Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 9
T í 311N N, fimmtudaginn 14. desember 1961 9 H ofyrv&iiti'frik 7 Öil Eeikrit séra Matt- híasar í einu hindi Öll frumsamin leikrit séra Matt- liíasar Jochumsonar eru komin út i einu bindi og mjög vandaðri út- gáfu. Er þetta eitt bindi í heildar- útgáfu ísafoldarprentsmiðju af ritum séra Matthíasar. Árni Kristjánsson hefur annazt - þessa útgáfu eins og fyrri bindi af ritum Matthíasar, og er það gert af mikilli vandvirkni. Stein- grímur J. Þorsteinsson prófessor, ritar snjallan og stórfróðlegan inn gang að bókinni um leikritun séra Matthíasar, og eykur það eigi litið gildi bókarinnar, því að dr. Stein- grímur er öllum fróðari um skáld- skap og líf séra Matthí'asar. Flest þeirra leikrita, sem þarna eru, hafa aðeins verið prentuð einu sinni áður, en þær útgáfur löngu til þurrðar gengnar. Leik- ritin í bókinni eru Útiiegumenn- irnir, Helgi magri, Skugga-Sveinn, Vesturfararnir. Hinn sanni þjóð- vilji, Jón Arason, Aldamót og Taldir af. Hið síðastnefnda hefur aldrei verið prentað áður. Úti'legumennirnir voru samdir fyrir réttum 100 árum, en seinna breytti Matthías því leikriti nokk- uð * og kallaði Skugga-Svein. Fá menn hér báðar gerðir leikrits- ins, og fer vel á þvi á þessu af- mæli, og ekki sízt fyrir það, að leikrit þetta verður nú jólaleik- rit Þjóðleikhússins. Þá er þriðja leikritið Jón Ara- son. Það hefur aldrei verið sett á svið en var flutt nokkuð breytt í útvarp í fyrra og vakti óskipta athygli. A eftir leikritunum er nokkur bókarauki, formálar og skýringar séra Matthíasar við leikritin. Varp ar það töluverðu ljósi yfir þessi verk, tilgang og markmið höfund ar, og við hver skilyrði þau eru samin. Islenzkir þjóðhætt ir 1 þriðju út íslenzkir þjóðhættir séra Jón- asar Jónassonar á Hrafnagili eru komnir út í þriðju útgáfu á vegum ísafoldarprentsmiðju, og hefur Einar Ól. Sveinsson prófessor bú- ið til prentunar. íslenzkir þjóðhættir eru sem kuunugt er öndvegisrit um lífs- háttu og störf hér á landi á átj- ándu og nítjándu öld og hið traust Æfingablöð ti! lestrarnáms Ríkisútgáfa námsbóka hefur gef ið út 23 æfingablöð, sem ætluð eru til byrjunarkennslu í lestri. Þau nefnast Eg les og lita. Jónas Guðjónsson kennari hefur samið lesmálið, en Halldór Pétursson teiknað myndimar. Á flestum blöðunum er tekinn einn nýr staf u.r í sömu röð og þeir koma fyrir í „Gagni og gamni“. Er ætlazt til að hægt sé að nota þau samhliða þeirri bók, svo að meiri æfing fáist með létt lesefni. Margir kenn arar telja líka æskilegt að nota laus blöð . við lestrarkennsluna, þar tO nokkurri leikni er náð í lestri. Reynt er að láta ekki of mörg ný orð koma á hverju blaði, svo að kennaranum gefist kostur á að kynna þau og æfa með börnunum, áður en þau lesa blaðið. Á hverju blaði er mynd, sem á við lesmál- ið. Er gert ráð fyrir, að kennar- inn geti notað þær til umtals og kynningar á lesmálinu og þeim orðum, sem þar koma fyrir, en börnin liti þær síðan. Blöðum þessum er ætlað að bæta nokkuð úr þeirri brýnu þörf, sem er á léttu lesefni fyrir byrjendur í lestri. Prentun annaðist Alþýðuprent- smiðjan h.f. asta rit. Hefur þessi kjörbók selzt jafnt og'þétt síðustu tvo áratug- ina og voru fyrri útgáfur þrotnar Bókin hefst á formála þeim, er Einar Ól. Sveinsson ritaði fyrir fyrstu útgáfunni 1934, því að höf- undi entist ekki aldur til þess að leggja síðustu hönd að þessu rit- verki. Er þar og allýtarlegt ævi- ágrip séra Jónasar á Hrafnagíli, gerð grein fyrir ritum hans og heimildasöfnun um þjóðfræði og þjóðháttu. Síðan er stuttur for- máli fyrir þessari