Tíminn - 23.08.1961, Síða 14

Tíminn - 23.08.1961, Síða 14
14 T f M I N N, miðvikudaginn 23. ágúst 1961. á húsþökum þeim, sem hún ætti yfir að ráða, en bátinn, land fyrir þrjátíu kindur, eina kú ög fjóra hesta. Þá lofaði nýi bóndinn að sjá af við hana 30 kindum, húsi, litla hesthúsinu og bás í fjósinu. En heyin yrði hún að flytja saman í tóftir. Og leigan jafn aðist á við þriðjung þeirrar landskuldar, sem bóndanum bar að greiða. Þetta máttu heita hin verstu kjör„ Og enn var varúðarorð frá Ás- mundi. Og nú hafði hann á boð'stólum eina af konungs- jörðum þeim, sém hann hafði yfir að ráða. Voru þar land- kostir allmiklir, en hús öll léleg. En þar bauðst Ásrúnu lífstíðarábúð. En Ásrún gaf því engan gaum, Hún hafði tekið sína ákvörðun og henni varð ekki breytt. XL. Svo var það eitt kvöldið, tæpri viku eftir jarðarförina, að þau komu gangandi niður hálsinn feðginin, Sigurður og Hallfríður. Það kvöld var eld- ur tekinn upp í nýja bænum. Hallfríð'ur var komin heim til sín. Enn grunaði hana ekki, hvemig komið var um bæinn. Daginn eftir hélt Sigurður heimleiðis. Hann var þreytu- legur, þar sem hann gekk hæg um skrefum yfir hálsinn og þungt hugsandi. Hallfríður hafði sagt honum, að hún ætlaði til Vesturheims. Hér gæti hún ekki verið lengur. Hún vonaði að' fá andvirði nýja bæjarins, sem hún taldi sig eiga. Og andvirði þeirra fáu skepna, sem hún átti, er selt var, hafði Óskar gre'itt henni, og sagt henni að færa þær foreldrum sinum að skiln aði, sem örlítinn ellilífeyri, ef þau fengjust ekki til þess að koma með þeim vestur. Þessir peningar voru enn í vörzlu hennar. En nú hlaut hún að bregða þessu öllu, ef hún átti að komast vestur. Helzt hefði hún kosið, að foreldrar sínir færu með sér. En Sigurður tók það ekki í mál. Og gekk þó nærri honum að sjá af Hall- fríði, augasteini sínum, og ótt aðist hann mjög um framtíð þessa djúpt særða barns, Þetta allt fékk svo mikið á hinn þreytta og' margreynda gamla mann, að hann var reikull í spori og framúrleg- ur. Ferðin sóttist því heldur seint. Loks að áliðnum degi kom hann á prestsetrið og gerði boð fyrir séra Þórð. Prestur tók honum vel. Bauð honum til stofu og spurði almæltra tíðinda og seinna um erindi gestsins, er hann sá. að Sigurður bjó yfir einhverju dapurlegu. Sigurður sagði honum á- hyggjuefni sitt, og bað hann að gefa sér góð ráð. Að vísu kom presti þgj5 vel, að Hallfriður skyldi ekki í- lendast hér. Það fór bezt á því, eftir að nýja bænum var xáðstafað Hann lét samt ekki veit ég, að þau telja sig hafa. Og börnin þeirra eru um margt. kannski flest öðru vísi gerö en börnin, sem Hallfríð- ur hefnr kynnzt á Siávar- bakka — Já. bað er víst allt úr- hendis. sagði Sigurður, og varp öndinni mæðilega. — Hefur enginn falað hana? spurði prestur. — Enginn. — Það er merkilegt, sagði séra Þórður. — Hallfríður er BJARNl ÚR FIRÐI: ÁST í: MEINl OM 38 á neinu bera, en spurði, hvað Sigurður vildi, að hann gerði. — Viljið þér ekki tala við Hallfríði og reyna að fá hana ofan af vesturförinni? sagði Sigurður. — Þá verð ég að geta boðið henni eitthvað, sagði prestur. — Eg skil vel, að hana fýsi ekki áð eiga hér lengri dvöl, fyrst svona fór. — Getið þér látið henni eft ir nýja bæinn á Sjávarbakka? spurði Sigurður. .