Tíminn - 15.11.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.11.1961, Blaðsíða 2
Tkfclfttj^j.miðvihudaginnlS. nóvember 1961 12 Snæfellingar æskja allsherjaráætlun- ar um rafvæðingu Raforkunefnd Snæfellsness og Hnappadalssýslu boðaði til fundar að Vegamótum á laug- ardaginn til þess að ræða raf- orkumál héraðsins. Á fundin- um voru boðaðar hreppsnefnd ir þeirra sjö sveitahreppa á Snæfellsnesi, sem ekk? hafa fengið rafmagn frá almenn- ingsorkuveitum. Enn fremur alþingismenn Vesturlandskjör dæmis, og mættu þeir Ásqeir Bjarnason, Sigurður Ágústs- son, Halldór Sigurðsson og Pétur Pétursson, raforkumála- stjóri Jakob Gíslason og for- maður raforkuráðs ríkisins, Daníel Ágústínusson. Gunnar Guðbjartsson formaður raforkunefndar setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Gerði hann grein fyrir tilefni fundarins, sem væri það, að flestar beztu sveitir héraðsins væru ekki búnar að fá rafmagn og teldu sig- hafa verið afskiptar við ákvörðun framkvæmda skv. 10 ára rafvæð- ingaráætluninni og vildu ekki við það una lengur. Fyrir því hefði sýslunefnd ákveðið á síðasta fundi sínum að hefja nýja sókn í raf- orkumálum héraðsins og væri þessi fundur einn þáttur í þeirri sókn. Tilnefndi hann fundarstjcira Hinrik Jópsson sýslumann og fund arritara Ólaf Guðmundsson sveit- arstjóra í Stykkishólmi. Þá flutti raforkustjóri yfirlits- erindi um rafmagnsframkvæmdir almennt og horfur um fram- kvæmdir á Snæfellsnesi. Koma margar fróðlegar upplýs- ingar fram í ræðu hans. M. a. að vegalengdin milli bæja væri að meðaltali 1,2 km sunnan fjalls á Snæfellsnesi og meiri norðan fjalls. En 10 ára áætlunin tæki til bæja með minna en 1 km meðal- fjarlægð. Að ræðu hans lokinni voru frjálsar umræður og tóku margir til máls. Sigurður Ágústsson alþingis- maður lagði áherslu á nauðsyn þess að hraða rafvæðingu dreif- býlisins og taldi þjóðfélaginu skylt að leggja fram nægjanlegt fé svo að það mætti verða. Formaður raforkuráðs lagði á- herzlu á að hraði raforkufram- kvæmdanna væri háður því fjár- magni, sem rikisstjórn og Alþingi leggði til framkvæmdanna hverju sinni. Lýsti hann yfir því að ekki myndi standa á raforkuráði og raf orkumálastjóra að leggja í fram- kvæmdir á Snæfellsnesi, ef fé væri nægjanlegt til þessara mála. Margir ræðumenn lögðu áherzlu á það, að ekki mætti miða þess- ar framkvæmdir eingöngu við vegalengdir, heldur yrði að leggja fé í framkvæmdir í hverju hér- aði — þar yrði þörfin að ráða úr- slitum og hvert hérað, sem byggi- legt væri talið, ætti að eiga kost á þessum lífsgæðum, bæði til þæg- inda á heimilum og til bættra at- vinnumöguleika. Kom fram sterk krafa um að gerð yrði allsherjar áætlun um rafvæðingu allra sveita, svo að fólk geti gert sér grein fyrir hve- nær þessara lífsþæginda megi vænta. Að umræðum ioknum bar Gunn- ar Guðbjartsson fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd fundarboðenda; og var hún samþykkt samhljóða. Því næst sagði sýslumaður fundi slitið og bauð fundarmönnum til kaffidrykkju í veitingahúsinu. „Fundur boðaður af raforku- málanefnd Snæfellsness- og Hnappadalssýslu haldinn að Vega- mótum 11. nóv. 1961 til að ræða um rafmagnsmál þeirra hreppa á Snæfellsnesi, sem ekki hafa fengið rafmagn frá almenningsveitum, samþykkir að taka undir áskorun siðasta sýslufundar til raforkuráðs um raforkuframkvæmdir í hér- aðinu. Telur fundurinn mjög þýðingar- mikið að gerð verði allsherjará- ætlun um rafvæðingu sveitanna, svo að séð verði hvenær hver sveit megi vænta þessara eftir- sóttu lífsgæða. Enn fremur telur fundurinn alveg óhjákvæmilegt að fram- kvæmdir verði hafnar í öllum hér- uðum, þó vegalengdir séu meiri en 1 km til jafnaðar og teknir fyrir ákveðnir áfangar í hverju héraði árlega. Fundurinn telur lausn þessa máls eitt mesta hagsmunamál sveitanna