Tíminn - 03.01.1962, Síða 11

Tíminn - 03.01.1962, Síða 11
(Framhald ar 6 slðu). fev'eqng honum líkaði vistin þarna, og fSck svohljóðandi svar: „Jií, þetta er ágætt, en það er dálítið hart undir fæti. Öldum saman hafa Hollendingar siglt um höfin sjö. Þeir eru verzl- unar-, flutninga- og veðlánaraþjóð og útflutningur er snar þáttur í tekjum þjóðarinnar. Ég ætla að- eins að nefná hinn heiimsfræga iðnað á Philips-lömpum, útvarps- tækjum og sjónvarpstækjum og skipasmiðastöðvar, sem smíða flutningaskip og olíuskip fyrir all- an heiminn. Það eru okkur mikil hlunnindi, að tvö aðalfljót Evrópu, Kín og Meuse renna í Norðursjóinn í Rotterdam, þar sem stærsta höfn Evrópu og næststærsta höfn heims ins eru. Rotterdam var algjörlega þurrkuð út í stríðinu af loftárás- um Þjóðverja, en rís nú aftur í allri sinni dýrð við árósa Rínar, eins og hlið til meginlandsins. Ölí borgin andar frá sér lífi og starfi. Ást við fyrstu sýn. Amsterdam er stærsta borg Hollands, og um leið stolt þess, því að hún er fegursta borg lands- ins. Amsterdam er ómótstæðileg, og þeir, sem koma þangað, verða ástfangnir við fyrstu sýn. Til þess að vatn frá Suðursjó og Norður- sjó rynnu ekki í ána Amstel og hún flyti ekki yfir allt svæðið, var hlaðinn flóðgarður í Amstel. Flóð- garður er „dam“ á hollenzku, og var garðurinn kallaður Amstel- dam, sem seinna breyttist í Amst- erdam. Hvorki meira né minna en 1600 síki voru grafin til þess að leysa umferðarvandamál þessarar verzl- unarmiðstöðvar. Það er hinum vökulu Amsterdambúum að þakka, að síkjunum hefur ekki verið út- rýmt til þess að leysa umferðar- vandamál tuttugustu aldarinnar. Það hafa oft verið gerðar áætlanir um að fylla upp í síkin til þess að byggja bílastæði, en þessu hefur aldrei verið komið í fram kvæmd, og mun aldrei verða, sem lengi sem Amsterdam-menn byggja Amsterdam. Þessum sömu Amsterdambúum ber heiðurinn af musteri tónlistar í Hollandi, Tónlistarhöllinni, sem var fullgerð árið 1888, og heitir „Conccrtgebuow". Bygging henn- ar leiddi til stofnunar hljómsveit- ar, sem er nú þekkt um allan heim og tónlcikar hennar eru eins og „gamalt og gott vín“, eins og gagn rýnandi einn komst að orði. Ann- að hvert ár fær þessi hljómsveit alltaf heimboð frá Bandaríkjunum um að dveljast þar í þrjá mán- uði og halda nokkra tónleika. — Búa á olfusvæði. Þú skalt ekki búast við að finna leiðtoga þjóðarinnar í stærstu borg Hollands. Þú munt finna þá í Haag, sem er reist við sendnar strendur Norðursjávarins. Á tólftu öid komu fyrstu greifarnir þangað til þess að stjórna þegnum sínum. Auk þess að vera stjórnaraðsetur Hollands greiðir Alþjóðadómstóll- inn hér úr flóknum heimsmálum. Auk þess virðist borgin vera að þróast i olíumiðstöð, því að mörg af stærstu oliufyrirtækjum f heim- inum hafa skrifstofur þar. Nýlega fann eitt af þessum félögum olíu í grennd víð Haag. Við höfum þegar unnið olíu í mörg ár í Aust- ur-Hollandi. Einu erfiðleikarnir eru þeir, að við höfum engar olíu- lindir og verðum að dæla olíunni djúpt neðan úr jörðinní. ,Samt g'etum við framleitt 'um 80% af þeirri olíu, sem við notum i Hol- landi. Olían er stór þáttur i verzl- un okkar sem hollenzk-ameriska Shell-félagið annast. Þess vegna höfum við stóra olíuhöfn á einni af litlu eyjunum í Karabiska haf- inu, sem eru undir okkar stjórn, Curacao. Merkasti staðurinn í Haag er torgið, þar sem Júliana