Tíminn - 28.06.1961, Page 3
TÍMINN, miðvikudaginn 28. júní 1961.
31
Umsátursástand
ríkir í Kúwait
NTB—Bagdad, 27. júní. —
Hussein Jórdaníukonungur
lýsti yfir því í dag, að hann
sfyddi furstadæmið Kuwait í
baráttunni fyrir frelsi og sjálf
sfæði landsins, eins og það er
orðað í fréttinni. Var þessi yfir
lýsing svar við skeyti sheiks-
ins í Kúwait til Hússeins kon-
ungs, þar sem hann var spurð
ur um afstöðu Jórdaníu til
kröfu íraksstjórnar um inn-
limun Kúwait í írak.
Enn fremur sagði í yfirlýsingu
Husseins, að hann styddi Kuwait
gegn yfirgangi Kassems, forsætis-
ráðherra fraks, og myndi Jórdanía
beita sér fyrir samstöðu allra
Arabaríkja.
Umsátursásfand
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum, gerði Krim Kassem, for-
sætisráðherra íraks, kröfu til þess
síðastliðinn sunnudag, að Kuwait,
sem verið hefur brezkt verndar-
ríki þar til fyrir einni viku, yrði
algerlega innlimað í írak og gerð-
ur hluti af því. Kúwait er fursta- í
Bretland, Bandaríkin, Jórdanía, Saudi-Arabía
og arabíska sambandslýöveldið styðja fursta-
dæmið og viðurkenna sjálfstæði þess
dæmi við Persaflóa, og eru þar
auðugar olíulindir. Sheikinn í Kú-
wait mótmælti þessari kröfu, sagði
Kúwait fullvalda og lýsti yfir um-
sátursástandí í landinu um sinn.
Sagðist hann verjast allri ágengni
íraksstjórnar og grípa til vopna,
ef með þyrfti.
Bretar hafa þegar heitið Kúwait
aðstoð sinni, og nú hefur Jórdanía
bætzt í hópinn.
Kúwait fær stuðning
Seint í dag bárust svo þær frétt-
ir frá Kaíró, Washington og Lond-
on, að Bandaríkin, Stóra-Bretland
og arabíska sambandslýðveldið,
hefðu lýst yfir stuðningi sínum
við furstadæmið Kúwait í barátt-
unni við yfirgang fraks. Kröfu
Kassems um innlimun Kúwait í
írak, er í sömu yfirlýsingu vísað
á bug. Þá mun Saudi-Arabía einn-
ig hafa lýst því yfir, að hún viður-
kenndi fullveldi Kúwait.
Fréttir frá Kúwait seint í dag
herma, að þar hafi bæði í dag og
gær verið farnar fjölmennar
60 skip fengu afla
suðaustur af Horni
í gær var veður mjög að jafnlengdar í gærmorgun komu
batna á síldarmiðunum, og!i,aðan 60 skiP með samtals 21330
fóru öll skipin út til veiða.
Þóttu góðar horfur á
nótt. Fremur lítið var
voru þessi: Reykjaröst 750, Jökull
veiði í 750, Víðir II 900, Pétur Jónsson
saltað,600, Höfrungur 600, Amkell 600,
á Siglufirði og öðrum Norður-
landshöfnum í gær bæði vegna
þess, að síldin var mjög mis-
jöfn og úrgangssöm, og vegna
veðursins slóst hún í skipun-
um og varð af því enn lélegri
í salt. Hins vegar hefur mikil
síld borizt að verksmiðjunum.
Fá skip komu í gærdag inn
með afla.
Veiðisvæðið í fyrrinótt var aust
suðaustur af Homi við Drangaál
og Reykjafjarðarál. Sólarhringinn
frá klukkan 8 í fyrramorgun til
Hrafn Sveinbjarnarson 600.
i
Söltun tæpar 40 þús. tunnur
á mánudagskvöld
Á mánudagskvöldið var söltun
orðin sem hér segir á sölfanarstöðv
unum á Siglufirði: Pólstjarnan
2049 tunnur, Hafliði h.f. 2338,
Reykjanes 2041, Hrímnir 2006,
Henriksen 2004, Skafti Stefánsson
1696, Kaupfélag Siglfirðinga 1749,
Söltunarstöð ísfirðinga 1725,
Sunna 1639. Samanlögð söltun á
Siglufirði á mánudagskvöldið var
29.857. Á öðrum stöðvum norðan-
lands var söltun þá orðin 9997
'tunnur, en samanlagt 39.855 tn-
göngur til þess að mótmæla kröfu
íraksstjórnar. Þá segir og, að ör-
yggislögreglan í furstadæminu
hafi látið handtaka marga írak-
búa og vísað þeim úr landi.
