Tíminn - 22.09.1961, Side 2
Erlendum ferða-
mönnum fjölgar
— segir Flugfélag Islands
í sumar hafa ferðir „Fax-
anna" genaið mjög vel, og þeir
oftast verið fullsetnir á flugi
innan lands og milli landa.
Innanlandsf lugið hófst af
fullum krafti strax að loknu
verkfalli í vor, enda biðu marg
ir farþegar flutnings í Reykja-
vík og víðs vegar úti um land.
Á þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
v ••• L ^
Hjorbuoa
Norðfirði
Neskaupstað, 13. september
í vetur á að opna hér kjörbúð.
Kaupfélagið Fram er að hefja
byggingu viðbyggingar við verzl-
unina. Verður gamli verzlunarlag-
erinn þá tekinn undir verzlunina,
en viðbyggingin notuð fyrir lager.
Við slækkunina verður verzlun-
inni breytt í kjör'búð. V.S.
Ballettskóli
Nýr ballettskóli tekur til starfa
6. október n. k. í björtum og rúm-
góðum sal að Tjarnargötu 4, 5.
hæð.
Kennarar við skólann verða:
Kristín Kristinsdóttir, Lilja Hall-
grímsdóttir, Katrín Guðjónsdóttir,
Wennie Schubert og Irmy Toft,
sem allar hafa numið ballett bæði
hér og erlendis.
Kennt verður: ballett fyrir börn
og fullorðna, klukkutíma í senn
tvisvar í viku. Fjöldi nemenda í
hverjum flokki verður mjög tak-
markaður.
Einnig eru fyrirhugaðir léttir
ballett-tímar á kvöldin fyrir ung-
ar konur, sem margar munu áreið-
anlega notfæra sér.
um var fluttur mikill fjöldi far
þega fram og til baka og segja
má, eS flugvélar Flugfélags ís
lands í innanlandsflugi hafi
löngun verið fullskipaðar s. I.
sumar og haust.
Athyglisvert er, hve margir út-
lendingar hafa ferðazt með flug-
vélum innan lands, og það hefur
komið fyrir, að t.d. kvöldferð-
irnar milli Akureyrar og Reykja-
víkur hafa verið fullsetnar af
þeim.
i Þótt ferðalög íslendinga milli
I landa hafi dregizt saman, hefur
! tala farþega í millilandaflugi Flug-
félags fslands í sumar, haldist
svipuð og undanfarin ár.
Erlent ferðafólk kemur hingað
í vaxandi mæli, og er það kynn- !
ingarstarf, sem unnið hefur verið
á undanförnum árum, sýnilega
farið að bera árangur. Sem dæmi
má nefna, að hópar ferðaskrif-
stofumanna, sem Flugfélag ís-
lands hefur boðið hingað til kynn-
isferða allt frá því 1958, hafa gefið
góða raun og þátttakendur sent
hingað ótalinn fjölda ferðafólks.
K'HINN, föstudaginn 23. september 1961.
Stórmerkar
tillögur
Bandaríkin og Sovétríkin
lögðu í fyrradag fram sameig-
inlega yfirlýsingu með átta at-
riðum, sem leggja skal til
grundvallar áframhaldandi við
ræðum um afvopnun. í yfir-
lýsingunni segir, að öll ríki
verði að reyna að leysa hugs-
anlegar deilur með friðsamleg
um hætti.
Hafnarfajrðarbfó hefur í kvðld sýningar á nýrrl kvikmynd meS Ofto Brand
enburg, hljómllstarmanninum víðkunna. Myndin er dönsk og sú fyrsta,
sem Brandenburg lelkur I. Myndin heltir á dönsku: „Mine tossede drenge",
en er kölluð: „Fjöruglr feðgar", á íslenzku.
„Horfðu reiður
um öxl”, aftur
í Þjóðleikhúsinu
Leikrit Johns Osborne: „Horfðu
reiður um öxl“, hefur nú verið
sýnt 80 sinnum. Eins og kunnugt
er, var leikritið sýnt í Þjóðleik-
'húsinu veturinn 1958—59 við
ágæta aðsókn. Urðu sýningar á
leiknum 27 á því leikári. í sumar
hefur leikflokkur frá Þjóðleikhús-
inu sýnt leikinn í flestum sam-
komuhúsum landsins. Urðu sýn-
ingar úti á landi 53.
