Tíminn - 29.08.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.08.1961, Blaðsíða 1
195. tbl. — 45. árgangur. Þriðjudagur 29. ágúst 1961. Kastaðist út af og fór þrjár veltur Hrafn ásækir börn í Mosfellssveit Kirkjubæjarklaustri, 28. ág. Fólksbíll var klukkan fjögur aöfaranótt sunnudagsins á ferð hjá Kúðafljóti í Vestur- Skaftafellssýslu. Bíllinn lenti í lausri möl á beinum vegi. Kastaðist hann fyrst út í ann- an kantinn og síðan, er reynt var að rétta hann af, út í hinn kantinn. Fleygðist bíllinn þar út af veginum og fór þrjár veltur. bílnum skriðu þrír menn, Þórólfur Vilhjálmsson frá Herj- ólfsstöðum, nú búsettur í Reykja- vík, sem var eigandi bílsins og ökumaður, og þeir bræður Gestur og Jafet í Skálmarbæ í Álftaveri. Voru þeir að koma frá héraðsmóti á Klaustri. Voru þeir Þórólfur og Jafet viðbeinsbrotnir hægra meg- in, en Gestur var óskaddaður. Læknir kom á vettvang nokkru síðar og gerði að meiðslunum og eru hinir slösuðu nú vel hressir. Bíllinn er Chevrolet, árgerð 1948. Var hann afar illa leikinn eftir slysið, húsið allt saman klesst og vélin hálflaus úr bílnum. Feður teknir að vígbúast gegn krumma Mosfellssveit, 28. ágúst. — Hér í Reykjahverfinu í Mos- fellssveit vígbúast menn nú af kappi og viða að sér skot- færum. Er nú upp risið hið vígalegasta heimavarnarlið. Ástæðan er sú, að undanfarna daga hefur hrafn, eða hrafns- ungi síðan í vor, gerf árásir á börn á tveim eða þrem stöð- um og telja menn hrafninn ekki hættulausan. Fyrir nokkrum dögum börn mjög, jafnvel höggvið í augu I þeirra. Hafa mæður því góðar kom gætur á börnum sínum, og heim- hrafninn að Ásgarði og steypti sér yfir barnsyöggu, sem var þar úti á svölum. í vöggunni var korn barn, og réðst hrafninn að and- liti þess og hjó í það, en þó varð ekki teljandi mein að sem betur fór, því að barnfóstran kom að og hrakti krumma brott áður en hann skaðaði barnið. En áður en krummi yfirgaf i þennan stað, hnuplaði hann vindl- j ingakveikjara, Sem einhver hafð'i misst þarna. Hrafnar eru sem kunnugt er, glysgjarnir og þjóf- gefnir og stela gjarnan smáhlut- um, sem glampar á. Felldi drenginn Á öðrum stað, .Eyrarhvammi, réðst hrafninn að tveim börnum, sem þar voru úti að leik, og sló til jarðar með vængnum dreng, hálfs annars árs að aldri og tók að kroppa í húfu hans, áður en hann yrði flæmdur brott. Litla drengnum varð að vonum mikið við þetta, og fékk hann taugaáfall. Frétzt hefur um athafnir hrafns þessa á ýmsum stöðum öðrum í sveitinni. Hefur haiin bæði komið að Hafravatni og Reykjalundi. Fólki stendur að vonum nokk- ur stuggur af krumma og þykir illt, ef börn þurfa að vera í hættu. Gæti hann hæglega skaðað lítil ilisfeður eru viðbúnir með byssur sínar, ef krummi kemur í heim- sókn. Hánn heldur sig hins vegar ekki við ákveðna bæi, heldur fer um sveitina, og veit því enginn, hvar hann ber niður næst. Ef til vill er þetta hrafnsungi, sem tekinn hefur verið úr hreiðri og alinn upp einhvers staðar heima við, en farið svo á flakk, þegar hann var orðinn vel fleygur. Villtir hrafnar munu varla gerast svona nærgöngulir. Óðinn tekur Hrezkan togara Frá Landhelgisgæzlunni: Varðskipið Óðinn stóð brezka togarann Prince Philip, Grimsby 218, að meintum ólöglegum veið- um á Grímseyjarsundi kl. 17 í gær, um 1,5 sjómílur innan fisk- veiðitakmarkanna. Varðskipið fór með togarann inn til Akur- eyrar til rannsóknar. Ekki var kunnugt um brezk herskip i nánd, þar sem togarinn var tekinn. 