Hollands- drottning setur alltaf þriðja þriðju dag í september þing Hollands, með því að skýra frá helztu mál- um, sem þingið mun fjalla um í ræðu sinni frá hásætinu. Þessi dagur er kallaður, „prinsjesdag“, dagur litla prinsins, og þá eru mikil hátíðahöld í Haag. Það er einn dagur ársins, sem Hollend- ingar láta í ljós tilfinningar sínar til föðurlandsins. Frá öllum þess- um ellefu héruðum flykkjast þeir til Haag til þess að votta drottn- ingunni virðingu sína. Hún ekur hægt um borgina í fylgd með Bernharð prins og Beatrix ríkiserfingja í „gullna vagninum“, sem dreginn er af sex hvítum hestum. Þeir komu í sínum beztu fötum til þess að heiðra drottninguna. Ef nokkur drottning hefur verið vinsæl, þá er Júlíana það. Hún hefur orðið að eins konar tákni föðurlandsástarinnar eftir öll þau persónulegu vandræði og þreng- ingar þjóðarinnar, sem hún hefur gengið í gegnum. Myndir af drottningunni og hin- um aðlaðandi og starfsama manni hennar, Bemharð prins, sem hefur unnið verzlun okkar við Mexico og S.-Ameríku mikið gagn, og dætr- um þeirra fjórum, er má'sjá á svo að segja hverju heimili, kaffihúsi, skrifstofu og hóteli í Hollandi. Júlíana er önnur drottning Hol- lands næst í röðinni á eftir Vil- helminu drottningu. Önnur drottn- ing mun koma á eftir henni, hin 23 ára Beatrix prinsessa. Vil-helm- ína drottning var kölluð „eini stjórnvitringurinn“ meðal þjóð- höfðingja frá Vestur-Evrópu, sem voru í útlegð í London. Á ríkis- stjórnarárum sínum sýndi hún tak- markalaust þrek, geysilegan áhuga og óbilandi viljaþrek og í strið- inu fylltu útvarpsræður hennar, sem hún flutti af miklum eldmóði, þjóð hennar þrótti, er hún var að sligast undir oki nazistanna. Sjálf hélt hún fast við að lifa sparsam- legt og óskelfd af sprengjunum, sem féllu næstum við húsdyrnar hjá henni, þar sem hún bjó fyrir utan London. Konur fá loks full réttindi. Þrátt fyrir það, að konur hafa verið leiðtogar hollenzku þjóðar- innar í mörg ár, fengu hollenzkar konur ekki full réttindi fyrr en 1957, þegar lög um það, að giftar konur séu óhæfar til þess að taka þátt í opinberu lífi voru numin úr gildi. Nú geta giftar, holienzkar konur gortað af eigin bankareikningum og rekið sínar eigin verzlanir. Að drottnigunni undanskilinni gætir áhrifa kvenna lítið í opin- beru lífi, en þau fara þó vaxandi, hæ.gt, en örugglega. Eina ráðið, sem ég get gefið ykkur, ef ykkur langar til að vita meira um þetta gamla land, sem einu sinni var miðstöð verzlunar í heipiinum og hefur enn mikið gildi á öllum sviðum, er, að þið skuluð koma sjálf og skoða það. Þið munið aldrei gleyma víðáttu þessa lands, hinum fagra gróðri alls staðar og löngu, hvítu, sendnu ströndunum. Ef ykkur langar til þess, að ferðin heppnist sérstak- lega vel, þá skuluð þið dveljast nokkra daga í Amsterdarn og kynnast lífinu þar, á blómamark- aðnum, grænmetismarkaðnum, og markaðnum, þar sem Gyðingarn- ir selja notaðar vörur. Farið í gönguferð um kínverska hverfíð í Amsterdam og bragðið á hinum ódýra en ljúffenga. kínverska mat. Siglið eftir hinum óteljandi síkj- um mcð sínar 500 brýr og sjátð gömlu húsin, sem eru byggð úti í vatninu, og það mun verða ágætur gndir á heimsókn ykkar til einnar af fegurstu borgum heims. MINNING: ÞÓRUNN BJARNADÓTTIR frá Núpi í dag fer fram útför Þórunnar Bjarnadóttur frá Núpi á Beru- fjarðarströnd. Þórunn var bróður- dóttir