— Það get ég ekki. Honum er þegar ráðstafað, sagðl séra Þórður. — Enda lifði hún skamma stund á nýja bæn- um, er landnytjar eru engar. Eg býst líka við, að við þann, bæ séu tengdar þær minning ar, að henni sé hollara að leita annars sanlastaðar. — Vel getur það verið rétt, sagði Sigurður. En þó vonaði ég, að hún sætti sig betur við nýja bæinn sem heimili en aðra ókunna staði hér nær- lendis. j — En nýi ábúandinn hefur •• þegar fullskipað heimili. Hann myndi enga vinnu veita j Hallfríði. Og það er bæði dýrt fyrir hana að kosta sig þar og leiðinlegt, er húsráðendurn ir vilja ekkert af henni þiggja. Eg á við það, að hjónin hafi sjálf nægan vinnukraft. Það þó sögð vel vinnandi stúlka og á bezta aldri. — Er það ekki þannig, séra Þórður? Vilja nokkrir mæðu bömin? sagði Sigurður. —‘ Það verða víst engin úrræði önnur en vesturför. Og Sig- urður sýndi á sér fararsnið. — Nei, farið ekki undir^ eins, Sigurður minn. Eg ætla að tala við konuna mína,[ sagði séra Þórður. Prestur yfirgaf gestinn. Eft ir drykklanga stund komu prestshjónin bæði. Maddaman heilsaði Sigurði með miklum innilegheitum. Svo tók prestur til máls: — Mynduð þér sætta yður við það .Sigurður minn, að Hall- fríður flytti hingað á prests- setrið. Flytti hingað í hús- mennsku. Við gætum lánað henni litla herbergið í vestur enda baðstofunnar. Það stend ur autt, síðan tengdamóðir mín dó, haft fyrir gesti. Hér á heimili okkar gæti hún feng ið þá vinnu, sem hún þarfn- aðist. Hér er svo margt, sem kallar að. Við höfum rætt þetta, hjónin. Okkur langar til að bjóða eitthvað. Og við þurfum sannarlega á góðri stúlku að halda til ígripa, sagði séra Þórður. — Hverju svarið þér þessu boði? — Þetta er gott boð. Eg þakka ykkur báðum, sagði Sigrrí*,ir hrærður og tár blik- uðu • augum hans. — Flytjið þá dóttur yðar jntta boð. Hún er velkomin, þó að það væri undir eins í dag. En þá greip maddaman fram í: — Talaðu sjálfur við Hallfríði, Þórður minn. Eins og á stendur, held ég það sé bezt, að hún viti ekki, að fað- ir hennar hafi rætt við okkur um hana. Boð okkar er meira virði í hennar augum, ef það kemur beint frá okkur. Haldið þér það ekki lika, Sigurður minn? Sigurður var prestskonunni þakklátur fyrir innjegg henn- ar. Það var nú ráðið, að séra Þórður færi til fundar við Hallfríði. Sigurður gisti á prestssetr- inu um nóttina. I IXL. Daginn eftir hélt Sigurður ferðinni áfram. Hann hafði lofað dóttur sinni að reka fyr ir hana erindi. Og átti þang- að fulia dagleið. Sú var orsök þeirrar ferð- ar, að Óskar hafði smíðað tré krossa á leiði drengjanna sinna. Voru þeir úr völdum rekavið og skornir með skraut stöfum. Þar sem armarnir komu saman, var skorin hring laga plata, og á hana var graf ið með höfð'aletri: „S Ó“ á annan krossinn, en „J Ó“ á hinn. Voru það upphafsstafir Hrengjanna begg.ia, Signrðar Óskars og Jósafats. Til þess ar stafirnir væru sem líkastir að stærð og útliti, gróf hann nðeins tvo stafi á hvorn kross. En á arma krossanna var graf ið með skraut.letri: Drottinn blessi, varðveiti þig“. Var sitt nrðið á hverjum armi kross- ins. Ekki hafði Óskari fatazt út- skurðurinn. Krossarnir voru eins og áður segir, úr úrvals efni. Og hafa staðið til skamms tíma. Þó er letrið að