200 þátttakendur ú raunvísindaþingj Þjófurinn fannst að drykkju meö Mannlífið undir hendinni Rannsóknir eiga að vera óháðar ríkisvaldinu Um tvö hundruð vísinda- menn og framámenn í atvinnu lífinu voru viðstaddir, þegar raunvísindaráðstefnan var sett í gærmorgun í hátíðasal há- skólans. Gylfi Gíslason menntamálaráð- herra setti ráðstefnuna. Skýrði hann frá því, að fyrir næsta al- þingPmyndu- verða lögð fram frumvörp um nýtt skipulag ís- lenzkra vísindarannsókna, byggð á tillögum og frumdráttum þeim, sem liggja frammi á ráðstefnunni. Þar er um.a5 ræða tillögur Há- skóla íslands um skipulág og efl- ingu undirstöðurannsókna við stofnunina, álit Atvinnumálanefnd ar ríkisis um almennar náttúru- rannsóknir og Náttúrustofnun ís- lands, álit meirihluta sömu nefnd 1 ar um skipulag rannsókna í þágu atvinnuveganna og tillögur Ás- ' geirs Þorsteinssonar, formanns j Rannsóknarráðs ríkisins. Hefur I Tíminn áður skýrt frá meginat-l riðum þessara tillagna. Dr Alexander King flutti fyrstj erindi um þjóðhagslegt gildi raun vísindarannsókna í nútíma þjóð-; félagi. Var erindi hans hið gagn- orðasta. Lagði hann áherzlu á mi.k 1 ilvægi þess, að rannsóknirnar j væru sem óháðastar ríkisvaldinu, j rannsóknarráðin hefðu sem rýmst svigrúm. Benti hann á skipulag Norðmanna, sem væri á margan hátt til fyrirmyndar. Robert Major flutti erindi og! lýsti skipulagi og þróun rann- sóknastarfseminnar í Noregi. Kom hann mjög víða við í erindi sínu. Skýrði hann ítariega frá rann- sóknastarfsemi norsku háskólanna,. ríkisrannsóknastofnana og annarra slíkra, en fyrirkomulag rannsókna í Noregi er af mörgum talið mjög athyglisvert og til fyrirmyndar. Þar er til dæmis lögð sérstök á- herzla á samvinnu rikisvaldsins, vísindanna og atvinnuveganna. Rannsóknaráðin eru mjög óháð af- skiptum ríkisvaldsins. Eftir erindi Majors var gert há- degishlé. Eftir hádegishlé var gerg grein fyrir tillögum þeim og álitum, sem lágu fyrir ráðstefnunni og minnst er á hér að framan. Síðan tóku umræðuhópar til starfa um hverja tillögu, en þátttakendur höfðu skipt sér í hópa eftir áhugamálum. Stóðu umræðurnar hjá sumum (Framhald á 2. síðu.) I Um hádegisbilið á laugar- daginn hittust tveir kunningj-J ar hér í bæ, æskumaður og aldurhniginn. Ungi maðurinn bað þá hinn að, gefa sér að borða, en gamli mað- j urinn tók hann heim með sér og i gaf honum af mat sínum. Eftir matinn gaf hann honum í staup-1 inu, og síðan fóru þeir báðir á Reykjavíkursýninguna. Þeir urðu viðskila á sýningunni, en gamla manninum dvaldist þar til klukkan að ganga níu um kvöldið. Þá fór hann heim. Að- koman þar var heldur óhrjáleg. Einhver hafði riðið húsum og um- snúið hliitum gamla mannsins, stolið kuldaúlpunmi hans, skíða- skóm og hrem bindum af íslenzku mannlífi úr bókaskápnum. Húsráðanda grunaði þegar, að gesturinn, sem át og drakk þar fyrr um daginn, hefði komið þarna við. Hann hélt svo mður í bæ til að svipast um eftir kauða og hafðí ckki lengi farið, þegar hann fann hann þéttfullan á veitingastofu með íslenzkt mannlíí undir hend- inni. Hann hringdi þá á lögregl- una. Þeir fóru saman á stöðina, og þar viðurkenndi sá yngri að hafa farið heim til gamla manns- ins til að leita að áfengi. Úlpuna hafði hann selt fyrir 240 krónur og keypt brennivín fyrir, en það var hann að drekka, haldandi á Mannlífinu, þegar gamli maður- inn fann hann. Skóna hafði hann skilið eftir hjá þeim, sem keypti úlpuna. Telpur undir fermingaraldri í heimsókn í er- lendum togara Rétt fyrir klukkan 10 á laugar- dagskvöldið gekk lögregla um borð í rússneskan togara, sem fyrir nokkru var tekinn í slipp hér vegna véiarbilunar. Erindi lög- reglunnar var að sækja þangað tvær telpur, aðra tólf og hina þrettán ára. Varðmaður við slipp- inn hafði séð til ferða þeirra og gerði lögreglunni viðvaxt.. Telp- urnar munu hafa verið sagnafáar um erindi síh í þettá skip.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.