Tíminn - 19.07.1961, Side 13

Tíminn - 19.07.1961, Side 13
13 T f M I N N, miðvikudaginn 19. júlí Holberg i pakkhúsinu Framhald al 7 <úðu hér í pakkhúsum allt fram til ársins 1926 en þá var fyrst reist samkomuhús. Það var Ólafur Norðfjörð Möller, sonur Jó- hanns kaupmanns sem var driffjöðrin í þessu. Og leikara-' þráðurinn slitnaði ekki, því Ól- afur er föðurbróðir Öldu Möll- er leikkonu. Ólafur dó ungur, árið 1908. Hann var sérkenni- legur maður, lítt mannblend- inn og fór einförum. En hann var glaður í sinn hóp og uppi j á leiksviðinu var hann í essinu sínu, hreinasti listamaður. Jón Laxdal tónskáld var hér um eitt skeið og líka Hallgrímur Kristinsson. Það bar snemma á menntaða fólkinu hér og ung- lingarnir tóku eftir því, þess vegna varð snemma menningar- bragur hér á félagslífi. Fleiri nafnkunnir menn dvöldust hér, til dæmis séra Jónmundur heitinn sem prestur varð í Grunnavík og þjóðkunnur mað- ur. Hann var þá um tvítugt og var hér barnakennari hjá kaup-, mönnum. Hann þótti afarmenni til burða og gekk við svo sver- an staf að enginn þóttist hafa séð annan eins. Laxdal tónskáld var líka barnakennari hjá Möll-, er. Kaupmennirnir höfðu sér-: staka heimiliskennara en hinir nutu góðs af. Guðrún Guðjóns-' dóttir kenndi heima hjá sér. J Annars byrjar skólahald hér árið 1908. 4t, Mór við húsvegginn Hér á Blönduósi má heita að. allt hafi verið í sömu skorðum, lengi fram eftir, efnahagur batnar að vísu eftir fyrra stríð en engin stórbreyting vei'ður fyrr en 1940. Þó er það fyrst árið 1950 sem segja má að( verði stökkbreyting. Nú er ris- in upp byggð beggja vegnaj Blöndu og fólki fjölgar jafnt og þétt. Pöntunarfélag er stofnað hér 1896 og mætti það mótspyrnu kaupmanna. Þá var ekkert hús en vörunum skipt niður í sandi þegar skipin komu. Seinna var byggt lítið hús þar sem hægt var að vigta kaffi, sykur og aðra smávöru. Árið 1907 er, stofnuð söludeild og nú rekurj kaupfélagið umfangsmikla starf, semi, hér er sláturhús þar sem slátrað er um 30 þúsund fjár, enn fremur stórt mjólkurbú og bílaverkstæði í nýjum húsa- kynnum, auk verzlunarinnar. Það er af sú tíð þegar fólk skrimti á móvinnunni á Blöndu- ósi, þá var tekinn mór við hús- vegginn og konan látin þurrka móinn meðan hún sinnti hvít- ( voðungnum. Þá var baráttan örðug fyrir daglegu brauði og menn urðu að vera harðir af sér. I Ég á þig seinna Mér verður lengi minnisstæð- ur einn tómthúsmaðurinn á Blönduósi Hjörtur Jónasson. Tilsvör hans og viðbrögð voru víðfræg. Hann átti son sem varð helsjúkur af berklum og hafði haft við orð að fyrirfara sér. Þessi sonur hans bjó frammi í sveit, en fór til Sauð- árkróks að leita sér lækninga. Þegar komið er frá Sauðár- króki er um tvær leiðir að fara og er það kallað að fara fram hinumegin, þegar farið er fram í sveit án þess að koma við á Blönduósi. Hjörtur fór til ■ móts við son sinn er hann tók að lengja eftir honum. Ekki hafði hann lengi farið upp með Blöndu er hann sá lík Ingvars rekið þar á klöppum. Hleypur, hann þá semskjótast eftirhjálpi niður á Blönduós aftur. Þar stóð kaupmaður á tröppum er hann hljóp hjá húsi hans. j „Er Ingvar farinn?" spurði kaupmaður. Hjörtur játti því. 1 1961. „Helvitið lofaði að taka fyi'ir mig bréf fram í sveit,“ sagði þá kaupmaður. „Hann fór fram hinumegin," svaraði Hjörtur og hljóp sína leið. Hjörtur þessi var eitt sinn heitbundinn stúlku sem Helga hét. Hann sleit trúlofuninni og giftist þá Ástríði, grallarakell- ingu. Helga bar sig illa sem von var og rakti Hirti raunir sínar. Þá sagði Hjörtur: „Gráttu ekki Helga mín, ég á þ’g seinna.