afa míns, Þorvarðs Þórðar- sonar bónda á Núpi. Hún var fædd árið 1860, í byrjun nóvembermán- aðar, og varð hún því rösklega 101 árs gömul. Ellefu síðustu ár æv- innar lá hún rúmföst. Þegar hún var níræð, lærbrotnaði hún. Hún naut þá ekki þeirrar læknisaðgerð- gr, sem henni hefði verið nauð- synleg. Vissulega mundi hún þó hafa þolað svæfingu, fyrst hjartað var svo sterkt, að hún lifði rösk ellefu ár eftir þann atburð. Eftir því sem leið á ævikvöldið, sljóvg- aðist minnið og líkamskraftarnir þurru. Hún þráði því orðið heitt og einlæglega að losna sem fyrst úr hinum jarðnesku líkamsfjötr- um, sem voru orðnir henni böl, þegar hún fékk skynjað, hversu komið væri. Nú hefur hún loks fengið þráða ósk uppfyllta, að ferðast yfir þau landamæri, sem hy^rjuip; pjnpm eru búin fyrr eða síðar-sá ævinnií Þórunn andaðist rétt fyrir síð- ustu jól. Hún hefur því að þessu sinni haldið jólahátið með sínum elskaða manni og öðrum ættingj- um og ástvinum á tilverustigi ódauðleikalífsins. Síðustu áratugina naut hún í ríkum mæli aðhlynningar og Um- önnunar dætra sinna, — sérstak- lega þó Málfriðar, dóttur sinnar, sem hún var til húsa hjá síðari hluta ævinnar Ég og kona min vottum eftirlif- andi ættingjum hennar innilega samúð, en sgmglcðjumst þeim jafnframt yfir að vita hana nú lausa við þessa heims þrengingar og armæðu, en vita hana nú á leið eða þegar komna í höfn fram- haldslífsins. J. Þ. Seiíandi tónar (Framhald af l siðu) við slík atriði eru auðvitað miklir möguleikar með ijós o. fl. ISÍú, svo er ég með ýmislegt fleira í huga, en það er bezt að láta ekk- ert uppi um það. fólk verður bara að koma og sjá og heyra, ef það vill forvitnast frekar um það. Næsta spurning er borin fram með háifurr huga. — Ertu nokkurn tíma tauga* j óstyrkur, þegar þú kemur fram? | — Ekki vil ég nú segja það, maður venst öllu Þó get ég ekki neitað því. að ég er dálítið tauga- óstyrkur núna ' eða að minnsta kosti eftirvæntingarfuliur. Það skiptir mig miklu máli. að vei takist með þessa hljómsveit En ég kvíði þvf svo sem ekki. að þessir strðkar standi sig ekki. — Ertu nokkuð farinn farinn að hugsa um að hætta að syhgja? Spurntngln er heimskuicg. enda hristir Ilaukur Morthens. söngv- arinn á heimsmælikvarða, þögull höfuðið og brosir. Pantið eftir vetrarlistanum Gerizt áskrifendur atS aukablötSunum. Póstverzlunin Miklatorgi, Reykjavík. Iðgjöld til Sjúkrasamlags Reykjavíkur hafa verið ákveðin kr. 54.00 á mánuði frá 1. jan. 1962 að telja. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis í Rauð- arárporti, fimmtud. 4. þ. m. frá kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliSseigna. Útgerðarmenn 1—2 vélbátar 70—150 tonn, óskast í viðskipti á komandi vertíð í verstöð sunnanlands. Upplýsingar í Sjávarafurðadeild S.Í.S. Sambandshúsinu, sími 1 70 80. H|artkær eiglhmaSur og faSlr Kjartan Einarsson, trésm(6omelstarl, Hvolsvelll, andaðlst i Landsspitalanum, 31, des Fyrlr hönd aðstandenda Katrín Aðalbjörnsdóttir og börn. -----------------------------------------------------—----------S. innilega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér vin- semd og glöddu mig með heimsóknum. skeytum, gjöfum og á annan hátt á 70 ára afmæii mi'nn 12. desember, Gnð blessi vkkur öll. Hermann Jónsson, Yzta-Mói. T f MIN N, miðvikudaginn 3. janúar 1962. 11

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.