Tíminn - 17.10.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.10.1961, Blaðsíða 3
TfMÍNN, þriðjudaginn 17. Qktóber 1961 verður NTB—New Yor 16. okt. — Austur og Vestur virðast nú hafa náð samkomulagi um bráðabirgðaeftirmann Dags Hammarskjölds í embætti að- alframkvæmdastjóra , Samein- uðu þjóðanna. Adlai Steven- son, aðalfulltrúi Bandaríkj- anna hjá S.Þ., tilkynnti í sjón- varpsræðu í gærkvöldi, að U. Thant, sem verið hefur aðal- fulltrúi Burma hjá samtökun- um, mundi verða eftirmaður Hammarskjölds til bráða- birgða. Enn er þó eftir að semja endanlega um aðstoðar framkvæmdastjóra, hvað þeir skuli vera margir, frá hvaða löndum og að lokum hverjir. Vonir standa þó til þess, að ágreiningur um þau atriði jafnist innan skamms. Fulltrúi fyrir Vestur-Evrópu — aðstoðarmenn ekki fleiri en fimm Samkvæmt nýjustu fréttum halda Bandaríkin nú fast við þá kröfu sína, að í hópi aðstoðar- framkvæmdastjóranna skuli Vest- ur-Evrópa eiga einn fulltrúa. Enn fremur er það skoðun Bandaríkja- manna, að aðstoðarframkvæmda- stjórarnir, sem starfa eiga við hlið hins nýja aðalframkvæmda- stjóra og vera honum til halds og trausts, megi ekki vera fleiri en fimm, að því er segir í heim- ildum frá sendinefnd U.S.A. á alls | herjarþinginu. Bandaríkin álíta, að Vestur-Evrópa eigi að fá einn aðstoðarmanninn vegna þess, að ekki sé hægt að líta á Bandaríkin sem talsmann eða málsvara Vest- j ur-Evrópu, en Sovétríkin geti - aftur á móti talizt fulltrúi Aust-1 ur-Evrópu. Eins og fyrr segir, er j enn eftir að ganga frá samkomu- j lagi um ýmis atriði í sambandi við undirmenn. U. Thant, og tals- maður Bandaríkjanna sagði í dag, að þrátt fyrir orðróm um að Thant hefði veitt Sovétríkjunum trygg- ingu fyrir einhverju, sem Banda- ríkjunum hefði ekki verið veitt samsvarandi trygging fyrir, hefði Stevenson átt tal við U. Thant og áliti fulltrúa Burma ágætlegaJ hæfan til að takast á hendur þetta ábyrgðarmikla starf. Síðan Hammarskjöld féll ,frá hefur sífellt stríð verið háð um1 eftirmann hans og tilhögun fram- kvæmdastjórnarinnar framvegis á vettvangi S.Þ. Það hefur verið deilt um, hvort einn framkvæmda stjóri skyldi fara með stjórn sam- takanna áfram eða tillögur Rússa um þriggja manna framkvæmda- stjórn teknar til greina. Sú bráða- bírgðalausn, sem nú hefur fengizt, byggðist á því, að Rússar féllu frá kröfu sinni um þriggja manna framkvæmdastjórn, en Bandaríkm hafa aftur á móti slakað til varð- andi aðstoðarframkvæmdastjórn S.Þ., þó að endanlega hafi ekki verið um hana samið enn sem komið er. Flestir munu. nú fagna j því, að samkomulag hefur náðst j um U. Thant. Er þess vænzt, að Öryggisxáöið og allsherjarþingið geri nú allt, sem i þeirra valdi stendur til að afgreiðslu þessa vandamáls verði hraðað sem mest. Stevenson sagði í kvöld, að það væri ekki útilokað, að þessi bráða birgðalausn gæti orðið til fram- búðar. U. Thant er fæddur í Rangoon Thant og er 52 ára að aldri. Hann var lengi skólastjóri, en hætti kennslu störfum 1947 til að taka við starfi sem yfirmaður blaða og útvarps. þegar Burma varð sjálfstætt ríki. Það hefur farið heldur lítið fyrir honum, þó að hann hafi komið við sögu og starfað á vettvangi S.