Tíminn - 10.02.1962, Síða 12
ÍÞRÓTTIR
•ÍiiilÍiiÍÍÍÍÍÍÍ
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
.v.viv.v..
Mullersmótið í svigi
verður á sunnudaginn
Sigurvegarar KR f Innanhússknattspyrnunnl. Efri röð frá vlnstri: Sigurgeir GuSmannsson, þjálfarl, Gunnar Felix
son, Ellert Schram og Kristlnn Jónsson. Fremrl röð: Hreiðar Ársælsson, Garðar Árnason og Jón Sigurðsson.
Ljómynd: Bjarnleifur.
Lið KR hafði yfirburði
í innanhúss knattspyrnu
Afmælismót íþróttasam-
bands íslands í innanhúss
knattspyrnu var háð í íþrótta-
húsinu a'ð Hálogalandi á mið-
viku- og fimmtudagskvöld.
Guðmundur Sveinbjörnsson,
varaformaður Knattspyrnu-
sambands íslands, setti mótið,
en síðan hófst keppnin. Alls
tóku 18 lið þátt í keppninni
og bar A-lið KR sigur úr být-
u m, sigraði alla andstæðinga
sína með yfirburðum.
Fyria kvöldið urðu úrslit þessi:
Þróttur B — Keflavík B 6—1
Valur A — Reynir A 8—1
Fram ,A — Breiðablik A 8—1
K.R. Á — Keflavík A 6—2
Akranes A — Breiðablik B 13—4
Þróttur B — Víkingur 9—3
Fram B — Valur B 6—3
Þróttur A — K.R. B 7—4
Keflvíkingar voru óheppnir að
mæta KR-liðinu í fyrsta leik sin-
um, en ef þeir hefðu verið heppn-
ari í drættinum er líklegt, að þeir
hefðu komizt langt í mótinu, jafn-
vel í úrslit. KR-ingum gekk illa
með Keflvíkinga framan af, en
þeir Gunnar Felixson, Ellert
Schram og Garðar Amason gerðu
þó örugglega út um leikinn, þegar
þeir voru þrír saman inn á. Svo
mikil harks var í leiknum, að öll-
um leikmönnum Keflavíkur var
vísað út af. og var enginn þeirra á
leikvellinum nokkrar sekúndur!
Slíkt mun nær algert einsdæmi,
og var þetta mjög klaufalegt hjá
Keflvíkingum. Það var álit sigur-
vegara K.R. eftir mótið, að Kefl-
vikingar hefðu verið orfiðasta lið-
ið fyrir þá.
Úrslit síðasta kvöldið urðu
þessi:
Fram B — Valur A 5—3
Þróttur A — Þróttur B 7—2
K.R. A — Akranes B 10—3
K.R. A — Fram A 11—10
K.R. A — Þróttur A 4—1
Skemmíilegasti leikurinn um
kvöldið var milli A-liða Þróttar og
Fram og kom það talsvert á óvart,
að Þróttur skyldi bera sigur úr
býtum. Fram hafði forustuna fram
an af og skoraði tvö fyrstu mörk-
in í leiknum. í hálfleik var staðan
4—2 fyrir Fram. Þrótti tókst fljótt
að jafnan þennan mun og tókst að
ná forustunni (6—5), sem hélzt til
leiksloka. Um tíma hafði Þróttur
þrjú mörk yfir.
K.R.-ingar sigruðu andstæðinga
sína létt og kom það nokkuð á ó-
vart hve þeir áttu létt með Akur-
nesinga, en þess má geta, að Hall-
dór Sigurbjörnsson, bezti maður
Akumesinga, gat lítið leikið gegn
KR vegna meiðsla.