Sumarhátíð
í Norðfirði
Laosráðstefnan:
Fulltrúi Vientiane-
stjórnar kom í gær
Harriman farinn til Washington til viðræðna við
stjórnina þar
Neskaupstað 26. júní. —
Ungmennafélagið Egill rauði
í Norðfjarðarsveit hélt á laug-
ardaginn útihátíð á Kirkju-
bólsteigi þar í sveit, en þar er unm
samkomustaður frá fornu fari.
Ungmennafélagið gengst fyrir
hátíð sem þessari á hverju
sumri.
NTB—Genf, 27. júní. Aver-
ell Harriman, formaður banda
rísku sendinefndarinnar á
Laosráðstefnunni í Genf, hélt
áleiSis til Washington í dag
til þess aS ráðfæra sig við
bandarísku stjórnina og skýra
fyrir henni gang mála á ráð-
stefnunni. Than Chan, fulltrúi
Suður-Vietnam á ráðstefnunni,
var fyrstur á mælendaskrá á
ráðstefnunni í dag, og sagði
hann, að sendinefnd stjórnar
Boun Oums prins ætti að
skoðast sem hin eina rétta
fulltrúanefnd Laos á ráðstefn-
Ýmislegt var haft til skemmtun-
ar, og var fjölmenni viðstatt þrátt
fyrir hryssingslegt veður. Vilhjálm
ur Hjálmarsson frá Brekku hélt
ræðu, Hulda Aðalsteinsdóttir frá
Ormsstöðum las upp, Karlakór
Norðfjarðar söng og Lúðrasveit
Neskaupstaðar lék. V. S.
Kristhna Meuon, landvarnarráð
herra Indlands, kom til ráðstefn-
unnar í dag, en komu hans hefur
verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu, því að treyst er á að
honum takizt að miðla málum.
Var búizt við miðlunartillögu frá
honum í dag, er vænleg væri til
þess að hljóta jáyrði flestra full-
trúa á ráðstefnunni.
Kommúnistar yfirhöndina
Á meðan Harriman, formaður
bandarísku sendinefndarinnar,
Hvenær er bezt að frysta fiskinn?
59 þorskar veiddir í
landhelgi I Faxaflóa
Skozka fiskvinnslurann-
sóknaskipið William Hardy
kom til Reykjavíkur í fyrri-
nótt eftir að hafa veitt 59
þorska í íslenzkri landhelgi.
Skipið er hálfnað í þriggja vikna
leiðangri til Færeyja og fslands.
Leiðangursstjóri er dr. Love og
hefur hann þrjá aðstoðarmenn auk
Unglingspiltar í verkum
kvenna við síldarsöltun
Aðkomufólk kemur hingað
þessa dagana í flokkum til
síldarstarfa I sumar. Síldar-
saltendum hefur gengið mjög
illa að fá stúlkur til söltunar,
en í staðinn er gripið til þess
ráðs að ráða unglingspilta til
starfsins. Þetta vandamál hef-
ur gert vart við sig áður, en
hefur ekki fyrr verið jafn
mikið.
Ástæðan til þess, að stúlkur
fást ekki, er vafalaust næg atvinna
í verstöðvum fyrir vestan og suð-
vestan land, en hún stendur aftur
í sambandi við dragnótaveiði, sem
nú er víða leyfð, rækjuveiði og
humaiweið'i. Hins vegar vonast
menn til þess, að unglingspiltam
ir reynist vel. Fyrir þá verður að
stofna mötuneyti, því að þeir geta
ekki eldað ofan í sig eins og kven
fólkið, og veldur þetta saltendum
nokkrum örðugleikum. Það virðist
unut að útvega mikinn fjölda þess
ara unglinga til síldarsöltunar, og
þeir vilja gjaraan reyna sig við
þessi störf. Flestir þeirra eru frá
Reykjavík.
Salti landað í gríð og erg
Á laugardaginn kom hingað skip
með saltfarm, og nú er komið ann
að, sem verið er að skipa salti
upp úr, svo að nú ætti að vera
til nóg af þeirri vöru, ef síldin
skyldi taka upp á því að berast
hingað innan skamms.
Lausn var fundin á verkfallinu,
sem hér var, á föstudagskvöldið,
og saltskipið, sem beið eftir að
geta landað farmi sínum, var á
laugardagsmorguninn komið hing-
að. Það hafði legið og beð'ið á
SeyðisfirðL
áhafnar. Þeir rannsaka einkum
mismunandi gæði fisks frá mismun
andi veiðisvæðum og einnig mis-
munandi gæði frysts fisks eftir
því, hve löngu eftir veiðina hann
t er frystur. Skozk ríkisstofnun,
Torray Research Institute gerir
skipið út.
