Tíminn - 28.07.1961, Page 7

Tíminn - 28.07.1961, Page 7
T í M I N N, föstudaginn 28. júlí 1961. 7 Erlen* (Framhaid ai 5. síðu ) Servatius spyr: Óskið þér eftir að ræða um eitthvað sér- staklega í þessu sambandi? Eichmann: Það er ómögulegt að ég hafi samið greinar þær, sem eru á bls. 7, því að ég heyrði þessi ákvæði fyrst á fundinum. Og enn eitt dæmi. Franz Rademacher, sem vann í þeirri deild þýzka utanríkisráðuneyt- isins, er hafði með að gera einig Gyðinga, skýrði frá því eftir styrjöldina, að Eichmann hefði lagt til, að 1200 Gyðingar í Serbíu væru skotnir. Þetta er alvarleg ákæra og passar ekki alveg við þá fullyrðingu Eich- manns, að hann hafi aðeins haft með flutninga að gera. Servatius spyr: Hafið þér nokkuð að segja um þessa full- yrðingu: Eichmann leggur til, að þeir verði skotnir. Eichmann: Ég hef ekki sagt þetta. Ég gæti ekki hafa sagt þetta, því að ákvarðanir sem þessar gat ég ekki tekið. —0— Þriðja aðferð Eichmanns er að nota sömu mótbáruna til þess að sanna tvær andstæður. Þegar t. d. ekki er minnzt á hann í þeim skjölum, sem liggja frammi í réttinum, enda þótt í þeim sé ýmislegt annað, sem bendir til þess, að hann hafi haft með að gera það, er í þeim stendur, þá fullyrðir hann, að þar sem nafn hans er ekki til staðar, sé það sönnun þess, að hann hafi hvergi nærri komið. Maður skyldi nú ætla, að Eichmann myndi viðurkenna hlutdeild sína í þeim samþykkt- um, þar sem nafn hans kemur beinlínis fram. En svo er ekki. Hann segir í slíkum tilfellum, að nafn hans stafi af einhverj- um misskilningi. Hann er sjálf- um sér svo samkvæmur um það, að hann hafi aðeins starf- að cftir skipunum, að hann neitar jafnvel einstaka ákvörð- unum, sem þó eru honum í hag. Eichmann skynjar þá hættu, sem hann er í, og þess vegna neitar hann allri ábyrgð. Ef hann játaði í einu einasta til- felli að hafa átt frum-kvæði að einhverju, myndu menn um leið draga þá ályktun, að röng' væri sú fullyrðing hans, að hann hefði aðeins farið eftir skipunum í afskiptum sínum af málefnum Gyðinga. —0— Svo virðist sem Eichmann hagi sér með tilliti til þess möguleika, að hann fái aðeins fangelsisdóm. Hann forðast eins og heitan eldinn að ásaka núlifandi Þjóðverja, en þegar hann hefur þó flutt slíkar ásak- anir hefur hann þyrmt félög- um sínum í SS og Gestapo. Hann hefur beint skeytum sín- um að Ribbentrop og þýzka ut- amíkisráðuneytinu, en jíar segir hann hafa verið teknar ákvarðanirnar um útrýmingu Gyðinga og hún síðan fram- kvæmd með aðstoð þýzkra er- indreka í hinum herteknu lönd- um. Mynd sú, sem Eichmann dreg ur upp af sjálfum sér, er vissu- lega ekki sannfærandi og rök- semdafærsla hans byggð á sandi. En hitt verður þó að játa, að honum hefur heppn- azt að draga nokkuð í efa þá fullvissu ákæruvaldsins, að einmitt hann væri maðurinn á bak við útrýmingaráætlun Hitlers og Himmlers á Gyðing- um. Það mun hins vegar síðar koma í ljós, er sækjandinn hef-: ur mál sitt, hvort Eichmann j hefur verið svo valdamikill eða aðeins flutningastjóri eins og hann vill sjálfur vera láta. (Lausl. þýtt og stytt úr Inform- ation 13/7 ’61). .