Tíminn - 30.08.1961, Síða 8

Tíminn - 30.08.1961, Síða 8
8 T f M IN N, miSvikngaginn 30. ágúst 1961. Er ég leit yfir það, sem ég hripaSi niður á blaðamanna- fundi þeim, sem haldinn var með erlendu fulltrúunum á stjórnarfundi Norræna hús- mæðrasambandsins, sá ég, að þar hafði verið rætt margt það sama og fulltrúarnir drápu á fyrr um daginn í er- indum, sem ég skýrði frá í blaðagrein s. I. föstudag og endurtek ég það ekki hér. Frú Dahlerup, formaður sam- bandsins, gat þess, að 500 þúsund félagsbundnar konur stæðu að hús mæðrasambandinu. f aðalstjórn sambandsins eru fulltrúar frá öll- um Norðurlöndum og hittast þær árlega, og þó að kvenfélög hvers lands hefðu ekki alveg sams kon- ar vinnubrögð, miðaði þó allt starfið að heill heimilanna. f Dan- mörku væri t. d. aðaláherzla lögð á hússtjórnarkennslu, í Noregi á starf í námskeiðum og í Svíþjóð á námshringastarf. Öllum væri fé- lagskonum Ijóst, að nýir tímar væru framundan með miklum og óþekktum vandamálum og hefði Erlendar húsmæður ásamt gestgjöfum sínum hér á norræna húsmæörafundínum. I flutti Steinunn Ingimundard. er- Vék Steinunn að því í lok er- Hálf millj. húsmæðra í norrænu sambandi það mikla þýðingu fyrir þjóðirnar, hvernig konur snerust við hverj- um vanda. Þær yrðu að auka þekk; ingu sína til að risa undir ábyrgð af heimili, uppeldi barna og æsku- fólks og þá um leið mótun þjóð- félagsins. Félögin yrðu að skipu- ( leggja starfsskrár sínar þannig, að ungar konur aðhylltust þau, því að framtíðarstarfið stæði og félli með ungu konunum. Frú Dahlerup kvað það ekkert vandamál framar vegna fjarlægð-j ar, að fulltrúar landanna hittust. Eini vandinn væri að eignast aura fyrir fargjaldi og það væri ein- mitt meginnauðsyn að skapa ör-, uggan fjárhagsgrundvöll, til þess að norræn samvinna yrði raun-1 veruleg. Frú Germeten frá Noregi ságði, I að norsku kvenfélögin legðu meg-' ináherzlu á sem víðtækasta fræðslu í öllum greinum. Þau starfræktu barnadagheimili, efldu tómstundastarf barna og unglingaj og styddu að auknu samstarfi | heimila og skóla. Ráðleggingastarf, fyrir ungt fólk, sem ætlar að fara að gifta sig, kvað hún hafa orðið mjög vinsælt. Frú Katríne Vedsted-Hansen frá Danmörku mælti nokkur orð. Hún er skólastjóri kvennaskóla á Jót- landi og hefur því náin kynni af æskulýðnum. Hún kvað dönsku þjóðina lánssama að því leyti, að löggjafarþingið væri s-kilningsríkt; á nauðsyn menntunar og veitti flestum borgurum landsins mögu- leika til að fá ókeypis menntun. Mikið væri skrifað um, hve æsku- fólkið væri erfitt viðureignar, en hún áliti, að legðu foreldrar og yfirvöld sig fram í sameiningu, væri grundvöllur fyrir hendi til að leysa vandamálin. Æskan er framtíðin, sagði hún, og ef heimur framtíðarinnar á að vera fagur, verða heimilin og aðrir uppalend- ur að skilja æskuna og trúa á hana. Það er skylda heimilanna að gefa æskufólkinu tækifæri til að þroskast, og þroskinn fæst aðeins með því, að ungmennunum séu fengin verkefni og ábyrgðartil- finning þeirra vakin. Svo bezt verða þau sjálfstæð, er fram líða stundir, að þau hafi vanizt því að leysa sjálf verkefnin. í Danmörku eykst nú mjög samstarf heimila, skóla og kirkjunnar, og ætti það að verða til að veita hinum beztu lífsverðmætum brautargengi. Ham- ingja lífsins felst ekki í því, hvað maður hlýtur, heldur í því, hvað maður gefur. Það á að vera sam- eigirilegt takmark allra kvenfélaga að rétta þeim ungu hjálparhönd í hvívetna. Frú Harward frá Svíþjóð sagði, að markmið sænskra kvenfélaga væri m. a. það, að vekja húsmæð- urnar til vitundar um allt það, sem í