“ Og það varð orð að sönnu, að hann skildi samvistir með Ástríði nokkrum árum seinna og gekk að eiga Helgu, fyrr? unnustu sína. Því var við- brugðið hvað hann var henni góður, því hún varð seinna mesti aumingi til heilsunnar og fór engra sinna ferða. Þá ók Hjörtur henni um í hjólbörum til að stytta henni stundir. J.J. Viftey ■ Framhaid R 9 síðu > sannast að segja undarlegt, að prestastéttin skuli láta viðgang- ast, að slíkur staður drafni niður. Þegar inn í Viðeyjarstofu er komið, tekur ekki betra við. Úr hverju horni horfir auðn og tortíming, krydduð sóðaskap. Alls konar hlutir, afdankaður húsbúnaður, drasl og rusl, ryk og skítur blasir við auganu, allt frá neðsta gólfi til þess efsta Óloftið fyllir vit manns, svo að maður þráir heitast að komast út undir bert loft. Eitt sinn voru þessi hús stolt þessarar eyjar, nú eru þau smán á ásjónu hennar. Maður finnur til þessarar smánar, þegar maður gengur um þau og verður hugsað til þeiira manna, sem í þeim hafa lifað og starfað okkur, eftirkomend- um þeirra, til gagns. Það er löngu gróið yfir leiði þeirra, og allt á þessum stað bendir til þess, að yfir mniningu þeirra sé gróið líka. Þeirra er stund- um getið í skálaræðum eða á pólitískum samkomum, og í skólum læra börnin um þá, en virðingin fyrir minningu þeirra er ekki svo armlöng, að hún nái til Viðeyjar. Birgir. Austurferðir | Frá Rvík um Selfoss. Skeið, Gullioss Geysi, þriðjud. og föstud. Um Grímsnes, Gullfoss,] Geysi. fimmtud. Um Selfoss,1 Skeið. Hreppa, Gullfoss, Geysi,1 laugardaga. Til Laugarvatns, daglega. Laugardagsferðir um Selfoss kl. 9 að kveldi. Hefi vatnsheld tjaldstæði- olíu o. fl. Hópferða- bifreiðir og matstofu fyrir nestað fólk. ÓLAFUR KETILSSON Bifreiðastöð fslands. Sími 18911. V*'V*V*X»V*V‘X*X*V*V*V*A.*X*V*‘ Lögfræðiskrifstofa Laugavegi 19 SKIPA- OG BÁTASALA Tómas Árnason hdl. Vilhjálmur Árnason hdl. Símar 24635 og 16307. V. • V* V* V*V* V* V* V* V* V • V* V* V* V Brotajárn og málma kaupti hæsta verði Arinbjörn Jónsson Sölvhólsgötu 2 — Simi 11360 Mi'ðvikudagsgreinin I- T a -1 n hungurvofa grúfði yfir al- þýðu manna. Þó höfðu þær kyn.slóðir þrek til að bera örlög sín. Það er vitanlega víða hægt að finna mæðu- tón og harmatölur, andvörp og stunur, en örvænting og brjálsemi virðist sízt hafa verið algengari en nú. Þetta myndi að verulegu leyti byggjast á því. að þá var það almennt að menn hefðu örugga trú á það, að líf sé eftir þetta lif. Hugg- un fólksins og von var sú, að í öðru lífi héldi ner^ónu- leg kynning og félagsskapur áfram. Nú er slík trú ekki jafn algeng og áður. Allir vita, að það eru skiotar skoðanir um framhald lífs- ins ,svo að enginn trúir nú og treystir á annað líf af því einu, að honum virðist að allir geri það. Þar þarf meira til. En er það þetta eitt, sem úrslitum ræður? Halda menn ekki viti og andlegri heilbrigði almennt, án bess að trúa á framhalds líf? Fornir spádómar, svo sem í Opipberunarbók Jóhannes- ar og Völuspál segja frá þvi, að jörðin muni farast í eldi. Miklu sýnast þeir spádómar eðlilegri nú en fvrir nokkr- um áratugum. Nú er talið að það séu skilyrði til þess að slíkir snádómar fari að ræt- ast. Fanður hani galar og Surt''# fer sunnan. En þessir spádómar hermdu frá því, að jörð oe mannlíf héldi á- fram eftir skelfingar elds- ins, betra og fegurra en áð- ur. Vitanlega er hægt að líta á þessa spádóma sem skáld- ■ skap og líkingamál, hó að nú virðist sennilegra en áður, að þeir gætu rætzt