Tíminn - 19.08.1961, Síða 14
14
T f MIN N, laugardaginn 19. ágúst 1961.
verk fyrir brjóstinu og þyngsl!
in jukust. Hendurnar titruðu
ofan á sænginni og ásjón
blánaði.. Baðstofan fylltist af
sýnum. Nú gerðust þær á-
leitnari: „Parið, farið, farið“,
stundi sjúklingurinn. Stund-
um var hann í hrókaræðum
— stundum ofsafullur og
barði þá frá sér og hélzt
varla í rúminu. Ásrúnu var
nú ekki lengur vært í her-
berginu. En drengina sína og
Ásdísi kaus hann að hafa.
Hann var hættur að móka,
en starði starandi sjónum
upp í rjáfrið, þar sem óráðs-
myndir birtust, og léku alls
konar skrípaleiki og sýndu
harðýðgi myrkraríkisins. Allt
í einu birti yfir honum.
„Drengirnir mínir, drengirnir
mínir. Þið megið koma. Vel-
komnir. Já. Eg veit það, Sig
urður Óskar. Mamma er að
koma. Blessaðir þið. Þið ætl-
ið að koma með mér til Vest-
urheims. Þetta mátti ég vita.
Blessaðir drengirnir mínir.
Þetta var fallega gert, Jósa-
fat. Þú ert orðinn svona sterk
ur. Nei, nei. Já, það var gam-
an“.
Þannig hélt sjúklingurinn
áfram að tala við sýnirnar og
hlusta á þær.
Seint og kvöldið komu þau
Óskar og Hallfríður. Þá var
svo af Óskari dregið, að hann
gat ekkert við Hallfríði mælt.
En óráðið féll niður við komu
hennar og lá hann nú í dvala
eða kannski rænulaus. Þau
Óskar yngri sátu eftir það við
hvílu hans unz yfir lauk.
Þegar Hallfríður var kom-
in, bjó Ásrún um sig í fremsta
herberginu, háttaði og brast
í grát. Sinnti hún engu og
svaraði ekki þó á hana væri
yrt. Það var fyrst er Óskar
yngri kom til hennar undir
morgun og sagði henni lát
föður síns, að hún reis úr
hvílu. Var hún þá róleg og
sagði fyrir um allan búnað.
Börnin höfðu til hinztu stund
ar vonað, að sóttinni létti.
Þau urðu nú öll lostin mikl-
um harmi. Hallfriður vafði
þau að sér eins og móðir eða
kannske fremur sem góð syst
ir. En ekkjan gekk um alvar-
leg, stutt í svörum, næstum
köld 1 viðmóti.
— Öll verðum við einhvern
tíma að deyja. Það er lögmál
lífsins, sagði hún. — Sáuð þið
ekki, hvernig pabbi ykkar tók
því 1 vetur, þegar dauðinn!
heimsótti okkur? Ekki var'
hann þá með kveinstöfum og
gráti, og fann hann þó óefað
eins til og við hin.
En þegar Ásrún var háttuð
á kvöldin, setti að henni grát.
Það brást ekki.
Óskar yngri fékk ráðið því,
að Sæunn litla var látin sofa'
í nýja bænum hjá Hallfríði, j
svo að hún væri ekki ein.
XXXVI.
Fréttin um Ját Óskars Gunn
arssonar barst um sveitina.
Páir höfðu frétt um veikindi
hans. Það var því líkt sem
fólkið gæti ekki áttað sig á
fréttinni.
Og Sigríður dæsti. Það var
punkturinn.
Þá var mikið rætt um Sjáv
arbakkaheimilið í framtíð-
inni. Hvað tæki nú við þar?
Ætli Ásrún fari til Ameriku?
Það þótti flestum ótrúlegt. En
það var búið að selja búið og
byggja jörðina. Allt var nú
eins. Hann Ásmundur á Sjón
arhóli hjálpar upp á sakirn-
ar. Og þá átti ekkjan hauk
í horni, þar sem séra Þórður
var.
! BJARNl ÚR III FIRÐI:
ÁSTl í MEINUM
35
Óskar Gunnarsson dáinn
allt í einu. Hefði hann farið
í sjóinn, tekið inn eitur eða
hengt sig, þá hefði fólkið átt-
að sig á hlutunum. En að
veikjast allt í einu og deyja
á bezta aldri, fílhraustur mað
urinn, sem aldrei hafði orðið
misdægvrt, það menn vissu.
