Tíminn - 13.09.1961, Side 2
2
f í MIN N, miðvíkudaginn 13. september 1961.
Forsetanum vel fagnaö
við komuna til Kanada
Quebec, 11. september.
Forsetinn og föruneyti hans
kom til Quebec klukkustund á
eftir áætlun. Landstjórinn I
Kanada, Vanier, og forsætis-
ráðherra Quebec-fylkis tóku
þar á móti. Hermenn stóSu
heiðursvörð á flugvellinum og
hleypt var af 21 fallbyssuskoti
við komu forsetans. Þjóð-
söngvar íslands og Kanada
voru leiknir, og síðan fór fram
liðskönnun.
Landstjóri Kanada ávarpaði for
setann. Gat hann þess, að sæfarar
hefðu bæði fundið fsland og Kan-
ada. fslendingar hefðu átt mikinn
þátt í sögu og þróun Kanada, og
væri framlag þeirra mikið til þjóð
lífs þess lands. Forsetinn svaraði
á ensku og frönsku:
Við hjónin fögnum þvi að stíga
á Kanadíska grund, og þökkum
innilega hið virðulega heimboð.
Við stöndum hér við hlið yðar
víðáttumikla lands, og hlökkum
til þeirrar langferðar, sem við
eigum fyrir höndum. Það er álíka
langt héðan til Vancover og til
Reykjavíkur, sem við komum frá.
Hvílíkt landrýmt. Okkur er nokkuð
kunnugt um sögu og menningu
Kanadamanna. En sjón verður
sögu rfkari. Við þökkutn þetta
einstaka tækifæri.
Menning, hugsunarháttur og
stjórnarskipun yðar fólks er ná-
skyld vorri eigin. g þó eigum við
að sjálfsögðu skyldast við hina
mörgu afkomendur fslendinga,
sem nú eru kanadískir þegnar,
Auk þess er það sjálft Norður-
Alantshafið, sem áður aðskildi,
en nú sameinar, og skapar oss
vafalaust báðum þjóðunum, áþekk
örlög.
Oss er einnig kunnugt um hinn
ríka þátt, sem frönsk tunga og
ætterni hefur átt í sögu Kanda-
manna og þeirri menningu, sem
hér hefur þróazt og enn er í mót-
un og vexti. En það skal hrein-
skilnislega játað, að þó ég geti
lesið frönsku á bók, þó hef ég
ekki vald á talmálinu. í vissum
skilningi missum við „málfrelsið"
í framandi landi.
Eg læt mér nægja, að endur-
taka þakklæti okkar fyrir heim-
boð hér við hin opnu hlið lands
yðar og þjóðar.
Forsetahjónin héldu síðan til
bústaðar landstjórahjónanna, þar
sem þau dveljast meðan þau
standa við Quebec,
Um kvöldið sátu þau boð land-
stjórans. Flutti forsetinn þar ræðu
þá, sem hér fer á eftir:
Eg þakka yður mjög vel ástúð-
legt ávarp, viðurkenningarorð um
landa vora og frændur hér vest-
an hafs og menningu fslands
heima fyrir. Eg veit, að þeir hafa
unnið til þess. Það er oss íslend
ingum heima jafnan gleðiefni, að
heyra þeirra lof og að þeir hafa
unnið sér traust hinna beztu
manna hér vestra. Þar sem við
svo marga byrjunarörðugleika og
mörg þjóðerni hefur verið að
keppa. Við erum fámenn þjóð,
íslendingar, en þar fyrir stolt
þjóð með öllum einkennum sjálf-
stæðs þjóðemis, og fögnum því,
þegar ættmenn vorir afla sér góðs
orðstls í framandi landi.
Eins og nú er komið samgöng-
um og allri tækni, þá erum vér
Kanadamenn og íslendingar ná-
grannar. Við vorum minntir á
það nýlega við hetmsókn kana-
dískrar flotadeildar til Reykja-
víkur. Yðar hraustu sjómenn voru
velkomnir.
Við strendur Norður-Atlants-
hafsins búa eingöngu þroskaðar
lýðræðisþjóðir, og hafi áður, t.d.
fyrir hálfri annarri öld, verið ó-
friðarhætta þeirra á milli, þá er
sú hætta algerlega úr sögunni.
Þessi staðreynd er eins og stjarna
í rofi á hinum skýjaða himni okk
ar brösótta heims.
