Tíminn - 28.06.1961, Síða 2

Tíminn - 28.06.1961, Síða 2
2 T í MIN N, miSvLkudagmn 28. júnf^L96t Félagið fékk vinn- ingsmiðann í bréfi Óþekktur eigandi mitSans gaf vöggustofu Thor- valdsensfélagsins happdrættisbílinn Þann 23. þ. m. barst Thor- valdsensfélaginu í Reykjavík bréf. Var í því happdrættis- miði nr. 9445 í happdrætti fé- lagsins. Dregið var í happ- drættinu 19. júní s. I. og kom vinningurinn, Volkswagen-bif- reið, árgerð 1961, einmitt á þennan miða. Aftan á miðann var ritað: „Áheit á vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Gæfa og guðsblessun fylgi félaginu í starfi þess í framtíðinni. Gamall velunnari félagsins." Á 16. síðu blaðsins er mynd af fólki, sem nýtur sólar og sumars I Naut- hólsvíkinhl, en hér birtum við mynd af einum, sem ekki lætur sér nægja neitt letilegt. Þetta er sjóskíðamað- inn Haukur Hjaltason, sem ásamt tveim bræðrum sínum stendur fyr- ir sjóskíðamennti í Nauthóisvikinni. I Félagskonur í Thorvaldsensfé- lagiuu skýrðu blaðamönnum frá þessari höfðinglegu gjöf í gær. Báðu þau blöðin að færa þessum göfu'ga og góða velunnara félags- ins þeirra innilegustu og beztu þakkir. Sögðu þær, að sá stórkost legi velvilji og hlýhugur, sem birt ist í þessari gjöf, yljaði þeim og lyfti fram til dáða. Enn fremur vildu f'élagskonur þakka öllum stofnunum og ein- staMingum sem styrktu happ- drætti þeirra. Var það stofnað til ágóða fyrir vöggustofu, sem fé- lagið hefur £ smíðum við Hlíðar- enda. Er sú bygging orðin fok- held, og áherzla er lögð á, að hægt verði að taka hana í notk- un um miðjan æsta vetur. Verð- ur þar rúm fyrir 32 böm. Thorvaldsensfélagið er ekki stórt, aðeins 38 konur eru starf- andi í því. Allar vinna þær til skiptis í Thorvaldsensbazarnum í Austurstræti, sem félagið rekur. Einnig hafa þær ýmsar aðrar fjár öflunarleiðir, s.s. hin vel þekktu jólamerki. Formaður félagsins er frú Svanfríður Hjartardóttir, og núverandi formaður fjáröflunar- nefndar frú Sigurlaug Eggerts- dóttir. Ótrúlegt er, hvað miklu þetta fámenna félag hefur áorkað. Á það þó vafalaust eftir að gera ýmislegt fleira, því bjartsýni og stórhugur eru þar ríkjandi. Nú í vor hyggst það halda bazar, og munu Reykvíkingar þá eflaust styrkja gott málefni eins og oft áður. Happdrættisbifreiðin, sem hinn óþekkti velunnari félagsins gaf, er þegar seld fyrir 130 þúsund. Er það góð og óvænt viðbót í sjóð vöggustofunnar og öllum fé- lagskonum til mikillar gleði. „Á morgun förum við í okkar árlegu skemmtiferð", sögðu þær, „og aldrei höfurn við farið eins ánægðar og léttar í lund og nú.“ Fyrirlestur um náttúruvernd Náttúruverndarx'áð íslands og Hið íslenzka náttúrufræðifélag boða sameiginlega til fundar í há- tíðasal háskólans á fimmtudags- kvöldið, og mun bandarískur nátt- úruverndarfrömuður, Richard H. Pough, flytja þar erindi um nátt- úruvernd í Bandaríkjunum og sýna litskuggamyndir. Fyrirlesturinn hefst klukkan hálf-níu og verður fluttur á ensku. Öllum er heiimill ókeypis að- gangur, Framlög til A.S.