Tíminn - 19.07.1961, Qupperneq 16
Miðvikudaginn 19. júlí 1961.
161. blað.
Bourgíba reynir
að hrekja Frakka
frá flotahöfninni í Bízerta
NTB—Túnis, 17. júlí.
ÞaS er Ijóst af ræðu Bourg-
íba Túnisforseta á þingi lands-
ins í dag, að hann er ákveðinn
í að gera úrslitatilraun til þess
að flæma Frakka burt frá
flotastöð þeirra í Bízerta. Tún-
isstjórn hefur reynt að fá
Frakka til að fara með her-
stöð þessa, en hefur litla á-
heyrn fengið, enda er ein-
hvers konar samningur fyrir
hendi um þetta mál.
Undaníarið hefur Bourgíba
gramizt mjög, að Frakkar hafa
unnið að ýmsum framkvæmdum
við flotahöfnina, eins og þeir ætli
Offramleiðsla
á kartöflum?
Ef veður verður hagstætt
það, sem eftir er af sumri, má
gera ráð fyrir afar mikilli
kartöfluuppskeru og jafnvel
meiri en við getum torgað.
Þessar upplýsingar fékk blaðið
hjá Grænmetisverzlun landbúnað-
arins í gær. í vor var yfirleitt sett
niður snemma og vel voraði. Var
sett niður meira af kartöflum en
nokkru sinni áður og má marka
það af hinni miklu útsæðissölu.
Veðurfar hefur hins vegar verið
kalt um land allt í sumar og
spretta hæg. Síðustu heitu dagarn-
ir hafa bætt þar talsvert úr.
Ef framboðið á innlendum kart-
öflum fer fram úr eftirspurninni,
skapast ýmis vandamál. Hag-
kvæmt væri, að kartöfluframleiðsl
an sé svipuð og hún var í fyrra-
haust, en þá var hún aðeins minni
en eftirspurnin. Vantar nú um
1000 tonn af erlendum kartöflum
til viðbótar, en það er lítið magn
miðað við heildarneyzluna.
sér þar langa vist. í ræðu sinni í
dag sagði hann, að nú yrði allt
gert til þess að flæma Frakka burt.
Yrði flotahöfnin einangruð svo
kyrfilega sem mögulegt væri.
Enginn Frakki fengi að fara út úr
herstöðinm, og allt samband inn
fyrir girðinguna yrði rofið. „Allt
hefur verið gert til þess að við
megum ná sigri í þessu máli,“
sagði Bourgíba.
Mikilvæg herstöð, segja
Frakkar
Frakkland hefur haft herstöðina
í Bízerta síðan fyrir sjálfstæðis-
töku Túnis, og hún hefur lengi
verið Túnisbúum þungbær þymir
í augum. Franskir herstjórnar-
menn telja flotastöð þessa afar
mikilvæga frá sínum sjónarhóli,
ekki sízt, ef til kjarnorkustríðs
kæmi. Vígi verða nú hlaðin á þeim
vegum, sem liggja til stöðvarinnar,
sagði Bourgíba í dag. „Frakkar
héldu, að við hefðum gefizt upp
við að reyna að vinna Bizerte aft-
ur,“ sagði hann, „en þar hefur
þeim illa skjátlazt. Við krefjumst
þess að minnsta kosti, að Frakkar
viðurkenni það meginatriði, að við
höfum rétt til að vísa þeim burt.“
Sjálfboðaliðum hefur verið safnað
til þess að vera við einangrunar-
virkin í kringum herstöðina, og
fullvissaði Bourgíba þessa flokks-
menn sína um, að komið yrði í
veg fyrir, að Frakkar legðu til at-
lögu við þá.
Fylgja eftir kröfum um
Sahara
Bourgíba sagði enn fremur, að
sendir yrðu aðrir sjálfboðaliðar til
Garet-el-Hamel í þeim hluta Sa-
hara, sem Túnis gerir kröfu til
gagnvart Frökkum. Hann minntist
á, að Túnisbúum værí sagt, að Al-
þjóðlegar skuldbindingar neyddu
þá til að láta Frakka hafa herstöð-
ina í friði. En Túnisar gætu varla
talið sig bundna af milliríkjasam-
þykktum, sem gerðar hefðu verið
án samþykkis þeirra. Einangrun
eins og sú, sem Túnisar setja nú á
Bízerta hefur einu sinni áður verið
beitt gegn Frökkum á þessum stað.
Það var eftir hina illræmdu loft-
árás þeirra á landamæraþorpið
Sakiet-Sidi-Youssef um árið.
Fóstbræður boðnir
til Sovétríkjanna
Karlakórinn Fóstbræður fer
í söngför til Sovétríkjanna í
septembermánuði n. k. og
verSa söngmenn gestir sov-
ézka menntamálaráðuneytis-
ins meðan dvalið er í landinu.
Boð þetta er tilkomið fyrir
milligöngu íslenzka mennta-
máJaráðuneytisins.
