Tíminn - 17.10.1961, Síða 13
TÍMINN, þrigjudaginn 17. október 1961
13
I
i'ramfiai" a) B íif'u ;
verður hlutskarpastur og eign-
ast bókina á 750 krónur.
Fótatak manna, eftir sama
höfund virtist ekki eins eftir-
sóknarvert, Pétur Benediktsson
bankastjóri fékk þá bók á 125
krónur.
b
Nú er þa8 svart f
Steinn Steinarr er næstur á
dagskrá, Rauður loginn brann.
Rvík 1934.
— Tvö hundruð, segir ein-
hver.
— Nei takk, ekki hægt! Ykk-
ur er alveg óhætt að byrja með
400 krónur, segir uppboðshald-
arinn og horfir ögrandi fram í
sal.
— Þrjú hundruð, er svarað.
— Fjögur hundruð, segir þá
Björn Jónsson og eignast þar
með bókina.
Næst eru boðnar upp á einu
bretti ljóðabækur Jakobs Thor-
arensen, Snæljós, Sprettir,
Kyljur, Stillur, Heiðvindar, allt
frumútgáfur. Fjórir verða til
að bjóða i bækurnar, það er
byrjað á hundraðkalli og svo
hækkað um 25 krónur við hvert
boð. Skáldið sjálft situr fram
í sal og styðst fram á stafinn
sinn, lætur brýn síga og klórar
sér í skegginu þegar Ólafi Berg
mann eru slegnar bækurnar á
175 krónur.
— Svo er það Gráskinna
næst, segir Sigurður Benedikts-
son.
Það eru boðnar 50 krónur.
— Nú er það svart, segir Sig-
urður og það er ekki laust við
að nafna hans' Nordal finnist
það líka. En það rætist úr þessu
áður en varir, margir verða til
að bjóða og speifningurinn leyn
ir sér ekki. Loks er komið upp
í 375 krónur og enginn fæst til
að hækka.
— Það var lítið, segir Sig-
urður Benediktsson. Fyrsta,
arinað og þriðja. Bang. Kveikj-
arinn skellur á borðplötuna.
Höfundur kaupir
Lárus Fjeldsted gerir góð
kaup er hann fær ársrit Fræða-
félagsins 8.—11. bindi á 150
krónur og nú kemur Bjarni
Guðmundsson blaðafulltrúi til
skjalanna og krækir í Rómeó
og Júlíu í þýðingu Matthíasar
Jochumssonar á litlar 150 krón-
ur.
Það verða ýmsir til að bjóða
í iVísnakver Páls Vídalíns,
Khöfn 1897, en enginn treyst-
ist til að fara fram úr 300 krón-
unum hans Stefáns Rafns.
Nú norfir Sigurður Ben yfir
hópinn íbygginn á svip eins og
töframaður sem hefur nýtt núm
er á prjónunum.
— Þá er komið að vini okkar
Þorstein, Jósepssyni, segir
hann og lyftir upp ritlingi sem
ber titilinn: Eg gerist flug-
freyja. Sú bók var aðeins gefin
út í 150 eintökum og mun af
þeim sökum eftirsótt af söfnur-
um. Sjálfur er Þorsteinn ákaf-
ur bókasafnari og mun það gert
af stéttvísi að hafa bókina ekki
í stærra upplagi. Sigurður veif-
ar bókinni og bíður e^tir boð-
um í hana.
— Fimmtíu krónur, segir ein-
hver.
— Ekki hægt, svarar Sigurð-
ur.
— Sextíu.
— Já, er það ekki!
Þögn.
— Býður enginn hundrað?
— Sjötíu.
— Áttatíu.
— Níutíu.
Þögn. Sigurður lyftir hend-
inni: Fyrsta, annað og —
— Hundrað! er kallað fram
í sal.