útgáfu. Segir þar m. a.: „Bók þessi hlaut miklar vin- sældir jafnskjótt og hún kom út 1934 Hér var fengið heildaryfir- lit yfir íslenzka þjóðhætti á síð- ari öldum, svo að ekki vantaði nema einn kaflann, um sjó- mennsku, auk þess sem kaflinn um húsagerð var eigi fullsaminn. Hefur jafnan síðan verið leitað til þessarar bókar, þegar mönnam hefur leikið hugur á að fá vitn- eskju um eitthvað í siðum og hátt um og trú þjóðarinnar. Sama hef- ur veriði erlendis, fræðimönnum þar hefur þótt hentugt að geta leitað til þessa heildarverks, þeg ar spurt var, hvernig eitthvað hafi verið hér á landi.“ Meginkaflar bókarinnar eru þess ir: Daglegt líf — Aðalstörf'manna til sveita — Veðurfarið — Skepn urnar — Hátíðir og merkisdagar — Skemmtanir — Lífsatriðin — Heilsufar og lækningar — Hugs- unar- og trúarlífið — Húsaskipun og byggingar ySíðast er skrá um. atriðisorð og nafnaskrá. Fjöldi mynda er í bókinni sem kunnugt er, til skýringar efni, aðallega teikningar. Þegar svo er komiö. að sú kyn slóð, sem nú byggir landið hefur með öllu — eða því sem næst — lagt niður lífshætti afa síns og ömmu er bók eins og íslenzkir þjóðhættir nauðsynleg handbók á hverju heimili svo að fólk hafi tiltækt eitthvert heimildarrit um það, hvemig li-fað var í landinu fyrir einni öld. Það fer-ekki vel á því, að líf næstu forfeðra og mæðra sé landsfólkinu torskilnn og lokaður heimur. —ak. Ljóð Högna Egilssonar f þögninni — 70 bls. Helgafell 1961. f þögninni er fyrsta bók Högna Egilssonar. Hún skiptist í tvo kafla, sem heita í þögninni og Til þín. í bókinni eru samtals 41 ljóð. Þótt bókin beri þetta nafn, er ekki mikil eða djúp þögn í ljóð- um hennar, hvort sem þau hafa orðið til í þögn eða ekki. Skáldinu verður að vísu tíðort um þögniua, en hann gerir það með hávaðasöm um hætti — hamrar á henni. — Þannig er fyrsta ljóðið í bókinni aðeins þráhyggja eða dekur við þetta eina orð — þögn, en það og kyrrð og öirnur „þagnarorð“ eru sífellt að skjóta upp kollinum í ljóðum skáldsins. — En svo ein- kennileg er þögnin, að hún verð- ur ekki til við það að tala um hana, dekra við hana, heldur miklu fremur, sé það látið ógert. Högni notar rím og stuðla frjáls lega í ljóðum sínum, s|o sem ung skáld hafa gert. En ég get ekki séð, að ljóðunum sé styrkur að ríimi og stuðlum, — þvert á móti virðist það oft veikja þau, — gera þau hagyrðingslegri. Gallinn á Ijóðunum er þó fyrst og fremst fólginn í því. hve þau eru svip- laus og inntak þeirra yfirborðs- kennt. Yrkisefnin eru ekki marg- brotin, og hann tekur þau ekki frumlegum eða, persónulegum tök um. Hann yrkir til dæmis mikið um vorið og notar sætsúpulegar upptalningar, sem verða stundum keimlíkar. Úr ljóðinu Landið þitt: Dreymir þig aldrei sólheita sumardaga, brakandi þerri, iViATTHIAS JOCHUMSSON araabækur Kára Tryggvasonar Kári Tryggvason hefur um skeið verið í fremstu röð þeirra ís- lenzkra rithöfunda, sem skrifa bækur handa börnum. Barnabæk- ur hans hafa( átt stöðugu og vax- andi gengi að fagna og þær stoðir, sem undir það hafa runnið, eru jafnt áhugi barna á bókum hans og viðurkenning fullorðinna um að þær séu góður og þroskavæn legur lestur. Kári er skáldmælt ur vel, enda hafa komið út | hann tvær Ijóðabsékur, og I ljóð hans eru lipur, létt og - | fögur. Barnaljóðin Fugliim fljúg- andi var eínstaklega hugþekk barnabók, sem geislaði af ástaryl og miðlandi fræðslu. Barnabókin Skólarím, þar sem Kári og nem endur hans lögðu saman, var sér- stæð barnabók og skemmtileg nýj ung. Síðan hafa komið margar bæk ur eftir Kára um ýmis efni, í flest- um leitað fanga til íslenzks sveita lífs O'g íslenzkrar náttúru og oft ast afbragðsvel haldið á þei.m efn um. Kári er málhagur vel, aldrei tyrfinn, kann snilldarvel að tala við börn svo að þau skilji, án þess að hann þurfi að grípa tj.l fáyrts barnamáls. Málfar hans er einmitt mjög fjölskrúðugt, lifandi og auð- ugt að blæbrigðum og alltaf leik- andi létt Leiftrandi glettni og góðlátleg kímni ylja líka oftast frásögnina. Lýsingar hans á leik og lífi bama í frjálsri náttúru landsins, meðal blóma og fugla, eru ætíð mjög iifandi og vitna í senn um hrifnæmi og g'.