Tíminn - 15.06.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.06.1961, Blaðsíða 6
6 TÍMIJÍN, fimmtudaginn 15, júní 19g>. Jón Jónsson: Alþýðuflokkurinn ber ábyrgðina — Þegar launþegarnir eru orðnir a^- krepptir sökum kjaraskerðingar, komast þeir í sjálfsvarnaraðstöðu og þeir eru neyddir til þess að beita sínu eina vopni, verkfallsrétt inum. Þannig standa málin í dag, verkalýðurinn hefur mátt þola hvert arðránið á fætur öðru, þannig að hinn almenni launþegi er orðinn alger vinnuþræll, sem verður að strita fjarri heimili sínu myrkranna á milli og uppskera að- eins þau laun, sem nægja fyrir helztu nauðsynjum. Flest öll þæg- indi sem nútíma þjóðfélag hefur upp á að bjóða, svo og félagslegt öryggi eru að hverfa út í grámóðu dýrtíðar og lamaðs kaupmáttar. Framleiðsla, atvinna og kaupgeta dragast saman jöfnum höndum, það er nú þegar farið að bera á því, að menn fái ekki eftirvinnu þá, sem þeir fengu í stað kjarabóta á sínum tíma, þannig er alþýðan að nálgast stig fyrir stig ördeyðu og fátækt. Það er mál manna, að íhaldsflokkurinn hafi frá önd- verðu, er hann stofnaði ríkisstjórn með Alþýðuflókknum, ætlað að skapa hér visst atvinnuleysi til þess að lama kjark og mótstöðuafl iaunþega, svo að síður væri hætta á, að verkalýðurinn stæði saman og flokkar alþýðunnar tækju landsmálin í sínar hendur. Virðist þetta áform íhaldsins því miður vera á góðri leið að því voðatak- marki. Því verður ekki trúað, að Alþýðuflokkurinn ætli sér að launa þá atkvæðaaukningu, sem hann fékk í síðustu tveim kosningum með því gerræði, að tryggja braut- argengi íhaldsins öllu lengur. Aukning sú, er Alþýðuflokkurinn hlaut við fyirnefndar kosningar, var mikið til á kostnað Sjálfstæð- isflokksins. Geta forráðamenn Al- þýðuflokksins ekki ímyndað sér, að þeir menn sem kusu þá, ýerði svolítið undrandi og gramir þegar þeim verður það ljóst, að þeir kusu íhaldið í gegnum Alþýðuflokkinn, þegar allt kom til alls? Þetta ættu þingmenn flokksins að hugleiða vel og vandlega. Forfeður okkar bjuggu við ofríki þessara svokölluðu höfðingja og embættismanna öldum saman. Höfðingjarnir svokölluðu voru stórbændur, sem komizt höfðu í álnir á kostnað þeirra, sem minni- máttar voru, svo og hinna, sem ekki lögðu allt upp úr veraldlegum auði og urðu þar af leiðandi undir í lífsbaráttunni. Þessir höfðingjar svokölluðu lögðu undir sig flestar sveitir landsins og nutu stuðnings embættismanna, erlendra sem inn- lendra, örlögum alþýðumannsins Ihéldu aðilar þessir í höndum sér og notuðu vald sitt óspart, þegar þeim bauð svo við að horfa og i þeim bezt hentaði. Forfeður okkar bjuggu við sult- arkjör, lærum af þeim, heiðrum baráttu þeirra og minningu, með því að nota þann arf sem þeir skildu eftir handa okkur, en það er sagan og máttur þekkingarinnar, byggð á reynslu þeirra lífs. Það á að vera stolt íslendinga, sem fyrir stuttu hafa heimt frelsi sitt og full- veldi frá erlendum auðmönnum og valdaseggjum, að hér festi ekki rætur valdaaðstaða íhaldsins, sem er flokkur auðmanna landsins. ísland