heiminum væri að gerast og skipuleggja svo þá fræðslu, er fram fer á vegum félaganna, að hún geti orðið eins konar hús- mæðraháskóli. Hún tók í sama streng og frú Vedsted-Hansen um það, að mestar væru skyldurnar við æskuna. Það myndi þykja und- ur og óeðli, ef fugl hefði ekki kennt ungum sínum að fljúga, er tímabært væri, að þeir yfirgæfu hreiðrið. Konurnar ættu að hafa sama sjónarmið gagnvart sínum börnum, að gera þau sjálfbjarga. Sænsku kvenfélögin láta til sín taka ýmsa þætti daglegs lífs. Þau vinna að aukrium og bættum fæð- ingarheimdum og fylgjast með skólastarfinu. Sænskt æskufólk hefur miklar tekjur, og kvenfélög- in vilja, að skyldusparnaður sé aukinn, svo að unga fólkið eigi eitthvað í handraðanum, þegar til heimilisstofnunar kemur. Frú Vinquist frá Finnlandi sagði kvenfélög þar vilja efla menningarlegan og verklegan þroska húsmæðra. Það færi eftir aðstæðum, hve félagsfundir væru oft haldnir á hverjum stað, en innan sambandanna gætu stóru og smáu félögin lært af starfsaðferð- um og verkefnavali hvers annars. Eitt af aðalmarkmiðum félaganna væri að kenna húsmæðrunum sjálf um að meta gildi heimilisstarf- anna í þjóðfélaginu. Fjármál, vöru þekking, garðrækt, heimilismótun cg félagsfræði væru vinsæl við- fangsefni á námskeiðum og les- hringum. Frú Dahlerup flutti síðar erindi um alþjóðasamstarf húsmæðra og mælti mjög með því, að Kvenfé- lagasamband íslands gerðist aðili að The Associated Country Women of the World. í því sambandi eru félög kvenna í landbúnaðarhéruð- indi um samnorrænan húsmæðra- háskóla í búsýslu og skýrði þar frá undirbúningi þeim, sem þegar hefur verið' framkvæmdur til að nema megi ýmsar háskólagreinar, er tilheyra búsýslu við háskóla Norðurlandanna, annarra en ís- lands, og leiði til háskólaprófs í þessari grein. Við háskólann hér er engin sú námsgrein kennd, er falli undir þennan flokk, nema hluti af læknanámi. Ekki er full- séð, hvort endanleg niðurstaða um og smáborgum. Hefur samband þessa máls kunni að verða sú, að þetta verið í samstarfi við sumar námið verði fremur sameinað á undirstofnanir Sameinuðu þjóð- einUm stað eða að halda þeirri skip anna og stutt fræðshrstBpf1 þe»ma'‘,áni sem fyrr er frá sagt. Finnland í Afríku og Asíu. Saiíitöki,li,; H0IdáTgj. fyrst Norðurlanda til þess að þing þriðja hvert ár og verður setja við sinn háskóla prófessora hið næsta í Astralíu að ári. Ekki [ búsýslu. Var það gert 1947, og hafa íslenzku kvennasamtökin til hafa kandídatar verið útskrifaðir þessa talið sér fært að^ taka þátt þar sígan. Ákvörðunin um að nema í þessum samtökum, því að aðeins mætti hinar ýmsu greinar við mis- það, að senda fulltrúa á þingin, munandi háskóla var tekin á myndi kosta offjár. menntamðlaráðherrafundi í Osló Á þingi Kvenfélagasambandsins árið 1959. indisins, að húsfreyjur fengju aldrei of mikla menntun til starfa sinna, svo fjölbreytt sem þau eru Fullkomin háskólamenntun ætti að skapa þeim möguleika m. a. til að endurbæta verktækni og vélar, vefnaðarvörur o. fl. Aðalbjörg Sigurðardóttir sagði frá þingi Húsmæðrasambands Norðuirlanda, sem haldið var í Visby í fyrra og rakti efni erinda, sem þar voru flutt. Umræðuefni þingsins var: Samskipti manna. Voru erindin um marga þætti mannlífsins og flutti Aðalbjörg er- indi um vandamál ellinnar. Var óskað eftir, að hún flytti það í sænska útvarpið. Mun það erindi birtast í tímaritinu Húsfreyjan, áður en langt líður. Að þessu sinni átti að kjósa eina konu í aðalstjórn Kvenfélaga- sambandsins og þrjár í varastjórn. í aðalstjórn var kosin Jónína Guð- mundsdóttir í stað