Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 11
Tji MIN N, migvikudaginn 23. ágúst 1961. n Afbrýðisamur eiginmaður múrar konu sína inni í turn- herbergi og þaðan horfir hún á sína eigin jarðarför Fyrir fáeinum árum stóð Hanna Smyrner á leik- sviSi leikhússins í Árósum og lék prinsessuna í Alladin. í dag er hún orSin víðfræg um alla Evrópu, ekki hvaS sízt í Þýzkalandi, þar sem hún leikur jafnt og þétt í kvikmyndum og sjónvarpi. En frægðin hefur sína van- kanta: Hin síBari ár hefur hún mjög oft verið á forsíðum blaða og tímarita, en ekki síður í siúður- dálkum þeirra. Síðasta hneykslið í þessa átt er samband hennar við frænda Hússeins kóngs. Heimsókn í marz Það er bara kunningsskapur, sagði Hanna Smyrner. Og hvers vegna má maður ekki eiga sína kunningja og vini í friði? Eg held, að umheimurinn ímyndi sér alltof mikið um vináttu okkar. Við erum góðir vinir, og við höfum sameiginleg áhugamál. Og ég hef tekið boði Fares Huss- eins um að heimsækja hann í Argentinu í marz næsta ár. Meira hef ég ekki að segja um þetta mál. Múruð inn í turni Um þessar mandir er Hanna Smyrner í leyfi og dvelur hjá foreldrum sínum í Árósum. Hún nýtur þess að fá að vera í friði og eyðir tímanum m. a. í að búa sig undir næsta hlutverk sitt, sem er í leikriti Francoise Sagan Höll í Svíþjóð. Hanna á að leika Ophelíu, stúlkukind, sem eiginmaður óður af afbrýðisemi múrar inni í turnklefa, og þaðan horfir hún á sína eigin jarðar- för. hún snúi baki við kvikmyndum. En hún hefur tekið það greini- lega fram, að í hennar augum sé leikhúslífið meira en stundar- fyrirbrigði: — Þráít fyrir allt er ég nú komin á þann aldur, að ég krefst þess að hafa ánægju af lífinu, segir hún. — Kvikmyndirnar eru útslítandi argaþras, sem ekki verður bætt með fé. Og ég vildi óska, að ég fengi nokkur hlut- verk í þýzkum leikhúsum, helzt í nútímaleikritum. Velja og hafna Hún viðurkennir, að hún hafi úti spjót til þess að reyna að fá óskir sínar uppfylltar, en viti ekki enn þá, hvernig þeim mál- um lyktar. Hún veit aðeins fyrir víst, að nú, þegar hún getur leyft sér að velja og hafna, mun hún ekki líta við öðru en því bezta. Það eiga að vera hlut- verk, sem hún getur lagt hjartað í.... Fer í taugarnar En svo koma trúlofunarskot- spænirnir enn til sögunnar: Hún segir: Þetta hefur valdið mér ó- þægindum. Vinir mínir hafa hringt og óskað til hamihgju, það fer i taugarnar á mér og ekki síður mömmu. En sam- bandið milli mín og kóngsfrænd ans er aðeins góður kunnings- skapur. En ég get náttúrlega ekki sagt fyrir um óorðna hluti frem- ur en aðrir, svo að ég get ekki svarið fyrir, að við eigum eftir að trúlofa okkur og gifta einn góðan veðurdag.... — //. óíÉan —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.