Ákveðið hefur verið að sýna
leikinn tvisvar sinnum í Þjóðleik-
húsinu á næstunni og verður fyrri
sýningin annað kvöld.
Nýtt félagsheiraili
vígt í Blönduhlíð
Sauðárkróki, 13. sept.
Síðastliðinn mánudag, 11.
september, var vígt nýtt fé-
lagsheimili að Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð. Eigendur þess eru
þrír: hreppsfélagið, Kvenfélag
Akrahrepps og ungmennafé-
lagið Glóðafeykir.
Um 1920 var:-by£gt'.,tþínghús“ á
Stóru-Ökrum, myihdwlógt t þús og
gott á þeim tíma, en nú orðið með
öllu ófullnægjandi. Var gamla hús-
ið fellt inn í hina nýju byggingu
og hefur það tekizt með miklum á-
gætum. Er fyrirkomulag hússins
einkar haganlegt og vel og smekk-
lega frá öllu gengið. Yfirsmiður
var Guðmundur Márusson, Þor-
móðsholti,
Vígsluhátíðina sátu rúmlega 200
manns, aðallega núverandi og fyrr-
verandi Blöndhlíðingar. Oddviti
Akrahrepps, Jóhann Lárus Jóhann-
esson á Silfrastöðum, stjórnaði
henni. Voru margar ræður fluttar
og mikið sungið. Um kvöldið var
dansað og skemmtu menn sér hið
bezta.
Skagafjarðarsýsla er í fátækara
lagi af félagsheimilum og kemur
hið nýja hús því í góðar þarfir.
Væntanlega verður nánar sagt
frá byggingu hússins og vígslu
þess síðar hér í blaðinu. G.Ó.
Innbrot
(Framhald af 1. síðu).
izt yfir stórverðmæti í tóbaki, en
fá litla uppskeru í reiðu fé. Verzl-
unarmenn munu hafa lært af bit-
urri reynslu, að vafasamt er að
geyma peninga í verzlunum og
skrifstofum, nema í sérstökum pen
ingaskápum, sem erfitt er að kom-
ast í. Tóbak er hins vegar verð-
mæti, sem auðvelt er að koma í
peninga. Ættu menn að vera á
varðbergi gagnvart einstaklingum,
sem bjóða reyktóbak til sölu, ekki
síður þótt pakkarnir séu merktir
Tóbakseinkasölu ríkisins.
Fréttir fm landsbyggðinni
Auglýsið í Tímanum
Diplómatískar heimildir herma,
að yfirlýsingin sé mikilvæg stefnu
breyting og merkilegt spor, sem
rutt hafi úr vegi fyrstu hindrunum
! íyrir nýjum viðræðum um afvopn-
unarmáli milli austurs og vesturs.
! Eftir langar viðræður í New York,
Washington og Moskvu hefur þó
Bandaríkjunum og Sovétríkjunum
ekki tekizt að koma sér saman um
skipan þeirrar ráðstefnu, sem ræða
skal afvopnunarmálin. Mun þetta
vandamál nú verða lagt fyrir alls-
herjarþingið. Hinir fimm fulltrúar
Sovétstjórnarinnar á ' tíveldaráð-
stefnunni um afvopnunarmál, sem
haldin var í Genf, hættu viðræð-
um í júni 1960 á þeim forsendum,
að þýðingarlaust væri að halda
'þeim áfram meðan Vesturveldin
, legðu ekki fram fullkomna grund-
vallaryfirlýsingu.
Grundvallaryfirlýsing Bandaríkja
manna og Rússa fullyrðir meðal
j annars, að tilganguiínn með áfram
haldandi viðræðum verði að vera
sá a hefja almenna og algjöra af-
vopnun, svo að stríð verði ekki
lengur til að leysa alþjóðleg deilu-
mál. f yfirlýsingunni segir, að eftir
að hin nýja afvopnunaráætlun
komi til framkvæmda eigi hin ein-
stöku ríki aðeins að nota venju-
legan her til að setja niður innan-
landsdeilur og viðhalda aga heima
fyrir eftir því, sem með þarf.