Þ. í 4 ár. Og víðkunnur varð hann ekki, fyrr en farið var að svipast um af ákafa og reyna að (Framhatd á 2 síðu i Dagsbrúnarfundur samþykkti uppsögn Á Dagsbrúnarfundi, sem haldinn var á sunnudaginn I Iðnó, var samþykkt með öllum atkvæðum gegn einu að segja upp kaupgjaldsákvæðum í gildandi samningum við atvinnurekend- ur og leita eftir breytingum á samningunum með það fyrir augum, að kaupmáttur launa vcrði ekki minni en hann var 1. júlí síðastliðinn, auk þess sem sett verði ákvæði í samn- ingana, er tryggi varanleik kaupmáttarins. Kongóstjórn vopnahlé við óánægð með Tshombe NTB—Elísabethville—Leop oldville 16. okt. — Síðastliðið iaugardagskvöld undirrituðu þeir Mahmoud Khiari, full- trúi S.Þ. í Katanga og Thsombe, forseti landsins, samkomulag um endanlegt vopnahlé í Katanga. á það gagnvart Linner, að hann væri mjög áhyggjufullur vegna þessa vopnahlés og óttist ag frek ari afskipti S.þ. og aðgerðir haldi áfram í Kongó. Miðstjórnin álítur að með þessu vopnahléi hafi að- staða Tshombe batnag mjög. Síð- degis í dag lágu ekki fyrir neinar heimiidir um árangurinn af við- ræðum Linnes og Adoula, en bent hafði verið á, að Linner mundi gera allt, sem hann gæti til að kveða niður grundsemdir um á- framhaldandi afskipti S.þ. í Kongó vegna vopnahlésins. Á blaðamannafundi í Leopold- ville fyrr i dag skýrði fuiltrúi frá aðalbækistöð S.þ. frá því, að Tshombe forseti mundi innan tíð- ar senda orðsendingar til Leppold- ville, þar sem hann leitaði eftir að teknar yrðu upp viðræður miili Katangastjórnar og Kongóstjórnar um stöðu Katanga í Kongólýðveld- inu. U THANT GUMUPSALA SIGR- AÐI í TYRKLANDI NTB—Ankara, 16. okt. — Það er nú Ijóst orðið, að í þingkosningunum í Tyrklandi, sem fram fóru í gær og eru hinar fyrstu frá uppreisn hersins og valdatöku vorið 1960, hefur Réttlætisflokkur- inn náð algjörum meirihluta undir forystu hins 64 ára gamla hershöfðingja, Gumup- sala. Síðustu opinberar niðurstöðutölur sýna, að flokkurinn hefur fengið 78 þingsæti í Öldungadeildinni og 230 í fulltrúadeildinni. Samkvæmt nýjustu heimildum er skipting milli hinna ýmsu flokka þessi: Öldungadeild: Réttlætisflokkur- inn 78, Repúblikanaflokkurinn 35, Þjóðlegi bændaflokkurinn 20 og Nýi Tyrklandsflokkurinn 17. Fulltrúadeild: Réttlætisflokkur- inn 230, Repúblikanaflokkurinn 140, Þjóðlegi bændaflokkurinn 40 og Nýi Tyrklandsflokkurinn um 40. Eins og fyrr segir voru kosning arnar í gær hinar fyrstu síðan tyrkneski herinn ger'ði uppreisn sína og rak ríkisstjórn Adnan Menderes frá völdum, en hann og nokkrir samstarfsmenn hans voru hengdir fyrir stjórnarskrárbrot í september sl. Réttlætisflokkurinn er af mörgum álitinn sá flokkur, sem tekið hafi forystuna og gerzt arftaki demókrataflokksins, sem nú er bannaður í landinu, en það var flokkur Menderes á sínum tíma. í kosningabaráttunni notaði Réttlætisflokkurinn gálga sem tákn sitt. Sigurvegaranum í kosningun- um, Gumupsala hershöfðingja, var ákaft fagnað af mörgum þús- undum manna, þegar hann kom með flugvél frá Izmir til Ankara í kvöld. Mannfjöldinn ruddist fram og yfirsteig allar hindranir lögreglunnar á flugvellinum, svo að hinn aldni hershöfðingi varð að fá hjálp lögreglunnar til að komast að bílnum, sem beið hans. Þegar Gumupsala og kona hans höfðu tekið sér sæti í bílnum, þokaðisl bílalest, sem i voru a.m. k 100 bílar áleiðis til borgarinn- ar, og á eftir þeim barst ómur af flautum álíkra margra bíla, sem þeyttu lúðrana ákaft Þar með lýkum öllum bardög- um milli liðs Sameinuðu þjóðanna og hers Tshombe, en aðgerðir S.