Leiðangursstjóri báð leyfis að
fá að veiða nokkra þorska í land-
helgi, þar sem þeir vildu vera
komnir að landi nógu snemma
með fiskinn eftir að hann er veidd
ur Þeir fengu leyfið og köstuðu
skammt undan Reykjavík. í fyrsta
kasti fengu þeir aðeins 4 þorska.
reyndu aftur og fengu þá engan.
Loks í þriðja kasti fengu þeir 55
þorska og það nægði. Síðan var
siglt til Reykjavíkur, því þeir hafa
ekki aðstöðu til að rannsaka fryst-
ingu úti á rúmsjó.
Dr. Love væntir þess að rann-
sóknir þessar leiði í Ijós, af hvaða
veiðisvæðum frystur fiskur geym-
ist bezt og hve löngu eftir veiði
bezt er að frysta hann. Menn vita
að vont er að frysta fiskinn mjög
seint, en það hefur einnig komið
í Ijós, að ekki er ráðlegt að frysta
fiskinn jafnskjótt að veiði lok-
inni.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða gefnar út og verða þá vænt-
anlega tii mikilla hagsbóta fyrir
fiskiðnað.
verður fjarverandi, mun John M.
Steevens, sem er utanríkisráð-
herra í þeim málum, sem sérstak-
lega varða löndin í austri, gegna
formannsstörfum á ráðstefnunni.
Fréttastofa Reuter greinir svo
frá, að formenn ráðstefnun-nar,
Malcolm Macdonald og sovézki
fulltrúinn, George Pusjkin, muni
eiga viðræður við fulltrúa hinna
þriggja ríkja, sem sæti eiga í eft-
iríitsnefndinni í Laos, en þau eru
Pólland, Kanada og Indland.
Segir í Reutersfréttinni, að fund
ur þessara aðila hafi átt að vera
í dag, og skyldu þar ræddar leiðir
til þes's að gera eftirlitsnefndinni
fært að hafa nákvæmt eftirlit með
því, að vopnahlé sé haldið í Laos.
Tassfréttastofan segir frá því í
dag, að Pathet-Lao og hlutlausir
ráði 60% af öllu Laos. Segir frétta
stofan enn fremur, að Kong Lee,
höfuðsmaður og stjómandi her-
sveita hlutlausra í Laos, hafi lýst
því yfir, að rúmlega helmingur
af Laos hafi verið frelsaður, og
að 7 þúsund uppreisnarmenn hafi
verið teknir úr umferð.
Sananikone mættur
Fulltrúi Suður-Vietnam, Than
Chan, bauð í dag velkominn til
ráðstefnunnar Phoui Sananikone,
sem þar mætir fyrir hönd stjórn-
arinnar í Vientiane, en þó aðeins
sem áheyrnarfulltrúi. Sagði Chan,
að Sananikone mætti sem áheyrn
arfulltrúi löglegrar stjórnar, og
rödd hans væri rödd íbúa lands-
ins. Sananikone er fyrrverandi for
sætisráðherra í Laos, og er leið-
togi flokka þeirra, sem styðja
hægri stjóraina undir forystu
Boun Outns prins.
f stuttri ræðu, sem Sananikone
flutti á fundinum í dag, lét hann
í ljós undrun sína yfir því, að
ráðstefnan hefði nú staðið yfir í
sex vikur, án þess að nokkur full
trúi frá stjórninni, sem ráðstefn
an varðar þó öðru fremur, ætti
þar sæti. Þá vítti hann það, að
ráðstefnan hefði haldið fundum
sínum áfram, þrátt fyrir það, að
vopnahléssamningurinn hefði marg
sinnis verið rofinn.
Ægileg flóð
í Japan
NTB—Tókíó, 27. júní.
Að minnsta kosti 37 menn
létu lífið, og fleiri en 60 meidd
ust í ægilegum flóðum, sem
urðu í dag í Japan.
Þessi miklu flóð urðu eftir
geysilegt skýfall, sem kom i
dag, eins og nokkurs konar
eftirköst hvirfilbálsins, sem þar
hafði geysað. 2200 fjölskyldur
misstu heimili sín, og 482 hús
eyðilögðust gersamlega. Margra
manna er enn saknað, og er
óttazt, að 54 menn hafi farizt
til viðbótar við þá 37, sem
strax fundust. Stórar ekrar
liggja undir vatni, og hafa hin-
ar heimilislausu fjölskyldur
leitað hælis í skólum og opin-
berum byggingum.