öggan skilning á þessum efnum. Meðal síðustu barnabóka Kára eru sögurnar um Dísu á Græna- KÁRI TRYGGVASON læk, sem ísafold hefur gefið út.! Nú er komin út þriðja sagan í þeim flokki. — Dísa o.g Skoppa, skreytt teikningum eftir Odd Björnsson. Og það er nóg um æv- intýrin á Grænalæk — ævintýri Hfsins sjálfs — og þau eru sem fyrr sögð af glaðri innlifun. Og bókin er líka kennslubók um orð, athafnir og fegurð náttúrunnar. Þetta er skínandi barnabók. Þá er einnig nýkomin út barna- bókin Sísí, Túkú og apakettirnir hey, sem er hlaðið í lanir, og hljóðlát, lygn kvöld? Og úr ljóðinu Engu skal gleymt: Öllu er lokið: líka því að dreyma á lygnum kvöldum undir hólnum græna —, sól bak við fellið arigan heys úr hföðu heiðríkja, mild skuggaskil og kyrrð. Þetta er vor hagyrðingsins — ekki skáldsins. í einu vorkvæðinu segir hann: Loksins er vor og göturnar fyllast af glömpum frá gluggum ljómandi húsa, er sólskinið hampar í fögnuði sínum — að geta nú guðslangan daginn gullslegið heiminn. En eftir að hafa gefið vorinu þessi gull- og glansklæði, segir hann: En frjósamt Vorið er fáklætt á göngu sinni. Sk'áldinu hættir til væmni. Á ein- um stað stendur, að þögnin sé: Kyrrlát og góð eins og ástúð elskandi móður. Annars staðar falla tárin: létt sem barnsleg blöð af bleikum rósum í þögn og létt sem dáin, barnsleg blöð af bleikum, tíndum rósum. Yfirleitt er hugsunin í ljóðunum Ijós og Ijóðin ekki myrk eða tor- skilin, en sums staðar bregður fyr ir óljósum eða röngum röktengsl um. í ljóðinu Skal lenigra haldið segir t. d. svo: Vafasöcn \ reynist, veldur þungri kvöl sú vizkuleit, er þráir nakin sál. Trúin, sem var mér áður einhlítt svar, er orðin gullið tál. Manni skilst, að vizkuleitin sé hafin vegna þess, að trúin sé orð- in tál, en síðar í Ijóðinu segir: S-kal lengra haldið, leitin stöðugt þreytt, þó trú hjaðni mín, állt sem áður var í ekki nei.tt, Þar sem skáldið leiðist út í heimspekilegar vangaveltur, virð- ist það fremur vera til þess að gera gælur við hugsanir slnar, en finna þeim farveg. Hversdagslegir frasar eru því nærtækir: Að vita — það er vandi þess, er. leitar, Hi.n þyngsta þyrði verður guðagjöf og gleði ljúfra stunda innantóm. Aðeins eitt er öruggt, að þú veizt í raun ei neitt. Frasar af þessu tagi eru marg- þvældir í ræðu og riti og ekki til þess fallnir að gefa ljóðum líf. Ljóðin skortir oft myndræna myndbyggingu eða myndir þeirra nru svo margnotaðar, að þær missa marks. Þó bregður fyrir allgóðri myndbyggingu, svo sem í kvæð- unúm Nótt og Næturljóð, sem eru- bokkalega gerð ljóð og ekki svip- laus. Einnig er Eg full mitt drekk allvel unnið, þótt það jaðri við að vera væcnið. Drykkjuvísa er svipmesta ijóðið í bókinni með per sónulegum hreimi, sem maður annars saknar í ljóðum Högna. Frágangur bókarinnar er snyrti legur og káputeikning smekkleg. Birgir. á vegum ísafoldar, bráðfalleg bók með myndum eftir Þórdísi Tryggvauóttur. Og nú vendir Kári sínu kvæði í kross, hættir að segja frá ævintýrum íslands en bregður (Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.