Tíminn - 23.08.1961, Síða 12
12
T í MIN N, miCvikudaginn 23. ágúst 1961.
(Jndirstaðan er
að æfa lyftingar
— Rætt vi(i Guðmund Hermannsson, fremsta
kúluvarpara okkar i dag
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
Vestur á ísafirði ólst upp
drengur, sem snemma hafði
mikinn áhuga á íþróttum. Tii
gamans má geta þess, að með-
al drengjanna í neðri bænum
fór oft fram keppni í því að
„ganga á höndunum". Alltaf
var það sami drengurinn, sem
sigraði í þessari keppni, Guð-
mundur Hermannsson, sem
nú í dag er fremsti kúluvarp-
ari okkar og fyrirliði lands-
liðsins.
Við hittum Guðmund ag máli
fyrir nokkru og röbbuðum við
hann um kúluvarp og íþróttaferil
hans.
— Þú hefur verið ungur, þegar
þú fórst að hafa afskipti af íþrótt-
um?
— Já, þetta kom snemrna, ég
gekk í knattspyrnufélagið Hörð
heima á ísafirði árið 1934, þá 9
ára gamall. Fyrst framan af var
eingöngu iðkuð knattspyrna og
keppti ég í 3. flokk og varð Vest-
urlandsmeistari með þeim flokki
1937—40. Svo tók ég í fyrsta sinn
þátt í frjálsíþróttamóti árið 1940,
það var 17. júní-mót. Ég keppti í
stangarstökki og 800 m. hlaupi.
Ég man, að ég stökk 2,93 í stöng-
inni og varð nr. 2. í 800 m. hlaup
inu varð ég líka nr. 2 á 2.20,0 mín.
11 sinnum Vestfjarða-
meistari í knattspyrnu
— Eins og gengur með stráka,
sem hafa áhuga á íþróttum, keppti
ég næstu árin jöfnum höndum
í knattspyrnu og „frjálsum“ Alls
varð ég 11 sinnum Vestfjarða-
meistari í knattspyrnu með Herði,
og lék ávallt i marki.
'— Hvenær byrjaðirðu með kúl-
una?
— 1943 sigraði ég í fyrsta sinn
Thorbj. Svenssen - 99,
landsleikurínn í dag
. u
I dag fjer fram landsleikur í |
knattsþýrnu milli Nþregs og §
Rússlands. Lcikurinn fer fram á s
UllevaMeikvanginum í Osló, og
er Rússurn reiknaður sigurinn
fyrirfram. — Það márkverða við
þennán léik, frá okkar sjónar
hóíi séð, , er að góðkunninginn
Thorbjörn Svensson, miðfram
vörður,' ’íeikur ’sinn 99. lándsleik
fyrir Noreg.
Thorbjörn mun svo leika 100.
landsleikinn í Osló 17. septem
ber og verður sá leikur við Dani
Að þessum leik loknum er orð
ið stutt í met Billy Wrights. sem
er 104 landsleikir, og ekki 6
sennilegt að Thorbjörn slái það
met á næsta ári.
kúluvarpskeppni, varpaði 10.88.
Einnig sigraði ég í kringlukasti
þá, kastaði 28.02. Þetta má segja,
að hafi verið upphafið. Maður
keppti í fimm sex greinum á
hverj.u móti, án þess að árangur-
inn yrði neitt sérstakur í hverri
einstakri grein. Þag var ekki fyrr
en ég var kominn til Reykjavíkur,
að ég lagði eingöngu fyrir mig
kúlu og kringlu. Alls varð ég þó
24 sinnum Vestfjarðameistari í
frjálsum íþróttum, áður en ég
flutti suður.
Þetta er nú að vísu hógværð
hjá Guðmundi, því að fyrir vestan
átti hann ágæt afrek, og fengum
við leyfi til að birta þau, þar sem
sézt svart á hvítu, að hann var
gott efni í fjölþrautarmann: 100
m. hlaup 11,2; langstökk 6,64;
kúluvarp 14,75; kringlukast 42,76;
spjótkast 42,55; hástökk 1,65. —
Þessar tölur tala sínu máli, en það
eru 10—12 ár síðan Guðmundur
náði þessum árangri.
16,15 í kúluvarpi 1956
— Svo fluttirðu í bæinn?
— Já, það var 1952, og gekk ég
þá strax í KR og hef keppt fyrir
það félag síðan. Ég hef, eins og
fyrr segir, eingöngu helgað mig
köstunum, þó aðeins kúluvarpinu
upp á síðkastið. Og lengst náði ég
1956, þá kom ég henni 16,15. Árið
eftir varð ég svo forfallaður vegna
veikinda, og var eiginlega frá
keppni í tvö ár, byrjaði aftur í
fyrra fyrir alvöru og nú fer þetta
vonandi bráðum að koma.
