur
verkamanna um kjarabætur, enda
eðlilegt og skylt að gagnkvæmur
skilningur og samstarf sé milli
samvinnuhreyfingarinnar og verka
lýðssamtakanna. Er þag álit fund-
arins, að með samningunum hafi
verið fundin leið til að viðhalda
vinnufriði í landinu til frambúð-
ar, ef rétt verður á haldið.
Fundurinn lýsir yfir vilja sam-
vinnuhreyfingarinnar til sam-
starfs um aukna framleiðslu og
bæta lífskjör þjóðarinnar og
minnir á, að reynslan sýnir, að
með því að efla samvinnurekst-
ur í landinu vex og þróast eðli-
I leg og heilbrigð uppbygging og
framfarir.
Stjórnarkjör
Úr stjórn áttu að ganga þeir
Þorsteinn Jónsson og Finnur
Kristjánsson, og voru þeir báðir
endurkj> nir. í stað Egils heitins
Thorarensen var Guðmundur Guð-
mundsson, Efri-Brú, kosinn til
eins árs.
Varamenn í stjóm voru endur-
kjörnir þeir Guðröður Jónsson,
Bjarni Bjarnason og Kjartan
Sæmundsson.
Endurskoðandi var endurkjör-
inn Páll Hallgrímsson, sýslumað-
ur, og varaendurskoðandi var end
urkjörinn Sveinbjöjp Högnason,
prófastur.
Aðalfundi lauk með sameigin-
legum kvöldverði að Bifröst.
NTB—Algeirsborg, 14. júní.
í dag kom til mikilla götuó-
eirða í Belcourt-bæjarhlutan-
um í Algeirsborg, er rúmlega
eitt þúsund Serkir létu í Ijós
andúð sína á evrópskum íbú-
um borgarinnar meS mann-
söfnuði á götum úti og alls kon
ar skemmdarverkum.
Margir evrópskir borgarar urðu
fyrri aðkasti, og sumir þeirra voru
grýttir. Þá var bílum Evrópu-
manna velt um koll, og sumir
þeirra brenndir.
Neisti verður að báli
Undanfari þessara miklu mót-
mælaaðgerða var heldur lítilfjör-
legur, en lítið má út af bera í sam-
! skiptum þessara tveggja aðila, svo
I að allt fari í bál og brand. Serki
nokkur' og lögregluþjónn höfðu átt
í stælum, sem enduðu með því að
i lögregluimaðurinn dró upp skamm-
byssu sína. Dreif brátt að múg og
margmenni, sem lét ófriðlega, en
mest bar þar á unglingum. Örygg-
islögregla var kvödd á vettvang,
en áður hafði unglingunum tekizt
að velta nokkrum bifreiðum og
brenna eina þeirra til ösku. Þá
voru xúður brotnar beggja vegna
götunnar, og steinum kastað að
bílum, sem óku fram hjá.
Margir verzlunarmenn urðu
fljótir til að loka búðum sínum og
draga gluggahlerana fyrir, þegar
þeir sáu að hverju stefndi, en hóp-
ur unglinga hafði gert sig líkleg-
an til að nota tækifærið til rána.
Hér blrtist mynd af báðum hliðum peningsins. Á framhlið er vangamynd Jóns Sigurðssonar, en á bakhlið skjald-
armerki íslands. Stærð peningsins er 23 mm. í þvermál og þyngd hans er 8,96 gr. hreint gull að 9/TO hlutum.
Er þetta hlnn fyrsti gullpeningur, sem sleginn er fyririslenzka ríklð. Myntgildi hans er 500 krónur, en sam-
kvæmt heimild i lögum verður hann seldur á 750 krónur.
Mmnispeningar Jóns
r
HRINDIR
Hæstiréttur hefur hrundið
dómi undirréttar í nfáli þeirra
Bjarna Sigurðar Guðjónsson-
ar, vélaeftirlitsmanns, og
Magnúsar Jónssonar vélstjóra,
sem voru dæmdir fyrir van-
rækslu í meðferð þjöppu í
frystihúsi Fiskiðjunnar h.f. í
Vestmannaeyjum.
10 ár fyrir
misþyrmingu
Fyrir stuttu staðfesti hæstirétt-
ur dóm undirréttar í máli Guð-
mundar Þórðarsonar, sem réðist
á 12 ára telpu á Ásvallagötu stuttu
eftir áramót og misþyrmdi henni.
