Tíminn - 17.01.1962, Page 15

Tíminn - 17.01.1962, Page 15
Búnaðarbankans Hagurinn stendur með miklum blóma Kekkonen áfram forseti Ársuppgjör Búnaðarbank- ans hefur verið lagt fram. Þar kemur í ljós, að sparifjárinn- stæður' hafa aukizt verulega, útlán hafa aukizt nokkuð, en aðalstofnlánasjóðir landbúnað- arins hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum. Á síðasta bankaráðsfundi, sem haldinn var 12. þ. m., var lagt frám ársuppgjör bankans. Sparisjóðsdeild bankans stend- ur með miklum blóma, á skuld- laiusa eign um 25.8 millj. kr., þótt húseiign bankans og aðrar fast- eignir séu bókfærðar á aðeins hálfa milljón. Sparisjóðsinnstæður í bankanum hér í Reykjavík hafa aukizt á sl. ári um 68.7 millj. og um 81.7 millj. ef útibúin á Akureyri og Egilsstöð um eru talin með. Innstæður á hlaupareikningi hafa aukizt um 8.7 millj. í Reykja vík. Sparisjóðsinnstæður eru nú í að- albankanum og útibúum í Reykja vík um 250 millj. króna og sam- tals 390 millj. kr. að meðtöldum útibúunum utan Reykjavíkur. Útlán hafa áukizt nokkuð, en miklum mun minna en sparifjár- aukningin. Inneign bankans í Seðlabankan um nam 47.3 millj. króna, þar af 40 millj. bundið vegna sparifjár- aukningar. Ræktunarsjóður og Byggingar- sjóður, sem eru aðalstofnlánasjóð ir landbúnaðarins, hafa orðið fyrir Landgöngutilraun Framhaid ai 3 síðu. nágrenni við flóann, þar sem sjó orrustan fór fram í landhelgi Irian, hollenzku nýlendunvar á Ný{iu- Guineu, og fleiri skip þeirra eru á leið þangað. Meiri viSbúnaður miklum skakkaföllum vegna yfir- færslugjalds á gjaldeyri og endur tekinna gengisfellinga. Þannig varð Ræktunarsjóður að taka á sig rúmlega 100 millj. vegna geng isfellinganna, auk áður greidds yfirfærslugjaíds, og Byggingar- sjóður skuldar rúml. 50 millj. um- fram eignir, en Byggingarsjóður á enn um 18 millj. króna hreina eign. Þessum sjóðum var þó gert kleift að lána til flestra þeirra nýrra mannvirkja, sem virðingar- gjörð hafði borizt um fyrir 1. des. sl. Sjóðirnir fengu að láni hjá rík issjóði samtals kr. 20 millj. og úr Imótviðrissjóði kr. 27 millj. kr. Ræktunarsjóður lánaði 748 bænd um samtals 41 millj. kr. og Bygg ingarsjóður 8,3 millj. bæði til nýrra íbúðarhúsa og til að fullgera þau, sem byrjað var á áður. Á síðasta ári fór fram ítarleg rainnsókn á hag þessara sjóða og athugaðar leiðir til þess að skapa þeim starfsgrundvöll til frambúð ar. 10500 d.kr. Kaupmannahöfn 16. janúar — Kvöldblað Berlings skýrði svo frá, að Helveig Petersen, kennslu- málaráðherra, hefði farið fram á, að í fjárlögum á þessu ári veiti danska ríkisstjórnin 3500 danskar krónur. sem styrk til útgáfu ‘á fomíslenzkum handritum, sem ætluð er almenningi. Verði þess ar 3500 krónur fyrsti hluti af 10500 króna framlagi, sem notað verður í þessu skyni á næstu þrem ur ánim. Til þessa hafa komið út sjö bindi af íslenzkum handritum í þessu útgáfuformi, og hefur ver ið varið til útgáfu þeirra svipuðu framlagi og ráðherrann fer nú fram á. Aðils. Frægur celló I kvöld var talið í finnsku forsetakosningunum NTB — Helsingfors, 16. jan. — f gær fór fram taíning atkvæða i finnsku forsetakosningunum og sást fljótt, að Kekkonen, núver- andi forseti, mundi fá flest at- kvæði. Niðurstöðutölur í atkvæða talningu fyrir Helsihgfors urðu þessar: Kekkonen fékk tólf kjör- menn (Engan 1956); Aitio fimm (sama 1956); Paasio fimm (fengu sjö 1956); sameiningarflokkurinn þrjá (níu 1956); sænski þjóðflokk urinn einn (fjóra 1956). Klukkan 21.45 í gærkvöldi stóðu tölurnar þannig: Kekkonen 331.