Tíminn - 12.11.1961, Blaðsíða 2
Í2
TÍMINN, sunnudaginn 12. névember 1961.
Stúlkur ofurölvi
eftir vallarball
Á föstudagskvöldið héldu
landgönguliðssveitir Keflavík-
urflugvallar árshátíð sína og
f jölmenntu stúlkur úr Reykja-
vík mjög á hana. Höföu land-
gönguliðssveitirnar fengið
leyfi utanríkisráðuneytisins til
þess að bjóða þeim á hátíð-
ina. Hátíðinni lauk klukkan
eitt um nóttina og áttu stúlk-
urnar þá að halda út af vell-
inum. Aðeins fáar létu sjá sig
hjá btlunum á réttum tíma.
Hinar varð að elta uppi á vell-
inum, og fundust þær ofur-
ölvi og illa til reika og sumar
blóðrisa.
Ofurölvi og illa til reika
Að sögn munu hafa sótt árs-
hátlð þessa um fimmtíu stúlkur
utan vallarins. Svo sem kunnugt
er hafa þeir einir leyfi til að
fara inn á völlinn, sem hafa vega-
bréf, en vallarliðar höfðu sótt um
leyfi til utanríkisráðuneytisins, til
þess að bjóða gestum á árshátíð-
ina og var það veitt. Munu flestir
þessara boðsgesta hafa verið stúlk
ur úr Iteykjavík, sem komu með
bflum þaðan. Var þeim gert að
Attetlfundur L.Í.Ú.
(Framhald af 3. síðu).
um málum, og bendir fundurinn
á, að hann verði valinn frá Hag-
stofu íslands eða Hæstarétti.
Öllum opiinbeium aðilum, svo
sem Fiskifélagi fslands og Hag-
stofu fslands svo og samtökum út-
gerðarmanna og fiskkaupenda,
verði í lögum þessum gert skylt
að láta Verðlagsnefnd sjávaraf-
urða í té öll þau gögn, sem með
þarf og nauðsynlegt er að hennar
dómi að fá til þess að byggja á
ákvörðun sína um fiskverð á hverj
um tíma.“
Fulltrúar aðalfundar sátu síð-
degisboð sjávarútvegsmálaráðherra
kl. 5,00 síðdegis. Hefst fundurinn
svo að nýju kl. 2,00 í dag og
verður þá haldið áfram afgreiðslu
mála. Búizt er við, að fundinum
ljúki síðdegis í dag eða í kvöld.
fara út af vellinum klukkan eitt.
Heimtur þeirra urðu hins vegar
erfiðar og fundust sumar ekki fyrr
en eftir langa leit, ofurölvi og illa
til reika. Erfitt var einnig að
hemja þær í bílunum á leiðinni
til Reykjavíkur og munu nokkrar
rúður hafa brotnað I þeim af
völdum stúlknanna.
Lögreglan vissi ekkert
Blaðið snéri sér til flugvallar-
lögreglunnar og spurðist fyrir um
atburð þennan, og sagði hún að
sér hefði ekki borizt neinar kær-
ur og vissi ekki til annar's en að
allt hefði farið fram með ró og
spekt á hátíð þessari. Hefði henni
aðeins borizt kæra vegna einnar
stúlku, sem var drukkin og hafði
ekki leyfi til þess að vera inni á
vellinum. Sagði Lögreglan, að bíl-
arnir hefðu farið frá vellinum með
gesti árshátíðarinnar klukkan
rúmlega eitt.
Mjólk í mat. . .