Aðalbjargar, (Framhaln a ia síðu > Tvö skáld og tveir konungar Vera má, að áhugi á fornum skáldskap sé nú þverrandi með þjóði-nni, en þó var það yngri maður en. ég, sem nýlega sýndi mér fram á stórlega athyglisverða likingu með vísum tveggja forn- skálda, Egils Skallagrímssonar og; Úlfs Uggasonar. Tilefni samtals okkar var stutt grein eftir mig í Tímanum 13. júlí s.l., þar sem ég talaði um ægigeisla frá augum Þórs. Hugði ég að lýsingin á þessu væri fram komin fyrir það, sem lengi hefur verið kallað vitrun, en er eftir þeim skilningi sem ég hef tileinkað mér, hugsamband vig íbúa annarrar jarðstjörnu, stundum þangað, sem lífið er á miklu hærra fullkomnunarstigi en hér. En ein vísan í lýsingu Úlfs Uggasonar á viðureign Þórs við Miðgarðsorm er á þessa leið: Innmáni skein ennis öndótts vinar banda áss skaut ægigeislum orðsæll á men storðar. En stirðþinull starði storðar leggs fyr borði fróns á folka reyni fránleitr ok blés eitri. Öndóttr: harðsriúinn; vinr banda: Þór: men storðar: Miðgarðsormur Það sem góðvinur minn benti mér á, er líkingin við þessa vísu Egils þar sem hann lýsir vfirbragði Eiríks konungs í Jórvík. þegar hann horfði á sonarbana sinn: Vasa þat tunglskin tryggt at líta né ógnlaust Eiríks bráa„ þás ormfránn ennimáni skein allvalds ægigeislum. Eigi einungis ægigeislar, heldur ennimáni (innmáni ennis: auga) og orðin ormfránn og fránleitur, segja ótvírætt til um það, að lýs- ig Úlfs á Þór hefur mótazt mjög af lýsingu Egils á Eiríki. Er því ekki nægileg ástæða til þess, sem ég gerði, að ætla þessa lýsingu Úlfs Uggasonar á Þór sambæri- lega við lýsingar Demokrits og Davíðs Gyðingakonungs á sínum vitrunum, en engu að síður eru orð Egils um skin frá augum kon- ungsins og ægigeisla meðal hins allra athyglisverðasta í fornbók- menntum vorum. Þag gæti annars verið fróðlegt að bera saman þessa tvo fornkon- unga. Eiríks Haraldssonar og Davíð son Ísaís Eiríkur var bræðramorðingi og hlaut af því svo miklar óvinsældir í Noregi, að hann var kallaður blóðöx og bræðrasökkvi og varð að hrökkl- ast úr landi litlu síðar og átti aldrei afturkvæmt Grimmur var hann kallaður og hefur ekki 'feng ið góð eftirmæli i Norðurlanda- sögu, nema hvað hin ísienzka sann fræði hefur ekki látið fyrnast, að , það var kvonfang hans, sem gerði 1 hann að verra manni. — Davíð Gyðingakonungur var einhver hryllilegasti grimmdarseggur sem sögur fara af, eins og hver lesandi maður getur sannfært sjálfan sig um, og eru aðfarir þær sem verið er nú að segja frá um nazista. í einna líkastar því að þær væru beint teknar eftir þessum fornald- armanni. En ólíkt betur hefur Gyð ingum líkað vig þennan forföður sinn, margra hverra, en Norður- landabúum við Eirík blóðöx Telja þeir hann einn sinn mesta mann og er varla til æðra lof í ritum þeirra um nokkurn mann, en að vera „rótarkvistur af kyni Davíðs“ Sá kvittur kom upp fyrir nokkr um árum ,að maður nokkur vildi ! fá að verða doktor fyrir að segja j að Egilssaga væri tilbúningur og j kvæðin ort löngu seinna af öðr- j um en höfundi þeirra, sem talinn j hefur verið Þag varð norrænu- i deildinni til happs, að hún tók j rögg á sig og neitaði að láta bióða sér slíkt eða undirtektir hennar urðu a.m.k. þær. ag þetta datt niður. Og vitanlega eru nóg rök til að kveða slíkt niður. En gaman þykir mér að því að þessi ágæta j athugun kunningja míns, sem engr ar æðri skólagöngu hefur notið , og fárra þeirra þæginda. sem nú- tíminn býður, skuli vera ný sönn un þess. að rétt er sagt um aldur Egilskvæða. Þorsteinn Guðjónsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.