- 000; Aitio 159.00; Skog 25.000; Paasio 110.00; Sameiningarflokkur- inn 117.900; sænski þjóðflokkur- inn 45.000 og finnski þjóðflokkur, inn 5.000. Gunnar Böðvarsson fær danskan styrk til Nýja-Sjálands I. C- Möller, forstjóri í Kaup- mannahöfn, hefur skýrt frá því, að ákveðið hafi verið að veita dr. Gunnari Böðvarssyni, verkíræð- ingi, styrk að fjárhæð lQ.000,00 danskar krónur til að kynna sér jarðboranir og virkjun jarðhita á Nýja-Sjálandi. — Styrkurinn er veittur úr sjóði, sem I. C. Möller, forstjóri, stofnaði fyrir nokkrum árum. í skipulagsskrá sjóðsins, sem dagsett er 30. desember 1954, segir að sjóðnum skuli m. a. verja til stuðnings almennum velferðar- málum, mannúðarstarfsemi, list- um og vísindum, og geta komið til greina við styrkveitingar menn eða stofnanir í Danmörku, á ís- landi eða í Svíþjóð. — Frá mennta málaráðuneytinu. Kuay forsætisráðherra Hollands sagði í dag, að Hollendingar myndu verjast, ef Indónesar reyndu aftur slíkar árásir. Her- skyldutími hollenzkra hermanna hefur verið lengdur um aillt að einu ári. Indónesíustjórn sagði í dag í op inberri tilkynningu, að hún myndi hefna tapsins á tundurskeytabátun um. Jafnframt bað hún alla lands menn að vera viðbúna, þegar til kastanna kæmi. 50 fangar Hollendingar hafa um 50 indó- nesíska hermenn, sem voru um borð í tundunskeytablfitunum, á sínu valdi. ieikari hér Nýkominn er hingað til lands tékkneski celloleikarinn Franti- sek Simetana, og mun hann, ásamt Áma Kristjánssyni píanóleikara, halda tónleika fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins á miðvikudags og fimmtudagskvöld kl. 7.15 í Austurbæjarbíói. Meðal viðfangsefna eru cellosón ata eftir Henry Becles, Variations concertanos D-dúr op. 17 eftir Mendelsohn, Sónata fyrir píanó og cello í e-moll op. 38 eftir Brahms, auk smærri verka eftir tékkneska höfunda og fleira. HörS kosningabarátta í Þrótti Af 210 sem hefðis getað kosið kusu 208 Um síðustu helgi fór fram stjórnarkosning í Vörubilstjórafé- laginu Þrótti í Reykjavík. Tveir listar komu fram, A-listi, listi fráfarandi stjórnar og B-listi. A- listinn fékk 105 atkv. og alla menn ina kjörna. Stjórnina skipa eftir- taldir menn: Einar Ögmundsson, form., Ásgrímur Gíslason, varafor m., Gunnar S. Guðmundsson, rit- ari, Bragi Kristjánsson, gjaldkeri og Árni Halldórsson meðstj. Vara menn: Guðmann Hannesson og Ari Agnarsson. B-listinn fékk 98 atkv. Kosningarnar voru mjög hart sóttar af báðum aðilum, sem sjá má af þvi, að 208 greiddu atkvæði af 210, sem talið var að gætu kos- ið. Fækkað hafði um 12 á kjör- skrá. TOLLA NTB—Bruxelles, 16. janúar. Fulltrúar frá Efnahags- bandalagi Evrópu og frá Bandaríkjunum komu sér í dag saman um eftir 15 mán- aða viðræður að lækka toll- múrana milli Efnahagsbanda- lagsins og Bandaríkjanna. Er um að ræða mjög margar iðn- aðar- og landbúnaðarvörur. Þetta er bein afleiðing af Bruxelles-samningnum, sem gerður var innan bandalagsins um helgina, en þar náðu með- limaríkin loks samkomulagi um áframhald tollalækkana og efnahagssamvinnu. Samkomulag fulltrúanna fer nú fyrir ráðherraþing Efna- hagsbandalagsins. Sjö lentu í sjóinn (Framhald af 1. síðu). ust í þann þriðjá, en lentu við það allir í sjónum nema tveir. Síðan var reynt að halda bátnum við skipshlið en tókst ekki, hann slitn- aði fljótlega frá eins og hinir. Bátsverjar stóðu lengst af í austri, en hentu sér niður þegar ólög komu, til þess að gera bátinn stöð- ugri. Björgunin tókst mjög vel, og rómaði Friðrik móttökur bæði um borð í Sigurfara og í Grafarnesi. Stakk sér