Tíminn - 12.11.1961, Blaðsíða 13
T í M IN N, sunnudaginn 12. nóvember 1961.
13
Þökkum Innllega auðsýnda samúö vlð andlát og iarðarför föður
okkar.
Þorkels Þorsteinssonar,
Guðmundur Þorkelsson Gunnar Þorkelsson
Helgl Þorkelsson Ingvar Þorkelsson
Þorkell Þorkelsson Þorsteinn Þorkelsson
Maðurlnn mlnn
Helgi Óskar Einarsson
Sogaveg 130,
andaðlst í Baeiarspltalanum þ. 10. nóvember.
Rósa Svelnbjörnsdóttlr
Útfðr mannslns mlns, föður og stjúpföður okkar,
Danivals Danivalssonar,
kaupmanns, Hafnargötu 52, Keflavík,
er lóit 6. þ. m., fer fram frí Keflavíkurklrkju, þrlðiud. 14. þ. m.
kl 1,30 e. h.
Óllna Guðmundsdóttir
og börn.
Sárt ertu nú leikinn
at ? slöu
þannig löguð, að hún er íslenzk-
nm stjórnmálum enginn sómi.
Enginn dómur skal hér á það
lagður, hvort Sjálfstseðisflokkur
inn fari ver með vald sitt en
aðrir flokkar eða sé þeim sek-
ari um það, sem framkvæmda-
stjóri hans sakar hina flokkana
um. Hitt vænti ég að hafi verið
rifjað upp hér, að í þeim efn-
um er hann enginn engill. Svo
víða er gler í húsi hans að hann
ætti ekki að byrja grjótkastið.
Greindum manni og illkvittn-
um kynni að koma í hug út frá
þesssari ræðu, hið gamla her-
bragð azismans. að kenna öðr-
um sína eigin klæki.
Og eitthvað veldur því, að
svona þvættingur er látinn ganga
fyrir þjóðmálaumræðum á lands-
funi.
Heilaþvottur eSa hvaS?
Ég vil ekki láta frá mér fara
á prent neinar frekari hugleið-
ingar um sálfræðilegar ástæður
til þessarar ræðu. En ekki trúi
ég því, að Þorvaldur Garðar
trúi sjálfur öllu því sem Mbl.
hefur eftir honum. Ef svo er,
hefur verið gerður á honum ein-
hvers konar áhrifamikill heila-
þvottur síðan hann gekk i Sjálf-
stæðisflokkinn.
Trúi maðurinn sjálfur kenn-
ingu sinni, verður honum vænt-
anlega ekki skotaskuld úr að
rökstyðja hana með dæmum.
Flokkshagsmunir settir ofar
sannleikanum
Ég tel að þessi ræða sé flutt
af pólitískri nauðsyn og ein-
göngu miðuð við flokkshags-
muni. Sá kafii, sem hér var rak-
inn er helber hræsni frá upp-
hafi til enda. Ræðan sjálf, þar
sem öll sanngirni og sannleikur
verður að víkja fyrir flokkshags
munum, er sterk og æpandi rök-
semd á móti sjátfri sér. 1 skáld-
verki þætti það stórfengleg list
að láta flytja svona hræsnis-
fulla ræðu.
Ræðumaður er framkvæmda-
stjóri flokksins að nafnbót. Það
er skyldustarf hans að flytja
þennan boðskap. Hann er hátal-
ari eða gjallarhorn á áróðurs-
vél flokksins. Það eru örlög
hans. Þar er sannarlega fríður
maður sárt leikinn.
Þetta má ekki borga sig
Ég hef viljað vekja athygii á
þessari ræðu, af því að hún er
sýnishorn af einni neikvæðri hlið
á íslenzku stjórnmálalífi. Ég
trúi því, að ef almenningur fæst
til að veita svona ræðum at-
hygli og hugsa um þær, mælist
þær illa fyrir, þá græðir enginn
á að leika slíkan leik. Þá verður
því hætt eins og öðru, sem
menn finna að borgar sig ekki.
Og þá verður íslenzk stjórn-
málabarátta sviphreinn i og
drengilegri eftir.
H. Hr.
Börn aí starfi
Framhald af 9. síðu.
meðal barnanna. Þetta
þvingaða og samvizkusama
fólk, sem er innilokað og á
dálítið erfitt með að tjá sig.
Takið þið eftir, hvað hún er
stirð og föst í forminu, allt
öðruvísi en bessi héma, sem
er lifandi, frjáls og óþving-
uð. ósjálfráð eðlishvöt látin
ráða vig uppröðunina. Þetta
eru óþvinguðu. félagslyndu
börnin, þau opinskáu. glöðu,
— án innri ögunar. —
Svona lagað má náttúrlega
ekki taka of bókstaflega, og
þetta segir auðvitað ekkert
endanlegt um geðhöfn barns
ins. begar það er orðið full-
orðið, en það getur verið
þægilegt fyrir kennarann að
láta börnin teikna til þess'
að hann kynnist þeim og
viti hvar þau eru stödd.
Hann getur komizt að raun
um formskyn þeirra, sjón-
minni, litgleði, samvizku-
semi og ýmislegt annað,
betur, með því að horfa á
myndir þeirra, en í löngum
viðtölum. — Heyrið þið ann-
ars, strákar. Það er allt í
lagi að hafa tvæir sólir á
lofti, en birtan á að vera
mikil og gul.
Leyf mérnú að sjá augun
ykkar, öll augun hingað til
mín.
Valgerður bregður stórri
mynd upp að glugga og sólin
skín í gegnum hana. —
Sjáið þið, hvernig sólin skín
í gegn. Sólin hendir geislun-
um sínum út um alla jörð-
ina, og það er hún, sem gef-
ur okkur alla litina. Hafið
þið komið við svartan bíl í
sólskini? Og hvítan? Hafið
þið fundið muninn. Svarti
liturinn er heitur, af því að
hann gleypir sólargeislana,
en hvíti kaldur, af því að
hann fleygir þeim öllum frá
sér.
Og börnin halda áfram að
vera börn og tjá sig eins
og börn, hvert með sínum
hætti.
— Það er mikið í mun að
láta hvern einstakling
þroska sinn innri mann, svo
að við verðum ekki vél-
menni, segir Valgerður og
horfir yfir hópinn.
Birgir.
VW’AVAV.WAV.V.WJVAW/AVMVAVAV'.W.VAW.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.'.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,
'...............................................................................................................................................................
FORDSYNING
ji FORD
l ER
jj GÓÐUR
IFÖRUNAUTUR
í dag sýnum við glæsilegar nýjungar frá FORD, bifreiðir og
vélar, þ. á m. verður hinn glæsti CONSUL CAPRI, sem hér er
sýndur í fyrsta sinn og dieselvélar af mörgum stærðum og gerð-
um fyrir bílá og báta.
Sýningin er innanhúss að Laugavegi 105 og opin i dag, sunnu-
dag. frá kl. 10—22.
ASgangur ókeypis.
FORD
ER
GÓÐUR
FÖRUNAUTUR
l FORDUMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON H.F.
VóMft,V.WWMMWðViVóí.VAWA,AWAViyAVftW.V.V.,.V.V.,.ViV.,.,.V.,.,.,.,.V.,.,.V.W.V,V.,.V.W.,.V.W..|V.,.W.,AV.W.VWL%WWiW