Tíminn - 15.11.1961, Blaðsíða 12

Tíminn - 15.11.1961, Blaðsíða 12
12 T í MIN N , íniðvikudagiim 15. nóvember 1961 RITSTJOR.I HALLUR SIMONARSON Loksins rauf íþróttasíða j Morgunblaðsins s.l. laugardag þagnarmúr blaðsins um Þórólf Beck og þá með einni furðu- legustu grein, sem birzt hefur á íþróttasíðu dagblaðs í Reykjavík um langan tíma. Ekki verður þessi ritsmíð á annan hátt skýrð, en öfund og afbrýðisemi hafi búið um sig í herbúðum Morgunblaðsins í garð þeirra blaða hér, sem sagt hafa frá Þórólfi Beck, og stýrt penna þess blaðamanns, sem greinina ritar. Dylgjur og rangfærslur greinarhöfundar eru svo margvíslegar, að ekki verður hjá því komizt að svara þeim með nokkrum orðum. Þórólfur Beok hefur dívalið á Skotlandi í tæpa tvo mánuði og síðustu vikurnar verið fastur mað ur í aðalliði St.Mirren, þar secn j hann hefur getið sér hinn bezta orðstír. Undanfarin tvö ár hefur Þórólfur verið vinsælasti knatt- spyrnumaðurinn hér á landi, og aðdáendahópur hans hefur stöð- ugt vaxið'. Maður sky'idi því hafa álitið, að stærsta blað landsins hefði talið sig hafa nokkrar skyldur gagnvart lesendum sínum og reynt að færa þekn fréttir af Þórólfi. En þar hefur vart verið á hann minnzt — þar til nú að þessi furðulega grein birtizt. Létt hefði þó verið fyrir blaðið að afla sér upplýsinga um Þórólf með því að fá sfeozk biöð, þyi ag vart hefur það sunnudagsblað komið út á Slkotlandi að uindanförnu, þar sem Þórólfs er ekki að einhverju getið. Síðustu vikurnar hefur um fáa ef nokkurn knattspyrnu- mann verið ritað meira í skozk blöð en einmitt Þórólf Beck. Þetta er staðreynd, hvað sem Mbl. segir, og und- irrituðum var þetta vel kunn- ugt meðan hann dvaldi í Skotlandi fyrir nokkrum dög- um og af iestri skozkra blaða síðan. „Málið blásið upp" Ein Mbl. leggur þetta til cnól- anna. „Málið blásis upp. Mikið rót hefur verið um ferð Þórólfs utan og fátt eitt staðfest af frétt- Þegar Morgunblað- ið missti fréttina!! um, sem birzt hafa. Teknar hafa verið blaðaumsagnir í ýmis blöð hér og gerðar stærri hér heima en úti voru.“ Morgunblaðið, sem ekkert hef- ur sagt frá Þórólfi vegna þess ein faldlega, að það hefur ekki aflað sér neinna gagna, getur ekki borið slíkt á borð. Þau blöð, sem birt hafa blaðaumsagnir ucn Þóróif, Tíminn og Vísir, hafa ekki gert þær stærri en þær voru í skozku blöðunum, nema siður væri. Fyrst Morgunblaðsmaðurinn þykist nú hafa þessar umsagnir — sem óg efa algerlega — þá sfcora ég á hann að birta þær umsagnir, sem hér hafa birzt í stærri mynd en ytra. Eg er hræddur um, að það reynist erfitt. Og hann segir, að fátt eitt stað- fest hafi birzt. Er þetta rétt? i Meðan undirritaður dvaldi á Skot j landi sendi hann margar greinar heim, lýsingu á einum leik Þór- ó'lfs, viðtal við hann, viðtal við framkvæmdastjóra St.Mirren, og viðtal við einn eiganda félagsins. Þetta voru fréttir frá fyrstu hendi, og vissulega staðfestar fréttir — og það er einmitt þetta, sem Mbil.-mönnum svíður. Það er þess vegna, sem þessi þagnarmúr hefur verið í blaðimu um Þórólf — þag er vegna þess, að Mbl. missti fréttina! — En Mbl. getur enn bætt úr þessu með þv.í að senda blaðamann til Skotlands og láta hann fylgjast með Þórólfi Beek í eina til tvær vikur. Það yrði áreiðanlega vinsælt af les- endum blaðsins. Ekkert hægt að staðfesta Mbl. er með dylgjur um það, hvað Þórólfi sé boðið fyrir að ger- ast atvinnumaður, en þá upphæð, sem blaðið nefnir hefur enginn heyrt, sem fylgzt hefur með þessu máli. Og Mbl. segir: „Staðfestar fréttir höfum við ekki og þær fást jafnvel ekki með samtölum við Skotland." Að vísu er allt óstaðfest og ein- kennilegt í þessari Mbl.