Við lögðum af stað að heiman
í morgun um venjulegan fótaferð
artíma. Og nú sitjum við kvöldboð
yðar. Það hefur ekki alltaf verið
svo stutt milli landanna. Hinn
fyrsti íslendingur, sem leit strend
ur Kanada augum, Leifur heppni,
kom hér í hafvillum, og sú til-
raun til landnáms, sem síðar var
gerð af fslendingum hlaut að mis
takast. Og þó var naftiig lokk-
andi: Vínland hið góða. Skyldi
það eiga nokkuð skylt við hið
fyrsta nafn, sem Cartier gaf Ile
d.Orleans. Mér er sagt það hafi
verið Baccus Island? Vafalaust
hafa hin villtu vínber ráðið báð-1
um nöfnunum.
Það var langt að bíða næstu til-
i raunar til landnáms af hálfu ís-
j lendinga, og þeir voru lengi á leið
' inni úr íslenzkum sveitum, alla
ieið inn á mitt Manitobafylki.
' Einn af yðar fyrirrennurum, hinn
1 gáfaði, hjartagóði, irski aðalsmað-
ur, Dufferin lávarður, hafði verið
á íslandi, og var áhugamál að fá
íslendinga til að gerast hér land-
námsmenn. Hann ber íslendingum
vel söguna I „Letters from high
Latitudes", og ég næstum vikna,
þegar ég minnist þess, að hann
iagði á sig ferð til Nýja íslands
við Winnipegvatn árið 1877, þegar
mest svarf að íslenzku nýlendunni
þar, hungur, kuldi og drepsóttir,
taldi í þá kjark, lofaði þeirra kyn-
stofn og klassisku menningu, og
hlúði að þeim, jafnvel fram yfir
heimildir. Það var faliega gert.
Mér er kunnugt um staðgóða þekk
ingu Tweedmuir lávarðar á íslenzk
um bókmenntum og vinsamleg af-
skipti yðar og góða álits á Kanada
mönnum af íslenzkum stofni.
Ræða yðar snerti viðkvæma
strengi í minu hjarta.
Við köllum þá menn af íslenzk-
um stofni, sem hér búa, Vestur-
fedendinga, Western-Icelanders.
Það er gamalt orðalag, sem við
höldum fast við. En við vitum vel,
að þeir eru kanadiskir þegnar, góð
ir þegnar síns nýja fósturlands.
Þeim hefur reynzt auðvelt að sam
lagast kanadiskum háttum og
stjórnarfari, enda er menning vor,
ef leitað er nógu langt aftur, að
miklu leyti af sömu rót. Milli hins
íslenzka og kanadíska er enginn
árekstur, og við vonum, að hinn
íslenzki arfur megi eiga nokkurn
þátt í að móta hina vaxandi menn
ingu, frið og farsæld í þessu mikla
framtíðarlandi.
Konur og karlar! Vér drekkum
í sameiningu skál Kanada!
Carla dvínandi
En vindsveipir í kjöl-
farinu auka enn tjónið
NTB—Galveston, Texas,
12. sept.
Fellibylurinn Carla var í
dag að dvina og virtist í dag
vera búinn að missa kraftinn
að liðnum nokkrum skelfing-
ardægrum á ströndum banda-
rísku fylkjanna Texas og Lou-
j isiana. Miðdepill fellibylsins
virtist síðdegis í dag vera í
námunda við bæinn Austin,
sem er 300 km inn af strönd-
inni.
f kvöld komu nokkrir heiftar-
legir hvirfilbyljlr I kjölfar felli-
bylsins, og ollu þeir víða miklu
tjóni til viðbótar. f bænum Galv-
eston á ströndum Texas féllu fimm
menn af þessum sökum, en B0—80
meiddust.
Þótt fellibylurinn sjálfur megi
nú heita genginn yfir, er ekki bú-
izt við, að náttúruhamfarirnar séu
þar með á enda. Á eftir honum
koma óskaplegar rignlngar inn
yfir strondina, sem valda flóðum í
ám, svo að viða mun flæða inn i
hús. Er því fólk það, sem flutt
hefur verið af hættusvæöunum,
hvatt til að flytja ekki of snemma
heim aftur. Samtals voru þetta nær
hálf milljón manna.
