Tíminn - 04.10.1961, Síða 16

Tíminn - 04.10.1961, Síða 16
— Nú eru gúmmíbjörg- unarbátar mikið á dagskrá eftir þau sjóslys, sem hafa orðið undanfarið. Heldurðu, að þú segir mér ekki eitt- hvað um, hvernig þeir hafa reynzt hér? Eru þeir að ryðja skipsbátunum úr rúmi? Blaðamaðurinn er í heimsókn hjá Henry Hálfdánarsyni, frain- kvæmdastjóra Slysavarnafélags íslands, í skrifstofu hans á Granda. Gúmmíbátar og trébátar — Athyglin hefur beinzt miklu meria að gúmmíbátum í seinni tíð. Þeir eru betri en trébátarnir undir vissum kring- umstæðum, en hins vegar eru trébátarnir ekki eins úr gildi gengnir og margir útgerðar- menn vilja vera láta. Þeir eru ekki eins á valdi strauma og veðurs og gúmmíbjörgunarbát- arnar. Hins vegar er mun fljót- Iegra að koma gúmmíbáti í sjó- inn. Þeir eru hlýrri, af þvi að þeir eru yfirbyggðir. Svo eru engir bátar öruggari í lendingu en gúmmíbátamir. Þegar gúmmíbátarnir komu fyrst fram, vildu margir taka skipsbátana í land og notast eingöngu vi8 gúmmíbáta, en við í Slysavarnafélaginu höfum alltaf barizt fyrir því, að hvort tveggja sé fyrir hendi ó skip- um. Samtök sjómanna hafa einnig verið á móti því, að gúmmíbátarnir komi í staðinn fyrir hina, nema gúmmíbátarn- ir séu þaö margir á skipinu, að þeir rúmi tvöfalda skipshöfn- ina. Bátur í hvert pláss — Er ekki vandasamt að nota gúmmibátana? — Þótt gúmmíbátarnir séu hreinustu þing og hverju skipi bráðnauðsynlegir, þá koma þeir ekki að neinu gagni, ef menn kunna ekki að fara með þá, og þess eru því miður mörg dæmi. Þegar gúmmíbátur er settur út, verður að beita vissu lagi til þess, að allt sé öruggt. Það má ekki rífa bátinn úr umbúð- unum og henda honum síðan í sjóinn. Það verður fyrst að toga út snúruna, sem hangir út úr honum og festa hana síðan í eitthvað fast. Síðan á að henda bátnum útbyrðis í umbúðunum. Þá verður hann ekki fyrir neinu hnjaski, en opnast um leið og hann kemur í sjóinn. Ef ekki er rétt að farið, getur báturinn rifnað, þegar hann slæst í skip- ið, eða þá að ýmislegt, sem fylgir honum, losnar frá og glat- ast, og jafnvel getur farið svo, að hann blásist ekki út. Það á ekki að skrásetja neinn skipverja, sem ekki kann með- ferð gúmmíbáts. Það verða allir að kunna að fara með þá. í hverju plássi á að vera uppblás- inn bátur til æfinga, og slysa- varnafélögin geta séð um að kenna mönnum á bátana. Guðrúnarslysið markaSi tímamót — Hafa margir bjargazt á gúmmíbjörgunarbátum hér við’. land? — Þeir eru um 150. Gúmmí- bátur var notaður hér í fyrsta skipti, þegar Guðrún frá Vest- mannaeyjum fórst út af Land- eyjasandi 23. febrúar 1953. Fimm skipverjar fórust með skipinu, en fjórir komust af. Þeir fleygðu sér ofan á gúmmí- bátinn, sem hafði verið settur út. Báturinn var á hvolfi. Hann rak strax frá skipinu, þar sem hinir skipverjarnir voru eftir. Þeir, sem í gúmmíbátnum voru, gátu rétt hann við, en síðan hvolfdi honum margoft. Þessi björgun vakti mikla at- hygli á sínum tíma, en stuttu áður höfðu gúmmíbátar verið löggiltir. Þeir höfðu talsvert verið notaðir í Vestmannaeyjum og víðar áður, og mega Vest- mannaeyingar því teljast frum- kvöðlar hér á landi að notkun þessara báta, þótt Slysavarna- félagið hefði átt slíkan bát frá 1946. Eftir slysið komu hingað til lands sérfræðingar frá verk- smiðjunum, sem framleiddu bát- ana, og varð þetta til þess, að útbúnaður þeirra var bættur stórlega og bátunum gerbreytt að ýmsu leyti. Guðrúnarslysið var talin mesta þolraun, sem gúmmíbát hafði verið boðin til þessa tíma, og vakti athygli út um heim. 148 hefa bjargazt í gúmmíbát — Veiztu um einstök slys, þar sem gúmmíbátar hafa komið við sögu við björgun. — Ég á einhvers staðar skrá yfir þetta. 