þ. í Katanga miðuðu að því, að sam- eina fylkið öðrum hlutum Kongó- lýðveldisins. Lið S.þ. hindrar ekki að Katangaher verjist utanaðkom andi árásum á fylkið af cjgin ram Iei'k, en það þýðir, að hann má beita her sínum gegn hermönnum miðstjórnarinnar í Leopoldville, en nokkur herfylki hafa verið send þaðan ag landamærum Katangafylkis. f dag átti svo að skipta á föngum án vopna. í fyrstu krafðizt Tshombe þess, að allt lið S.þ. hyrfj frá Katanga, en fékk því ekki framgengt að sinni. Aðalfulltrúi S.þ. í Kongó, Svíinn Sture Linner, bað Adoula, forsæt isráðherra miðstjórnarinnar þar í Jandi, að gera n£nari grein fyrir áhrifum vopnahlésins, en mjð- stjórnin telur þetta vopnahlé ranig látt og gera Katangamönnum of hátt undir höfði og bæta aðstöðu þeirra gagnvart sér. Upplýsinga málai'áðherra miðstjórnarinnar sagði 4 blaðamannafundi s.l. laug ardag, að stjórn sín teldi sig alls .ekki bundna af þessum vopnahlés samningj. Fá mikilvæga staði Samkvæmt samniiigi fær Kat- angastjórn aftur í hendur ýmsa mikilvæga staði, sem hún missti í hendur S.þ., er bardagar stóðu yfir, og S.þ. fá aftur sínar fyrri bækistöðvar. Herir beggja fá frelsi til að ferðast eins og þeir þurfa til að geta gengt hlutverki sínu Lið S.þ. verður að láta af hendi allar þær opinberar bygg- ingar í Elísabethville, sem það -náði á sitt vald, þ.fl.mi eru aðal- pósthúsið og útvarpsstöðin. Lög- regla Katangastjórnar mun gæta flugvallarins í Elísabethville og 'samkvæmt samningnum hefur stjórnin leyfi til að hafa þar fá- hennt herlið. Flugvöllurinn var í fyrradag opnaður fyrir eðlilegri umferð. Ádoula óánægður Eins og áður er getið, gekk Sture Linner, fulltrúi S.þ. í Kongó á fund Cyrille Adoula, forsætis- ráðherra miðstjórnarinnar í Kon-gó í dag og bað hann að gera nánari grein fyrir þvi, hverja ann marka Kongóstjórn teldi einkum á vopnahléi milli Katanga og S.þ. Áður en þeir ræddust vig hafði miðstjórnih sent út fréttatilkynn- ingu þess efnis, að hann hefði 43.518, 122.764, 135,915. — Birt án fyrir hönd hennar ekki dregið dul ábyrgðar. Verzlunar- ráð þingar Aðalfundi Verzlunarráðs fs- lands er nýlokið. Samþykkti fund- urinn allmargar ályktanir, þar á meðal eina, þar sem segir, að fund urinn sé því fylgjandi, að sótt verði um upptöku , Sammarkað- inn, cnda fylgi umsókninni engin skuldbinding um aðild. Samþykktar voru ályktanir um efnahagsmál, verðlagsmál, Efna- hagsbandalag Evrópu, seðlabank- ann, kaupþing, lagfæringu á toll- um, geymslufé hjá bönkum, Verzl unarbankann, ólöglegan innflutn- ing, opinber fyrirtæki, einkasölur ríkisins, einokun, rannsóknarmál og skattamál. Stjórn verzlunarráðsins skipa nú þessir menn: Birgir Einarsson, ísleifur Jónsson, Gunnar Ásgeirs- son, Hans R. Þórðarson, Kristján G. Gíslason, Egill Guttormsson, Hilmar Fenger, Tómas Pétursson, Gunnar Friðriksson, Gunnar Guð- jónsson, Magnús Víglundsson, Þorvaldur Guðmundsson, Magnús J. Brynjólfsson, Othar Ellingsen, Kristján J. Kristjánsson, Sigurður Magnússon, Sigurður Ó. Ólafsson, Tómas Björnsson og Einar Guð- finnsson. Dregið í A flokki í gær var dregið í A flokki happdrættisláns ríkissjóðs. Hæstu vinningar féllu þannig: 75 þús. kr.: 133.289. 40 þús. kr.: 93.189. 15 þús. kr.: 59.551. 10 þús. kr.:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.