Næst á dagskrá er annar rit-
lingur, álíka fágætur, eftir Þor-
stein og hann fer líka á hundr-
að kall Loks er sá þriðji og
síðast: eftir Þorstein Jósepsson,
Tveir einþáttungar, útgefnir á
Akureyri 1949. Eintak nr. 3 af
50. Og auk þess áritað af höf
undi.
Það er byrjað á fimmtíu kal)
og síðan fikra menn sig ofar,
um tíkali í senn, síðan 25 krón-
ur og ioks fimmtíukall þangað
til komið er upp i 400 krónur.
— Fjögur hundruð, býður
enginn betur! Fjögur hundruð!
Fyrsta, annað og þri —
Þá er kallað í ofboði: 425!
Og það er enginn annar en
höfundurinn sjálfur sem hrepp-
ir bókina á þessu verði.
fyrsta,
annað
asta ritverkinu á uppboðinu,
íslenzk dýr, í þrem bindum eft-
ír Bjarna Sæmundsson. Vandað
og vel meðfarið eintak í sam-
stæðu skinnbandi. fagurlega
gyiit.
— Fimm hundruð, segir ein-
hver.
— Getur enginn sagt þúsund
til að flýta fyrir? spyr Sigurður
— Eitt þúsund og fimmtíu,
er svarað.
— Eliefu hundruð.
Hlutskarpastur verður Pétur
Benediktsson, þrettán hundruð.
Ódýrt.
— Jón Thóroddsen: Maður
og kona, Khöfn 1876, frumút-
gáfa, venjulega er slegizt um
hana, segir Sigurður og hamp-
ar næstu bók.
— Hundrað!
— Ha?
— Tvö hundruð.
— Þrjú hundruð.
— Þetta er ekki einu sinni
fyrir bandinu.
Jón Vestdal tryggir sér bók-
ina á 450 krónur, fyrsta. annað
og þriðja.
og
- þriðja
— Hann hefur vantað þetta,
segir Sigurður og snýr sér að
næstu bók, Sendibréf frá Gyð-
ingi . fornöld, prentað á Seyð-
isfirði 1887. Við höfum orð Þor-
steins M. fyrir því að bókin sé
afar fágæt. En menn láta sér
fát um finnast, það berast eng-
in boð
Sundin blá og Stephan G.
— Býður enginn í Gyðing, w
ha? segir Sigurður og er nú að-»
verða hissa. Og loks verður Lár-
us Fjeidsted til þess að taka
bókina að sér fyrir 50 krónur.
— Jökulgöngur Stephans G.
fara á 200 krónur, prentað í
Winyard 1921 og Kolbeinslag
Stephans, prentað í Winnipeg
1914, lendir hjá Pétri banka-
stjóra fyrir 250 krónur. Heilög
kirkja Stefáns frá Hvítadal-fer
á 50 krónur-og er þó árituð af
höfundi — Ljóðabók Nordahls
Grieg, Friheten, gefin út i
Reykjavík 1943 fer á 100 krón-
ur og þykir ódýrt. Sú bók var
þó árituð af höfundi. Ljóðabæk-
ur Tómasar eru næstar á boð-
stólum. frumútgáfan af Við
sundin blá fer á 175 krónur.
Svo er Fagra veröld, áritað ein-
tak í vönduðu skinnbandi.
—■ Ykkur er þó óhætt að
bjóða hundrað, segir Sigurður.
Vill enginn bjóða fyrir mig
hundrað? Það er alltof lítið
hvort sem er.
Hafiiði Helgason eignast bók-
ina á 150 krónur.
íslenzk dýr.
Maður og kona.
Kvæði og kviðlingar Bólu-
Hjálmars frá 1888 virðast ekki
ætla að verða til þess að hrista
doðann af mönnum. Loks býður
einhver hundrað.
— Stundum er nú boðið
nokkuð mikið hærra í þessa
bók, segir Sigurður mæðulega.
Einhverjir ranka nú við sér
og Jóni Vestdal er slegin bókin
á 225 krónur.