Söngstjóri kórsins verður Ragn-
ar Björnsson, einsöngvarar Krist-
inn Hallsson, óperusöngvari óg
Erlingur Vigfússon. Undirleikari
verður Carl Billich.
Þáttakendur í förinni verða rúih-
lega 40.
Á leiðinm til Sovétríkjanna er
áformað að kórinn haldi sam-
I söngva í Finnlandi.
Áætlunarflug
til Trékyllis-
víkur vikulega
Frá fréttaritara Tímans
í Trékyllisvík, 17. júlí.
Hingað kom í gær flugvél
frá hinu nýstofnaða félagi,
Leiguflug, í Reykjavík. Er
þetta fyrsta flugferðin í fyrir-
huguðu áætlunarflugi til
, Gjögurs, Hólmavtkur og Búð-
ardals.
Lenti flugvélin á hinni ágætu
flugbraut fremst á Reykjanestánni
, en hún er um 800 metra löng og
j liggur frá norðaustri til suðvest-
urs. Er aðflug mjög gott og allar
j aðrar aðstæður ágætar. Áður hafði
Björn Pálsson flogið til Gjögurs,
en þær ferðir voru ekki fastar.
Nú hefur Daníel Pétursson, sem
rekur fyr’irtækið Leiguflug, hins
vegar hafið fastar ferðir, sem
áætlaðar eru einu sinni í viku, á
mánudögum. Flýgur hann þessa
daga fyrst til Búðardals, þaðan til
Hólmavíkur og endar á Gjögri.
Fargjald til Hólmavfkur kostar
300 krónur, til Búðardals 250 og
í Gjögur 400 krónur. Hyggja menn
blaSinu í fyrradag. ÞaS hefur þó varla veriS þessi fallegi prófíll, sem hafTkvamÍ^ffþ^’hve
laSaSi Hjalta aS hennl forSum daga, því aS þá voru menn ekki farnir aS erfiu hafl V€rfð ag komas(. . þfissa
horfa á hana úr lofti. staði og það að vonum. — G.P.V.
i „Já, Eldey er bara sæt, ef rétt er á hana litiS". Þannig hófst bréf, sem
sko'tiS var inn til Tímans í gær. Því fylgdi Eldeyjarmynd — úrklippa úr
Ferðalag í húsvagni —
sumarbústað á hjólum
Tími sumarleyfa og ferða-
laga stendur nú sem hæst og
fólk flykkist burt úr bæjunum
út um landið. Þeir, sem eru
svo heppnir að eiga sumarbú-
staði, halda þar gjarnan kyrru
fyrir og njóta lífsins, aðrir um fer eftir veðrinu. Vagnar
þjóta á bílum sínum um allar þeir, sem á íslenzku hafa verið
jarðir eða liggja við í tjöldum. nefndir húsvagnar, eru tals-
En sumarbústaðir hafa þann vert notaðir erlendis til slíkra
ókost, að þeir eru alltaf á ferðalaga. Eru það nokkurs
sama stað, og vistin í tjöldun- konar sumarbústaðir á hjól-
—-------------- - - , um, sem hægt er að flytja með
Á efri myndinnl sést bíll þeirra Jónínu Helgadóttur og Jóns Gíslasonar
me5 tengivagninn aftan f. Á neðri myndinni sitja þau hjónin inni í tengi-
vagninum, sem i senn er setustofa þeirra, svefnherbergi og eldhús á
ferðalögum.
sér, hvert sem fært er á bíl.
Ungur Akureyringur, Jón Gísla-
son, tók sig til nýlega og smíðaði
sér slíkan vagn. Nú í sumar hélt
hann í ferðalag um landið, ásamt
konu sinni. Ferðast þau í Jeppa,
sem þau eiga,_og hafa húsvagninn
í eftirdragi. TÍMINN frétti af ferð
þeirra, þegar þau voru stödd í
Reykjavík, og sendi auðvitað ljós-
myndara og blaðamann á staðinn.
Jeppinn stóð hjá Langholts-
kirkju og húsvagninn þar hjá. Jón
og kona hans, Jónína Helgadóttir,
buðu okkur að gera svo vel að
ganga í bæinn og fá okkur sæti.
| Inni í vagninum er heimilislegt
! um að litast og furðu rúmgott. Tvö
rúm eru þar sitt hvoru megin og
borð á milli, myndir á veggjum,
útvarp, fataskápur úr plasti, og
auðvitað tjöld fyrir gluggunum.
— Það er aldeilis heimilislegt
hjá ykkur, verður okkur að orði.
; — Já, já, þetta er alveg ágætt,
við erum eins og í sumarbústað,
það er bara heldur þrengra.
— Smíðaðir þú þetta sjálfur,
Jón?
— Já, ég gerði það, eiginlega
allt nema hjólin. Ég byrjaði á
þesáu í páskafríinu og gerði það
svona í hjáverkum.
— Laukstu kannske við það :
páskafríinu líka?
— Nei, ég var fram að hvíta-
sunnu. Ég hef unnið við bílayfir-
byggingar undanfarið hjá Grími
, Valdimarssyni á Akureyri. Ég
(Framhald á 15. sR!u>