-grein, en Mbl. hefði áreiðanlega gert bet- T ryggingaf élög gefa Skíðaráði R. bikara Á síðast liðnum vetri kom það í ljós að silfurbikarar, sem keppt hafði verið um á Skíðamótum Reykjavíkur, höfðu allir verið unn ir til eigna. Og Skíðaráð Reykja- víkur var í mjög miklum vanda statt þar sem skíðamót án verð- launaafliendinga missa mjöig mikið til gildi sitt. Forráðamenn skíðaíþróttanna í Reykjavík leituð'u fyrir sér hjá tryggingafélögunum í Reykjavík um aðstoð, og var mjög vinsam- lega tekið. Síðast liðið vor var haldið kaffi- kvöld skíðamanna, og voru þar afhentir silfurbikarar þeir, er tryggingafélögin höfðu gefið skíða félögunum í Reykjavík. Þar sem hér er um farandbikara að ræða, verður keppt um þessa bikara ár- lega. Skíðaráð Reykjavíkur er mjög þakklátt fyrir þennan skilning, sem tryggingafélögin sýndu með því, að gefa þessa fallegu bikara, og er þetta mjög mikil lyftistöng fyrir skíðaíþróttirnar í heild. Undanfarna daga hafa tækifæri gefizt til skíðaiðkana þar sem snjór hefur verið nægilegur á Hellisheiðinni, skemmtilegt er að sjá hve margir eru byrjaðir að æfa af fullum krafti. Skíðamenn, æfið vel í vetur og fjölmennið til keppni. ÞOROLFUR 3ECK viS prentvélina ur með því að reyna að hringja til Skotlands en birta þessa grein alla „óstaðfesta“. Það verður ekki legið á því í skozkum blöð'uin, þeg ar Þórólfur gerir samning, og upphæðin, sem hann fær, þá á- reiðanlega nefnd. Og að ekki sé hægt að fá fréttir staðfestar með símtali, hljómar einkennilega — eða er ekki mikill hluti frétta Mbl. einmitt kominn til blaðsins á þann hátt? Var þaS rétt? í Mbl.-greininni er reynt að læða þvi inn hjá lesendum, að Þórólf- ur hafi hlotið eitthvert smánar- boð hjá St.Mirren og íslenzkri knattspyrnu hafi verið sýnd óvirð- ing með því. Og til staðfestingar 'segir höfundur: „Hann er etoki síðri miðherji að dómi undirrit- aðs, en Daninn Harald Nielseu, sem seldist til Bolonga á Ítalíu fyrir tvær mil'ljónir kr. íslenzkar.“ Álit greinarhöfundar á Þór- ólfi og Nielsen, kemur honum einum við. En því að bæta nær helming við þá upphæð’, sem Dan- inn hlaut hjá Bolonga? Hverju þjónar það? Harald Nielsen fékk 215 þúsund danskar krónur fyrir samning sinn, upphæð, sem öll dönsku blöðin minntust á, og svo er nú fyrir að þakka, jafnvel á þessum viðreisnartímum, að ©in dönsk króna jafngildir ekki tæp- um tíu krónum íslpnzkum — en greinarhöfund munar ekkert um að bæta við nokkrum hundruðum þúsunda til að reyna að gera hlut Þórólfs minni. Hvað þá, að ír.'nrrit sé á aðstöðu mun danskra og íslenzkra knatt- spyrnumanna. Á hverju ári koma ,,útsendarar“ frá stóru, ítölsku fé- lögunum til Norðurlanda og kaupa þar knattspyrnumann eða knatt- spyrnumenn. Slíkt hefur aldrei átt sér stað hér á landi — og þar get- ur Skotland orðið stökkbretti fyr- ir Þórólf. Albert Guðmundsson hóf sinn knattspyrnuferil erlendis einmitt á Skotlandi — reyndar sem áhugamaður, þar sem hann stundaði þar nám. Og sá knatt- spyrnuferill var upphaf að miklu ævintýri. Óheppilegt dæmi Mbl. reynir einnig að koma því inn hjá lesendum sínum, að það sé ógurleg frelsisskerðing að ger- ast atvinnumaður í knattspyrnu, og bendir á Jimmy Brown, fyrr- verandi maifcvörð St. Mirren, því til staðfestingar. En þar hendir blaðið á heldur óheppilegt dæmi fyrir sjálft sig — og það er ekki í eiua skiptið í greininni sem höf- undur er svo óheppinn. Blaðið segir, að Jimmy hafi verið dáður maður, þegar lið hans kom hing- að í vor, en nú sé hann fallinn í ónáð. Hvað er rétt í þessu? Jú, einmitt það, að Br'own bað um það sjálf- ur að verða seldur til annars fé- lags — og það var svo langt í frá, að hann væri í nokkurri ónáð hjá félagsstjórninni, síður en svo. Og það sýnir einnig rétt atvinnu- mannsins, að hann getur farið fram á að skipta um félag, ef hon- um sýnist svo. Jimmy Brown var ekki í ósátt við félag sitt — held- ur tvo leikmenn þess, og hann ósk- aði ekki eftir að leika með þeim. Deilur hans við leikmennina tvo hófust einmitt í íslandsför St. Mirren r— en um þetta mál veit höfundur Mbl.