til að tryggja framtíðar- byggð í öllu landinu, og að á eng- an hátt megi' gera upp á milli hér- aða við skiptingu þess fjár, sem til þessara framkvæmda er varið af hálfu þjóðfélagsins hverju sinni. Af þessu tilefni skorar fundur- inn á alþingismenn héraðsins að vinna að því á Alþingi að veitt verði nægjanlegt fé til þessara framkvæmda og að tryggja nægj- anlega raforku fyrir héraðið." Tillagan var samþykkt samhlj. Nehru bjartsýnn NTB—Los Angeles 13. nóv. Nehru forsætisráðherra Ind- lands sagði á blaðamanna- fundi í Los Angeles í dag, að styrjöld væri ólíkleg í fram- tíðinni. Berlínarmálið væri ekki eins hættulegt nú og áð- ur, enda mætti nú eygja leið til lausnar. Frá Alþingi ' -■"hanl al 7 síðu 1 hlunninda, sbr. 2. lið 3. gr. Heim- ilt er að veita framlag til kaupa á sáðvélum, sjálfbindurum og þreskivélum eða uppskeru- og þreskivélasamstæðu og kornmyll- um, enn fremur til kaupa á þurrk- tækjum fyrir þreskt korn. 2. Greiða skal sama framlag úr ríkissjóði á hvern ha. við frum- vinnslu lands til kornræktar og greitt er samkvæmt jarðræktarlög um vegna nýræktar og síðan ár- lega helming þess. 3. Heimilt er að verja árlega allt að kr. J 0.000,00 til viðurkenn- ingar þeim, sem eru til fyrirmynd- ar um kornrækt. 6. gr. A fyrsta ári, eftir að lög þessi öðlast gildi, skal gefa 5 félögum bænda eða einstaklihgum, sem Nehru sagði, að spenna ríkti milli Kína og Sovétríkjanna. Samt myndu ríkin framvegis standa saman. Sovétríkin hefðu komið fjölmörgum umbótum áleiðis, og væru nú að jafna sig eftir átökin og vildu frið til þess, að þróunin gæti haldið áfram. Byltingar- hneigðin lifir hins vegar góðu lífi í Kína. Sovétríkin eru íhaldssöm um þessar mundir. ekki í sama skilningi og viðræðum um brezka íhaldsflokkinn, heldur vilja þau halda fast við það. sem þau hafa komið fram, sagði Nehru. Þegar hann var spurður um orsakir hins alvarlega ástands í heimsmálun- um, svaraði hann því til, að það stafaði af heimsku manna og gáfnaskorti. „STROMPLEIKUR" Kiljans verS- ur sýndur I 13. sinnl í ÞjóSleik- húsinu í kvöld. ASsókn aS leiknum hefur veriS ágæt, enda hefur sjaldan veriS skrifaS og raett jafnmikiS um neitt leikrit hér á landi. Myndin er af Bessa Bjarnasyni og Róbert Arnfinnssyni I hlut- verkum sínum. Breti í landhelgi ísafirði, 14. nóv. — í morgun kom varðskipið Albcrt hingað með togarann Grimsby Town, sem stað- inn hafði verið að ólöglegum veið- um út af Straumnesi. Þetta er nokkuð stór togari, alltaf 600 lestir. Ekki tókst mér að fá nán- ari fréttir af töku hans, því spurn- ingum var ekki svarað, hvorki um borð í varðskipinu né hjá bæjar- fógeta. — GS. Blaðið spurðist nánar fyrir um I töku togarans hjá Landhelgisgæzl- I unni í gær, og fékk þau svör, að jAlbert hefði komið að togaranum : í fyrrakvöld. Var hann þá með ihlerana utanborðs og eitthvað af jveiðarfærum í sjó. Albert skautj | að honum aðvörunarskotum, og I j fylgdust þeir síðan að í átt til: lands. Vegna veðurs var ekki hægt i 30 hesta tún (Framhaid af l. síðu). sem er innsti hluti Patreksfjarð- ar). Jeppabifreið, sem var á leið inn að Barðastr'önd í gær tepptist er aurskriður runnu bæði fyrir framan og aftan bifreiðina. Á veg- inn niður Bjarnkötludal á Rauða- sandi hafa fallið margar skriður og er hann algerlega ófær. Á Rauðasandi hafa skriður fall- ið á tún þriggja jarða og skemmd- ir orðið miklar. f Karkjuhvammi hefur eyðilagzt um 30 hesta tún. Þykk aur og malarskriða hefur fallið kringum fjárhús á túninu og teppt aðgang að þeim. Margar skiiður hafa fallið á beitiland jarðarinnar. í Gröf féll skriða og fyllti gamla hlöðutóft og síðan fram á túnið. Tvær skriður féllu á túnið á Stökkum og urðu mikl- ar skemmdir á túninu. í Gröf og Stökkum hafa vatnsból fyllzt af skriðuföllunum, og er vatnslaust á báðum bæjunum. í dag er hér allhvöss