-S..-V . -v- -V • V | Þau leiðu mistök urðu hér í blaðinu í gær, að myndin sem fylgdi grein- inni Faðir síldarverksmiðjanna, og átti að vera af Magnúsi Kristjáns- syni, fyrrum ráðherra, var af öðrum, að vísu harla mætum manni. Hér kemur myndin af Magnúsi, hinum merka hugsjóna og fram- kvæmdamanni, sem öll þjóðin stendur í þakkarskuld við. Sendið okkur íslenzk frí- merki og við sendum ykk- ur: Glansmyndir, serviettur, þrykkimyndir, leikaramyndir. Sendið frímerkin óupp- leyst, ekki minna en 75 stk. FRÍMERKJASALAN Lækjargötu 6 A. íHEBNOs REGISTEREO TRADE MARK HEIMSINS BEZTI ! Oli ii nijilao in Verðlagsákvæðin | og kaupfélögin | Alþýðublaðið í gær, 27. júlí, er undrandi yfir því, að sam- vinnufélögin óski eftir afnáini verðlagseftirlits vegna verzlun- arinnar. Þetta er ekki til að undrast. Verðlagseftirlit er með öllu óþarft vegna kauþfé- laga, og það vita flokksbræður þeiira Alþýðublaðsmanna, jafn- aðarmennirnir á Norðurlönd- um. Kaupfélögin hafa alltaf verið á móti verðlagsákvæðum vegna verzlunarinnar. Þarna er því ekki um neina nýja stefnu að ræða. Þau leitast alltaf við að útvega vöruna á sem lægstu verði. Komi það á daginn, að þau hafi lagt meira á en nauð- syn er vegna öruggs rekstrar félagsins, skila þau félagsmönn um aftur því, sem umfram er. Þetta er viðurkennd regla um alla veröld, þar seni kaupfélög starfa. Það vita líka allir, sem eitthvað þekkja til þessara mála, að hér á landi þrýstu kaupfélögin verði erlends varn- ings niður á sínum tíma, hvar sem þau voru stofnuð og sköp- uðu eins konar verðlagseftirlit fyrir þá, sem á annað borð kærðu sig um að gera hag- kvæm kaup. Það þarf þess vegna engan að undra, þótt kaupfélagsmenn um allt land óski eftir afnámi verðlagseftirlits fyrir sitt leyti. 0« frá sjónarmiði þjóðfélagsins er það ekki cinungis óþarft, hvað kaupfélög áhrærir, heldur verður þeim til óþurftar. Það er þjóðfélaginu nauðsyn, að kaupfélög geti þróazt með eðli- legum og traustum hætti. Þeir, sem ekki aðhyllast stefnu þeirra, þurfa ekki að verzla við þau og þaðan af síður að vera í þeim, ef þcim þykir það óvit- urlegt. Á það má einnig benda til fróðleiks, að verðlagsákvæði tryggja engan veginn neytend- um lægsta verð á varningi. Þau tryggja aðeins. að ákveðin hundraðstala sé notuð við verð lagningu varanna. Þess vcgna er það, að þeim sem gerir óhag stæðust innkaup varnjngs, kaup ir inn dýrasta vöru, skapa þau mestan hagnað. Þeim, sem hins vegar leitast alltaf við að gera sem hagkvæmust innkaup, refsa þau. Neytendum í landinu er því furðu lítil trygging í vei'ðlags- ákvæðunum. — PHJ. No. W/2 Minor V- lítri No. 16 Standard l/2 lítri No. 1616 Major % lítri No. 16Q Family 1 lítri No. 58Q KAFFIKÖNNUR FALLEGAR HENTUGAR ÚRVAL LITA FÆST ALLSSTAÐAR Umboísmaíiur : LINDSAY - Reykjavík - Sími 15789 