Tíminn - 29.08.1961, Qupperneq 11
TIMINN, þrroiutlaglnn Z'J. agnsi itjbi.
11
LANGSPIL
Langspil er íomt, íslenzkt hljóð
færi, sem notað var af alþýðunni
í 3—4 aldir, en fyrir 70—80 ár-
um hvarf það smátt og smátt úr
íslenzku þjóðlífi, og hefur mér
vitanlega ekki verið notað á þess-
ari öld. f riti Bjarna Þorsteinsson-
ar, prófessors, „Þjóðlegt sönglíf á
íslandi“, segir svo: Fyrir aldamót
mun svo gott sem alls staðar hafa
verið hætt að nota langspil, og úr
þessu má telja íslenzku fiðluna
og langspil meðal forngripa
vorra.“
Langspil er afkomandi og arf-
taki íslenzku tveggja strengja fiðl-
unnar, sem verið hefur heima-
hljóðfæri landsmanna enn þá leng-
ur en langspilið. Skyldleiki með
þessum hljóðfærum er greinilegur,
meðal annars liggja þau bæði á
borði, þegar leikið er á þau. Mörg
önnur hljóðfæri hafa einnig verið
notuð hér á landi, sem eftirfar-
andi vísa sýnir:
Smiður bezti, vanur til veiða,
vistast hjá honum allar listir
fiðlu, simfun, fer hann tíðum,
fiol, hörpu, langspil, gígju,
kirurgus er mörgum meiri
maður tryggur, vel ættaður,
orðsnotur, skáld, allvel lærður
Árni kveður um Jónsson Bjárna.
Árni Böðvarsson skáld. (f. 1713)
orti vísu þessa til Latínu-Bjarna
(f. 1716), sá maður var ættaður'
úr Fljótum.
í bók, sem gefin var út á Hól-
um árið 1612 og heitir Anatome
Blefkeniana, segir Arngrímur
Jónsson hinn lærði: Hvað sönglist
og lagfræði snertir, hafa landar
mínir verið svo vel að sér, að þeir
hafa búið til hljóðfæri upp á eigin
spýtur og tekizt vel.“
Eigi er ósennilegt, að hinir högu
rokkasmiðir og útskurðarmenn
hafi verið okkar hljóðfærasmiðir á
fyrri tímum og hafi í samráði við
söngfróða menn getað fullgert
hljóðfærin. Sá maður, sem fyrst
minnist á langspil í gömlum bók-
um, var fornfræðingurinn Jón Ól-
afsson frá Grunnavík (1705—
1779). Hann kemur einnig við sögu
íslenzkra þjóðlaga. í sóknarlýsing-
unum árið 1840, er skýrt frá því,
að langspil hafi verið mörg í land-
inu, og að margir hafi kunnað að
leika á þau. í Hítarnessókn á Mýr-
um, sem var fámenn sókn, hafi
átta manns kunnað að leika á
langspil. Nokkru eftir miðja 19.
öld fer að dofna yfir kunnáttu
manna að spila á langspil. Var þá
leitað til Ara Sæmundsen, Akur-
eyri, sem var söngfróður maður.
Hann gaf út litla kennslubók árið
1855, „Leiðarvísir til að spila á
langspil". Ritið var prentað í.
prentsmiðju Norður- og Austur-
umdæmis á Akureyri. Eftir þess-
ari bók geta menn smíðað lang-
spil og lært að leika á það. í þess-
ari bók er teikning af langspili,
sem hefur nákvæman nótnastokk,
með krómatiskum skala. Fiðlurn-
ar höfðu ekki nótnastokk, en lang
spilin ávallt. Þetta nótnaborð hafði
ýmist diatóniskan eða krómatisk-
an skala, nóturnar voru aðgreind-
ar með látungsþynnum. Langspil
'eru smíðuð úr furu, en takkarnir
þrír, sem strengirnir voru stemmd
ir með, voru úr ahorni. Skrúfu-
hausinn og nótnastokkurinn var
úr einhvers konar harðviði. Hljóð-
færið lítur út eins og langur kassi,
breiðari í annan endann. með
bognu útskoti. Á kassalokinu eru
tvö hljóðop sitt í hvorum enda.
Nótnastokknum er komið fyrir
,langsum á þeirri brún langspils-
ins, sem nær manni er, og er
melódíustrengurinn strengdúr yfir
nótnastokkinn. Á hann er þrýst
með þumalfingri á hinar ýmsu nót
ur, þegar spilað er. Melódíustreng
^urinn er stemmdur í C í einstrik-
aðri áttund (octava), en undir-
leiksstrengirnir eru stemmdir í F
í litlu áttund, þeir eru samhljóma.