(Framhald al 16 slðu)
aðferðir er nú óðum að týna töl-
unni, svo að segja má, að það sé
ekki seinna vænna að forða þess-
um menningarþáttum úr sögu
þjóðarinnar frá gleymsku.
f fyrra var kvikmynduð tóvinna
og mjólkurmatargerð, en i sumar
hefur verið unnið að kvikmyndun
á fornum heyskaparháttum og
sömuleiðis göngum og réttum. Inn
í kvikmyndina um tóvinnuna og
mjólkurmatargerðina verða felld-
ar svipmyndir, er sýna, hvernig
starfinu við þessa atvinnuþætti er
hagað í dag í héraðinu, og á mynd-
in að heita: „Að koma mjólk í
mat og ull í fat“. Næsta verk-
efni til kvikmyndunar verður
„Þarfasti þjónninn". Mun sú kvik-
mynd fjalla um þátt hestsins í
starfi og liifnaðarháttum fyrr á
tímum.
Myndirnar hér á síðunni eru úr
kvikmyndinni: „Að koma mjólk í
mat og ull í fat.“
Fulltrúafundur
hjá bankamönnum
Leynilegar útvarps-
stöðvar um allan heim
Um allan heim eru leyni-
legar sendistöðvar, og flestar
þeirra senda ekki út skemmti-
efni eða auglýsingar, heldur
stjórnmálaáróður.
Það er talig öruggt, að til séu
32 leyndlegar útvarpsstöðvar í 28
iöndum, en þar eru meðtaldar þær
sem eru eiginlega opinberar, en
hafa ekki fengið bylgjulengd sina
samþykkta á neinu þingi, og hafa
aðeins tekið sér hana sjáifar.
Gegn Castro
Það er franska fréttaþjónustan,
sem hefur uppgötvað þessar 32
stöðvar eftir rannsókn, sem leiddi
af útsendinguim uppreisnarmanna
í Alsír, sem trufluðu útsendingar
franska rikisútvarpsins þar.
Einkum er mikið af leynistöðv-
um á Kúbu, þar sem áróður gegn
Fidel Castró er útvarpað, og I
Flórida, þar sem útflytjendur frá
Kúbu koma að hljóðnemanum. —
Amerískum yfirvöldum hefur ekki
tekizt að staðsetja þessa sterku
stöð, svo afi hún flytzt sennilega
sífellt úr stað. Það er nefnilega
Gó'S rækjuveiði
(Framhald aí 1. síðu).
arfæri við rækjuveiðar en þau,
sem notuð eru. Hitt er svo annað
mál, að stærri bátar geta ísað
meira, en ísa verður allar rækjur,
sem veiddar eru í Ingólfsfirði, en
fluttar til ísafjarðar.
Stór og góS rækja
Rækjumiðin á Ingólfsfirði eru
út af Munaðarnesi, og er rækjan
bæði stór og góð. Ekki væsir um
bátana, meðan þeir eru á firðin-
um, því hafnir eru þar góðar og
bryggjur á Ingólfsfirði, en milli-
siglingin er löng og erfið, sem
fyrr segir. Frá Alftafirði og ísa-
firði róa nú 25 rækjubátar.
Á fjórða hundrað
Vinnsla rækjunnar hefur gefið
dágóða vinnu á ísafirði. Konur,
sem pilla rækjur, hafa pillað allt
upp í 20 kíló á dag, og borgaðar
eru nærri 18 krónur fyrir kílóið,
svo dagtekjan hjá þeim dugleg-
ustu hefur komizt á fjórða hundrað
króna. GS
aðaleinkenni þessara stöðva, að
þær hafa engan fastan aðseturs-
stað. Þær eru venjulega í bílum,
sem stanza í skógum, fjallahéruð-
um og á öðrum óaðgengilegum
stöðum.
Þannig stöð er til í fjallahéruð
um Suður-Júgóslaviu, þar sem á-
róður gegn Tító er sendur út.
Gegn Franco
Gegn Franco vinina nokkrar
stöðvar, sumar á Spáni, aðrar í
Norður-Afríku og Portúgal, og
jafnvel emhverjar í Frakklandi.
Frönskum stjórnarvöldum hefur
þó ekki tekizt að finna þessar
stöðvar, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Ef til vill eru einhverjar af
þessum stöðvum í ski.pum úti fyrir
ströndum Spánar, að minnsta
kosti hefur írsk uppreisnarstöð í
mörg ár sent út frá skipi fyrir
utan landhelgi írlands.