11. apríl 1954, rúmu ári eftir Guðrúnarslysið, bjargaðist átta manna áhöfn á gúmmíbát af vélbátnum Glað frá Vestmanna eyjum, sem sökk hjá Elliðaey. 15. september sama ár bjargað- ist sjö manna áhöfn af vélbátn um Halkikon frá Vestmanna- eyjum. Og daginn fyrir Þorláks messu sama ár bjargaðist á- höfn og farþegar af vélbátnum Má frá Vestmannaeyjum, sem bilaði djúpt út af Selvogi. Þetta voru sjö manns. 11. október 1956 bjargaðist 20 manna höfn af togaranum Northern Crown, sem fórst á blindskeri við Reykjanes. Allir skipverjar komust í gúmmíbát- inn. 11. janúar 1958 björguð- ust þrír menn í land í slíkum bát, þegar vélbáturinn Búrfell strandaði austan við Heimaey. 21. febrúar árið eftir bjarg- aðist sex manna áhöfn af Langa nesi frá Neskaupstað, sem sökk við Vestmaiinaeyjar. 23. marz sama ár björguðust 11 manns í slíkum bát, þegar vélbáturinn Fram frá Hafnarfirði strandaði rétt við innsiglinguna til .Grindavíkur. 22. nóvember bjargaðist átta manna áhöfn af gúmmíbáti af vélbátnum Þór- kötlu, sem var á leið til Grinda víkur. 14. des. björguðust skip verjar af vélbátnum Val frá Súðavík. Það voru fimm manns \ 10. febrúar í fyrra björguð- ust sex skipverjar af vélbátn- um Hafdísi frá ísafirði, en kviknað hafði í skipinu. 28. júní björguðust 19 skipverjar, þegar Drangjökli hvolfdi í Pentlandsfirði. 16. október björguðust sjö skipverjar, þeg- ar Straumey sökk austur af Vestmannaeyjum. 16. október björguðust tveir skipverjar af vélbátnum Hersteini, sem strandaði við Suðurnes á Sel- tjarnarnesi. 25. nóv. björguðust tíu skipverjar af vélskipinu Helgu frá Reykjavík, þegar skipig sökk við Reykjanes. 13. febrúar í ár björguðust sex menn af vélbátnum Geysi frá Bíldudal, sem rak upp í Sandvík við Kóp. 4. ágúst björg uðust 11 menn af Helga Fló- ventssyni, sem sökk austur af Langanesi. 5. þessa mánaðar björguðust sex menn af Sleipni og nú 15. september tveir menn af Helga, sem hvolfdi í grennd við Færeyjar. Alls eru þag því 148 manns, sem hafa bjargazt á gúmmíbát um hér við land síðan -farið var að nota þá. Mikill útbúnaður — Hvemig er reglugerðin um gúmmíbjörgunarbáta? — Fyrsta reglugerðiii® var sett 20. janúar 1953, og voru íslendingar fyrstir þjóða í heiminum til að löggilda gúmmíbáta. Síðan hafa verið settar nýjar, endurbættar reglu gerðir og gerðar meiri kröfur til bátanna. Ég hef hér á lista það, sem verður að fylgja þeim. Það er pakki, sem í á að vera vatn í dósum, sætindi, matarbirgð- ir, dósahnífur, sjóveikistöflur. neyðarmerki, bæði handblys og fallhlífablys, lyfjakassi, drykkj- arílát, sjórafhlaða og aukaraf- hlaða, merkjaspegill, veiðar- færi og flauta. í poka á að vera handloftdæla. vasaljós, auka- tappar í öryggisventil, vara- rekakkeri. viðgerðabætur, aust- urtrog, viðgerðatappar og við- gerðaklemmur. Þannig eru gúmmíbátarnir orðnir mjög vel útbúnir. Við i Slysavarnafélaginu vildum þó gjama láta bæta við léttum stjóra, sem hægt væri að leggja bátnum við, ef hann er á til- tölulega grunnu vatni. Einnig væri senditæki, eins og við höf um hér, mesta þing í slíkum bát. Þessi senditæki em mjög fyrirferðarlítil og fljóta þar að auki í sjó. — Hvað viltu segja að lok- um? — Ég vil endurtaka, ag það má ekki skrásetja neinn skip- vc-ja, sem ekki kann að fara með gúmmíbjörgunarbát. Það er fljótlegt að læra á þá og þeim tíma, er ekki illa varið. þótt menn taki ekki eftir því. fyrr en þeir standa augliti til auglitis við hættuna. Skipbrotsmenn af Sleipni koma i gúmmíbjörgunarbát að skipshlið á Heklu. „Það á ekki að skrásetja neinn skipverja, er ekki kann meðferð gúmmíbáta”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.