Tíminn - 22.09.1961, Síða 9
Tt;Í.M IJNN, föstudaginn 22. september 1961,
Úr hópl áhorfenda.
kominn heim aftur í byggðalagið,
þar sem hann hafði slitið bams-
skóm sínum. Lúðrasveitin lék þá
þjóðsöng íslendinga. Nœstur tók
til máls oddvitinn í Fjalarfylki og
l'úðrasveitin lék enn eitt lag. Fru
Auður Auðuns, forseti bæjarstjórn
ar Reykjavíkur, tók því næst til
máls og flutti kveðju frá Reykja-
vík, þar sem Ingólfur hafði valið
sér búsetu, að tilvísan öndvegis-
súlna sinna. Kórinn söng síðan
nokkur lög, m. a. þjóðsöngva Noi'ð
manna og íslendinga.
Að athöfninni lokinni, hafði ís-
lenzka sendinefndin boð um borð
i m.s. Heklu fyrir norsku móttöku-
nefndina o. fl.
Seinna um kvöldið bauð kvenna
félag Rivedals íslendingunum til
kaffidrykkju í samkomunui! hér-
aðsins, þar sem frú stjórnaði sam-
komunni af mikilli röggsemi og
voru fluttar nokkrar ræður og ís-
lendingum fagnað af mjög mikilli
hjartahlýju og innileik.
Kl. 23.00 var svo haldið frá
bryggju, eftir mikinn söng af
beggja hálfu, húrrahrópum og ís-
lendingarnir að lokum kvaddir
með flugeldaskotum.
Haukur Bjarnason
|
Listmuna- og
bókauppboð
Sigurður Benediktsson er nú far
ínn að undirbúa listmuna- og bóka
uppboð sín á næsta vetri, og eru
líkur til, að hann byrji með bóka-
uppboði um næstu mánaðarmót.
Þeir, sem vilja ræða við Sigurð
um uppboð þessi eða koma bókum
eða munum til uppbos geta hitt
hann að máli í skrifstofu hans í
Austurstræti 12 fyrir hádeeL
Eins og flestum mun nú
orðið kunnugt, var ákveðið að
gefa Norðmönnum afsteypu
af styttu Einars Jónssonar af
Ingólfi Arnarsyni. Skyldi
stytta þessi verða reist í Rive-
dal, þar sem talið er, að Ing-
ólfur hafi síðast verið í Nor-
egi.
f tilefni af afhendingu styttunn-
ar var ákveðin hópferð með m.s.
Heklu og var lagt af srtað 14. þ.m.
Eftir allsögulega sjóferð var
komið í Hólmendal þann 18. að
morgni. Er skipið var að koma
að bryggju, var því_ heilsað með
9 fallbyssuskotum. Á bryggjunni
stóð hópur skólabarna, prúðbúin
og öll með íslenzka og norska fána
í höndum. Börnin heilsuðu með því
að syngja bæði íslenzka og norska
þjóðsönginn Þarna á bryggjunni
var einnig samankominn stór hóp-
ur af fólki úr þorpinu og nærsveit
um. Er Hekla var lögzt að bryggj-
unni lagðist m.s. Bergen utan á
Hekluna, en það hafði fylgt Heklu
frá Askvoll. Með m.s. Bergen voru
bæði nor'skir og íslenzkir farþeg-
ar, m. a. ambassador íslendinga í
Osló, Haraldur Guðmundsson,
dómsmálaráðherra Noregs Haug-
Iand, Rysdal ráðuneytisstjóri dóms
málaráðuneytisins o. fl.
Kl. 13.00 var lagt af stað frá
skipinu í stórum bifreiðum og ekið
inn með firðinum, um 5 km leið,
f Rivedal, þar sem styttunni hafði
verið komið fyrir á snyrtilegum
fótstalli, af hinum kunna norska
myndhöggvara Staale Kyllugstad.
Stendur hún á hól, svo til í miðj-
um dalnum og horfir í vestur fram
fjörðinn. Á fótstallinn eru letruð
þessi orð: Ingólfur Arnarson, Dals-
firðL fyrstur landnámsmanna ís-
lands. Hinum megin stóð Gjöf frá
íslendingum. Vin sínum skal maðr
vinr verða.
Veðrið var nokkuð þungbúið,
skúraleiðingar, en þurrt á meðan
athöfnin fór fram. Hlíðarnar með-
fram firðinum eru állar skógi
vaxnar, frá fjöru til efstu brúna.
Bændabýlin standa í smáþorpum
með stuttu millibili. íbúar Rive-
dalssveitar eru um 2.000 og voru
flestir samankomnir á staðnum,
þótt virkur dagur væri, en eins
og kunnugt er, seinkaði Heklunni
um 12 tíma vegna veðurs og at-
höfnin því færð aftur um einn
dag. Heimamenn höfðu komið sér
fyrir i brekkunni fyrir ofan veg-
inn og voru þeir á öllum aldri,
Ingólfsstyttan við fjörðinn. (Ljósmyndir: Haukur Bjarnason).
■ ■
frá kornbörnum til háaldraðs
fólks, og margar konur skörtuðu í
þjóðbúningi héraðsins. íslending-
unum var hins vegar ætlað sæti á
bekkjum fyrir ofan styttuna.
reglumaður, fréttaritari
Tímans í Noregsferðinni,
hefur sent blaðinu þessa
frásögn af hinni hátíðlegu
athöfn, er Ingólfsstyttan
var afhjúpuð.
Athöfnin hófst með því, að
blandaður kór Hóledals undir
stjórn Ansgar Nilson, söng „Fram
dá frendar". Því næst hélt Schei
fylkisstjóri Fjarðarfylkis ræðu, en
að henni lokinni talaði forsætisráð
herra íslands, Bjarni Benedikts-
son, og afhenti styttuna sem gjöf
frá íslendingum og minntist um
leið á sögu Ingólfs Arnarsonar
sem fyrsta landnámsmanns íslend
inga. Bjarni sagði: „Stytta þessi
(er gjöf íslenzku þjóðarinnar til
vina vorra og frænda, Norð-
manna“, en styttuna afhjúpaði ráð
herrafrú Sigríður Björnsdóttir.
Var styttunni fagnað mjög inni-
lega af öllum viðstöddum. Því
næst lék lúðrasveitin þjóðsöng
Norðmanna. Næst á eftir tók til
máls dómsmálaráðherra Noregs,
Haugland, og þakkaði gjöfina og
sagði m. a., að nú væri Ingólfur