Tíminn - 28.07.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.07.1961, Blaðsíða 1
169. tbl. — 45. árgangur. Léttlyndir í gamla daga — bls. 8 Föstudagur 28. júlí 1961. Settu virkt tundurdufl upp á bryggju i Eyjum Vestmannaeyjum, 27. júlí. Vélbáturinn ÖSIingur kom í gærmorgun að bryggju hér í Eyjum með tundurdufl, sem skipverjar fengu í humartroll hér aust- ur af Eyjunum í fyrrinótt. Fenginn var maður frá landhelgisgæzlunni, Erling Magnússon, og gerði hann duflið óvirkt í gær, en það reyndist óskemmt, og því að öllum líkindum virkt. Skipverjar á Öðlingi tilkynntu að sjálfsögðu um hinn varasama feng sinn, en er þeir komu að byggju, hugsuðu þeir ráð sitt ekki lengi heldur skipuðu duflinu upp á bryggju. Þar setti lögreglan vakt við það, þar til Erling Magnússon kom á staðinn o.g rannsakaði gripinn. (Framhald á 2. síðu.) Með dragnót fyrir borð og drukknaði Bíldudal, 27. júlí. ÞaS slys varð á þriðj jdaginn, að mann tók út af vélbátnum Freyju frá Bíldudal, er hún var að dragnótaveiðum í mynni Arnarfjarð- ar og drukknaði hann. Sjómaðurinn hét Helgi Magnússon, var rúmlega þrítugur að aldri, ókvæntur, en bjó með roskinni móður sinni á Bíldudal. Freyja var að dragnótaveiðum á þriðjudaginn í blíðskaparveðri. Slysið varð með þeim hætti, að nótin fór í skrúfu bátsins, og um leið og hún vatt nótina upp á sig, kippti nótin manninum fyrir borð. Skaut upp einu sinni. Vél bátsins stöðvaðist, þegar nótin fór í skrúf- una, en báturinn var á ferð og skreið áfram frá manninum í sjónum, og fengu skipverjar ekki ann- að að gert en kasta út bjarghring. Helga skaut up einu sinni, en síðan sást hann ekki framar. Hann varð þegar laus við nótina, er hann kom í sjóinn, en skipverjar gátu ekkert gert til bjargar, þar sem vél bátsins hafð istöðvazt, og þeir voru of langt í burtu. Helgi var þaulvanur sjómaður og mjög vel syndur. Sjóprófum vegna slyss þessa lauk í gær. P.Th. Ljósmyndari og blaðakona Tímans brugðu sér í gær i brakandi þerrinum austur í Ölfus til að hyggja að heyskapnum, og tók Ijósmynd- arinn þesas mynd við það tækifæri. Siglt meö austan síld til Vestm.eyja í gærkveldi voru væntanleg til Vestmannaeyja tvö síld- veiðiskip með dávænan síldar- afla, sem átti að fara í bræðslu þar. Er þess ekki fyrr getið, að siglt hafi verið með síld frá Austurlandsmiðunum til Eyja. Þessir bátar eru Ófeigur II og Bergur, báðir úr Eyjum. Þeir lögðu af stað af miðunum fyrir austan á miðvikudagsmorguninn. Veður var hið hagstæðasta til sigl ingarinnar, eftir að kom suður að Gerpi, enda komin noyðaustan átt fyrir Austurlandi og fyrir norðan. Var þá ekki víst, að miklu Iengri iaSjjflj | tíma tæki að sigla til Eyja en Siglu fjarðar. Fyrir austan var þá ekki heldur vænlegt að landa. Á Seyðis firði biðu 25 skip löndunar í fyrra dag með 17 þúsund mál og var þar 6—7 sólarhringa bið. Humarleyfi tekin af 16 Vestmannaeyjum, 27. júlí. í gær kom hingað til Vest- mannaeyja tilkynning frá sjávarútvegsmálaráðuneytinu, þar sem humarveiðileyfin eru tekin af 16 bátum. Samtals munu upp undir 30 hafa feng ið leyfi þessi í upphafi. (Framhald á 2. síðu.) TALIS Á Rétt eftir hádegið í gær kom varðskipið Ægir með norska skipið Talis, sem leigt hefur verið til síldarflutninga fyrir norðan og austan, í togi inn til Vopnafjarðar. Skipinu hafði hlekkst á út af Digra- nesi, sent hafði verið út neyð- arseyti og áhöfnin yfirgefið skipið, þar sem talln var hætta á að því myndi hvolfa. Svo illa fór þó ekki. Talis, sem er annað noska skip- ið, sem Éyjafjarðarverksmiðjurn- | ar hafa á leigu til síldarflutninga, ivar á norðurjeið með fullfermi, er það hafði tekið á Seyðisfirði, lið- lega 4 þúsund mál. Skipið fór frá * Seyðisfirði síðari hluta dags á mið- vikudag. Þá fói veður versnandi. Farmurinn kastaðist til Fyrri hluta nætur var skipið statt 18 sjómílur út af Digranesi. Var þá veðurhæð orðin 6—7 vind- stig og sjór talsverður. Er hér var komið, sprungu skilrúm í lest skipsins og farmurinn kastaðist fram og út á stjórnborðssiðuna. Skipið fékk þá mikla slagsíðu, og klukkan 3.35 sendi það út neyðar skeyti og' bað um aðstoð, o g var þá talin hætta á að skipinu hvolfdi. Síldarbátar í námunda Varðskipið Ægir, sem var við síldarleit út af Austfjörðum, lagði þegar af stað til skipsins, en sendi um leið út kall til síldarbáta, sem kynnu að vera staddir nær skipinu, að þeir færu Talis til hjálpar. Tveir bátar reyndust vera skammt (Framhald á 2. síðu.) 11 r þrotabúi „viðreisnarinnar" Áður en viðreisnin kom til, var orðin mjög mikil upbygg- ing í mörgum sjávarplássum landsins og fólksfjölgun sýni- Iega framundan víða, enda mik ið byggt af íbúðum. Aukin fiskigengd vegna útfærsiu land helginnar lofaði góðu um fram tíðina. Nú hefur þeim kreppumönn- urn tekizt að stöðva þessa hröðu framþróun, þótt enn njóti þess, sem búið var að gera. Skipakaup eru nú orðin fágætur atburður og fram- kvæmdir í fiskiðnaði sáralitl- ar. íbúðabyggingar mega heita stöðvaðar víða — aðeins reynt að ljúka því, sem byrjað var á, áður en yfir skall. Og það sem út yfir tekur þó er, að nú ber- ast þær fréttir, að togarafloti Breta sé byrjaður að sikrapa í landhelginni og drepa ungfisk- inn eins og áður, áður en land- helgin var færð út. Enginn nefnir stefnu þeirra krepu- manna viðreisn lengur, nema í beizku háði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.