Gegn Hussein
Milli ísrael og hinna arabisku
niágrannaríkja þess er fjöldi af
ólöglegum stöðvuim, sem enginn
efast þó um, að sé stýrt af áróð-
ursskrifstofum rikjanna sjálfra.
Leynileg stöð í írak sendir út á-
róður gegn Hussein konungi í
Jordan. Kassem forseti lætur aðra
leynilega stög ráðast á Nasser for
seta. Margar leynilegar útvarps-
stöðvar vinna gegn kommúnistum
í Kína og nærliggjandi löndum,
og það er álitið ,að þær fái efni
frá stjóminni á Formósu.
Gegn hinum hvítu
Suður-Afríka er heil paradís
fyrir leynilegar útvarpsstöðvar og
það rikir mikið öngþveiti á bylgju
lengdunum.
Einkum eiga að vera margar
stöðvar í Brasilíu og Domini-
kanska lýðveldinu, og ein stöð hef
ur alveg helgað sig kynþáttabar-
áttunni. Hún snýr sér aðeins að
lituðu kynþáttunum og reynir að
æsa þá upp í „úrslitabaráttu gegn
veraldaryfirráðum Bandaríkjanna
og hinna hvítu kynþátta."
Leik St. Mirren
írestað
Vegna þoku á Cettic-vellinum í
Glasgow í gær, varð að fresta leik
liðsins við St. Mirren. Tveim öðr-
um leikjum varð að fresta á Bret-
landseyjum.
í Glasgow var þó hægt að hafa
leik milli Rangers og Dundee,
sterkustu liðanna í deildinni.
Dundee sigraði 5:1 og hefur því
5 stiga forskot í fyrstu deild, þar
sem Kilmarmoc tapaði. Á Eng-
landi sigraði aðeins eitt af efstu
liðunum í fyi'stu deild. Tottenham
vann Fullham 4:2
Ágætt skíðafæri
(Framhald at 1 sfðu).
Hveradali á kvöldin, og var allgóð
þátttaka í þeim ferðum. 20—40
manns komu upp eftir á liverju
kvöldi og voru um það bil tvo
klukkutíma á skíðum, en sama
fólkið kom yfirleitt ekki nema
einu sinni, svo allmargir munu
hafa brugðið sér á skíði í vikunni.
í gær voru herbergi hótelsins upp-
pöntuð fyrir helgina, en veður-
útlit var þá tæpast nógu gott.
í dag standa skíðafélögin fyrir
skíðaferðum upp að Skíðaskála, og
verður lagt af stað frá Bifreiða-
stöð Reykjavíkur (BSR) klukkan
9 f. h, og 1 e. h.
*
FÉLAGSMÁLA
SKÓLI
FRAM
SÓKNAíi
FL0KKSINS
Fundur verSur í
Félagsmálaskól-
anum í EDDU-
HÚSINU n. k.
mánudagskvöld
og hefst hann kl.
8,30 stundvíslega.
EINAR ÁGÚSTS-
SON, lögfræðing-
ur flytur erlndi
um verkalýðsmál.
ALMENNUR FUNDUR
Símaskip
(Framhald af l síðu).
simalínur og línur alþjóða flug-
Imláíiastofnunarinnar ICAO.
Almennur fundur í Framsóknarfélagi Reykja
víkur verður haldinn miðvikudaginn 15. nóv.
kl. 8.30 í Framsóknarhúsinu.
Kristján Friðriksson heldur framsöguerindi
um FRAMT ÍÐARUPPBYGGINGU ATVINNU-
VEGANNA. Frjálsar umræður verða á eftir.
Framsóknarmenn og aðrir, sem áhuga hafa
á þessum málum eru velkomnlr á fundinn.
Stjórnin.
