Tíminn - 08.09.1961, Blaðsíða 3
/
m
i
V - Þjðöverjar fjölga
í her sínum
Herskyldan
lengd
Söngför til Rúss-
Sands og Finnlands
Karlakórinn FóstbræSur lagði í gær af stað í söngför til Finn-
lands og Rússlands. Myndin var tekin á flugvellinum, þegar kórinn
var að stíga Inn í eina af flugvélum Flugfélagsins, er flytur hann
utan.
NTB—Bonn, 7. sept.
Æðsti maður herja Atlants-
hafsbandalagsins í Evrópu,
Lauris Norstad hershöfðingi
átti í dag viðræður við Konrad
Adenauer forsætisráðherra í
Bonn. Franz-Josef Strauss
varnarmálaráðherra var við-
staddur viðræður þessar, sem
stóðu hálfa aðra klukkustund,
og það er haft eftir góðum
heimildum í Bonn, að. rætt
hafi verið um leiðir til að efla
hernaðarlegan viðbúnað Vest-
ur-Þýzkalands.
Eftir að Norstad var floginn aft-
ur til Parísar þegar a3 viðræðun-
um loknum, sagði Adenauer í boði
hjá þýzka blaðamannafélaginu í
Bonn, að stjórnin hefði nú til at-
hugunar að halda kyrrum 36 þús-
und hermönnum, sem Ijúka fyrsta
(Framhald á 2. síðu.)
Brezka verkalýðssambandið
horfið frá að styðja ein-
hliða kjarnorkuafvopnun
Nehru
|ræðir við
Krustjoff
NTB—Moskva, 7. sept.
í dag ræddust þeir við í
tvær og hálfa klukkustund í
Moskvu, Nehru og Krústjoff
forsætisráðherrar. Bar margt
á góma í viðræðum þeirra, og
töluðu þeir meðal annars um
jtilraunir með kjarnorkuvopn,
afvopnunarmál, Berlínar- og
Þýzkalandsmálin og ástandið
í alþjóðamálum almennt.
Að loknum þessum fundi þeirra
sagði talsmaður Nehrus, að hann
gæti ekkeit sagt um niðurstöður
viðræðnanna.
f gærkvöldi áttu Nehru og
Krústjoff klukkustundar samtal
um orðsending og málaleitan
ráðstefnunnar í Belgrad, sem
Nehru færir Krustjoff. Hefur ekk
ert verið gefið út um þær við-
ræður heldur, né hvernig Krúst-
joff bregðist við beiðni óbanda-
lagsbundnu ríkisleiðtoganna. Hitt
er víst, að sprengd hefur verið
kjarnorkusprengja í Ráðstjórn-
arríkjunum um svipað leyti og
Krústjoff tók við orðsendingunni.
f háedgisverðarboði, sem Ráð-
stjórnin hélt í dag fyrir þá Nehru
og Nkrumah, hélt Krustjoff ræðu
og sagði, að Ráðstjórnin hefði
neyðst til að taka kjarnorkuvopna-
tilraunir upp aftur vegna hins ó-
friðlega og uggvekjandi styrjald-
arundirbúnings vesturveldanna
Jafnframt gagnrýndi hann vestur-
veldin harkalega fyrir afstöðu
þeirra í Berlínar- og Þýzkalands-
málinu.
NTB— Portsmouth, 7. sept.
Ársþing brezku verkalýðs-
samtakanna, sem nú er haldið
í Portsmouth, lýsti 1 dag fylgi
sínu við landvarnamálastefnu
Hugh Gaitskells, formanns
Verkamannaflokksins. Jafn-
framt var felld tillaga um eirt-
hliða kjarnorkuafvopnun af
hendi Breta. Þetta þýðir, að
brezku verkalýðssamtökin
hafa gersamlega skipt um
stefnu síðan í fyrra, en þá var
á ársþinginu samþykkt sú
stefna, sem Frank Cousins,
formaður hins volduga sam-
bands flutningaverkamanna,
barðist fyrir, þar sem lýst var
fylgi við einhliða kjarnorkuaf-
vopnun Breta.
Tillaga sú, sem í dag var sam-
þykkt, hlaut samþykki þingfull-
tiúa sem hafa 3% milljón atkvæða
á bak við sig. Tillaga Frank Cous
ins, sem samþykkt var í fyrra,
hlaut þá atkvæði fulltrúa sem
höfðu 3V2 milljón verkamannaat-
kvæða á bak við sig. V
Atkvæðagreiðslan í dag felur
því í sér mjög ótvíræðan sigur
fyrir stefnu Gaitskells, sem geng
ur út á það, að vesturveldin
skuli halda kjarnorkuvígbúnaði
sínum eins lengi og Ráðstjórnar-
ríkin gera það. Áður cn gengið
(Framhald á 2. síðu.)
4
Geislavirkni
margfaldast
Kjarnorkuráð Bandaríkjanna
tilkynnti í fyrrakvöld, að Rúss-
ar hefðu þá um daginn sprengt
fjórðu kjarnorkusprengjuna á
tæpri viku. Þessi sprengja var
heldur undir meðallagi að styrk-
ieika, að sögn, og hún var
sprengd miklu vestar en þrjár
hinar fyrstu í lotunni, sennilega
austur af Stalingrad, en í gufu-
hvolfinu eins og þær. Geisla-
virk efni í úrkomu mælast nú
margfalt meiri en áður víða,
t. d. í Japan og Alaska, en enn
sem komið er stafar lífi ekki
hætta af.
Mikill síldarfloti
Rússa noröan lands
Mikill f|öldi rússneskra síld- Á Héraðsflóa eru sex rússnesk
. . ... - . , móðurskip, úthafsdráttarbátur og
veiðiskipa er nu her við land,!fjórtán 4netaskip út af ÞistilS
og eru þau öll að veiðum utan firði eru þijú móðurskip og þrjú
við tólf mílna landhelgina. rfa“Lú?i ^ mÓðUrSkÍP er
Rússneskt móðurskip fyrir NorS
urlandi. Ufan á því llggur rek-
netabátur. Á þilfarl móðurskips-
ins eru miklir tunnuhlaðar, því
’ð síldln er söltuð um borð.
i Út af Skaga er eitt móðurskip
og fjögur reknetaskip.
Samtals eru þetta ellefu móður-
skip, einn dráttarbátur og tuttugu
og tvö reknetaskip, og er það
venju fremur mikið.