Tíminn - 19.07.1961, Qupperneq 14

Tíminn - 19.07.1961, Qupperneq 14
14 T í M IN N, miðvikudaginn 19. júlí 1961. gekk vel með drenginn. Enj Stína vaknaði þegar telpan kom til hennar, og varð reið við og neitaði henni um rúm- vist: — Hún pissar undir mig,l kveinaði telpan og barðist um. — Hún gerir það ekekrt, Stína mín. Vertu góð, sagði Hallfríður. En Stína varö ekki góð, hún hamaðist, svo að Hallfrlður varð að láta telp- una í sitt rúm hjá Jósafat litla. Sem betur fór var Sæ- unn litla svo svefnþrungin, að hún vissi varla af sér. Ásrún var með háhljóðum er Hallfríður kom næst til hennar. — Eg held, að barnið verði fætt, áður en pabbi kemur, hvíslaði Óskar að Hallfríði. — Guð gefi, að það verði ekki. Þau hljóta að koma á hverri stundu, sagði hún. En Óskar varð sannspár. Há, skerandi hljóðskorpa rauf næturkyrrðina. Aldrei jafn sár óp og nú, svo hlé litla stund. Þá hljóð að nýju, varla þó eins sárt og áður, svo steinhljóð. , Hallfríð’i sýndist Ásrún fölna upp. Hún leit til Ósk- ars og þau hvort til annars. | Báðum kom víst hið sama í hug: — Er hún dáin? Hallfríður skalf frá hvirfli til ilja. Óskar læddist að rúm- inu, beygði sig yfir móður sína. Svo kom hann og hvísl- aði: — Hún sefur. Þá var kyrrðin rofin að, nýju. Það var eitthvað' sem líktist veiku veini. Það var ekki um það að villast. Nýr maður var í heiminn borinn. Ásrún lauk upp augunum. Hún áttaði sig. — Hallfríður, hvar ertu, kallaði hún. Hallfríður gaf sig fram, en gat þó varla staðið á fótun- um. — Yfirsetukonan er víst ekki komin. — Nei, sagði Hallfríður. — Barnið er fætt, þú verð- ur að skilja á milli, Hallfríð- ur. — Eg get það ekki, kvein- aði Hallfríður. — Eg kann það ekki. — Ekkert bull, sagði Ás- rún. — Skærin eru í kistlin- um mínum. Þú finnur þau, Óskar, og band í handraðan- um. Náðu því fljótt. Óskar lét ekki standa á sér. Svo gengu þessi lítt reyndu ungmenni að hvílu sængur- konunnar og flettu sænginnij upp. Það gerði drengurinn.. Hann var styrkur en Hallfríð| ur skalf eins og hrísla. Hún1 tók þó barnið. En drengurinn j batt fyrjr naflastrenginn meö | tilsögn móðúr sinnar. Nú var( að klippa sundur strenginnJ Óskar tók skærin. Hallfríður tók við skærun- skilja á milli. Hún er fermd, kveinaði móðurin. Og nú fimmtugt. Var hún þá búin að vera 13 ár í hjónahandi og hafði á þeim tíma alið 9 börn. Óskar yngri var fædd- ur áður. XIII. Ásrúnu heilsaðist seint eft- ir þennan barnsburð, hverju sem um var að kenna. Seinna taldi hún Hallfriði eiga sök á þvi. Hún hefði með ístöðu- leysi sínu, þjáninganóttina ! * 1 BJARNI UR FIRÐI: ÁST 1 MEINUM 10 heyrðu þau í fyrsta sinn sár- indi í rödd hennar. Hallfríður tók vi ðskærun- um. En höndin varð svo ó- styrk, að Óskar varð að hjálpa henni. Greip hann um fingurgóma hennar og þrýsti á, svo að skærin bitu. En það fékk Ásrún aldrei að vita. Svo bar Óskar litla bróður sinn yfir í auðu, volgu hvíl- una í rúminu á móti. í sama bili lukust dyrnar upp. Ljósmóðirin sté inn fyrir þröskuldinn. Börnin urðu himinlifandi glöð. Nú voru þau laus við hinn mikla vanda. Ljósmóðirin var fljót að skipta um föt og koma sér inn í starf sitt. Öllu var borg- ið. Áður en Ijósmóðirin fór frá Sjávarbakka, var