vestanátt með rigningarskúrum. Viðgerð er hafin á vegunum.SJ Ræsin höfðu .... (Framhald af 1. síðu). ir uxðu flestar til á svipaðan hátt; frost er í jörð og gat hið mikla vatnsmagn, sem úr loftinu kom, því ekki sigið í jörð, heldur rann ofan á, og vegarræsin höfðu ekki undan rennslinu. vilja taka að sér árlega ræktun korns á minnst 10 ha. lands yfii áætlunartímabilið, kost á aðstoð löggjafar þessarar og síðan 5 fé- lögum eða einstaklingum árlega. Auglýsa skal eftir þátttöku fyrir 30. júní árið áður en ræktun hefst, og samningar skulu gerðir það tím anlega, að jarðvinnslu vegna korn ræktar geti verið lokið fyrir 1. október haustið áður en ræktun hefst. 7. gr. Gefa skal út leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd rækt- unarinnar og um meðferð upp- skerunnar og sé eintak af þeim afhent samningsaðila, um leið og samningur er gerður. 8. gr. Stofnframlag til vélakaupa, sbr. 5. gr., má vera allt að kr. 200.000,00 til hvers samningsaðila. Almennt framlag samkvæmt jarð- ræktarlögum greiðist ekki á þá jarðvinnslu, sem samningar um kornyrkju ná til. 9. gr. Landbúnaðarráðherra gefur út reglugerð um framkvæmd laga þessara. 10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi, og skal endurskoða þau innan 10 ára frá gildistöku þeirra. I greinargerð með frv. segir: Flutningsmenn þessa frv. báru fram á síðasta þingi frv. til laga um kornrækt. Það var samþykkt í Ed., en varð eigi útrætt í Nd. Frv. þetta er samhljóða því frv. sem flutt var í fyrra. Sú reynsla, sem fengin er af kornrækt á Sámsstöðum og víðar, hefur sýnt, að unnt er víða í sveit- um landsins að rækta korn, svo að það nái fullum þroska, og að kornrækt geti orðið ein af fram- leiðslugreinum landbúnaðarins. Árlega eru fluttar inn fóður- vörur fyrir allháar fjárhæðir í er- lendum gjaldeyri. Með aukiinni ræktun 'koms mætti draga úr þeim innflutningi eða jafnvel fella hann niður og spara erlendan gjaldeyri sem því nemur. Það virðist því sjálfsagt, að ríkisvaldið hvetji bændur til að hefja korn- rækt með því að veita þeim fjár- hagslega aðstoð til þess. Þessu frv. hefur áður fylgt all- ýtarleg greinargerð, og vísast til hennar um nánari skýringar. ALMENNUR FUNDUR að setja menn af varðskipinu um borð í togarann fyrr en við Bol ungarvík. — Rannsókn málsins hófst á ísafirði í gær. Alfabrenna Skrautklæddir riddarar, blysber- ar, Ijósum prýddir hrútar, naut og geitur, púkar, álfar og tröll auk tunnuskota, eldflauga og tungl- skota, verða til skemmtunar á álfa brennu ungmennafélagsins Aftur- eldingar í Mosfellssveit, sem verð- ur haldin á þrettándakvökli í Varmártúni, þar sem þegar er bú- ið að hazla ákjósanlegan völl. Almennur fundur í Framsóknarfélagl Reykja- víkur verSur haldinn I kvöld, 15. nóv., kl. 8,30 í Framsóknarhúsinu. Kristján Friðriksson heldur framsöguerindi um Framtíðaruppbyggingu atvinnuveganna. Frjálsar umraeður verða á eftir. Framsóknarmenn og aðrir, sem áhuga hafa á þessum málum, eru velkomnir á fundlnn. Stiórnin. Almennur stjórnmálafundur í SuSurlandskjördæmi Kiördæmissamband Framsóknarmanna í Suðurhndrkiördæmi efnir til stjórnmálafunda sem hér segir: ^ Sunnudaginn 19. nóv. n.k.: Vík í Mýrdal kl. 2 e.h. Brautarholti, Skeiöum kl. 2 e.h Hveragerði kl. 2 e.h. Sunnudaginn 26. nóv. n.k.: Vestmannaeyjum kl. 3.30 e.h. Selfossi kl. 3 e.h. Aratungu, Biskupstungum kl. 2 e.h. Nánar sagt frá fundunum í næsta blaði. Féla^smálaskóli Arnessýslu Fyrstu tvö námskeiðin verða haldin á Selfossi, miðvikudaginn 22. og 29. nóv. n.k. KELGI BERGS, verkfr. flytur erindi um Efnahagsbandalagið. Frekari upplýsingar hjá MATTHÍASI INGIBERGSSYNI, Selfossi, forstöðumanni Félagsmála- skólans. NÁDEGISKLÚBBURINN kemur saman í dag á venjulegum stað og tíma. Mætið stundvíslega.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.