Slöngur og drepsóttir
Auk þess er nú mikil hætta á
drepsóttum i mörgum þorpum og
|bæjum, og eiturslönguplága geng-
ur yfir, Hefur Bandarlkjastjórn
1 gert ráðstafanir til þess að flytja
mikið magn af móteitri gegn
slöngubiti á vettvang.
Vindhraðinn i fellibylnum var i
gær orðinn aðeins helmingur þess
sem var, þegar verst lét, og var
nú um 120 km á klst. Frá bænum
Port Arthur bárust þær fréttir I
kvöld, að flóðgarðar i nánd við
Taylor Bay hefðu brostið og 1000
hús í bænum væru nú undir flóði.
Efnalegt tjón af völdum
fellibylsins er nú lauslega
ántlaS að mlnnsta kostl 200
milljónir dollara.
Bertrand Russel
Framhald af 3 siðu.
veg fyrir að fólk léti i ljós skoðun
sína um kjarnorkuvopn. í þeim
efnum væri hundrað manna nefnd
in á sama máli og verulegur hluti
þjóðarinnar. En tilgangurlnn með
réttarhaldi þessu væri að koma í
veg fyrir, að lögin væru brotin.
Hundrað manna nefndin hefði
sjálf sagt, að hún vildi brjóta lög-
in emð þvi að taka sér stöðu um
þver stræti og hindra umferö.
Voru lögreglumenn, sem heyrt
höfðu einstaka menn úr baráttu-
nefnd samtaka kjarnorkuandstæð-
inga flytja mál sitt, leiddir sem
vitni um þetta.
Allir ncma þcir þrír, sem áður
eru nefndir, vísuðu tilmælum rétt
arins á bug og hlutu dóma eftir
því sem rétturínn taldi vitnis-
I burði tii scktar. Bertrand Russell
sagði fyrir réttinum, að hann hafn
aðl að' verða vlð tilmælunum vegna
þess, að aðferð sú, sem samtökin
beittu, væri áhrlfarfk og þvi nauð
' synleg.
Gerhardsen forsætisráí-
herra?
(Framhald af 3. síðu).
með að verða erfið fyrir báða þá
aðila, sem fengið hefðif 74 þing-
sæti. Fyrir Verkamannaflokkinn
yri það mjög erfitt að verða háður
flokki (sósíaliska þjóðarflokknum),
sem hafði tvo þingmenn og a.m.k.
í sumum atriðum sjónarmið,vsem
væru mjög frábrugðin skoðunum
Verkamannaflokksins. Þó taldi
hann, að það hlyti' að verða enn
erfiðara fyrir borgaraflokkana
fjóra að ráða fram úr þessum að-
stæðum á viðunandi hátt.
Viðbrögðin I SvíþjóS
Norsku kosningaúrslitin komu
mjög á óvart i Svíþjóð, þar sem
menn höfðu yfirleitt gert ráð fyrir
miklu minni breytingum á þing-
skipaninni en raun varð á.
Bæði stjórnmálamenn og blöð-
in gera samt ráð fyrir, að ríkis-
stjórn Gerhardsens verði áfram
við völd. Ummæli blaða og ein-
stakra manna fjalla um veldis-
hnignun Verkamannaflokksins og
hina glæsilcgu byrjun sósíaliska
þjóðarflokksins á vettvangi
stjórnmálanna í Noregi. Það er
almenn skoðun i Svfþjóð, að
Verkamannaflokkurinn verði á-
fram f ríkisstjórn, og muni hann
styðjast að nokkru leyti við sós-
íalíska þjóðarflokkinn og sum-
part við borgaraflokkana. Tage
Erlander forsætisráðherra telur
útilokað, að sósíaliski þjóðar-
flokkurinn myndi vllja fella rík-
isstjórn Verkamannaflokksins.
Aftonblaðið skrifar, að liklega
muni Verkamannaflokkurinn
stjórna með stuðningi sósíaliska
þjóðarflokksins I innanríki'smálum
en í utanrikls- og landvarnamálum
með stuðningi úr borgaralegri átt.
f sama streng tekur hið frjálslynda
blað, Expressen, undir fyrirsögn-
inni: Gerhardsen situr áfram.