prestur sóttur og drengurinn skírður. — Hann á að heitá Lýðúr, sagði móðirin. — Eg vildi að hann hefði verið telpa, þá hefði ég látið hana h$ita Lilju, eftir bless- aðri kerlingunni minni. Pyrst hann er strákur, verður. hann að heita Lýður. Það er líkast Liljunafninu. Eftir henni heitir hann. Og drengurinn hlaut nafn- ið Lýður,' með blessun heilagr ar þrenningar. Móðir hans var þá á fyrsta árinu yfir miklu, valdið sér svo miklum harmkvælum, að það hefði gengið lifi sínu næst. Því trúðu menn þó ekki almennt, en töldu að -slit og þreyta hefðu verið þar að verki, og eins hefði aldurinn ráðið þar nokkru um. Þótt Ásrún kæmist á fætur, hélt Hallfríður áfram eldhús- verkunum. Henni leiddist meira sem á haustið leið. — Óskar spurði hana eitt sinn að því, hvort hún fengist ekki til þess að vera þar næsta ár. Hún kvaðst ætla að ráðfæra sig við foreldra sína. Með sjálfri sér hugði hún á það eitt að komast burtu. Um það ætlaði hún að biðja pabba sinn og mömmu. Hún þoldi húsmóðurina svo illa. Við aðra heimilismenn féll henni vel og unni jafnvel sumum bömunum, þó að mestar mæt ur hefði hún á Jósafat litla, drengnum, sem hjá henni svaf. Það var komið fram í nóv- ember. Þá var það eitt sinn, að Hallfríður spurði hjónin, hvort hún mætti ekki heim- sækj a foreldra sína um næstu helgi. Fara seinni partinn á laugardegi og koma aftur fyrir hádegi á mánudag. — Óskar var fyrri til svars og kvað það sjálfsagt frá sinni hálfu. — Þetta þykir mér nokkuð, að segja það sjálfsagt, sem ekki getur gengið, sagði Ás- rún með þykkju í röddinni. — Kannski, Óskar, að þú teljir það sjálfsagt, að hún hlaupi úr vistinni, tel/zan. Nei Hallfríður, þetta er ekki sjálfsagt. Sérðu það ekki, barn, að allt er í ólagi fyrir sumarið. Og vinnukonunefn- an má alls ekki ætlast til þess, að hún geti frílistað sig, meðan svo stendur á. Fyrst verður að hrinda í horfið áð- ur en lagt' er í skemmtiferð. — Þetta er aðeins einn helg ur dagur sem tapast. Vertu nú einu sinni saringjörn, mælti Óskar. — Vertu sanngjörn. Þetta getur þú sagt, svaraði Ásrún. — Já, það er einmitt það sem ég er. Eg er svo sanngjörn, eða í það minnsta réttsýn, að ég met heimilisstörfin meira en duttlunga einnar stelpu. Hvað heldur þú, að hefði ver- ið sagt í mínu ungdæmi, ef vinnukona hefði farið fram á að hlaupa frá skyldustörfum óleystum, þó að rætt hefði verið aðeins um eina helgi. Jafnöldrum mínum hefði ekki komið slíkt til hugar, hvað þá borið það upp. En ungdómurinn leyfir sér margt j nú til dags. — Ætlarðu að neita um1 þennan eina helgidag? Eg trúi því ekki, Ásrún. Ætlarðu | kannski aö neita Hallfríði' um kirkjuferð á helgum degi, j þó að eitthvað sé ógert| heima, sem þarf að gerast? | Hvað heldur þú, að séra Þórð ur segði við því? sagði Óskar. — Það er engin kirkjuferð að Nesi, sagði Ásrún. — En vel j á minnst. Úr því þú nefnirj kirkjuferð. Eg er ekki enn farj in að láta leiða mig í kkrkju-1 Það má ekki dragast öllu leng j ur. Eg hefi aldrei dregið það jafn lengi og nú. Næst er messað' verður, verð ég að láta verða af því. En, Hall- fríður mín. Þetta sem þú nefndir, getur ekki orðið fyrir iól, hvað sem Óskar segir. Eg réð þig hingað, og þessu hlýt ég að