háði ekki langa og sársauka- fulla baráttu fyrir frelsi sínu til þess eins að flytja það yfir í hend- ur íslenzkra auðmanna, sem lifa í þeirri trú, að auður og hagsæld eigi að safnast á hendur fárra út- valinna manna í þjóðfélaginu. Ef hér á aftur að rísa upp, nú í skjóli íhaldsflokksins, sá bölvaldur, sem réði ríkjum, einráður, heimtufrek- ur og drambsamur, stöndum við á þröskuldi nýrrar baráttu, sem allir hugsandi íslendingar verða að taka þátt í. Það er mjög íhugunarvert fyrir launamenn, sem hingað til hafa kosið íhaldið, og verið þar með vatn á myllu pólitískra áhrifa auðvaldsins, að þeir skoði hug sinn og spyrji sjálfa sig, hvernig þeir eigi heima í yfirlýstum stjórn- málaflokki milljónamæringa, verk- smiðjueigenda, stórkaupmanna og annarra slíkra manna. Launþegar mega vita það, að hagsmunir íhaldsins eru miðaðir við stefnu og brölt þeirra ríku, en ekki með hagsmuni launþeganna fyrir brjósti, þvert á móti berst íhaldið lymskulegri baráttu gegn verka- lýðnum. Færi vel, ef augu launa- manna opnuðust fyrir hinum forna og nýja andstæðingi, auðvaldinu. Eins og fyrr segir, eiga lágtekju- menn ekki samleið með ríkisbubb- um íhaldsins. Þeirra hagsmunir eru i að gjalda sem minnst fyrir vinnu verkalýðsins, og þeir fyrir- líta launþegasamtök og samvinnu- hugsjónina í hverri mynd, því að slík samtök manna óttast íhaldið framar öllu. í okkar unga lýðveldi er eitt fyr- ir utan fjöllin, dalina og hafið í kring, sem er gamalt og gróið, en það er vitund manna um fjötra auðvalds og yfirdrottnunar. f hug- um manna skiptir það engu máli, af hvaða þjóðerni það er. fbúum landsins hefur aldrei verið auð- veldara en nú á tímum að tryggja sér og sínum glæsilega framtíð á jafnfréttisgrundvelli þegnanna allra, sem eiga landið sjálfir og ættu ekki að þurfa að vera háðir úthlutun gæða þess af hálfu manna, er þykjast vera til þess fæddir að troða á eignarrétti sam- landa sinna á ýmsan hátt og þrælka þá. Það er haft eftir mönnum þeim, sem börðust hvað mest í því að ryðja grýttan veginn að frelsi [landsins, að verstu björgin í göt- unni hefðu verið, ekki Danir sjálf- ir, heldur íslendingar þeir, sem Jekki vildu burt dönsku fjötrana. ÍÞessi orð standa öhögguð. Það Jverður Alþýðuflokknum til sóma, ef hann nú heggur á taugar þær, sem binda saman skútur núverandi stjórnarfars, annars mun íhaldið kjöldraga hann í ásýnd alþjóðar og Alþýðuflokkurinn hafa lítinn sóma af, og jafnvel taka á sig þá ábyrgð að hljóta nafn þeirra íslendinga, sem töfðu fyrir frelsissókn okkar fyrr á tímum. Jón Jónsson. ÞAKKARÁVÖRP Hjartanlega þökkum við hjónin öllum þeim mörgu, nær og fjær, fyrir þann hlýhug er okkur var sýnd- ur, með heimsóknum, stórgjöfum, blómum og skeytum á 'sjötíu ára afmælum okkar, 4. apríl og 5. júní s.l. Eyjólfur V. Sigurðsson, Sigríður Böðvarsdóttir, Fiskilæk. „•w*v*v«v*v*v*v*v«v*v*v*w»v»v*v*v*v*v*v»v*v«v Hugheilar þakkir öllupi þeim, er sýndu mér vin- áttu og hlýhug á. áttræðisafmæli mínu, 31. maí síðast liðinn. Rannveig Gísladóttir, Urriðafossi. Fyrir 