Auglýsið; TÍMANUM Á víðavangi Enn um Austurland Mbl. er enn að reyna að snúa út úr viðtali því, er Tíminn átti vig Eystein Jónsson, um ástand- ið á Austfjörðum. Eysteinn sagði, að vegna útfærslu land- helginnar 1958 ,hefði afli tekið að glæðast á grunnmiðum við Austurland og hefði vcrið ágæt- ur í vor og þar af leiðandi væri atvinna mikil og afkoina manna góð. Mbl. segir, að Eysteinn hafi með þessum ummælum viður- kennt, að „viðreisnarstefna“ rík isstjórnarinnar væri hin hag- kvæðasta landi og lýð — þetta sé „viðreisnarstefnunni“ allt að þakka. Mbl. segir í gær: „Við- urkenning á þessum óhrekjandi staðreyndum hefur ,jafnvel glopr ast úr úr sjálfum Eysteini: At- vinna er mikil . . . . og afkoma er góð, sagði hann, þegar liann kom austan úr síldinni og sum arönnunum í kjördæmi sínu á dögunum“. — Þannig er mál- flutningur þeirra manna, sem sviku þjóðina í Iandhelgismálinu og buðu Bretuin, og nú öllum togaraflota Vestur-Evrópu inn á ígrunninið Iandsmanna. Morgun- blaðið ætti einnig að tala hóg- værlega um síldarannirnar á Austurlandi. Stefna ríkisstjórn- arinnar í síldarmálunum er með einstökum endemum. ' Eysteinn Jónsson temur sér ekki óheiðarlegan málflutning og skreytni. Hann lýsti ástandinu á Austurlandi eins og það er, en það sýnir heiðarleikann í mál- flutningi Mbl., að sleppt er ein- um mikilvæigasta hluta lýsing- ar Eysteins, er fjallar um bygg- ingu íbúðarhúsa á Austfjörðum. fbúðahúsabyggingar liafa lagzt niður og er leitun að þeim, er treystir sér í byggingarfram- kvæmdir vi« skilyrði „viðreisn- arinnar“ fbúðahúsabyggingar eru nauðsynlegar ef aukin at- vinna og framleiðsla, er kallar fleiri hendur til starfa, á að geta þrifizt. Þrátt fyrir að atvinna er mikil vegna hins aukna afla, er af útfærslu Iandhelginnar hefur leitt, leggur „viðreisnarstefna“ ríkisstjórnarinnar dauða hönd á framkvæmdir og eðlilega upp- byggingu til að viðhalda jafn- vægi í byggð landsins og tryggja að gæði til lands og sjávar verðl nýtt sem bezt og hagkvæmast, laiulið um kring, þjóðinni allri I til hagsbóta. Þeir eru ánæsrlSir ! meíS útsvörin! I Vísir segir, „að menn séu al- mennt ánægðir me« það sem þeim er gert að greiða“ til bæj- arins í hinurn nýálögðu útsvör- uni. — Það kann nú að evra, að Vísir taki full stórt upp í sig þarna. Greðingar íhaldsins hljóta hins vegar ætíð að vera ánægðir. livaða útsvar sem lagt er á þá því þeir hafa ekki þurft að greiða sín útsvör. Útsvörin eru skráð í útsvarsskrána, en sfíðan bókfærð bjá bænum, sem óinn- i heimtanlegar skuldir og bæjar- fulltrúum neitað um að sjá lista yfir, hvec þessi óinnheimtanlegu útsvör eru. Upphæðin yfir „óinn heimtanleg“ gæðingaútsvör nem ur nú livorki meira né minna en 11,7 milljónum, eða inciru én öll útsvarshækkunin. sem íhaldi* rak sem hefndarhögg á almenn- ing vegna kauphækkananna. Guðlaugur Eirtarsson Málflutningsstofa, Freyjugötu 37, sími 19740

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.