Tíminn - 28.06.1961, Side 11

Tíminn - 28.06.1961, Side 11
90TM INN, miðvikudaginn 28. Jfihl 1961. 11 Myndin sýnir kviðdómendur ( máli Brevings, þar sem þeir eru að átta sig á afstöðunni á sundinu, þar sem báturinn fórst. Það er Tage Sinding, rlklssaksóknari, sem bendir út yfir sundið. Fyrir réttri viku, miðviku- daginn 21. júní, kl. 3.30 síS- degis féll dómur í máli danska skipasmiðsins Brev- ing, sem við höfum rakið hér á 11. síðunni áður. Það var undirrétturinn í Óðinsvéum, sem dæmdi, og var Breving sekur fundinn um að hafa ráðið bremur mönnum bana, en sýknaður af einu dráp- inu, sem hann var kærður fyrir. Hann var einnig talinn sekur um fleiri glæpi. Kviðdómurinn var fullar tvær klukkustundir að komast til botns í málinu, en þær spurningar, sem þeir áttu að taka afstöðu til, mru þessar: — Er Breving sekur um að hafa valdið konu sinni, Bang Hansen og Torben Bebe bana, annað hvort með því að gefa þeim eitur á siglingu á Litla- Belti eða á annan hátt að hafa verið valdur að því, að þau gátu ekki veitt mótspyrnu, og síðan kastað þeim í hafið? — Er hann sekur um að hafa valdið syni konu sinnar. Johnny, bana? — Er hann sekur um að hafa kveikt í bát sínum, sem var tryggður fyrir 2500 krónur (danskar)? — Er hann sekur um innbrot og þiófnaði (Og síðan listi um það, sem hann átti að hafa stolið)? Og svo var ein viðaukaspurn- jng; í ágúst 1960 var flakinu af bát Brevings lyft upp á yfirborðið, og þar með var rannsókn málsins sett I fullan gang. Nú, tæpu ári síðar, er dómur- — Hafi hann gert þetta, var Inn fallinn. hann þá svo vanheill á geðs- Breving dæmdur í ævslangt fangelsi Atéwn munum, að það gæti orðið til mildunar dómsins? Sekur fundinn Oddviti kviðdómsins las spurn- ingarnar og gaf svörin. sem öll A5 þúa eða þéra Afgreiðslustúlka á Stóra-Beltis- ferjunni „Dornning Ingrid“ hefur krafizt skaðabóta fyrir líkamlega þjáningu. sem hún hafi hlotið af völdum farþega. Atvik málsins voru þau, að far- þeginn, ung stúlka, skvetti úr vel heitum kaffibolla framan' í af- greiðslustúlkuna. Ástæðan var sú, að afgreiðslustúlkan hafði þúað þessa kynsystur sína, vegna þess, hve ungleg hún var, en í ljós kom, að hún var hvorki meira né minna en 20 ára! voru jákvæð. Bak við þau öll stóð meira en helmingur kviðdóm- enda. Aðeins með tilliti til Tor- ben Bebe höfðu kviðdómendur svarað: Saklaus. Það var vegna þess, að lík Torbens hafði aldrei fundizt, og því gegndi nokkuð öðru máli um hvarf hans en lát hinna. Ekki geöbilaður Að þessu loknu hófust umræð- ur um það. hve þungur dómur Brevings skyldi verða. Ríkissak- sóknarinn sagði, að af hálfu ákæruvaldsins yrði krafizt lífs- tíðarfangelsis. því glæpur sá, sem hér um ræddi. væri svo grófur og ógeðslegur. að ekki kæmi til greina að dæma manninn til vörzlu á geðvekirahæli. Hið eina réttlætanlega væri lífstíðarfang- elsi. Máli sínu til sönnunar taldi hann upp nokkra glæpamenn. sem höfðu reynzt vanheilir á geðsmunum. en vegna eðlis glæp anna ver-ð dæmdir í annað hvort 16 ára eða lífstíðarfanglsi. — Þegar kviðdómurinn, sagði hann að lokum. svarar viðauka- spurningunm jákvætt, þýðir það, að hann skoðar Breving ekki með fullu viti. En nú á að taka af- stöðu til þess, og það mun verða gert. Ég fyrir mitt leyti álít hann ekki geðbilaðan. Ævilöng fangelsisvist Verjandanum fórust orð m. a. á þá leið. að ekki yrði komist hjá því að taka tillit til hinna ýmsu manna, sem hefðu álitið Breving vanheilan á geðsmunum. svo sem kviðdómendurnir, ýmsir geðlækn- ar og fleiri, sem hann taldi upp. Að því loknu kvað dómsforseti upp úrskurðinn, sem hlióðaðiupp á ævilanga fangelsisvist. Sjálfur sat Breving kyrr í stúku sinni, en var mjög fölur Þegar dómsforsetinn spurði, hvort hann hefði nokkuð að segja, neitaði hann því. Ba3 um frest í lokin upplýsti dómsforseti, að hægt væri að áfrýja málinu til hæstaréttar. en þó aðeins með til liti til refsingarinnar, væri áfrýj- að innan 14 daga. En sektarúr- skurðinum yrði ekki áfrýjað. Hann spurði Breving, hvort hann óskaði að taka afstöðu til þess nú, hvort hann vildi áfrýja, eða hvort hann vildi fá umhugsunar- frest. Eftir stundarþögn bað Breving um umhugsunarfrest. „Sama hvað ég geri ..." Daginn áður hafði Breving staðið upp í stúku sinni og tekið að tala um sjálfan sig: — Það er ekki þægilegt að heita Breving og standa hér sem hinn ákærði. Láti ég ekki á mér sjá hvort mér líkar betur eða ver, er ég kall- aður tilfinningalaus, gráti ég, er það leikaraskapur og fals. Það er sama hvað ég geri, það er allt lagt út á versta veg. Síðan talaði hann um fyrri dóma sem hann hefði hlotið, um veru sína á geð- veikrahælinu, og endaði með þessum orðum: — En eitt veit ég með vissu. Ég drap ekki þessar fjórar mann- eskjur. Ég segi það satt, þótt ég sé sá eini, sem veit það. Það er kannske hægt að dæma mig fyrir það, en það er ekki hægt að hrófla við þeirri vissu minni. Loftkældir skór Fáum við bráðum loftkælda skó? Hinn norski skóframleiðandi Truls Larsen hefur nú fundið upp nýjung í skógerð, sem að hans áliti mun valda byltingu í þeim iðnaði. Það er loftkældur skór. Inn f sóla skósins setur Larsen þunna gúmmíslöngu, sem opnar loftrás í sjálfum skósólanum. Loftstraumurinn, sem þannig leikur um fótinn, varnar fótraka, bæði vegna vætufæris og svita. — Norðmenn eru þcgar teknir að framleiða sólann, og Þýzkaland hefur fengið áhuga fyrir uppfinn- ingunni. Væri þetta ekki athug- andi fyrir íslenzka skóframleið- endur? j

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.