17. jum Drengjajakkaföt Stakir drengjajakkar Drengjabuxur Drengjaskyrtur Drengjapeysur Telpnadragtir Stuttjakkar Saumlausir nælonsokkar Verð frá kr. 45,00 Flestar vörurnar með gamla verðinu. PÓSTSENDUM yfottte Vesturgötu 12. Sími 13570 Vörubifreið - Kýr Til sölu er vörubifreið, ár- gerð 1953. Til greina kem- ur að taka allt að 10 kýr upp í söluverðið. Uppl. gef- ur Sverrir Meyvantsson, Brandshúsum, Gaulverja- bæjarhr. Árn. Rauðnössóttur hestur tapaðist úr girðingu í Mos- fellssveit, Mark lögg aftan hægra, bitar tveir framan vinstra og fjöður aftan vinstra. Hesturinn er 5 vetra, ójárn aður. Þeir, sem kynnu að verða hestsins varir, eru vinsamlegast beðnir að láta vita um Brúarland. Kostak jör Ódýra bóksalan Dýður yður hér úrvaJ skemmti- bóka á gamla !ága verðinu Bækur þessar fást yfirleitt ekki í Dókaverzlunum og sumar þeirra á þrotum hjá foriaginu. Sendið pöntun sem fyrst. Borg örlaganna. Stórbrotin ástarsaga e. L. Brom- field, 202 bls. ófc. kr. 23.00. Nótt í Bombay, e. sama höf Frábærlega spenn- andi saga frá Indlandi, 390 bls. ób. kr. 36 00 Njósnari Cicerós. Heimsfræg og sannsöguleg njósnarasaga úr síðustu hermsstyrjöld, 144 bls., ib. kr. 33.00 Á valdi Rómverja. Afar spennandi saga um bar- daga og hetjudáðir. 138 bls ib. kr. 25.00 Leyndarmál Grantleys, e. A. Rovland. Hrífandi, rómantísk ástarsaga, 252 bls. ób. kr. 25 00. Ástin sigrar allt, e. H. Greville. Ástarsaga. sem öllum verður ógieymanleg 226 bls ób. kr. 20.00. Kafbátastöð N. Q. Njósnarasaga, viðburðarík og spennandi. 140 bis. ób. kr 13.00. Hringur drottningarinnar af Saba. e. R. Haggard, höf. Náma Salómons og Allans Quatermains. Dularfull og sérkennileg saga 330. bls. ób kr. 25.00.. Farós egypzki. Óvenjuleg saga um múmíu og dul- arfull fyrirbrigð’ 382 bls. ób. kr. 20 00 Jesús Barrabas. Skáldsaga e. Hjalmai Söderberg. 110 bls. ób. kr 10.00 Dularfulla vítisvélin. Æsandi leynilögregiusaga. 56 bls. ób. kr 10.00 Hann misskildi mágkonuna. Ásta- og sakamálasaga. 44 bl. ób. kr. 10 00. Leyndardómur skógarins. Speanandi astarsaga. 48 bls. kr. 10.00 Tekið í hönd dauðans. Viðburðarík sakamálasaga. 48 bls. ób. kr 10.00 Morð í kvennahóp*. Spennandi saga með óvæntum endi. 42 bls. ób kr. 10.00. Morð Óskars Brodkins. Sakamálasaga. 64 bls kr. 10.00. Maðurinn í ganginum. Leynilögreglusaga. 60 bls. kr. 10.00. Loginn helgi e Selmu Lagerlöf 64 bls. ób kr. 10.00 Njósnari Lincolns. Spennandi saga úr þrælastríð- ínu 144 bls. ib kr. 35.00 Kvikseftur. Spennandi sakamálasaga * stóru broti. 124 bls. kr. 15.00. Smásögur 1—3 96 bls. kr. 10 00 Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið x við þær bækur, er þér óskið að fá sendar gegn póst- kröfu. Merkið og skrifið nafn og heimilisfang greinilega. NAFN Odýra bóksalan Box 196, Reykjavík ,VN.X.-V>..VV.VN.-N..X.VV-VV.\..VV» ALLT Á SAMA STAÐ VHIZ VENTLASLÍPIMASSI BREMSUVÖKVI BÓN O. FL. WHIZ merkið er trygging fyrir góðri vöru. Egili Vilhjálmsson h.f. Laugavegi 118. síœJ 22240

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.