mestu máð af. Þá víkur sögunni aftur að erindi Sigurðar. Þau feðgin vissu um ágætan hagleiks- mann í næstu sveit, þangað lagði nú Sigurður leið sína, ætlaði hann að fá smiðinn til að smíða sams konar kross á leiði Óskars Gunnarssonar. Sigurður gisti hjá smiðnum; var hann með teikningu af krossunum, sem Óskar hafði gert og farið eftir. Smiður- inn athugaði teikninguna gaumgæfilega, en færðist und an að gera verkið, taldi sig ekki færan um útskurðinn. Seinna upplýstist, að Óskar yngri og bræður hans unnu að smíði krossins þetta vor. Sá kross, er þeir gerðu. var mun stærri en hinir tveir. En Miðvikudagur 23. ágúst: 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna“: Tónleikar. 15,00 Miðdegisútva.rp. 18.30 Tónleikar: Óperettulög. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20,00 Einleikur á píanó: Ventislav Yankoff leikur sónötu op. 22 í g-moll eftir Robert Schu- mann. 20.20 Um heljarmenni: Stefán Jóns- son og Jón Sigbjörnsson heim- sækja Finnboga Bernódusson í Bolungarvík. 20.45 Tónverk eftir tvö bandarísk tónskáld (Eastman Rochester hljómsveitin og Patricia Berlin söngkona flytja. Stjórnandi: Howard Hanson). a) Essay nr. 1 fyrir hljómsveit og Adagio fyrir strengjasveit eftir Samuel Barber. b) Fjórir söngvar eftir Richard Lane. 21.20 Tækni og vísindi; VI. þáttur: Geislavirk efni (Páli Theódórs- son eðlisfræðingur). 21,40 íslenzk tónlist: Verk eftir Fjölni Stefánsson, Magnús Bl. Jóhannsson og Þorkel Sigur- björnsson. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Kvöldsagan: „Ósýnilegi maður inn“ eftir H. G. Wells — sögu- lok (Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur þýðir og les). 22.30 Frá harmonikutónleikum í Stuttgart í vor. 21.00 Dagskrárlok. Öldulengdir: Miðbylgjur: 217 m (1440 Kr/ sec.). FM-útvarp a metrabylgjum: 96 Mr. (Rás 30). Miðvikudagur 23. ágúst. 20.00 Einkennislag afmælisút- varpsins. Bókmenntakvöld. Erindi: Skáld og rithöfund- ar í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri flytur. 20.20 Upplestur' Úr verkum eldri Reykjavíkurhöfunda. 20.45 Ung Reykjavíkurskáld. Erindi: Sigurður A Magn- ússon flytur. 21.00 Uppiestur úr verkum yngri Reykjavíkurhöfunda. 21.15 Erindi: Gunnar Einarsson. Prentlist í Reykjavík. 21.30 Reykjavíkurlög (einsöngur: Kristinn Hallsson óperu- söngvari útv af sviði). 22.00 Dagskrárauki: Reykvískir einsöngvarar. EIRÍKUR VfÐFFÖRLI Úlfurinn og Fálkinn 26 Strax þegar þeir voru farnir, laumaðist Eiríkur úr fylgsni sínu. Það fór hrollur um hann við þá tilhugsun, að Ervin ætti að kvæn- ast Bryndisi. Aðrar komu ekki til greina. — Gott kvöld, félagi, heils aði hann hermanni, sem sat og hvessti brand sinn. Ekki leið á löngu, þar til hann gat leitt sam- talið inn á þær brautir, sem hann vildi fræðast um. — Hvers konar náungi er þessi Bersi? spurði hann. — Hann er víst ekki í miklu uppáhaldi, svaraði hermaðurinn, en ég hef nú meiri áhyggjur út af hinni verðandi drottningu. Vínóna drottning var ástsæl kona, en þessi stelpa.... Helvíti, að kúnguiinn skuli vera dauður. Hermaðurinn hristi hnugginn höfuðið, og Eirík- ur ákvað að gera tilraun: — En ef ég gæti nú sannað þér, að hann væri ekki dauður? spurði hann.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.