Guðmundur er dæmdur í óskil-
orðsbundið 10 ára fangelsi.
DOMI
Hinir ákærðu voru 15. júní 1958
að vinna við þjöppu þessa, er fljót-
andi ammoníak komst inn í þjöpp-
una, svo að hún sprakk. Ammoní-
akvatn og gufa streymdi út í sal-
inn, og maður, sem þar var nær-
staddiir, Hallgrímur Pétursson,
Faxastíg 15, skaðbrenndist svo, að
hann andaðist hokkrum dögum
síðar.
Undirréttur hafði dæmt þessa
menn í 5000 króna sekt hvorn eða
25 daga fangelsi, auk sakarkostn-
aðar.
Hæstiréttur hefur látið gera
framhaldsrannsókn í málinu og
komizt að þeirri niðurstöðu, að
ekki sé sannað, að vanrækslu fyrr-
greindra manna sé um að kenna,
að sprengingin varð, sem Hallgrím
ur beið bana af. Voru ákærðir því
sýknaðir.
Loks átaldi Hæstiréttur mistök,
sem urðu við rannsókn undirréttar
í Vestmannaeyjum, en fyrir hafði
farizt að rannsaka til hlítar hlut-
linn, sem sprakk í frystikerfinu.
Á Eyri við Arnarfjörð bjó
á sínum tíma Hrafn Svein-
bjarnarson, einn ágætasti mað
ur Sturlungaaldar. Bærinn
hlaut nafn hans og var síðan
nefndur Rafnseyri. Á 16. öld
var staðurinn gefinn sem
beneficium, og var þar síðan
kirkjustaður og prestssetur.
Þar fæddist Jón Sigurðsson
17. júní 1811.
Á laugardaginn kemur, þjóðhá-
tíðardaginn, eru 150 ár liðin frá
fæðingu Jóns Sigurðssonar, og
hefur ríkisstjórnin i því tilefni
látið gera minnispening úr gulli,
sem verður til sölu fr’á og með
föstudeginum 16. júní hjá ríkisfé-
hirði, í pósthúsinu í Reykjavík og
í öHum bönkum landsins og úti-
búum þeirra.
Ágóðanum af sölu minnispen-
inganna á að verja til fram-
kvæmda á Rafnseyri og heiðra
með því minningu Jóns Sigurðs-
sonar. Á undanförnum árum hef-
ur verið unnið að byggingu prest-
seturshúss þar, sem jafnfr’amt er
skólahús að nokkru. Um þetta
leyti er prestsíbúðinni að verða
lokið, en mörgu er enn ólokið,
sem gera þarf á Rafnseyri til þess
að staðnum sé fullur sómi sýndur.
Ljúka þarf við skólahúsrýmið,
kirkjan er hrörleg orðin og þarfn-
ast endurbyggingar, lóð og um-
hverfi þarf að lagfæra, og rækta
þarf.trjágróður á staðnum.
Minnispeningur Jóns Sigurðs-
sonar verður eflaust eftirsóknar-
verður. Til tækifærisgjafa er hann
mjög vel fallinn, og verðgildi hans
eykst eflaust eftir því sem stundir
líða fram, svo sem annarra slíkra
peninga. Má því búast við, að eftir
spurn verði þegar í fyr'stu mikil,
bæði innanlands og utanlands.
Viðræðufundur
— án samkomulags í gærkvöldi
í gær boðaði sáttasemjari ríkisins fulltrúa Dagsbrúnar og
Hlífar annars vegar og fulltrúa atvinnurekenda hins vegar til
viðræðufundar. Um klukkan sjö var fundi slitið að sinni, en
tekið til, þar sem frá var horfið, um níuleytið í gærkvöldi.
Sátu þessir aðilar enn á fundi, er blaðið fór í prcntun. Hafði
þá enn ekkert borið til tíðinda, er benti til þess, að til skjótra
samninga myndi draga.
Þó var búizt við, að viðræðum yrði haldið áfram fram eftir
nóttu.
f gærdag, áður en þessir sainningar hófust, hafði Mjólkur-
samsalan undirritað samninga við Dagsbrún, svipaða þeim,
sem samvinnufélögin og fleiri aðilar höfðu áður gert.