-greinarinnar ekkert frekar en annað í þessu máli, sem hann er að reyna að skrifa um, og því er grein hans svo furðulega „óstaðfest11. Skozka landsliðið Og greinarhöfundur er einnig óheppinn, þegar hann ætlar að fara að fræða lesendur um skozka knattspyrnumenn — en fáum, sem til þekkja kemur það þó á óvart. Hann segir: „Allir eða langflestir beztu knattsp.m. Skota leifca með enskum liðum — eða jafnvel ítölskum — séu þeir mjög góðir. Stilli Skotar upp landsliði þá leika næsta fáir af þeim, sem heima dvelja — hinir eru kallaðir heim. Atvinnumennskan er á háu stigi, en heimamarkaðurinn skozki get- ur ekki greitt á við stóru félögin erlendis.11 Þeir, sem fylgzt hafa með brezkri knattspyrnu undanfarin ár, hafa eflaust brosað þegar þeir lásu þessa grein. f þau fimmtán ár, sem ég hef fylgzt allnáið með brezkri knattspyrnu, hefur það víst komið fyrir í eitt skipti, að skozka landsliðið hafi verið skip- að fleiri leikmönnum úr ensku liðunum, en þeim skozku — eða fleiri „anglo-scots“, eins og Bretar kalla þá. Mikill meiri hluti skozku landsliðsmannanna er alltaf úr skozku liðunum. Fyrir _ viku lék Skotland við Wales. Átta leik- menn úr skozku liðunum léku í landsliðinu — þrír frá enskum liðum, og var það meira en efni stóðu til. Millar, miðherji Rangers, var meiddur og St. John frá Liver- pool tekinn í hans stað, og Brown Tottenham, var settur í markið, þar sem Dunferline lék sama dag í Evrópubikarkeppninni í Júgó- slafíu, og skozka landsliðsnefndin vildi því ekki taka markmann liðs- ins frá því. Eða hvenær hefur Mbl. séð, að Glasgow Rangers selji sína beztu menn — eða jafnvel Glasgow Celtic?. Heimamarkaðurinn skozki getur vel^ staðið undir sínum mönnum. Áhorfendur vantar ekki á vellina — eða veit kannski Mbl. í hvaða borg stærsti knattspyrnu völlur í Evrópu er? — Ef það hefur ekki vitað það, þá er það Hampden-Park í Glasgow. Koma þá ekki aðrir á eftir Og grein Mbl. lýkur þannig: „Heldur vildum við, að ísl. knatt- spyma nyti hans (þ.e. Þórúlfs) og hún gæti aðstoðað hann eitthvað á móti því, sem hann aðstoðaði ísl. knattspyrnu". Þetta er fallega sagt, en hvar ætti ísl. knattspyrna að ná í þær, segjum 700—800 þús- und krónur, sem Þórólfur gæti hagnazt á í skozkri knattspymu næstu tvö árin. Og myndu þá ekki aðrir knattspyrnumenn íslenzkir koma á eftir og segja: „Þið getið gert þetta fyrir Þórólf, því fáum við ekki það sama?“ Það er vissulega mikil eftirsjá fyrir íslenzka knattspymuunnend- ur, ef Þórólfur Beck kemur til með að gerast atvinnumaðuir á Skotlandi, en við því er ekkert að segja. Hlutur hans hlýtur að koma fyrst — og það er skiljanlegt, að ungur maður með hæfileika Þór- ólfs á knattspyrnusviðinu vilji tryggja framtíð sína. Við höfum áður horft á eftir knattspyrnu- manni í raðir atvinnumanna, og þó að það væri mikil eftirsjá, stóðum við þó nokkurn veginn beinir í baki á eftir. Og úti á Skotlandi sagði Þórólfur við undirritaðan: „Þið verðið að skilja aðstöðu mína, Hallur. Hér get ég fengið mikla peninga á stutt- um tíma fyrir að stunda þá íþrótt, sem ég met öllum öðr- um meira. Heima lék ég vissulega knattspyrnu í góð- um félagsskap, og hafði sjö hundruð krónur á viku í kaup í prentsmiðjunni“. Segja þessi orð ekki allt? — hsím. HARALD NIELSEN Danmörku hlaut ekki 2 milljónir, heldur 1.3 miiljónir krónur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.