Kaupmannahöfn
Óháða blaðið Information telur
ríkisstjórn án þátttöku Verka-
mannaflokksins óhugsandi. Frá
dönskum sjónarhóli séð sé sam-
steypustjórn eða Verkamanna-
flokksstjórn með borgaralegum
stuðningi mun æskilegri en sam-
vinna Verkamannaflokksins og
sósíalíska þjóðarflokksins bæði
með tilliti til áframhalds bandalags-
stefnunnar og með tilliti til af-
stöðu Norðmanna til sameiningar
Evrópu á efnahagssviðinu, en nú
dregur að því, að Norðmenn taki
ókvörðun um stefnu sína á þeim
efnum. Blaðið telur mjög athyglis-
vert, að sósíalíski þjóðarflokkur-
inn skyldi geta háð sér jafn mikið
fylgi og raun varð á án þess að
eiga forustumann á borð við Aksel
Larsen.
.Steinninn’
er ekki
mannheldur
— þrátt fyrir járnið
Fyrir skömmu spennti fangi
I hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg upp tvær fjalir I loft-
inu I annarri álmunni, sem
klædd er með bárujárni á
þaki. Sennilegt er, að fangar
gætu komizt út á þennan hátt,
| með því að spenna upp járnið
á þakinu.
I
Af báðum álmunum mun vera
hægt að komast yfir fangelsisgarð
inn, svo að fjarri fer því, að
„steinninn" sé mannheldur, þrátt
fyrir járnin, sem fest voru innan
| á fangelsisgarðinn. Innréttingin í
' húsinu er úr einhvers konar froðu
steypu, drýgð með hálmi, og má
róta henni upp með allra lítilfjör-
legustu verkfærum.
Þrátt fyrir þetta er nú langt
síðan fangar hafa sloppið úr hús-
inu, en það er fyrst og fremst
vegna þess, að órólegustu mennirn
. ir eru geymdir ausfur á Litla-
Hrauni.
Smíðaði
90 báta
Akranesi, 12. september.
Nú er verið að sjósetja 12 lesta
bát, sem er smíðaður hér i Báta-
stöðinni fyrir Sigurð Finnboga-
son á Raufarhöfn. Eigandi Báta-
stöðvarinnar er Ingi Guðmonsson.
Hann hefur nú smiðað tæplega
níutíu báta, fimm lesta og stærri,
síðan hann kom til Akraness og
eru 35 þeirra nú i notkun á Faxa-
flóa. Ingi er nú að byrja að reisa
sér nýja bátasmiðastöð við Skarfs
vör, og mun hann þá geta smíðað
mun stærri báta. G.B.
.WMV.W.V.W/AW.W
Plastboltarnir
eru komnir. Handbolta-
stærð kr. 59,75. Fótbolta-
stærð kr. 82,00.
Slátrun hefst hjá
Kaupfélagi Skag-
firðinga
Sauðárkróki, 12. sept.
Sauðfjárslátrun hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga hefst á morgun.
Áætlað er# að slátra 38 þúsund
fjár, 1400 á dag. Göngur hefjast
um næstu helgi. Mikil hey eru úti
á flestum bæjum. Vafasamt er, að
þeim verði náð inn fyrir göngur,
þótt tíðarfar sé nú breytt til batn-
aðar. — G.Ó.
Þrjú söfn í
Skaftholtsrétt
Stóra-Hofi, Gnúpverjahreppi,
9 sept.
Fjallreiðarmenn leggja upp
á þriðjudaginn, þeir sem fara
lengst — inn að Arnarfelli við
Hofsjökul — fjórir héðan og
þrír úr Flóanum. Það er níu
daga ferð.
Réttað verður í Skaftholtsrétt
þann 21. þ.m. og í Skeiðarétt dag-
inn eftir. Helmingurinn af Skeiða-
safninu kemur í réttina hér og
j verður rekið i Skeiðarétt daginn
eftir. Flóasafnið kemur hér einn-
ig til réttar.
Fyrir nokkru var fé sótt inn
fyrir afréttargirðinguna, eins og
þegar hefur verið getið í fréttum.
Var það um fjögur þúsund frá
Gnúpverjum og nokkuð úr Flóan-
um. Lömbin voru heldur smá, en
engrar óhreysti varð vart hjá þess
um kindum. Sennilega hefur mik
ið af fénu verið við girðinguna
eða þar í nánd síðan í vor. Ann-
að hefur leitað fljótt fram. Það
er mein, hvað kindurnar tolla
illa á afréttinum. Þær eru teknar
af grænum túnum á vorin, en af-
rétturinn er víða lélegur. G.Ó.