Tíminn - 10.02.1962, Blaðsíða 4
T f MIN N, laugardaginn 10. febrúar 1962
Á TVIST OG BAST í BÍÓ
Hinn 16 ára enski dæg-
urlagasöngvari, Laurie Lon
don, hreif íslenzka táninga
með söng sínum í Háskóla-
bíói í fyrrakvöld, en húsið
var þéttskipað áheyrendum
á þessari fyrstu söng-
skemmtun hins unga söngv
ara hér. Framkoma hans á
sviðinu var með miklum á-
gætum, æfðar hreyfingar
hins fædda showmanns, en
hins vegar var söngur hans
ekki eins góður og heyrzt
hefur á plötum hans,
hverju sem um er að kenna
og er sennilegt að hann
hafi verið betri fyrir tveim
ur til þremur árum.
Laurie London söng þarna
mörg af sínum þekktu lögum
eins og til dæmis He’s got tiie
whole world in his hands, sem
átti mikinn þátt í því að gera
hann heimsfrægan, Sumertime
og Down by the Riverside, og
spöruðu hinir ungu áheyrendur
ekki lófaklappið.
Hljómleikarnir hófust með
því, að 12 manna hljómsveit
undir stjórn Kristjáns Kristjáns
sonar lék og var þar margt vel
gert, en mesta athygli vakti þó
einleikur Gunnars Egilssonar á
klarinett í Jealousy, enda prýði
lega leikið hjá Gunnari. Hljóm-
sveitin var vel æfð, en trompet
arnir hefðu þó mátt vera betri.
Þá höfðu áheyrendur gaman af
einleik Péturs Östlund á tromm
ur.
Þá kom einnig önnur hljóm
sveit fram á hljómleikunum,
HLJÓMLEIKAR
LAURIE
LONDON
ÓM, ásamt söngkonunni Agnesi
Ingvarsdóttur, og lék og söng
rokklög við mikinn fögnuð. Var
þetta allvel unnið hjá hinu
unga fólki.
Kristín Einarsdóttir sýndi
akróbatik af mikilli snilld, og
sýndi furðulega leikni. Þá var
sýning á nýjasta samkvæmis-
dansinum, tvistinu, og vakti
mesta athygli á þessum hljóm-
leikum. Dansendurnir stóðu sig
vel, en einkum var það þó Har-
aldur Einarsson, sem dró að sér
athyglina, en hann er líka mjög
snjall dansari.
í heild voru þessir hljómleik
ar ánægjulegir, enda voru und-
irtektir áheyrenda mjög góðar.
Laurie London átti létt með að
fá áheyrendur til þess að taka
virkan þátt í skemmtuninni, en
eins og áður segir, var fi'am-
koma hans á sviðinu mjög ör-
ugg. Kynnir á hljómleikunum
var Baldur Georgs, og gerði
hann því hlutverki góð skil að
venju. Þessir hljómleikar munu
verða endurteknir nokkrum
sinnum.
Ljósmyndarl Tímans, Guðjón Einarsson, brá sér á hljómleika Laurie London og tók þá þessar myndir
hér á siðunni. Á þelrri efstu er Kristín Einarsdóttir í akróbatik, og á myndinni fyrir neðan sést hún í
tvistinu ásamt Haraldi Einarssyni. Til vinstri er Laurie London og fyrir framan hann sjást áheyrendurnir
1 *--L~ 11----! JL-,‘X '■'* sönouarann