Það var meira en fólkið gat
skilið. En Óskar var nú dauð-
ur engu að síður. Og þar sem
Óskar átti í hlut ,varð ein-
hvern veginn að afgreiða svo
skyndilega byltingu. Þetta
hlaut að vera dómur.
— Eg veit, að það er ljótt
að tala illa um dáinn mann,
sagði Sigríður á Hálsi. — Og
það vil ég ekki gera. En mikill
ófarnaðarmaður var hann,
það verð ég að segja. Hann
var ekki nema almúgamaður,
eins og ég og mínir líkar, og
sleppur því við dóm sögunn-
ar.
Og Sigríður þóttist gera vel,
að segja ekki meira. Þá laum-
aði hú» þessu út úr sér til
viðbótar. „Jón minn er ekki
vanur að kvarta. Hann kem-
ur sér vel í nágrenninu, enda
óáleitinn. Það á hann. En
Óskar kom við taugarnar í
honum. Og allir vita, hvernig
heimilislífið var. Ásrún mín
gæti sjálfsagt vitnað, ef hún
væri þannig gerð. Jæja, jæja.
Dauðir hafa sinn dóm með
sér. Eg skal ekki segja margt.
Efnin voru í bezta lagi. Þó
að fimm af sex börnum væru
innan við fermingaraldur,
datt engum í hug, að Sjávar-
bakkafjölskyldan væri þurfa
lingar, sem þyrftu að fara á
sveitina. Og öll voru börnin
mannvænleg Ásrún var að
sönnu komin hátt á sextugs-
aldur, en dugmikil og hraust.
Það verður vandfundinn stað
ur fyrir hana. Meiri fyrirmun
unin, að Óskar skyldi segja
jörðinni lausri. Ásrún hefði
hreinsað sig af búinu. Það
hefði verið gaman að sjá
hana drífa verkin fram með
börnunum sínum. En nú var
ekki því að heilsa.
Þannig talaði fólkið.
XXXVII.
Mikið fjölmenni var við
jarðarförina. Það var engin!
húskveðja haldin. Þegar bú-
ið var að kistuleggja, var kist
an flutt á kirkjustaðinn. Hall
fríður fylgdi kistunni, en ekki
ekk.ian. Hallfríður hafði boð-,
ið Ásrúnu að aðstoða við und!
irbúning jarðarfararinnar, en|
því var hafnað. Prá kirkjunni]
fór hún svo ein á göngu heim
til foreldra sinna.
Ásrún auglýsti jarðarför-
ina og kvað alla velkomna.;
Héldu margir, að hún hefði
ekki búizt við fjölmenni. En
sú varð þó raunin á. Marga
fýsti að koma að þessari jarð
arför. I
i — Hvað skyldi séra Þórð-
ur segja við þetta tækifæri?
Það var eins og menn fyndu
það á sér, að eitthvað myndi
gerast nýstárlegt. Og þeir
urðu elcki fyrir vonbrigðum.
En það, sem gerðist, varði alla
sízt, en vakti umtal. Það var
kominn múgur og margmenni
á kirkjustaðinn, þegar sást til
ekkjunnar og barna hennar.
Hallfríður var komin með
foreldrum sínum. Gröf Óskars
, hafði verið tekin við hlið
drengjanna tveggja. Og þar
sem moldin var laus á leiði
þeirra, hafði hún hrunið
mjög til grafar þeirrar, sem
Óskari var gerð, og orðið að
moka miklu upp af lausri
mold. Sá vel á kistu Sigurðar
Óskars, sem var nær gröfinni
auðu. Hallfríð'ur stóð á grafar
bakkanum og horfði á litlu
kistuna. Hrundu tár af aug-1
um hennar. Foreldrar hennar t
stóðu hjá henni, sitt til hvorr
ar handar. Líkmennirnir voru
að enda við að færa upp úr
gröfinni mold, sem hrunið
hafði í hana, frá því er þeir
tóku gröfina.
Nú kom Ásrún í garðinn, á-
samt börnum sínum. Hún
horfði um stund á gröfina.
Svo vék hún sér að líkmönn-
unum og sagði:
— Pyrst hrunið hefur svona
mikið úr gröf drengjanna, þá
getið þið gert það fyrir mig,
að moka alveg upp úr gröf
þeirra og færa kisturnar til.