I
Félagslífi óbótavant
Það er erfitt að fá Guðmund
til að tala mikið um sjálfan sig,
en þar sem hann hefur nú upp
á síðkastið komig svo mikið við
sögu í íþróttunum, ætlum við að
sleppa frekari upptalningu meist
aratitla og annarra afreka hér
fyrir sunnan ,en spyrjum hvað
þurfti til þess að koma því-til leið
ar, ag við eignumst fleiri „topp-
menn“ í „frjálsum“.
Guðmundur sagði: — Til þess ag
íþróttamenn hljóti ánægju af í-
þróttaæfingum sínum, þurfa þeir
aðhald — erfiða æfingatöflu og
hátt markmið. Þetta aðhald verða
forustumenn íþróttamála að skapa
og þá sjá þeir fyrst árangur erfiðis
síns Einnig tel ég, að félagslífinu
sé mjög ábótavant.Forráðamenn
íþróttahreyfingarinnar leggja á
sig mikla vinnu í sambandi við
mót og skipulagningu, en þeir
þurfa ag blanda meira geði við
íþróttamenn- almennt. Það þarf að
boða til rabbfunda, velja landslið'
strax í febrúar eða marz og hafa
það tvöfalt eða meira. Ég get t.d.
nefnt, ag l950 var mér sent bréf
vestur á ísafjörð og mér tilkynnt,
að ég hefði verið valinn til þess
að æfa undir landskeppnina við
Dani þá, þó að ég ætti enga mögu-
leika á að komast í liðið. Þetta var
mér mikil hvöt og uppörvun, ég
komst í bréfasamband við góða
þjálfara og eins og ég sagði, áhug-
'nn óx. Það er mikið um góða í-
bróttamenn úti ,á landi, sem ein-
mitt þurfa á svona uppörvun að
balda, svo ag þeir séu þess með-
■ itandi. að fylgzt sé með þeim. —
’Eskumönnum er nauðsynlegt að
'tunda einhvers konar íþróttir,
-nm fullorðnir geta bezt borið um,
ng því vil ég vona, ag íslenzkir
frjálsíþróttamenn beri gæfu til ag
koma þannig fram, að þeir laði
unga menn að þessu ágæta hugðar
efni.
' "ffinqar ur»dirsta?S=|ri
— Hvað telur þú. að' valdi því.
ið vig erum svona langt á eftir.
' d. Bandaríkjamönnum í kúlunni?
— Það má hiklaust segja það,
að við hér á landi höfum ekki
Guðmundur í „hrignum
tileinkað okkur nóg, það sem kem!
ur erlendis frá. Undirstaðan í köst
unum er að æfa nógu mikið lyft-
ingar. Þetta gera Bandaríkjamenn
irnir og þeir, sem lengst eru komn
ir í Evrópu. Þeir eyða mestum
hluta æfingatímans í að lyfta til
að styrkja líkama og fætur. En
það er bara ekki nóg, það verður
að nota fæturna í köstunum, eins
og þegar um lyftingar er að ræða,
það er í útkastinu verður að
standa með fæturna sem líkast
lyftingastöðunni, til þess að spyrn
an verði sem bezt frá báðum fót-
um samtímis.
— Ertu nokkug að hugsa um
aðhætta?
— Nei, nú er um að gera að
halda áfram og taka upp æfing-
ar í lyftingum og reyna að út-
færa köstin betur ,og sjá svo til.
Við þökkum Guð'mundi fyrir
rabbið og vonum ag nú fari að
koma sú stund, að kúlan fari al
hafna réttu megin við 16 metra
strikið hjá honum aftur. h.
60 m - þrisvar
á níu dögum
í þrjú skipti á 9 dögum skeði
það, að kringlunni var kast-
að yfir 60 metra strikið. 11. ág.
setti Bandarikjamaðurinn Jan
Silvester heimsmet, 60,65; 16.
ágúst kastaði Pólverjinn Ed-
mund Piatkowski 60,47, sem var
nýtt Evrópumet og ógnaði heims
meti Silvester. Sunnudaginn 20.
ágúst svaraði Silvester með því
að kasta 60,72 m. oig bætti sitt
eigið met. Hvað skeður svo næst?
M.mót Reykjavíkur
í frjálsum íþróttum
Fyrir helgina fór fram á Mela-
vellinum Reykjavíkurmótið í frjáls
um íþróttum. Ekki er hægt að
segja, að um innbyrðis keppni
hafi verið að ræða I neinni grein,
því yfirburðir beztu manna voru
of miklir til þess. Árangur varð
í sumum greinum góður og má
þar nefna kúluvarp Guðmundar
Hermannssonar, hástökk Jóns Ól-
afssonar og yfir 50 m kast Þórðar
í sleggjunni. Valbjörn varð fjór-
faldur Reykjavíkurmeistari, sigr-* 1
aði í 100 og 200 m, stangarstökk,
og spjótkasti.
Úrslitin í mótinu urðu annars
þessi:
400 m. grindalilaup.
Sigurður Björnsson KR 56.3
Helgi Hólm ÍR 59,9
800 m. hlaup.
Svavar Markússon KR 1:58.4
Valur Guðmundsson ÍR 2:05J£
Reynir Þorsteinsson KR 2:08,9
(Framhald á 6. siöuy.