Tíminn - 13.09.1961, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.09.1961, Blaðsíða 12
12 T í MIN N, miSvikudagmn 13. september 1961, RITSTJORI HALLUR SÍMONARSON Landsliðið valið, en ekki gefið upp Landsliðsnefnd valdi í gær-j í gærkvöldi, en það er, að Örn kvöldi þá elleíu leikmenn, Steinsen mun leika á hægri sem leika eiga landsleikinn við kanti í liðinu. Björgvin England á laugardaginn í Schram, formaður Knatt- London. Stjórn KSÍ vidi þó spyrnusambandsins hringdi í ekki gefa upp í gær hvernig Örn til Kaupmannahafnar í liðið er skipað, en á fundi gær, og fékk þá jákvætt svar stjórnarinnar í dag verður frá Erni um þátttöku í leikn- ákveðið hvort blcðunum verð- um. Að öðru leyti er ekki hægt ur gefin upp skipun í einstak- að skýra frá liðinu, en vonandi ar stöður. verður það hægt á síðunni á Eitt fengu blöðin þó að vita morgun. Víkingsstúlkur sigr- uðu í handknattleik Jay Silvester — þriðja heimsmetið. z' ■ r kringlukasti, 64.07m Hinn 24 ára gamli liðsfor- ingi, Jay Silvester, setti á laugardag nýtt heimsmet í kringlukasti, kastaði 64.07 metra, og varð um leið fyrsti maðurinn í heiminum, sem kastar kringlu yfir 200 fet. MótiS fór fram í Los Angeles og þetta er í þriðja skipti í sum- Leiðrétting Sá misskilTiingur slæddist inn í grein á síðunni á sunnudag inn í sambandi við bæjarkeppni í handknattleik í Kópavogi, að sagt var að ekkert þróttahús væri í Kópavogi. Þetta er ekki rétt. í Kópavogi er leikfimissalur við' skólann, 10x20 metrar að stærð. Hlutaðeigendur eru beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. ar, sem Silvester bætir heimsmet- ið í kringlukasti. Hinn 11. ágúst setti hann sitt fyrsta heimsmet á móti í Hamborg, kastaði 60.55 metra, og tíu dögum síðar kastaði hann 60.72 metra á móti í Brussel. Hið staðfesta heimsmet nú er 59.91 m. og eiga það Bandaríkja- maðurinn Rink Babka og Pólverj- inn Edmund Piatkowsky. Jay Silvester var þar til í sum ar nær óþekktur maður í Eýrópu, Frámh bis. Á sunnudaginn fór fram hraðkeppni í handknattleik í meistaraflokki kvenna. Keppt var á íþróttasvæði KR og sigr- uðu Víkingsstúlkurnar, sem nýkomnar eru úr Norður- landaför, á mótinu. Fjögur lið tóku þátt í keppn- | inni, Víkingur og Ármann úr j Reykjavík, Vestri frá fsafirði og 1 Breiðablik, Kópavogi. Víkings- stúlkurnar sigruðu í öllum leikj- um sínum og hlutu því sex stig. Ármann hlaut 4 stig, Breiðablik 2, en Vestri ekkert. Úrslit í ein- stökum leikjum urðu þessi: Finnar sigruðu Svía í lands- keppni í frjálsíþróttum um helg- ina með 220.5 stigum gegn 189,5. Eftir fyrri daginn voru stigin jöfn. Fjögur landsmet voru sett síðari daginn. Risto Ankio stökk 4.58 metra í stangarstökki, og var nærri 4.68 m. Finnland hljóp 4x- 400 m. boðhlaup á 3:09.8 mín., en Svíþjóð á 3:09.9 mfn. Ulla Britt Wieslander, Svíþjóð, hljóp 200 m. á 24.5 sek. í aukakeppni. Víkingur—Vestri 6—0 Víkingur—Ármann 8—2 Víkingur—Breiðablik 4—3 Ármann—Vestri 8—6 Ármann—Breiðablik 5—3 Breiðablik—Vestri 14—1 Kári með til Englands Landsliðsnefnd valdi í gær Kára Árnason, hinn 17 ára inn- herja frá Akureyri, sem þátttak- anda í Englandsförina í stað fé- laga hans, Steingríms Björnsson- ar, sem ekki getur farið sökum veikinda. Landsliðsnefnd valdi í gær endanlega þá 11 menn, sem taka eiga þátt í landsleiknum, en ekki var vitað hverjir það voru, þegar þetta er skrifað. Ekki var þá enn víst hvort KSÍ myndi gefa upp liðið, en ef af því hefur orð- ið, er það birt á öðrum stað í blað inu. Aksel Thorsager nálgaðist 17 metrana Danskt met í kuluvarpi í landskeppni milli Dana og B-liðs Svía í frjálsíþróttum, sem fram fór um síðustu helgi í Hró- arskeldu, setti Aksel Thorsager nýtt, danskt met í kúluvarpi, varp aði 16.94 metra — eða tuttugu sentimetrum lengra, en íslands- met Gunnars Huseby er, sem nú er orðið lélegasta kúluvarpsmetið á Norðurlöndum, en var Evrópu- met, þegar Gunnar Huseby setti það á Evrópumeistaramótinu í Brussel 1950. Hinn stóri, danski lögreglu- þjónn nálgast nú hröðum skref- um 17 metrana, og í þessari keppni sýndi hann mikið öryggi. Stytzta kast hans var 16.50 metr- ar. f sömu keppni jafnaði Erik Madsen frá Esbjerg danska met- ið í 100 metra hlaupi, 10.6 sek., þrátt fyrir það, að hann tognaði í hlaupinu um 10 metra frá marki, og gat ekki keppt frekar í lands- keppiúnni. Þrátt fyrir góðan ár- angur Dana í ýmsum greinum, vann B-liðið sænska öruggan sig- ur í keppninni, hafði 10 stiga for- ustu eftir fyrri daginn. Á úrslitaleikinn í íslandsmót- inu á sunnudaginn kom meiri fjöldi áhorfenda, en nokkru sinni fyrr á leik' milli íslenzkra iiða. Þar sem forsala var ekki á að- göngumiðum, skapaði þessi mikia aðsókn mikla erfiðleika í sam- bandi við sölu á aðgöngumiðum. Þeir voru þó afgreiddir úr mörg- um skúrum, en allt kom fyrir ckki eins og þessi mynd ljósmyndara Tímans, GE, sýnir vel. Hún er tekin rétt um það ieyti, er ieik urinn hófst, en þá stóðu enn mörig hundruð manns í biðröðum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.