Tíminn - 09.01.1962, Qupperneq 3
Jámbrautarslys í Hollandi
YFIR HUN
MANNS
NTB—Woerden, 8. janúar.
A8 minnsfa kosti 100 manns
fórust í morgun, þegar tvast
farþegalestir rákust á í niða-
þoku nálægt hollenzka bæn-
um Harmelen. Þetta er mesta
járnbrautarslys, sem or'ðið
hefur í Hollandi.
Hraðlestin Rotterdam-Utrecht
ók með 120 kílómetra hraða inn
Banatil-
ræði við
Súkarnó
NTB—MACASSAR, 8. janúar. —
Fjöldi manna hefur verið hand-
tekinn í Macassar eftir hið mis-
heppnaða banatilræði við Súkarnó
Indónesíuforseta á sunnudaginn.
Súkarnó heldur því fram, að Hol-
lendingar standi á bak við morð-
tilraunina, en sumir halda því
fram, að hann hafi sjálfur fundið
upp á þessu til þess að stappa stál
inu í Indónesa.
Þrir menn fórust og 28 særðust
við banatilræðið. Handsprengja
sprakk í mannfjölda um hundrað
metrum fyrir aftan bifreið forset-
ans, sem var á leið til nýs íþrótta-
vallar, sem var verið að vígja. —
Mjög fáir vissu um, að til bana-
tilræðis hefði komið, fyrr eu indó
nesíska herráðið lýsti yfir því í
dag.
Gat ekki
lesið...
í farþegalest, sem stóð kyrr við
brautartengsli. Níu vagnar runnu
gjörsamlega saman í eina klessu,
en hinir vagnarnir hrúguðust hver
upp á annan, áður en þeir ultu út
af brautinni þriggja metra fall
niður í mýri.
Logsuðutæki við björgun
BjörgunarmeTinirnir - urðu að
nota logsuðutæki til þess^að kom-
ast að hinum látnu og særðu far-
þegum. Niðaþokan, sem var, gerði
björgunarstörfin mjög erfið. Lög-
regluhundar voru notað'ir til þess
að leita að farangrinum, sem lá
dreifður úti um alla móa.
Um fjörutíu manns hafa fund-
izt á lífi, en sumum þeirra er
vart hugað líf. Margir þeirra
höfðu fengið taugaáfall ofan á
limlestingar.
Þessi braut er ein af hinum mest
notuð'u í hollenzka brautarkerf-
inu. Umferðinni á henni er stjórn
að af sjálfvirku merkjakerfi,. Enn
hefur ekki tekizt að finna, hvað
olli árekstrinum. Báðir lestarstjór
amir létust í árekstrinum.
Um það bil 1000 manns tóku
þátt í björgunarstörfunum með
hjálp geysiöflugra ljóskastara.
Klukkan níu um kvöldið var enn
ekki búið að ná farþegunum eða
líkum þeirra úr tveimur vagn-
anna.
Að minnsta kosti 100 manns eru
látnir og yfir 50 særðir.
Atburð'urirn hefur valdið þjóð-
arsorg í Hollandi.
Enn eru skriSdrekar á verði á götum helztu borga Líbanon síðan bylt-
ingartilraunin var gerð þar um áramótjn, en að öðru leyti gengur bœjar-
lifið sinn vanalega gang.
Sigurjóni dæmd
abstrakt ■ pían
Allir hlýddu
Hinn heimsfrægi franski rit-
höfundur Jean Cocteau kali
aði nýlega á þrjá rithandar-
sérfræðinga frá Svartaskóia
í París og bað þá um að þýða
nokkur Ijóð, sem hann hafðl
skrifað með blýanti fyrlr þrem
ur árum og gat ekkl lengur
lesið sjálfur.
NTB—Algeirsborg, 8. jan.
Her og lögregla ók í dag um
götur Algeirsborgar á bryn-
vögnum meðan tveggja tíma
allsher jarverkfall OAS stóð
yfir. Verkfallið náði fullkomn-
um árangri, enginn Svrópu-
maður brást kalli OAS, leyni-
hreyfingar róttækra hægri
manna í Alsír.
OAS hafði gefið skipun um, að
allir Evrópumenn í Algeirsborg og
Oran skyldu leggja niður vinnu til
þess að mótmæla aðgerðum stjórn-
arinnar í sambandi við sjúkrahús
borganna, en henni hefur ekki lík-
að, að hryðjuverkamönnum OAS
skyldi iðulega takast að sleppa á
brott af sjúkrahúsunum með hjálp
starfsliðsins.
Engin átök
Ekki kom til neinna átaka með-
an á verkfallinu stóð. Allt var ró-
legt í Serkjahverfunum og engin
umferð var um miðbæinn.
Allar verzlanir lokuðu, þegar
ver'kfallið hófst klukkan tíu um
morguninn, verkamenn streymdu
.úr verksmiðjunum og fulltrúarnir
! yfirgáfu skrifstofurnar.
Furðueld-
flaug gerð
í Svíþjóð
NTB—STOKKHÓLMI, 8. janúar.
— Sænski flugherinn hefur eign-
ast alveg sérstæð'a árásareldflaug
gegn skipum, sem tekur öllum
venjulegum eldflaugum fram. —
Þetta er eina eldflaugategund
Vesturlanda, sem unnt er að
beita gegn stórum skipum, eins
og t.d. beitiskipum.
