Tíminn - 04.10.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.10.1961, Blaðsíða 1
255. tbl. — 45. árgangur. Fréttabréf úr Ólafsvík bls. 8. MiðVikudagur 4. október 1961. Islenzk gerð fjár- húsa á Irlandi Síðastliðið sumar kom hingað hópur skozkra, enskra og írskra bænda, og fór Halldór Pálsson sauð- fjárræktarráðunautur all- víða um landið með þeim. Einn í hópnum var James Kirkpatriek, bóndi frá Bally- money á Norður-frlandi. Hann veitti einkum atfaygli hinum nýju fjárhúsum íslendinga, því að sjálfur er hann fjárríkur bóndi. Það voru ekki sízt rimla gólfin, sem honum varð star- sýnt á. Kírkpatrick hafði heim með sér teikningu af íslenzkum fjár húsum, og nú fyrir skömmu fékk Brian D. Holt, sendiráðs- ritari í brezka sendiráðinu hér, bréf frá Kirkpatrick, þar sem segir meðal annars: „Ég er viss um, að yður þyk ir gaman að frétta ,að ég er að byggja fjárhús af þeirri gerð, sem okkur var sýnd í ís- landsferðinni. Ég heW, að þau séu hentug í jafn votri verðrátu og er hjá okkur. Ferðalag okk ar var ekki aðeins mjög skemmtilegt, heldur einnig fræðandi. Gerið svo vel að skila kveðju minni til íslenzkra kunningja." Fjárhús í Skógarhlíð í Reykjahverfi — rimlar í gólfi, vafnsstokkur í miðju húsi, steyptir garðar. — Handritamálið á dagskránni FrumkvæíitJ um löggjafaratnði komiÖ í hendur kennsIumálaráÖuneytisins — verÖur Bröndum-Nielsen áfram í stjórn Árna- stofnunar? Kaupmannahöfn, 3. október. — Einkaskeyti. Kvöldblað Berlings skýrir kennslumálaráðuneytið skuli fara með málefni Árnasafns, en mennta málaráðuneytið hafi með höndum j málefni þeirra ríkisstofnana, þar sem íslenzk handrit eru varðveitt. frá því í dag í forsíðugrein, aS; Er hér átt við konunglegu bók- ráðið hafi verið til lykta, undir j hlöðu- Menntamálaráðherra er hvaða ráðuneyti hinnar endur-^®0^011' ont kennslumála- .. ... ~ _ raðherra Helveg Petersen. skipulogðu rikisst|ornar Dana Þetta hefur í för með sér, að íslenzku handritin skuli heyra. Hafa samningar um þetta átt kennslumálaráðuneytinu er ætlað að hafa frumkvæði um löggjafar- ;ér stað milli menntamálaráðu- alriði- sem varða afhendingu h.and ... . . ,, ntanna, og mun menntamalar'aðu-: neytisins og kennslumalaraðu- neytjg senn afhenda því öll skjöl neytisins síðustu daga. j og skilríki, sem snerta þetta mál. j | En það hefur þó ekki enn verið j Sú ákvörðun var tekin, að1 gert. Verður frumvarpinu breytt? Þess er beðið með eftirvænt- ingu, hvaða leið kennslumálaráðu- neytið ætlar sér að fara að lokn- um næstu þjóðþingskosningum. Það á um tvennt að velja, segir Berlingur: Það getur borið fram óbreytt frumvarp það, sem sam- þykkt var í vor, en ekki staðfest vegna mótmæla sextíu þingmanna, og verður staðfestingu þess ekki lengur frestað, er það hefur verið samiþykkt í annað sinn. En það getur einnig gert breytingar á frumvarpinu, og skoðast það þá sem nýtt mál, sem fresta verður á staðfestingu í annað sinn, ef nógu margir þingmenn krefjast þess. Það er því ekki líklegt, að síð- ari leiðin verði farin, nema svo mikill meirihluti fáist um frum- varpið breytt, að ný frestun komi Framhald á 15. síðu. Óhapp í Björgvin Slippslefö fór út af meÖ Vattarnes frá EskifirÖi Á föstudag vildi það óhapp til í Björgvin í Noregi, að slippsleði fór út af sporinu, þegar verið var að sjósetja ís- lenzkt skip, Vattarnes frá Eski- firði. Vattarnes er byggt í skipasmíða stöð þessari í Björgvin og var þar til eftirlits. Engar skemmdir urðu á skipinu, en fá þurfti skip til að- stoðar við að koma því af sleð- anum. Vattarnesinu seinkaði um þrjá sólarhringa af þessum sök- um. Skipið er rúmlega ársgamalt, gert út af Hraðfrystihúsi Eski- fjarðar. Vattarnes er tryggt hjá Trygg ingamiðstöðinni hér í Reykjavík. Gísli Ólafsson, forstjóri Tryggmga miðstöðvarinnar, tjáði blaðkiu í gær, að fyrirtækið liti svo á, að skipasmíðastöðin í Björgvin bæri ábyrgð á óhappinu og þeim kostn aði, sem af því leiðir. Stóð í Þverárrétt Sunnudaginn 24. september var stóS rekiS til réttar í Þverárrétt f ÞverárhlíS. Var þar bæSi margt manna og hrossa eins og myndin sýnir. (Ljósmynd: Jóhannes Ólafsson).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.