í sjóinn Hlöðver Jónssyni háseta sagðist þannig frá: Við vorum uppi á báta- dekki og búnir að missa fyrsta bát- inn, þegar slitnaði líka frá. Ég stakk mér þá á eftir Iionum og ætl- aði dð reyna að ná í hann og halda honum við skipið, en þegar ég var kominn svo sem 10—12 metra frá skipinu og rétt að ná bátnum, kom vindhviða og feykti lionum frá mér. Af eigin rammleik upp Aðrir skipverjar sögðu, að þeir Iiefðu ekki talið að Hlöðver næði Skjaldbreið aftur, því frákast var frá skipinu og hann fór hvað eftir annað í kaf. En honum tókst að komast af eigin rammleik upp á bátadeklsið aftur, en það var þá að mestu í kafi á stjórnborða. Eins og fyrr segir komust mennirnir í þriðja gúnuníbátinn, sem strax slitnaði frá. Hann fékk þrisvar sinnum á sig brot, en bátsverjar settu ekki út rekakkeri, til þess að þá ræki hraðar, en þeir vissu, að rckstefnan var á Grundarfjörð. Þeir óttuðust, að vindátt kynni að breytast þannig að þá ræki út með Snæfellsncsi, ef rekið væri ekki nógu hratt til þess að flytja þá inn á Grundarfjörð áður en vindátt bieyttist. Rán sá þá ckki Þegar þeir höfðu verið góða stund á reki, sáu þeir til R'ánar, en hún varð þeirra ekki vör. Þeir höfðu þá gætur á ferðum hennar c-g kveiktu á blysi, þegar þeir sáu hana nálgast næst, og þá kom hún auga á bátinn og beindi Sigurfara að honum. Fangafínan of veik Hjálmar Gunnarsson, skipstjóri á Sigurfara, sagði þannig frá: Grundarfjarðarbátar fóru rétt fyr ir hádegi af stað til aðstoðar, og skiptu sér þegar úti í fjarðarmynn inu, og var Sigurfari syðstur. Síð asta hálftímann fórum við alveg eftir bendingum ,frá Rán og sá- um ekld bátinn fyrr en í hálfrar mflu fjarlægð. En blysið sáum við í einnar og hálfrar mflu fjarlægð. Það er landhelgisfluigvélinni Rán að þakka að björgun tókst svona fljótt. — Báturinn var um tvær og hálfa mílu norðvestur af Hösk uldsey. Leitarskilyrði voru mjög slæm, bæði er siglingaleiðin erfið og veðurhæð mikil og illt í sjó. Fangalínan, sem fest er við igúmmíbátiun, er allt of veik. Fyrst þegar við kræktum í hana, slitnaði hún, en við náðum henni aftur og þá hélt hún. Eftir að báturinn kom að síðunni vorum við ekki nema 2—3 mínútur að ná hon- um og mönnunum inn. Bátsverj- ar voru blautir, en furðu hressir, og rétt eftir að við náðum þeim, kom mjög dimmt él, og er ekki gott að segja hvort við hefðum náð þeim þarna, ef við hefðum lent í élinu við leitina. — Páll. Sjómaður drukknar í gærmorgun vildi það hörmu- lega slys tii, að ungur sjómaður, Hans Hansson, Sólvallagötu 34 Reykjavík, féll fyrir borð á togar- anum Surprise og drukknaði. Togarinn lá í vari á Beruvík und- ir Jökli, vegna þess að ekki var veiðiveður á miðunum. Ekki er vit- að um nánari tildrög slyssins, en togarinn lá við ankeri, þegar slysið varð. Hans Hansson var háseti á Sur- prise og 33 ára gamall. Hann lætur eftir sig þrjú böin. Þeir, sem vilja gerasl áskrif- endur a9 bla9inu, hringi é 12323 Verzlimin Sport SKAUTAR Listsksutar meS skóm Hockey skautar meS skóm Hlauparaskautar með skóm Ódýrir barnaskautar PÓSTSENDUM. Sport ■ Austurstræti. KjörgarSi, sími 13508. ÞAKKARÁVÖRP Hjartans þakkir og kveðjur til allra þeirra, sem heiðruðu mig og glöddu, með heimsóknum, gjöf- um, skeytum, símtölum og öðrum vinahótum, á fimmtugsafmæli mínu 5. janúar sl. Magnús Maríasson, Olíustöðinni, Hvalfirði. FaSfr minn, Kristjón Daðason, múrarameistari, lézt í Landsspífalanum aSfaranótt þriSjudagsins 16. janúar. F. h. vandamanna, Pétur Krlstjónsson. 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.