Tíminn - 12.11.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.11.1961, Blaðsíða 5
TÍMINN, sunnudaginn 12. nóveinber 1961. 5 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason RiL stjórar- Þórarinn Þórarinsson (áb ). Andrés Kristjánsson Jón Helgason Fulltrúi rit stjórnar- Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egill Bjarnason — Skrifstofur 1 Edduhúsinu — Símar 18300—18305 Aug iýsingasími- L9523 Afgreiðsluslmi 12323 - Prentsmiðjan Edda h.f - Áskriftargjald kr 55.00 á mán innanlands f lausasölu kr 3 00 eintakið Sjónvarpsleyfið Af þeim mörgu áróðurstækjum, sem hafa verið fundin upp á síðari árum, er ekkert eins áhrifamikið og Sjónvarpið. Útvarpið er ekki hálfdrættingur á við það í þeim efnum. Merkur maður hefur sagt, að væri sjón- varpinu skipulega beitt, gætu áhrif þess jafngilt saman- lögðum áhrifum skóla, blaða og útvarps. Vegna þessara ástæðna hefur það verið kappkostað af flestum menningarþjóðum að vanda mjög til sjón- varpsefnis og reyna á þann hátt að tryggja heppileg og holl menningarleg áhrif þess. Þetta er t. d. mikið kapps- mál hinna norrænu frændþjóða okKar. Hjá einni stórri menningarþjóð, Bandaríkjamönnum, hefur þetta hins vegar mjög farið forgörðum. Þar hefur gróðasjónarmiðið borið menningarsjónarmiðið ofurliði. Sjónvarpið þar er fyrst og fremst notað til auglýsinga fvrir ýmis stórfyrirtæki. Annað efnisval hefur svo verið miðað við það, sem fólki þætti gaman og spennandi að sjá, en ekki við menningarlegt gildi þess. Nær öllum kemur því saman um, að menningarleg áhrif sjónvarps- ins hafa reynzt Bandaríkjamönnum óheppileg Nokkru eftir að varnarliðið kom hingað, óskuðu yfir- menn þess að fá að reka sjónvarpsstöð fyrir varnarliðs- menn á Keflavíkurflugvelli. Þetta var um það leyti, sem verið var að auka einangrun varnarliðsins á margan hátt. Þetta þótti ekki ósanngjarnt, ef það gæti verið framkvæmt á þann hátt, að þetta sjónvarp næði ekki teljandi út fyrir völlinn. Af hálfu varnarliðsins voru ekki talin nein tormerki á því að framkvæma það á þann hátt. f trausti þess var leyfið veitt. Við þetta loforð var þó ekki fullkomlega staðið, en þó var sjónvarpsstöðin það veik, að illa náðist til hennar í Hafnarfirði, í Kópa- vogi og í Reykjavík. Seinustu misserin hefur af hálfu varnarliðsins verið sótt á um það að byggja nýja stóra sjónvarpsstöð á Kefia- víkurflugvelli. Þær óskir hafa bersýnilega ekki verið miðaðar við þarfir varnarliðsmanna einna, heldur að sjónvarpið gæti náð til meirihluta þjóðarinnar og varnar- liðið þannig skapað sér aukna áhrifaaðstöðu. Undan þess- um óskum eða kröfum hefur ríkisstjórnin nú látið. Hér hefur gamla sagan gerzt, að þegar búið er að láta litla fingurinn, er allri hendinni hætt á eftir. Nú er því svo komið, að varnarliðið er búið að fá leyfi til reksturs sjónvarpsstöðvar, sem nær vel til meiri- hluta landsmanna — og hefur þannig raunar eins konar einokun á sjónvarpssendingum í landinu. Hvort sem mönnum líkar sjálf dvöl varnarliðsins í landinu betur eða verr, þá hlýtur flestum hugsandi mönn- um að þykja það undanhald íslenzkra stjórnarvalda, sem hér hefur átt sér stað, meira en illa farið. Sjónvarp, sem er miðað við kröfur hermanna, verður aldrei neitt menn- ingarsjónvarp. Sjónvarp, sem fer fram á erlendu máli, er ekki líklegt til að styrkja móðurmálið. Þannig