Bjarm Guðmundsson eignast
Hamlet i þýðingu Matthíasar
eftir nokkurt þóf, verðið er þó
ekki hátt: 300 krónur aðeins.
Og Stormurinn í þýðingu Ei-
ríks Magnússonar frá 1885 lend-
ir einmg hjá Bjarna fyrir 150
krónur.
Nú er komið að einu dýrmæt-
FyrirburSur
Svo er komið að einu mesta
keppikefli bókasafnara, smú-
pésa eftir Einar Hjörleifsson
Kvaran sem ber nafnið ..Hvorn
eiðinn á ég að rjúfa.“ Hann er
gefinn út á Eskifirði árið 1880
og af honum eru ekki til nema
örfá eintök. Ástæðan til þess
er sú að höfundurinn fékk bak-
þanka, þegar búið var að prenta
pésann, brenndi allt upplagið.
En nokkur eintök höfðu þá
slæðzt upp á Hérað og þykja
nú gulls ígildi.
Enda er ekki laust við að
glímuskjálfti fari um bekki
þegar Sigurður lyftir pésanum
hátt í lofti, veiðihárin titra á
mörgum bókamanninum.
— Þetta er óbundið eintak,
ef,Uj: Jjt^köm hreint, segir Sig-
imður og Ter sér nú að engu
óðslega. Hvar eigum við að
byrja? Eigum við að segja þús-
und?
— Tólf hundruð. er strax
kallað.
— Tólf hundruð og fimmtíu!
Þá hefjast undrin. Ljósin í
salnum dofna litið eitt, blikka
síðan nokkrum sinnum. Svo
verður bjart á ný.
— Hann er hér á sveimi,
gamli.maðurinn, segir einhver.
— Hann vill ekki hafa þetta,
segir annar.
. — Býður nokkur betur? Tóif
hundruð og fimmtíu, fyrsta,
annað og þri —
— Þrettán hundruð!
Og þá slokknuðu ljósin. Það
varð niðamyrkur í salnum.
Þögn. Svo varð uppi fótur og
fit. En Hafliði Andrésson var
fljótur að útvega kerti og nú
stendur Sigurður í blaktandi
kertaljósi með pésa Einars H.
Kvaran.
— Segir enginn fjórtán eða
fimmtán hundruð?
En menn sitja hljóðir hvort
sem það er af því að pyngjan er
létt eða menn taka rafmagns-
leysið sem æðri bendingu frá
höfundi spíritismans á íslandi.
Jón Vestdal forstjóri Sements-
verksmiðjunnar. hefur éignazt
pésann á 1300 krónur
— Þarna gerðirðu góð kaup,
segir Sigurður, þetta er ekki
meira en eitt tonn af sementi.
— Áttu ekki eintak af Verði
ljós? kallar einhver.
En það varð ekki framar ljós
á þessu uppboði. Skrifararnir
sátu í flöktandi skímu og skráðu
í bækur sínar, bjarminn lék um
andlitið á uppboðshaldaranum
og söfnuðurinn sat í myrkri
Kannske var Einar H Kvaran
að gera boð í pésann sinn:
Fyrsta, annað og þriðja —
sfðasta sinn Jökull.
Iþróttir
(Framhald af 12 síðu)
léttari mótherjar fyrir KR en
Keflvíkingar og notaði því rödd
sína til þess að hvetja Akurnes-
inga í leiknr^n, sennilega í fyrsta
skipti í leik íslenzkra liða.
Akurnesingar hafa notað marga
ágæta leikmenn í B-lið sitt og
geta því ekki stillt upp sínu bezta
iiði gegn KR. Að þessu sinni vant-
aði bæði Gunnar Gunnarsson og
Halldór Sigurbjörnsson, B-liðs
menn, og ef Þórður Þórðarson er
orðinn heill, þá er hann einnig B-
liðsmaður. Vörn liðsins var alltof
opin í þessum leik, eins og tæki-
færi Keflvíkinga bera með sér.