Þegar strokið er á alla þrjá streng
ina samtímis, kemur fram fimm-
undarhljómur. Notaður er gamal-
dags bogi með hrosshársstrengj-
um, á þá er borin myrra. Tónkvísl
er höfð til að stemma strengina
eftir, og er mjög nauðsynlegt, að
þeir séu rétt stemmdir.
Langspil hafa verið með ýmiss
konar stærðum, og má deila um,
hver er bezt, en gæta skal þess,
að nótnastokkurinn sé í réttu hlut
falli við hljóðfærið. Bogadráttur
er þversum á strengina, aldrei á
ská. Vatnsenda-Rósa kvað:
Netta fingur venur við,
veifar slyngur korða —
hjartað stingur, fær ei frið,
fallega syngur langspilið.
I Þann 4. júlí s. 1. söng ég og
spilaði á langspil fyrir norska út-
varpið í Osló. Þessum söng verður
útvarpað bráðlega þar. Þann 20.
júlí kom ég til Reykjavíkur með
langspilið mitt, frá Kaupmanna-
höfn. Það mun vera það eina not-
hæfa, sem mér er kunnugt um.
Þennan kostagrip lét ég smíða
hjá Hjortbræðrum á Strikinu í
Kaupmannahöfn. Fiðlusmiðurinn,
Svend Jensen, sýndi mikinn áhuga
fyrir, að þetta verk tækist vel. og
það er honum mest að þakka. að
ég gat hrint því í framkvæmd, að
fá svona fallega smíðað langspil.
Smíðin tók tvo mánuði, það var
margs að gæta, þegar verið var að
endurvekia þjóðarhljóðfærið.
Margar spurningar voru óleystar,
þó að hljóðfærið væri fullsmíðað.
Hvernig á að stemma langspil,
var spurt, hvernig á að spila á
það, og hvað er notað til að spila
með? Meðan á smíðinni stóð, hafði
ég kynnt mér þessi atriði í bók
Ara Sæmundsen. Eigi leið á löngu
áður en hægt var að heyra óm
langspilsins að nýju, og er sú
stund ógleymanleg fyrir okkur
Svend Jensen. Tveir aðrir menn
voru mér einnig hjálplegir, dr.
Glan, forstjóri safnsins „Musik
historisk Museum“ í Breiðgötu,
sem leyfði mér að smíða eftir
þeirri beztu fyrirmynd af lang-
spili, sem safnið átti. Það á þrjár
tegundir. Langspil þetta var smíð-
að árið 1770, og segir í safnskránni
að það hafi verið smíðað eftir því
eina, sem til var á íslandi af þeirri
tegund. Hinn var prófessor Jón
Helgason, sem vísaði mér á. hvar
langspil var að finna í Kaup-
mannahöfn og einnig, hvar ég gæti
fengið leiðarvísi Ara Sæmundsen,
en hann var í Konungsbókhlöð-
unni. Miðaldarhljóðfæri eru stór-
merkileg og hafa sína sögu að
segja. Af þeim má ráða ýmis þjóð-
areinkenni og sama má segja um
þjóðlög. Hljómur langspilsins er|
angurvær og tregablandinn. Aði
sjálfsögðu er langspil frumstætt,'
vegna þess að á því er ekki nema J
ein áttund. og strengirnir eru að-
eins þrír. En það er tónfyllra en'
mörg önnur miðaldarhljóðfæri. og.
í því er íslenzkur þjóðartónn frá
umliðnum öldum. Það hefur verið
notað við sálmasöng og vísnasöng.
Engum dylst. hversu mikill menn-
ingarauki það hefur verið að eign-
ast þetta hljóðfæri fyrir þá, sem
hafa kunnað að fara rétt með það.
Það hefur eflt sönglíf í landinu
og veitt ánægju. Söngur gleður og
göfgar.
Hljómsveitin „Fjórir fjörugir" frá Siglufirði, ásamt söngvaranum Þorvaldi Halldórssyni. Talið frá vinstri: —
Hlöður Bjarnason, píanó, Sverrir Sveinsson, trommur, söngvarinn Þorvaldur Halldórsson, Steingrímur Llllien-
dahl, gítar, og hljómsveitarstjórinn, Steingrímur Guðmundsson, saxófónn.
dæma um, en hingað til hefur eng-
inn kvartað.
— Er eitthvað sérstakt á prjón-
unum hjá ykkur áður en þið hætt-
ið í haust?
— Já, meiningin er að fara í 10
daga hljómleikaför á vegum hótel-
stjórans suður um land og verður
byrjað í Borgarnesi 25. ágúst, síð-
an verður haldið á Snæfellsnes og
víðar. > ■ .