Í. Meðal framlaga, er borizt hafa til fjársöfnunar A.S.f. til styrkt- ar verkfallsmönnum eru m. a. þessi: Frá Starfsstúlknafélaginu Sókn kr. 5.000.00 — Frá Sveinafélagi húsgagnasmiða kr. 10.000.00. — Frá Iðju, fél. verksmiðjufólks, Hafnarfirði kr. 2.000.00. — Frá Verkalýðsfélagi Presthólahrepps, Kópaskeri, kr. 1.500.00. Nýtt kaupfélag í Grundarfirði Nýlega var stofnað Kaupfé- lag Grundfirðinga í Grafar- nesi, en þar var áður útibú frá kaupfélaginu í Stykkis- hólmi, og eru menn í Grafar- nesi og nágrenni mjög ánægS- ir með þessa breytingu. Lengi hefur gengið erfiðlega að koma félagsstofnun þessari í kring, en málið mætti talsverðri mótspyrnu. Heimamenn töldu hag sínum betur borgið með því að hafa eigin félag en útibú félags, sem hafði aðalstöðvar sínar ann- ars staðar, og nú þegar stendur starf Kaupfélags Grundfirðinga með blóma og hefur aðsetur í góð- um húsakynnum. Framkvæmda- stjóri þess er Húnbogi Þorsteins- son. Mjólkurbú og bættar samgöngur Grafarnes er vaxandi kauptún, þar sem grós'ka er í atvinnulífinu. | Verið er nú að undirbúa stofnun l mjólkurbús, og verður bygging j hús fyrir þá stofnun hafin í sum- ! ar. Nýlega hófst vinna við vegar- lagningu fyrir Höfðann til Ólafs- víkur, og verður það hin mesta I samgöngubót. Þetta mál hefur ver- í ið lengi á döfinni, en fé hefur I til þessa skort til framkvæmd- i anna. P.Þ. Ættu niöjar víking- anna að lita sig? Vörubifreiðin frá , Sindra verði", biður Einar Ásmunds- fór í gærmorgun samkvæmt son í Sindra fyrir eftirfar- áætlun norður í land full- andi: fermd af járni til kaupfélag- anna. — Vegna fréttar, sem birtist í Tímanum í gær undir fyrirsögninni „Á verkfalls- IS 10 bækur — ca. 2000 blaðsíður — á aðeins 137 krónur! Lágt bókaverð: Klefi 2455 í dauðadeild áður 60 kr- — nú 30 kr. Denver og Helga áður 40 kr. — nú 20 kr. Dætur frumskógarins áður 30 kr. — nú 20 kr. Rauða akurliljan áður 30 kr. — nú 20 kr. 1 örlagafjötrum áður 30 kr. •— nú 20 kr. Svarta leðurblakan áður 12 kr. — nú 7 kr. t tómstundum I—IV bráðskemmtileear stnásögur eftir ýmsa höfunda Votur kSttur — Þrir draumar — Óhapp i eySimörkinni — Moð kyeðju frá vin- konu — t greipum dauðana — Játning lögfrœðingslna — Ástin er uppfinninga- söm — Sigurvegarinn — Hvíta strikið — Launráð •— Eg hcfni . . . —- Grípið þjófinn — Hver var Jóhann? — Maðurinn við gröfina — Kvcnkostur — Lif í baðklefa. — Þessar smásögur eru i 1.—4. hefti ,,í TÓMSTUNDUM" Þetta er álíka verð og ein meðalstór bók kostar í bókabúðum. 8 Athugið, að vegna mikillar sölu er orðið lítið eftir af sumum bókunum. ★ Bækurnar sendast gegn eftirkröfu. Sögusafnið Pósthólf 1221. — Simi 10080. Reykjavik Þeir sem panta 5 eintök eða meira af hverri bók, fá 20% afslátt. 1 Reykjavík fást bækurnar í Bókhlöðunni, Laugav. 47 Urslit í Landsprófs- deildum Gagn- fræðaskóla Aust- urbæjar í Gagnfræðaskóla Austurbæjar gengu 58 nemendur undir lands-j próf miðskóla. Úrslit urðu þau,' að 54 stóðust miðskólapróf, þarj iaf 39 með framhaldseinkunn í| j landsprófsgreinum (6 og þar yfir).; Þrír nemendur hlutu ágætis-! 'einkunn í landsprófsgreinum: IGunnar Axel Sverrisson, 9,19, 'Borghildur Einarsdóttir, 9,29, og j Sigmundur Sigfússon, 9,49 og ihlutu þessir nemendur verðlauna- ibækur frá skólanum fyrir ástund- un og ágætan námsárangur. Málverkasýning i Sólveigar Eggerz, á Akranesi Akranesi, 28. júni— Sólveig Eggerz Pétursdóttir list málari opnaði málverkasýningu í Iðnslcóla Akraness sl. laugardag. Þar eru sýndar um 60 myndir, flest vatnslitamyndir en einnig nokkur olíumálverk. All margar myndirnar eru frá Akranesi og úr Hvaifirðinum. Að efnisvali eru myndirnar mjög fjölbreyttar. Mik ið af landlagsmyndum, einkum frá byggðunum við Faxaflóa, skip um, dýrum og blómum. Þar sem talað er um verkfalls- brot, þ^ er það alrangt. Þeir menn, sem vinna í Sindra nú, eru í eng um þeim félagssamtökum, sem eru í verkfalli. f fyrsta lagi er hér um að ræða syni Einars Ásmunds- sonar, sem jafnframt eru meðeig- endur í fyrirtækinu, þá eru af- greiðslumenn, sem eru í verzlunar mannasamtökunum, iðnaðarmenn, sem vinna samkvæmt Iðjutaxta, verkstjórar og nemendur á véla- verkstæði og auk þess eru verka- menn, sem unnið hafa lengi hjá fyrirtækinu og eru búsettir utan Reykjavíkur og eru í verkalýðs- félagi sínu byggðarlagi, eins og Hlíf í Hafnarfirði. Ef hér væri um einhver brot að ræða frá okkar hendi, þá væri mjog auðvelt fyrir verkfallsstjórn ina að kæra brot okkar til lög- legra yfirvalda og láta þau stöðVa þessa afþrotamenn okkar og dæma okkur eftir landslögum til fjár- útláta eða ef sakir reynast miklar í enn þyngri refsingar. Þetta er elnföld og auðveld aðferð, sem við mundum hlita. og sæmandi réttnrriki. Hinu munum við alls ekki hlíta, að það komi hópar manna, sem kalla sig verkfallsverði og hafa í frammi hótanir um limlestingu á mönnum og eyðileggingu á vél- um og verkfærum og algera bann færingu og útilokun á öllum svið- um þjóðlífsins, ef ekki sé látið að vilja þeirra um algera stöðvun. Að vfsu hafa margir orðið að hlita þessu, sem þeir halda, að sé eitt- hvað ofurvald í þessu okkar frum stæða réttarríki, sem virðist verða að sækja samanburð til einhverra nýstofnaðra Afríkuríkja. En meðal annarra orða: Væri ekki rétt að gefa út bráðabirgða- lög um, að skylda, að allir íslend ingar, afkomendur hlnna ljós- hætðu víkinga, sem stofnuðu fyrst ir lýðveldi fyrir þúsund árum, lituðu sig svarta. ’Mnar Ásmundsson. Svik og dóna- skapur, segir Castró NTB—Havana, Kúbu, 27. júní. Fidel Castró, forsætisráðherra j Kúbu, hélt ræðu í dag, þar jsem hann bar bandarísku i sendinefndinni, sem kom til Kúbu til samninga um skipti á föngum og dráttarvélum, á brýn að hafa beitt svikum og sett sér dónalega úrslitakosti. Sagði Castro, að tilboð nefnd- arinnar væri hlægilegt og nægði engan veginn til þess að bæta þann skaða, sem innrásin á Kúbu hefði valdið kúbönsku þjóðinni. f útvarpsútsendingu kúbanska útvarpsins Var það hvað eftir ann að endurtekið í dag, að Castró færi fús til þess að láta 1197 fanga lausa, ef Bandaríkim borguið'u Kúbu fullar skaðabætur fyrir tjón ið, sem innrásin olli. Blaðamaður flyt- ur erindi um Afríkuríkin Hingað er kominn danskur blaða maður, Jörgen Schleimann. Hann mun í dag kl. 6 flytja erindi á veg- um Stúdentafélags Reykjavíkur í félagsheimili V.R., Vonarstræti 4, sem hann nefnir: Um jákvæða og neikvæða hlutleysisstefnu, stjórn- málaleg vandamál nýju Afríku- ríkjanna. Schleimann hefur ferðazt mikið um í Afríku og rætt við stjórn- málaleiðtoga þar. Meðal annars átti hann hið fræga viðtal við Se- | kou Touré, forseta Guineu, þar | sem hann mælti í fyrsta skipti opinberlega gegn heimsveldis- stefnu kommúnista. Schleimann er sérfræðingur í stjórnmálum Afríkuríkjanna og hefur ritað mikið um þau mál. Það er því ekki að efa að erindi hans verður mjög fróðlegt. Schlei- mann mun einkum ræða muninn á hlutleysisstefnu Afríkuríkjanna og Evrópuríkjanna. Öllum er heim ill aðgangur. Brezki togarinn (Framhald ai 1 síðu). mn hefði haldið á eftir togaran- um, og var erindið að tala við skipstjórann í hátalara og ámin-na hann. Þegar Óðinn nálgaðist tog- arann, beygði hann og reyndi að sigla á varðskipið, bótt þvð tæk- ist ekki.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.