Fulltrúaráðsfundur Sam-
bands íslenzkra bankamanna
var haldinn 27. og 28. október.
Mættir voru 46 fulltrúar frá
átta sparisjóðum og bönkum
með 613 félagsmenn samtals.
Formaður S. í. B., Hannes Páls-
son, setti fundinn og minntist lát-
inna félagsmanna. Risu fundar-
menn úr sætum í virðingarskyni
við hina látnu. Einvarður Hall-
vai'ðsson og Guðjón Halldórsson
voru kjörnir fundarstjórar og rit-
arar þeir Jónas Benónýsson og
Jón Gestur Vigfússon. Kristján
Thorlacius, formaður B.S.R.B.,
flutti félaginu kveðjur og árnaðar-
óskir.
Formaður S.Í.B. rakti gang mála
bankamannastéttarinnar, þar á
meðal launa- og kjaramál, endur-
skoðun regla um eftirlaunasjóði,
bankaskóla og Bankablaðið. Bjarni
G. Magnússon, gjaldkeri sambands
ins gerði grein fyrir fjárhag þess
og Bankablaðinu.
Fundurinn gerði ýmsar álykt-
anir og voru þær sendar hlutað-
eigandi aðilum.
Á fundinum flutti Gylfi Þ.
Gíslason erindi um Efnahagsbanda
lagið, Benedikt Sigurjónsson um
réttarstöðu bankamanna og Hauk-
ur Þorleifsson um lánamál land-
búnaðarins.
í sambandsstjórm voru kosnir
til tveggja ára Bjarni G. Magnús-
son formaður og meðstjórnendur
þeir Adolf Björnsson, Ólafur S.
Valdimarsson, Hrafn Þórisson og
Hannes Pálsson. í varastjórn voru
kjörnir Ástvaldur Magnússon, Vil-
hjálmur Lúðvíksson, Ragnheiður
Jóhannsdóttir og Jóhann Ágústs-
son. Endurskoðendur voru kosnir
Guðjón Halldórsson og Ólafur
Gunnlaugsson.
Svo ril Vesturálfu
Línuf'jöldinn verður síðan auk-
inn, en síminn verður ekki not-
aður ti.l fulls fyrr en næstó haust,
þegar símin nverðUr lagður áfram
frá íslandi yfir Grænland til
Kanada. Þegar þeim áfanga er
náð, verður ísland í beinu talsíma
sambandi við bæði Vesturálfu og
Evrópu
8 milljónir dollara
Síminn yfir Grænland til Kan-
ada hefur verið pantaður hjá Felt
en & Guillaume Carlswerk A. G
í Köln og á kapallinn að kosta r
milljónir dollara.
Að lagninigu símans standa Stór '
norræna ritsimafélagið og alþjðð
flugmálastofnunin ICAO, auk pós
og símamálastjórna landanna, se-
hlut eiga að máli, Englands. Dai
merkur, íslands og Kanada.
Stjórnmálafundir í SuðurlanfMiördæmi
Kiördæmasamband Framsóknarmanna i Suðurlandskjördæmi
efnir til stiórnmálafunda, sem hér seglr:
SUNNUDAGINN 19 NÓV.: HveragerSi, Brautarholti SkeiSum
og Vík i Mýrdal.
SUNNUDAGINN 26 NÓV.: Aratungu Biskupstungum og Sel.
fossl.
Allir fundirnir hefjast klukkan 2 eftir hádegi
Nánar verSur sagt frá fundunum síSar.
KÖPAVOSUR
ASalfundur Framsóknarfélags Kópavog '?r3-
jr haldinn þriðjudaginn 14. nóvember í Barna-
•kóla Kópavogs viS Digranesveg og hefst hann
lukkan 8,30 eftir hádegi.
't Venjuleg aSalfundarstörf.
RæSa. Helgi Bergs, verkfræSingur ræSir um
EfnahagsbandalagiS.
3) Önnur mál. Stjórnln. !