Hallbjörg Bjarnadóttir hefur
nú haídið fimm miðnæturskemmt-
anir og alltaf fyrir fullu húsi og
við mjög góðar undirtektir. Á laug
ardagskvöldið mun hún halda
6. söngskemtun sína í Austur-
bæjarbíó. — Á myndinni er eigin-
maður Hallbjar’gar, Fischer Niel-
sen, við eina af skopteikningum
sínum, en hann hefur skemmt
með hraðteikningum milli atriða.
Hefur leikni hans og kímni teikn-
inganna vakið mikla hrifni meðal
áliorfenda.
Annatími á SvalbarSseyri
Svalbarðseyri 21. sept. — Slátrun
sauðfjár hófst hér mánudaginn
18. sept. Áætlað er, að slátrað
verði í haust 14.600 kindum, og
útlit er fyrir, að vænleiki lamba
verði svipaður og í fyrra. Er þetta'
15% aukning frá fyrra ári.
MeðaZ uppskera
Kartöfluuppskeran hér á Sval-
barðsströndinni virð'ist ætla að
verða í meðallagi. íklega hefur
heldur meira verið sett niður í
vor em áður, því að mikið vill
meira eins og alkunna er. Menn
eru óragir við að rækta mikið af j
kartöflum, því að varan er vel|
kynnt ,og lítil hætta á, að hún
seljist ekki. Undanfarið hefur
reyndar verið leiðinlegt tíðarfar
til að fást við kartöfluupptöku,
en síðustu dagana hefur þó verið
viðunandi veður, og eru nú allir
í önnum.
Bryggjubætur
Nói Kristjánsson skipasmiður
á Akureyri vinnur nú að því að
stækka hér bryggjuna. Er ætlun-
in ag setja á hana skáa að framan
verðu, svo að auðveldara verði
fyrir stór skip að leggjast að
henni. Gert er ráð fyrir, að þess-
ar framkvæmdir kosti um 350 þús.
krónur. Bryggjan var áður mjög
lítil og boruleg, en vegna þess,
hve hér er aðdjúpt, gátu allstór
skip lagzt hér að til þess að setja
á land varning og taka fram-
leiðslu. Aðstaðan mun nú batna
til muna. S.J.
Þingeyingar slátra
Húsavík, 21. sept. — Haustslátr-
un sauðfjár hófst hér 15 sept.
og mun hún standa fram yfir um
20. okt. Áætlað er, að slátrað
verði 38.700 fjár þetta árið, og
er það 4,500 fleira en í fyrra. —
Lömbin eru misjöfn eftir sveitum1
eins og að vanda lætur, en yfir
leitt munu dilkarnir vera helrV
vænni en í fyrra, en þá voru þeir
líka lélegir. — Dagana síðan um
helgi hefur verið ágætt veður, en
þar áður lágu róðrar niðri í hálfa j
aðra viku, vegna ógæfta Nú er
aftur róið, og aflinn er sæmileg-.
ur. Þ.J.'
45000 slátratl
Borgarnesi 21. sept. — Nú er
sláirun sauðfjár að hefjast hér
fyrir alvöru, enda var aðal réttar
dagurinn í gær í sveitum Borgar-
fjarðar. Áætlað. er, að slátrað
verði rúmlega 45 þúsundum fjár
í ár.
Við Þverárrétt hefur nú verið
settur upp mikill danspallur með
tjaldi, og á hann að standa í tíu
ár. Með þessu fyrirtæki á að
reyna að draga saman fé til bygg
ingar elliheimilis í Borgarnesi,
enda er Þverá í Þjóðbraut Hross
verða réttuð þarna um næstu
helgi, og verður þá haldinn dans-
leikur á pallinum. J.E.
RauíSakrossdeild
Patreksfirði 21. sapt, — Dr. Gunn
laugur Þórðarson var hér á ferð
um helgina og stofnaði Rauða
krossdeild á Patreksfirði. Stofnfé
lagar gerðust 33. Formaður var
kosinn Kristján Sigurðsson, lækn
ir, en meðstjórnendur eru Jón Þ
Eggertsson, skólastjóri og Magnea
Auðunsdóttir, fyrrverandi hjúkr
unarkona.