ber allt að sama brunni um það, að ekki getur neitt gott leitt menningarlega af sjónvarpi varnarliðsmanna. Við þetta bætist svo það, að það sýnir lítinn smekk fvrir sjálfstæði þjóðarinnar að afhenda erlendum aðila einokunaraðstöðu til reksturs á mesta áróðurstæki nú- timans, sjónvarpinu. Dæmi um slíkt finnast ekki nema í leppríkjum. Hér hefur því vissulega meira en lítið alvarlegur at- burður gerzt — nýr atburður, sem minnir á það, að núv. stjórnarvöld okkar skortir hug og dug, þegar erlendir aðilar sækja á annars vegar. Walter Lippmann ritar um albjóðamá! / ) ) > > ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) f ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / Samkomulag stórveldanna um U Thant er mikill ávinningur Adlai Stevenson vann miki'ð og gott verk bak vi$ tjöídin U THANT frá Burma hefur hlotið kosningu sem fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna. Þetta fór miklu betur en flestir okkar þorðu að vona fyrst eftir fráfall Hammarskjölds. Þá leit út fyrir að Sovétrikin æti- uðu að halda til stireitu kröfu sinni um þrjá jafnréttháa fram- kvæmdastjóra og hyggðust beita neitunarvaldi til að hindra kosn- ingu eins framkvæmdastjóra. En þetta varð ekki niðurstað- an. Sovétríkin hafa fallið frá kröfu sinni um þrjá fram kvæmdastjóra, meira að segja varakröfunni um þrjá fulltrúa, sem yrðu að ná samkomulagi áður en framkvæmdastjórinn tæki sína ákvörðun. Samkomu- iagið náðist i New York eftir sex eða sjö vikna hljóðar en mjög vel skipulagðar samninga- umleitanir. U Thant er frjáls að því að velja ráðgjafa sína og honum er einnig frjálst að taka eigin ákvörðun. þegar hann er búinn að gera ein'dregna tll- raun til að fá þó til að verða sammála. U Thant getur í raun og veru vcrið — bæði lagalega og siðferðilega — jafn óháður og Dag Hammarskjöld var. AÐALÓKOSTUR þess, að hafa þrjá framkvæmdastjóra, er ekki samkomulagsskyldan og neitunarvaldið, sem fram- kvæmdastjórnin yrði háð. Þetta er þegar fyrir hendi, því að Sameinuðu þjóðirnar eru stofn- un, þar sem stórvelöin hafa neit- unarvald, ekki aðeins lagalega, heldur einnig sem beina afleið- ingu máttar síns. Þau geta ávallt hindrað aðgerðir, ef þau hafa verið borin atkvæðum. Dag Hammarskjöld tókst, með sinni einstöku stjórnkænsku. að gera margt, sem Sovétríkin hefðu getað hindrað, ef þau hefðu þá stundina talið nauð- synlegt að gera það. Neitunar- valdi Sovétríkjanna var ekki beitt i átökunum út af Laos eða Palestinu og ekki framan af í Kongó-deilunni. En síðar var gripið til neitunarvaldsins út af Kongó. Ef Dag Hammarskjöld væri lifs í dag, þá hlyti hann að viðurkenna staðreynd þessa neitunarvalds. Aðalókostur þríklofnings fram kvæmdastjórnarinnar er sá, að hann kæmi í veg fyrir að sinnt yrði einu hlutverki framkvæmda stjórans, sem ef til vill er hvað mikUvægast, þó að einna minnst sé látið á því bera. Þetta hlut- verk er að vera eins konar skriftafaðir forráðamanna með- limaríkjanna, maðurinn, sem þeir geta komið ti) og trúað fyrir málum sínum og þekkir því til hlítar hina raunverulegu aðstöðu i alþjóðaátökunum, ein- mitt vegna upplýsinga þeirra, sem stöðugt ér verið að veita honum i fulium trúnaði. Þessi þekking gerir honum kleift að ganga á milli. Ef hann hefði ekki þessa trunaðaraðstöðu yrði aann að treysta eingöngu á opinberar yfirlýsingar, sem