bókstaflega. Hvað sem um það er, virðast bað vera mannleg örlög. almenn og óhiákvæmileg, að lifa í ó- vissu, svo sem jafnan hefur verið. Og vandinn, sem mæt ir okkur hér í þessu lífi. er sá, að leegia erundvöll að farsæld og hamingju þar sem við erum. Sjónleikurinn Horfðu reið ur um öxl, fjallar ekkert um eilifðarmál eða eilífðartrú. Boðskapur hans er hins veg- ar árétting hinnar fornu speki um nauðsvn vináttu og samúðar fyrir manninn. Heimilislíf og félagslíf bygg ist á fornum grunni mann- legra tilfinninga og gagn- kvæmrar virðingar fyrir til- finningum annarra og ein- staklingseðlinu. Á þeim grundvelli geta menn mætt örlögum sínum. Þaðan kem ur þeim styrkur til að bera byrði lífsins. Sá, sem víkur af þeim vegi, og velur sér aðra leið, endar með því að engjast í duftinu. ; H. Kr. j Ivers á sauðféð að gjaSda? \*V • X. • - I Geri við óg stilli olíukvnd- ingartæki. Viðgerðir á alls konar heimilistæk.ium Ný- smíði. Látið fagmann ann- ast verkið' Sími 24912. í Tímanum, sem út kom 25. maí síðastl. er grein eftir Stefán Kr. Vigfússon, sem hann nefnir: „Er þetta virkilega svona?“ Þar ræðir hann um mismun þann, sem kúabú og sauðfjárbú gefa af sér. Segist hafa lesið grein eftir Pál Zóphóní- asson þar sem hann leggur það niður fyrir ungum hjónum, sem leita ráða til hans, hvort þau ættu heldur að búa með sauðfé eða kýr. Og Páll kemst að þeirri niður- stöðu, að þegar jörðin, sem ungu hjónin eiga völ á, er fullsetin, þá er útkoman þessi: Kúabú gefur af sér kr. 65.00ff, en fjárbú gefur af sér kr. 35—36.000 þ. e. a. s. það munar sem næst helming á brúttó- tekjum, hvort um kúabú eða fjár- bú er að ræða. Það má sjá minna grand í mat sínum. Svona hefur þetta verið í nokkur ár — án þess að þeir, sem með þessi mál hafa farið, virðist hafa vitað, hvað þeir hafa verið að gera. Um þetta mál hefur verið undar- lega hljótt, en nú er að heyra úr ýmsum áttum, að menn hafi áttað sig á því misrétti, sem fjárbændur hafa verið beittir með hinni rang- látu verðskráningu á kjöti og mjólk. Það verður að segjast eins og það er, þetta er engum til sóma, hvorki þeim, sem að þessu hafa unnið, né heldur okkur hin- um, sem yfir þessu höfum þagað allt til þessa. En betra er þó að þola óréttinn en gera hann. Það ætti nú öllum að vera ljóst. að á þessu er ekki lengur stætt. Þeir sem skipta þannig á milli manna, að annar beri helmingi meira úr býtum en hinn, eru litlir sóma- menn, eða ekki starfi sínu vaxnir. Það er sannarlega mesta guðs- mildi, að þessir menn skuli ekki vera búnir að leggja alla sauðfjár- eign í auðn á stórum hluta lands- ins, þar sem verð á sláturfjár- afurðum hefur verið þannig und- anfarin ár, að það liggur ekki nærri, að meðal dilkur borgi fóð- ur og annan tilkostnað ærinnar. Það er elckert annað en gömul tryggð til þessarar skemmtilegu skepnu, sauðkindarinnar, sem mest og bezt hefur fætt og klætt þjóðina um alda raðir, sem veldur því, að menn eru enn þá með kindur. Nýlega átti ég tal vig tvo bænd- ur, annan ungan, sem hefur verið að koma sér upp fé undanfarið. Hinn aldraðan fjárbónda. Báðir sögðu þeir það sama, að þeir væru að gefast upp á fjáreigninni. Ungi bóndinn sagðist ekki hafa efni á því að eiga kindur. „Ég farga án- um í haust. Þetta er beinn skaði,“ sagði hann. Hinum fórust orð eitt- hvað á þá leið, að hann hefði sig nú ekki í það að farga ánum, sem væru á góðum aldri, en sagðist ekki setja á lömb og þá fækkaði ánum fljótt af sjálfu sár. „Þetta þýðir ekkert. Það er ekkert upp úr þessu að hafa, bara strit og erf- iði.