ráða. — — Eg læt þig vita það, Ás- rún, að þú skalt ekki fram- vegis ráða hjú inn á þetta heimili, ef þú telur það gefa þér vald til þess að drottna yfir því með harðýðgi. Þetta nær engri átt, að Hallfríði sé bannað að heimsækja for- eldra sína. Hún hefur unnið okkur alltaf, síðan hún kom, og nú er kominn vetur. Eg er viss um, að þú nýtur betur þinnar kirkjugöngu næst, sem verður fyrst eftir hálfan mánuð, ef þú sýnir þessa til- litssemi áður. — Hvað á þessi frekja að þýða? Það er ég sem ræð inn anhúsverkunum hér á Sjávar bakka. Þessu ræð ég, sagði Ásrún. — Hættið að rífast, góðu hjón, sagði Hallfríður. — Eg ætlaði aldrei að reka þetta með neinu ofurkappi. Eg er hætt við ferðina. Og mér þyk ir slæmt, að leiðindi skyldu hljótast af beiðni minni. — Það er ekkert nýtt, að okkur Óskari beri á milli. Það hefur ekki alltaf baðað í rós- um, hjónabandið. Hann hefur gott af því að vita, að ég læt hann ekki kássast í minn Nú var stutt þögn. verkahring hér á heimilinu. Óskar svaraði þessu engu, en brosti napurt. — Á ekki að messa fyrr en eftir hálfan mánuð. Það er líklega rétt, sagði Ásrún. — En hvað um það. Og það máttu vita, Óskar, að ég nýt kirkjugöngunnar, að sama skapi betur, sem ég hefi kom- ut rip. Miðvikudagur 19. júlí: 8.00 Morgunútvarp. 8.30 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna“ tónleikar. 15.00 Miðdegisútvarp 16.30 Veðurfregnir. 18.30 Tónleikar: Óperettulög. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Fjölnismaðurinn Konráð Gísla son; — dagskrá, sem Aðalgeir Kris-tjánsson cand. mag. tekur saman. Flytjendur auk hans: Sveinn Skorri Höskuldsson og séra Kristján Róbertsson. 20.50 Frá Musica Sacra-tónleikum í Laugarneskirkju 11. maí s.l. Kirkjukór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Kristins Ingvarssonar, Árni Arinbjarn- arson leikur einleik á orgel og Kristinn Hallsson syngur einsöng. 21,40 Sendibréf frá Eggerti Stefáns syni: Frá Bonn, fæðingarstað Beethovens (Andrés Björns- son flytur). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Ósýnilegi mað- urinn“ eftir H. G. Wells IV. (Indriði G. Þorsteinsson rit- höfundur). 22.30 „Stefnumót í Stokkhólmi": Norrænir skemmtikraftar flytja ný og gömul lög. 23.00 Dagskrárlok. ^TRÍKUU VÍÐFFÖRLl íívíti h r a f n i n n 141 — Rottan dó í holu sinni, sagði Ragnar, og lýsti hinum hræðilega bardaga, hvernig Morkar hélt Pjakk framan við spjótsodd sinn, en samt hefði dvergurinn grátbeð- ið Ragnar að drepa Morkar. Dverg urinn hafði reynt að snúa sig laus an, en spjótið hefði staðið gegnum hjarta hans. Eiríkur var gráti nær við tilhugsunina um, hve ákveð- inn Pjakkur hafði verið\í að sam- eina prinsessuna og unnusta henn- ar ,og nú 'fékk hann ekki að sjá þann draum rætast, sem þó var svo nærri. Eiríkur klappaði Ragn- ari á öxlina, um leið og sjóræning- inn strauk tár úr auga sér. Svo grófu þeir Pjakk við rætur turns- ins, þar sem hin dáða prinsessa hans hafði verið fangi. Það var sorgarathöfn, en hjarta Pjakks hefði sprungið af gleði, hefði hann séð endurfundi Seathwyns og sonar hans, og ekki síður, þeg- ar feðgarnir gengu burt í friðsam- legri samfylgd Althans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.