oft gefa til kynna allt aðra samn ingsaðstöðu en fyrir hendi er i raun og veru. Með þríklofningn um hyrfi með öllu þessi trún aðaraðstaða gegn öllum forráða- mönnum meðlimaþjóðanna. Hver U THANT fulltrúi segði þá framkvæmda- stjóranum aðeins það eitt, sem hann væri reiðubúinn að láta andstæðing sinn vita næsta morgun. MEÐ samkomulaginu í New York hefur tekizt að varðveita eitt mikilvægasta hlutverk fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, hlutverk meðalgöngumanns ins. Hvernig tókst þetta? Það tókst vegna hinna mörgu, smáu, vanmegna hlutlausu ríkja, sem hópuðust í Sameinuðu þjóðirnar af því, að það var eina leiðin til þess að þau gætu tekið þátt i alþjóðamálum án þess að glata sjálfsvirðingu sinni. U Thant er frá Burma, en það er eitt af ríkjunum, sem líta á Samein- uðu þjóðirnar sem aðalatriði. gagnstætt stórveldunum, sem meta annað meira. Þetta þýðir, að U Thant tekur við starfi með einlægum áhuga á að láta starfsemi Sameinuðu þjóðanna ná árangri. Eg hygg, að Adlai Stevenson yrði manna síðastur til þess að halda því fram, að árangurinn af starfi hans í þessum máium væri sigur yfir Sovétríkjunum. Stjórnkænn maður lætur ekki mikið yfir sigrum, jafnvel þó hann vinni þá. Það er kjarni hinnar sönnu stjórnkænsku að ná árangri, sem deilendur geta sætt sig við án þess að skamm- ast sín. Verulega stjórnkænn maður — eins og kínversku stríðsherrarnir á sinni tíð — sprengir aldrei i loft upp síð- ustu brúna, sem andstæðingur inn getur hörfað yfir. Adlai Stevenson beitti — þessar síð- astliðnu sex vikur — áhrifum Bandaríkjanna til þess að hjála hinum máttarminni ríkj um að bjarga Sameinuðu þjóð unum Þessum árangri gat enu inn náð nema sá, sem var vitur, reyndur. þolinmóður og leit þó á sjálfan sig sem aukaatriði. ENGINN getur sagt fyrir um, hvernig U Thant muni bregðast við ófyrirsjáanlegri framvindu atburðanna. Á því er þó enginn vafi, að hann reyni að draga ur átökum eftir því, sem honum — og þegar honum — tekst að fá sameiginlega að- stoð Sovétríkjanna og Bandaríkj anna til þess. Hvernig tekst til um þessa sameiginlegu aðstoð fer að mestu eftir því, hvort spennan milli austurs og vesturs fer vaxandi eða minnkandi. U Thant er menntamaður og stjórnvitringur, sem hefur lesið og hugleitt mannkynssöguna af djúpu innsæi. Ég hygg að hann leggi ekki .ýkja mikið upp úr hinum hugsjónalega árekstri, en liti fremur á milliríkjastjórn- málin líkt og Palmerstone gerði, þ e. sem breytilega andstöðu og fylgni ríkisstjórna til framdrátt- ar eða verndar því, sem þáer skoða sem hagsmuni sína. Hann mun varla álíta andstöðu Vest- urveldanna gegn Sovétríkjunum neitt varanlegra fyrirbæri en "andstöðu þeirra gegn Þýzkalandi eða Japan á sinni tíð. Þetta álit hans stafar fyrst og fremst frá söguskoðun hans og ef til vill einnig frá því, að landamæri Burma og Rauða-Kína eru sam- eiginleg. Við munum komast aö raun um. að U Thant er sprottinn upp úr gamalii menningu, þó að hann komi frá nýju ríki. Og þessi gamla menning á eins og hon- um er vel ljóst sjálfum, rætur að rekja tii sama uppruna og menning Miðjarðarhafslandanna og menning hins vestræna heims. ) ) ) ‘i r ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) r ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) )

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.