“ Þannig hugsa og tala bændur og því skyldu þeir ekki gera það Kannske að forystumenn þess- ara mála standi í þeirri meiningu, að bændur muni til lengdar fram- leiða dilkakjöt, bezta dilkakjöt í heimi, þótt þeir fái ekki nema rúm lega hálft verð fyrir það. svona af eintómum þegnskap eða stolti. Heimilishjálp Tek crordinur oe rioke t qtrolrW’nern ílnnl^cinfrnr ma 17045 Þessi orð hafa stundum heyrzt, en ætli það fari nú ekki að dofna á þeim mesti glansinn, hvað líður í eyrum bændanna. Karakúl drepsóttum tókst ekki að eyðileggja fjáreign landsmanna, þó nærri stappaði sökum þess, hve seint var tekið til hinna réttu ráða um útrýmingu þeirra. En þá var líka að þvi unnið með festu og dugnaði. Vonandi verður þessari plágu, sem nú þjakar fjáreigendur út- rýmt með sömu festu og dugnaði og karakúlpestinni, verði það ekki gert og það tafarlaust. verður þessi síðari plága verri þeirri fyrri. Á tímabilinu frá 1936—42 fór kaupgjald og annað verðlag ört hækkandi. en landbúnaðarafurðir stóðu í stað eða sem næst því. Þá tók Ingólfur Jónsson núverandi landbúnaðarráðherra við kjötverð- lagsmálunum og hann var ekkert að tvínóna við það. Hann hleypti verðinu upp um 100% og voru verðlagshlutföllin áreiðanlega, hvað þetta snerti ekki verri þá en nú. Og hvað væri verðið nú á dilkakjöti, ef því hefði ekki verið kippt svona upp í einu átaki? Ríkisstjórn Emils Jónssonar. Al- þýðuflokksstjórnin, tók sér það fyrir hendur að ráðast að kjötverð- inu og lækka það stórlega. Sýnir það manndóm hennar og sanngirni í garð bænda að ráðast þar á garð- inn, sem hann er lægstur, enda var ekki við öðru að búast úr þeiiTi átt. Þeir vita það jafnaðar- menn, að þeir eiga ekki atkvæði í sveitum, sem ekki er von, enda telja þeir allt eftir, sem þangað fer og hafa gert lengi. En hvað þá um hina, sem eiga að vera og eru forsvarsmenn bænda. Eru þeir ánægðir með þetta ástand? Bændum væri greiði gerður með því að fá að vita það heldur fyrr en seinna, hvort það á svo að ganga, að bóndinn tapi sem næst 100 kr á hverri á. sem hann hefur á fóðri eins og verið hefur undanfarin ár. Þet'tp er hægt að sanna með rökum en þess er ekki þörf, því þetta hefur allur þorri bænda gert sér Ijóst. Sömu- leiðis ættu neytendur einnig að gera sér það ljóst, að þeir verða að búa sig undir það að kaupa kjöt inn í landið frá Bandaríkjunum á næstu árum, ef svo er fram haldið og hvar ætla þeir að taka gjald- eyri til þess og hvað myndi það kjöt kosta? Sveitungi minn, Guðbergur á Jaðri, skrifar grein í Tímann 7 þ m. sem hann nefnir Hvers vegna flýr fólkið sveitina? Þar sýnir hann fram á það. að bóndinn verður að vinna tvöfalt verk á við verkamanninn. þótt honum sé ekki ætlað meira kaup en verka- manninum í verðlagsgrundvellin- um. Síðan segir hann- „Ofan á þetta bætist svo það. ag verðiags- grundvöllurinn er mjög vafasam- ur að ýmsu öðru leyti.“ Þetta er mjög vægilega til orða tekið. Verðlagsgrundvöllurinn er ein endileysa, sem enga stoð á í veruleikanum og sem ekkert er hægt að gera með annað en fleygja. Nei, það er ekkert undarlegt við það, þó unga fólkið forði sér frá þessum kjörum, sem því eru búin í sveitum og alveg sérstaklega þar sem aðstaða öli er erfiðust Það lítur svo út sem unnið sé að því markvisst að tæma heilar sveitir af fólki. Þó held ég að það sé ekki meiningin heldur komi hér til ókunnugleiki, sem er engan veg- inn afsakanlegur eða dáðleysi nema hvort tveggja sé. Guðmundur Guðmundsson, Núpstúni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.