Ég þakka Steingrími góð og
greið svör og\nú ómar lagið „My
Undirritaður, sem staddur var á bera dansleiknum í „Tjarnarborg",
Siglufirði á dögunum, brá sér á hinu nýja félagsheimili Ólafsfirð-
dansleik að hótel Höfn, þar sem inga og eigum við það lipurð Páls
hljómsveitin „Fjórir fjörugir" leik- hótelstjóra að þakka.
ur fyrir dansi, ásamt söngvaranum _ jæja, „Fjórii' fjörugir“, berið Grandfather’s Clock“ um salinn og
Þorvaldi. Undirrituðum þótti á- þið það nafn með rentu? er dansað af miklu fjöri.
stæða til að taka hljómsveitar- — Það verða dansgestirnir að — H.B.
stjórann, Steingrím Guðmundsson,___________________________________________________________
tali.
Ályktun fræSsluráðs Akraness
Laun kennara
eru óviðunandi
— Segið mér, Steingrímur, hve-
nær er hljómsveitin stofnuð?
— Hún er stofnuð sumarið 1957
og lék þá í Alþýðuhúsinu hér á
Siglufirði undir nafninu „Tóna-
tríó“ og var hljóðfæraskipan þá:
píanó, harmonika og trommur. Ár-
ið eftir bættist svo einn maður í
hópinn með gítar og tókum við þá
upp nafnið „Fjórir fjörugir“. í
sumar réðum við svo til okkar
söngvarann Þorvald Halldórsson. , .. ,. , . ....
— Er hljómsveitin starfandi allt Eftirfarandi alyktun var k|or og starfsskilyrð. kennara
árið? samþykkt á fundi fræðsluráðs verði stórlega bætt frá því
— Nei. Aðeins yfir sumarmánuð Akraness 24. júlí síðastliðinn. sem nú er, og verið hefur um
ina — skýringin er sú, að þrír okk _ j árabiI "
ar eru fjarverandi úr bænum yfir „Eins og háttvirtri fræðslu-i
veturinn, tveir við nám, annar við málastjórn er kunnugt, erS
læknanám, hinn við menntaskóla- mjö mik|um erfig,eikum
nam og svo eg, sem er busettur í , 1 * ,, ,
Reykjavík. bundið að fa raðna vel mennt-
— En hafið þið ekki leikið víð- aða og hæfa kennara í stöður
ar en hér í bænum? við barna- og gagnfræðaskóla.
— Jú, í fyrrasumar fórum við Augljóst virðist, að
mikið'úr bænum, t. d. tiJ. Olafe- ó8ir hæfi|eikamenn
fjarðar, Sauðarkroks, Blonduoss, *
svo að eitthvað sé nefnt, en í sum- kennslu til annarra starfa, og
ar höfum við verið samningsbundn I virðast það einkum launakjör
ir við Pál Jónsson hótelstjóra ájkennara, sem þvi vaÍ£|aí en
hótel Höfn, en þó fengum viði . . s
tækifæri til að leika á fyrsta opin- J se9l® að hroplegt osam-
ræmi se milli launa kennara
og annarra stétta þjóðfélags-
ins, til dæmis iðnaðarmanna.
Fræðsluráð Akraness telur,
að til vandræða hafi horft um
ýmsir
leiti frá
Póstsendum
VARMA
hefur verið vanræktur. Hér er
verkefni fyrir Þjóðmmjasafnið,
byggðasöfn. tónlistarskóla. Fyrst |
og fremst þurfa menn að eignast I. ...
fyrirmyndir, svo að hagir heimilis | lan9f skeið af þessum sokum,
feður og aðrir áhugamenn geti og telur tíma til kominn, að
smíðað sin hljóðfæri sjálfir, líkt spyrnt sé við fótum, kjör kenn
og forfeður vorir gerðu. J ara og annarra skólamanna
Norska nljoðfærið „langeleken j, ,
er annað hljóðfæn. Þó að lögunin bæ" a8 ^un, svo að tryggt se,
PLAST
Þ. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7, simi 22235.
Stundum þungbær þögnin er
þrauta lífs á vöku.
alltaf lifnar yfir mér.
ef ég raula stöku.
Langspilið er þjóðarartux sem
sé lík og nafnið einnig, má eigi
blanda þessum tveimur hljóðfær-
um sam^n. þau eru óskyld á svo
margan hátt
Reykjavík. 23.8. 1961.
Anna Þórhallsdóttir.
söngkona.
að á hverjum tíma veljist sem
hæfast starfslið til að vinna
að uppeldismálum.
Fræðsluráð Akraness álykt-
ar því að beina því til hátt-
virtrar fræðslumálastjórnar,
að hún beiti sér fyrir, að launa
"AllSÍI0Ux
Anna Þórhallsdóttir, söngkona: