Tíminn - 22.09.1961, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.09.1961, Blaðsíða 16
t í gœr var svo boðað til blaða- mannafundar með stúlkunum, en því miður var okkar drottning teppt annars staðar og gat ekki verið með, svo að við höfum ekki myndir af henni með í dag. Stúlk urnar voru hinar hressustu, þótt ferðin hefði verið löng — þær komu ekki til Reykjavíkur fyrr en klukkan 8 í gærmorgun og sváfu síðan fram undir hádegi — og rómuðu mjög allan viðurgern- ing og þjónustu hjá Loftleiðum, ekki hvað sízt í Osló, þar sem þær urðu að bíða í fimm klukku- tíma vegna smávægilegrar bilun- ar í vélinni. Finnska fegurðar- drottningin hafði orðið sér úti um kvef á ferðalaginu, en var samt hin kátasta. Vegna hinnar gifurlegu aðsókn ar á fegurðarsamkeppnina í gær- kvöldi er ákveðið að stúlkurnar komi aftur fram klukkan 7 í kvöld í Austurbæjarbíói, en síð- an munu stúlkurnar verða á dans leik á Hótel Borg. Annað kvöld verða úrslitin síðan kynnt á Hótel Borg. f morgunmálið stóð til, að stúlkurnar færu í hringferð á Þingvöll, Sog, Hveragerði og aft- ur til Reykjavíkur með viðkomu í skíðaskálanum í Hveradölum, þar sem þær munu fá sér matar- tíita. Einnig er áætlað að fara með þær til Akureyrar, ef veður leyfir, en það er aðeins til þess að sýna þeirn, en ekki til þess að sýna þær. Einnig munu þær fara víða um Reykjavík og skoða eitt og ann- að, sem markvert þykir, svo sem sföin og annað slíkt. Þá munu nokkur fyrirtæki í Reykjavík gefa.þeim ýmiss konar klæðnað: Belgjagerðin h. f. mun skenkja forláta úlpur, sem hún hefur framleitt, og líklegar eru til að (Frarr.hald a' iS • uðn Noregur Finnland Ungfrú Noregur heitir Rigmor Trengereid og er frá Bergen. Hún er sú eina af þátttakend- um, sem er ljóshærð. Hún er 20 ára gömul, varð númer eitt í feg urðarsamkeppni heima í Noregi, en hefur síðan verið á fegurðar- samkeppnum bæði í Beirut og á Miami, þar sem hún kynntist ís- lenzku fuUtrúunum, Ijósmynda- fyrirsæta að atvinnu og ekki trúlofuð. Ungfrú Finnland heitir Marga retha Schauman, til heimilis í Helsingfors. Hún er með kol- svaft hár, tvítug að aldri. Hún liefur lagt gjörva hönd á margt, rneðal annars unnið við finnska sjónvarpið. Hún tók þátt í miss World keppninni í London, og er þetta þvi önnur keppni hennar utan síns heimalands. Hún varð fyrst í samkeppninni heima í FinnZandi, og er trúlofuð. ................ ........ Tallð frá vinstri: Noregur, Finnland, Svíþjóð, Danmörk. — Ljósm.: Tíminn, GE. í rabbi, sem stúlkurnar 'áttu við blaðamenn í gær, bar margt á góma. Meðal annars kom það fram, að Bingitte Heiberg hefur með sér lítinn kettling, sem er henni mjög ástfólgin. Nokkuo þóf var við tollverði út af kisu litlu, sem vildu fá dýralæknis- úrskurð um að hún bæri engar skæðar pestir með sér til Iands- ins. Kötturinn mui) þó hafa fylgt cigenda sinum og gerir það Iik- lega enn. Þá bar hin skandinavisku tunigumáZ á góma. Kom öllum saman um, að mjög auðvelt væri að skilja hvert hinna skandinav ísku mála, dönsku, sænsku og norsku, en erfiðara með íslenzk una og finnsku. f þessu sam- bandi sagði Margarete Scliau- i.i ,ldu Á morgun verður dregið ur:- /rstu vinningana í happdrætt -ramsóknarflokksins m.a. ferg na til Kanaríeyja og Madeira. Föstudaginn 3. nóvemer verð- ur dregið i-æst um ferðalög m.a. fil Mallorca. Á Þorláksmessudag 23. aes- mber' verður svo dregið um ibúðina auk þriggaj ferðalaga. Sami miðinn giidir í öll skipt- m og kostar 25 krónur. Það er því hagkvæmast að vera með frá byrjun og kaupa niða strax. Miðal eru seldir í zit í Austur- stræti og á skrifstofunni í Fram- sóknarhúsinu. Samkeppnin um fegurstu stúlku Norðurlanda fór fram fyrir troðfullu húsi í Austur- bæjarbíói í gær. Fegurðardís- irnar frá hinum Norðurlönd- unum komu með Loftleiða- vél til Keflavíkurflugvallar í fyrrinótt, þar sem María Guð mundsdóttir, fegurðardrottn- ing íslands 1961 og Einar Jónsson, framkvæmdastjóri keppninnar, tóku á móti þeim á flugvellinum. Auðvelt að tala dönsku Ungfrú Svíþjóð heitir Inger Lundquist og á nú heima í Stokk hólmi. Hún er jarphærð, tuttugu og eins árs gömul. Hún \ arð önn ur í fegurðarsamkeppni heima í Svíþjóð, en hefur ekki tekið þátt í fegurðarsamkeppnum utan síns heimalands. Hún er ljósmynda- fyrirsæta að atvinnu, og hefur dvalið erlendis vinnu sinnar vegna, meðal annars hefur hún setið fyrir hjá franska tímarit- inu Elle. Hún á sér uhnusta. Unjgfrú Danmörk heitir Birg- itte Heiberg og er frá Kaup- mannahöfn. Hún er með skollit- að hár. Hún er 17 ára gömuZ, verður 18 ára í desember. Það stóð til, að hún færi á fegurðar- samkeppnina í Miami, en vant- aði nákvæmlega sex mánuði upp á tilskilinn aldur, en þátttakend ur á Miami verða að vera fullra 18 ára hinn 4. júZí það ár, sem keppnin fer fram. Hún varð önn ur í fegurðarsamkepphi heima fyrir, en á sér ekki festarmann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.