Mig langar til að Jósafat litli
hvíli við hlið föður sins. Þeir
báru svo mikla elsku til hvors
annars.
— Eg veit ekki hvort við
megum gera það, sagði einn
likmannanna.
— Því ætli þið megið það
ekki, þegar móðirin biður?
Líkmennirnir litu hver á
annan.
Þá gekk Sigurð'ur gamli
fram. Þau höfðu vikið frá, er
Ásrún kom og Sjávarbakka-
börnin: — Ef þið færið til
kistur drengjanna, krefst ég
þess, að Óskar verði grafinn
á milli þeirra. Báðir eru þeir
börnin hans.
— Það getur ekki gengið,
Sigurður, sagði Ásrún, og var
nú myndugleiki í rómnum. —
Fyrst er það, að gröf drengj-
anna er styttri en gröf Ósk-
ars, og yrði því að hefja nýj-
an mokstur og erfiðan. Þú
sérð, að það er talsverður
klaki í jörðu, og er hann sein
unnari á grónum jarðvegi en
nýorpinni gröf. Svo ætla ég
mér að hvíla hjá eiginmann-
inum, þegar minn tími kem-
ur. Nóg hef ég liðið vegna
hórukrakkans, þó að hann sé
ekki á milli okkar Óskars 1
gröfinni.
— Þið hafið heyrt, hvað ég
hef sagt, sagði Sigurður. —
Annað hvort hreyfið þið ekki
við gröf drengjanna, meira
en orðið er, eða gerið eins og
ég segi.
Sigurður stóð teinréttur og
var ekki að sjá, að þar stæði
gamall maður. Röddin var
styrk og föst.
— Við verðum að spyrja
prestinn. Hann verður að ráða
fram úr þessu, sagði einn lík
UTVARPIÐ
Laugardagur 19. ágúst:
8,00 Morgunútvarp. 1
12,00 Hádegisútvarp.
12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndis
Sigurjónsddttir).
14.30 í umferðinni (Gestur Þor-
grímsson).
14.40 Laugardagslögin.
16.30 Veðurfregnir.
18.30 Lög leikin á ýms hljóðfæri.
18.55 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20,00 Leikrit: „Við, sem erum
skáld", ellefu samtöl í síma,
eftir Soya. Þýðandi: Ásl'aug
Árnadóttir. Leikstjóri: Gísli
Halldórsson.
20,45 „Kvöld í Vínarborg": Robert
Stolz og hljómsveit hans leika
létt lög.
21.20 „Píus páfi yfirgefur Vatikan-
ið“, smásaga eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson (Höf. les).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Danslög.
24,00 Dagskrárlok.
Afmælisútvarp
Öldnlengdir:
Miðbylgjur: 217 m (1440 Kr/
sec.).
FM-útvarp á metrabylgjum:
96 Mr. (Rás 30).
Laugardagur 19. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Útvarp úr veizlusal að Hótel
Borg. — Ræður flytja for-
seti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, og forseti bæjar
stjórnar, frú Auður Auð-
uns. — Einnig verður út-
varpað tónlist.
21.00 Rætt við þrjá bæjarráðs-
menn. Sigurður Magnússon
ræðir við Björgvin Freder-
iksen, Guðmund Vigfússon
og Magnús Ástmarsson.
21.20 Viðtöl: Borgarritari, borgar-
lögmaður, skrifstofustjóri
borgarstjóra (Sigurður
Magnússon).
21.40 Skemmtiþáttur (Svavar
Gests og fleiri — útvarpað
af sviði).
22.00 Dagskrárauki (Hljómsveit
Svavars Gests — af sviði).
Danslög.
EIRIKUR
VÍÐFFÖRLí
Úlfurinn og
Fálkinn
23
Eiríkur var á ferli mestan hluta
nætur, þar til hann kom á stefnu-
mótsstaðinn. — Vertu hér, þar til
hinir koma, sagði hann við Rikka.
— Ég ætla að fara fyrst til kast-
alans. En fyrst verð ég víst að
gera eitthvað við útlit mitt. Hann
skar af hári Rikka og þvældi því
saman við sitt eigið hár. Eftir
nokkrar breytingaf aðrar var hann
alveg óþekkjanlegur. Svo vopnað-
ist hann spjóti Rikka' í stað sverðs
síns og flýtti sér inn í myrkur skóg
arins.