Eldflaugin nefnist 304 og hefur
hún vakið feikna athygli víða um
lieim. Hún er algjörlega teiknuð
og framleidd í Svíþjóð. Eldflaugin
er sjálfvirk, hún finnur skotmark
ið sjálf. Sænsku Larsen-sprengju-
flugvélarnar geta flutt tvær slík-
ar eldflaugar í einni ferð.
Berlingske Aftenavis skýrði
frá því 30. des. s.I., að einka-
málarétturinn í Frederiksberg
hefði fellt dóm um eignarrétt
jhöggmyndar eftir Sigurjón Ól-
afsson. Danskur trésmíða-
I
meistari, Sv. Bartholdy, var
dæmdur til að afhenda honum
verkið, en Sigurjón greiði hon-
um á móti 1400 danskar
krónur.
Listaverkið, sem deilan stóð um,
er tveggja metra hátt, abstrakt
konulíkneski, sem Sigurjón gerði
fyrir allmörgum árum, er hann
dvaldist í Danmörku. 1948 fór
hann heim til íslands, og lét þá
Bartholdy reisa líkneskið í garði
sínum. Fyrir nokkru síðan bað
Sigurjón hann að afhenda sér
hana, þar sem hann óskaði nú að
selja hana. Bartholdy neitaði og
sagðist eiga hana.
Studdi hann mál sitt þeim rök j
um, að árin áður en Sigurjón
fluttist heim hefði hann iðulega
lánað honum fé. Hefði sér talizt
, svo til, að lánsupphæðin væri um
■ 2.100 kr. Taldi hann það nokkurn
veginn jafngildi listaverksins.
Enn fremur fullyrti hann, að
áður en Sigurjón fluttist úr landi
(hefði hann sagt í kveðjuskyni:
„Myndin verður þá að vera 300
króna virði“. Bartholdy hafði þá
nýverið látið hann hafa þessa upp
hæð og leit á þessi ummæli sem
staðfestingu þess, að myndin væri
hans eign. Fyrir riokkrum árum
kom listamaðurinn einu sinni í
SEXTÁN RAK Á
ÍSJAKA TIL HAFS
NTB—Góðvon, 8. janúar.
16 grænlenzkir fiskimenn
voru á sunnudaginn var
klukkustundum saman í lífs-
hættu á rekandi ísjaka nálægt
Jakobshöfn á Grænlandi.
Fiskimennirnir höfðu farið 20
-1 saman út á ísinn undan ströndinni
* I til veiða. Voru þeir með sleða og
70 hunda meðferðis. Allt í einu
rofnaði ísinn og fiskimennina rak
frá ísröndinni. Aðeins fjórum
þeirra tókst að forða sér inn fyrir
röndina í tíma.
ísstönglar fyrir árar
Stuttu síðar klofnaði ísjakinn,
sem hinir 16 voru á. Var annar
hlutinn miklu minni, en þar voru
þrír menn. Þeim tóTkst að róa ís-
jakanum til lands með því að nota
ísstöngla fyrir árar.
Kveiktu bál
Hina 13 rak áfram ásamt hund-
um og sleðum. Mennirnir kveiktu
bál á ísjakanum til þess að vekja
á sér athygli. Um síðir var komið
auga á þá frá strandferðaskipinu
Aage Knudsen og var þeim bjarg-
að um borð þar.
heimsókn til Bartholdys, en minnt
ist ekkert á að fá styttuna aftur.
Hér heima á íslandi gaf Sigur-
jón þá skýringu fyrir rétti, að
„hann hefði aldrei dreymt um að
gefa Bartholdy listaverk sitt“. —
Hann viðurkenndi, að trésmiður-
inn hefði oft lánað sér fé, en á
það hefði hann litið sem framlag
listvinarins. Hann játaði þó, að
Bartholdy ætti rétt á einhverri
hýx'u, sem hann taídi um 500 kr.,
fyrir- flutning þessarar höggmynd
ar og aijnarra úr Charlottenborgar
garðinum.
Dómur réttarins byggist á því,
að ekki eru nægilegar sannanir
fyrir því, að myndin og uppsetn-
ing hennar í garði Bartholdys sé
réttmæt og óvefengjanleg gjöf til
hans.
Jafnframt ákvað rétturinn, að
Sigurjón skyldi greiða Bartholdy
1.400 kr. upp í gamla reikninga,
en málskostnaður Bartholdys er
400 kr. og skal Bartholdy greiða
Sigurjóni hann.
Neydd til
lendingar
I Armeníu
NTB—Istanbul, 8. janúar.
Sovézkar MIG-þotur neyddu
í dag Caravelle-farþegaþotu
frá belgíska flugfélaginu Sab-
ena til að lenda á flugvelli í
grennd við Jerevan, höfuð-
borg Sovétlýðveldisins Armen-
íu. Talið er, að þetta hafi gerzt
nálægt landamærum Sovét-
ríkjanna, íran og Tyrklarids,
en þar hefur áður komið til
svipaðra nauðungarlendinga.
Flugvallarstjórinn í Istanbul
segir, að flugstjórinn Moreu hafi
skýrt frá því í talstöðinni, að átta-
vitinn væri bilaður og því vissi
hann ekki, hvar liann væri staddur.
Stuttu sí'ðar skýrði hann frá því,
að MIG-þotur hefðu umkringt
(Framhald á 15. síðu).
TÍMINN, þriðjudaginn 9. janúar 1962.
3