Tíminn - 09.01.1962, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.01.1962, Blaðsíða 4
★ vörðurinn Benedikt Árnason Kannast nokkur við gamlan mann, sem he2ur átt góða daga og víða farið, étið af fínum diski og hlotið mörg meðmæli, sem hann hefur því miður ekki handbær. Mann, sem er dálítið höstugur, því að þorparar hafa leilcið hann grátt. Hann gefur ráð og bend ingar, ef honum er gert til hæfis. Er að minnsta kosti fá- anlegur til þess. En það verð- ur að gera vel við manninn. Hann verður að fá sitt fram. Annars er hann kannski ekk- ert að púkka upp á þig og fer í annan og segir honum þú sért skíthæll, óáreiðanlegur, vitlaus. — En við tveir gæt- um haft það gott. Við kunn- um lagið á því. Losna við hinn. Hann er vitlaus, en þú veizt hvað þú syngur. Já, já, sannur vinur. Maður, sem þú réttir hjálp- arhönd. Þú býður honum gist ingu, eða þú gefur honum eitt hvað. Hann er alltaf svolítið höstugur og lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Hann er eklcert upp á þig kominn. Kannske lætur hann til leið- ast að þiggja af þér eitthvað. En það er aðeins greiði við þig eins og þú getur skilið. Hann er þá ekkert að slá hendinni á móti því. Höfðings maður, sem gerir þér tilboð, t. d. að skipta á rúmi við þig að því að það er dragsúgur þar, sem hann sefur, en þú kannt svo vel við útiloftið. Hann getur meira að segja verið svo rausnarlegur að stinga upp á, að þú flytjir að heiman og sért einhvers stað- ar annars staðar þar sem það hentar þér betur. Og þú skalt ekki dirfast að steyta görn við manninn. Hann hefur töglin og hagld- irnar og getur sett þér stólinn fyrir dyrnar, ef honum sýnist. Hann hefur bréf upp á það. Þessi maður mun birtast á sviði Þjóðleibhússins þann 11. janúar, og það er ekkert ó- vanalegt við hann. Hann er úr sjálfum hversdagsleikan- anum. Maður, sem gengur á lagið. Valur Gíslason leikur mann inn. Mótleikarar hans eru Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason. Þeir eru bræður í leiknum. Leikurinn sjálfur kallast Húsvörðurinn. Höfundur er Bretinn Harold Pinter. nann er liðlega þrítugur. Pinter hefur skrifað nokkur leikrit, en Húsvörðurinn er þekktast. Hann hefur veri,ð sýndur í London, New York og á Norð urlöndum hingað og þangað. Benedikt Árnason stjórnar flutningi hans hér. Æfingar hófust í nóvember, en féllu niður meðan verið var að æfa Skuggasvein. Harold Pinter var sjálfur leikari að atvinnu í mörg ár áður en hann hóf leikritun. Tækni hans er hreinsuð og markviss eins og hún birtist í þessum leik. Hann sker niður söguþráð, flytur engan boð- skap og forðast ádeilur. Hann segir ekki brandara. Þannig er úthverfa leiksins hreinsuð af ýmsu, sem mörgum dáðum höfundum er gjarnast að ota fram, en reynist þvældar og skítugar pakkningar um ekki neitt. Húsvörðurinn er blátt áfram leikur. Höfundurinn hefur jafnvel hundsað sögu- leg endalok, þegar hann er búinn að gera grein fyrir sínu fólki. En að baki elntatdleik- ans leynist saga, ádeila, boð- skapur, skop, sem áheyrand- inn fær ráðrúm til að skynja vegna þess, að því eif ekki troðið upp á hann. Pinter gef- ur leikhúsgestum svigrúm — og það er allt nokkuð. — B.Ó. Gamli maSurinn rannsakar þaS, sem honum er „útvegaS" þjóðleikhúsinu Gamla manninum komiS aS óvörum — Valur, Bessl. (Ljósm. TÍMINN, GE). TIMIN N, þriðjudaginn 9. janúar 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.