Bogi og Helgi Dan. voru beztir í
vörninni, en Kristinn Gunnlaugs-
son lék nær eingöngu af kröftum
gegn Jóni Jóhannssyni og voru
fjölmargar aukaspyrnur dæmdar á
hann. Sveinn og Jón áttu sæmilega
leikkafla en hurfu nær alveg á
' milli. í framlínunni bar Þórður af,
og Ingvar átti einnig sæmileg til-
þrif.
Lið Keflavíkur kom vissulega á
óvart í leiknum og greinilegt er,
að Keflvíkingar eru að fá ágætt
lið, en flestir leikmennirnir eru
kornungir. Þrátt fyrir mistök Jóns
Jóhannessonar við markið að
þessu sinni, er þgr þó greinilega
mikið knattspyrnumannsefni á
ferðinni, fljótur, baráttufús, og
hefur allsæmilega tækni. En beztu
menn liðsms enn eru þó Högni
Gunnlaugsson og Hörður Guð-
mundsson, ásamt markverðinum,
sem sýndi ágæt tilþrif í leiknum,
og átti enga sök á mörkunum
tveimur.
Dómari í leiknum var Magnús
Pétursson, Þrótti, og fór furðu-
lega margt fram hjá honum, þess-
um annars ágæta dómara.
Strompleikurinn
Framhald af 9. síðu.
við villandi umsögnum í þá átt,
að Strompleikur sé ómerkilegt ör-
verpi, sem beri að sneiða hjá, og
beri jafnvel fá fyrri einkenni höf-
undar síns. Það er misskilningur.
Vafalítið verður honum ekki skip-
ag við hlið Sölku Völku, fslands-
klukkunnar né annarra beztu
verka Kiljans, en hann gerir höf-
undi sínum enga skömm til. Hins
vegar er hann húmorsnauðu fólki
og snobbum til lítils eyrna- og
augnayndis. En hinn almenni leik-
hússgestur getur notið hans sér
til ánægju, ef hann kemur í leik-
húsið hleypidómalaus — og helzt
með npkkurri þekkingu á fyrri
verkum Laxness.
Strompleikur er skemmtilegt
sviðsverk og á það skilið, að sem
flestir sjái hann.
Ragnar Jóhannesson
Framhald af 5. síðu.
búnað bifreiðanna í lagi, þar sem
myrkur og vetur er að ganga í
garð og haga akstrinum samkv.
49. gr. umferðalaga.
Almennt mót norrænna bifreiða
eftirlitsmanna var haldið í Hels-
inki dagana 27.—30. júlí s. 1. Bif-
reiðaeftirlitsmenn frá öllum Norð-
urlöndunum ásamt vegamálastjór-
um Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar sátu mótið. Á mótinu var
meðal annars rætt um hin tíðu
og alvarlegu umferðaslys er oft
stafa af ógætilegum og gálausum
akstri.
_ Stjórn íélagsins skipa: Gestur
Ólafsson, formaður, Svavar Jó-
hannsson, ritari, Sverrir Samúels-
son, gjaldkeri. Meðstjórnendur:
Ber-gur Arnbjömsson og Magnús
Wium Vilhjálmsson.
ALLT A SAMA STAÐ
TRIKO
LOFTÞURRKUMÓTORAR
RAFMAGNSÞURRKUR
BLÖÐ
TEINAR í flesta bíla
MERKI SEM MÁ
TREYSTA
EGILL VILHJALMSSON H.F
Laugavegi 118 — Sími 22240
Vanur skrífstofumaður
óskast strax. Upplýsingar í Ríkisbókhaldinu,
Arnarhvoli.
Iðnaðarhúsnæði
200—300 ferm. í úthverfum eða nágrenni óskast.
Upplýsingar í Sjávarafurðadeild SÍS, Sambands-
húsinu, Reykjavík.