Úrslitaleikurinn milli KR og
Þróttar var aldrei spennandi, því
t;’ v......—
of miklir. 1 fyrri hálfleik var að-
eins eitt mark skorað og voru KR-
ingar þar að verki. í síðari hálf-
leik komst KR í fjögur mörk áður
en Þróttur skoraði sitt eina mark
í leiknum. Varnarleikur KR var
áberandi beztur hjá liðunum í
mótinu, og allur leikur þeirra
heilsteyptari en annarra. Mótið
var prýðilega vel heppnað og
margir áhorfendur bæði kvöldin.
Innanhússmótið var erfitt fyr-
ir þá leikmenn, sem komust
iangt í mótinu. Það veitti því
ekki af að hvíla sig vel á milli
lelkja. Hér sjást leikmenn
bróttar í búningsherberginu
að hvíla sig fyrlr lokaátökin
Á sunnudaginn fer fram |
Múllersmótið, sem haldið er
til minningar um L. H. Múller,
hinn mikla frumkvöðul skíða-
íþróttarinnar hér á landi.
Þetta er í annað sinn, sem
mótið er haldið, en keppt
verður i svigi. Sveitakeppni
er og keppt í fjögurra manna
sveitum.
í
Múllersmótið fer fram við skíða
skála Skíðafélagsins í Hveradölum
og hefst klukkan 2. Nafnakall kepp
enda verður kl. 11. í mótinu taka
þátt 28 beztu svigmenn Reykja-
víkur. Ármann, KR og ÍR senda
tvær sveitir hvert félag, eða átta
keppendur frá hverju félagi, og
Víkingur sendir eina sveit, eða
fjóra menn í keppnina.
Mótið í fyrra var mjög vel heppn
að, en þá bar ÍR sigur úr býtum
og mun ÍR-sveitin hafa fullan hug
á því, að endurtaka þann sigur
nú. Keppt er um far’andbikar, en
auk þess fær hver þátttakandi í
sigursveitinni verðlaunapening og
L. H. MULLER
einnig sá, sem beztan braulartíma
fær.
Nægur snjór er nú við skíðaská)
ann og færi ágætt, og má því bú-
ast við að mótið geti orðið mjög
ánægjulegt. Aðstaða er hin bezta
fyrir áhorfendur til að fylgjast
með keppninni. Sérstakar ferðir
verða frá BSR kl. eitt.
PiQ
S. 1. laugardagskvöld hélt
íþróttafélag Miklaholtshrepps
hátíðegt 25 ára afmæli sitt,
með hátíðarsamkomu að
Breiðabliki. Var þangað boðið
öllum hreppsbúum, svo og öll-
um félögum, sem fluttir eru
burt úr sveitinni ásamt fleir-
um.
Formaður félagsins, Erlendur
Halldór’sson, setti samkomuna, sem
var fjölsótt, með ræðu og stjórn-
— *Vi L . — — Z Oá.AÍtnM A f, w, n n AW fl 1
ágrip af sögu félagsins, sem stofn-
að var 31. jan. 1937. Kom hann
víða við og var erindi hans fróð-
legt og skemmtilegt. Þá var sýnd-
ur gamanþáttur er heitir
„Síminn hringir“.
Þá var sameiginleg kaffidrykkja
og að lokum var stiginn dans með
miklu fjöri. Mar'gar ræður voru
fluttar. Meðal þeirra sem töluðu
voru: Sigvaldi Jóhannsson, sem af-
henti félaginu silfurbikar, sem
skal vera farandbikar og veittur
þeim, sem vinnur bezt afrek í
frjálsum íþróttum á hverju ári.
Gripur þessi er gefinn af gömlum
félögum, sem fluttir eru til Reykja
(Framh. á 13. síðu
Körfubolti
í kvöld
Ellefta íslandsmótið í körfuknatt
leik hefst í kvöld að Hálogalandi.
Bogi Þorsteinsson, formaður Körfu
knattleikssambandsins, mun setja
mótið, en síðan fara fram tveir
leikir. ÍR og Ármann leika í 2. fl.
karla og síðan KR og Ármann í
meistaraflokki karla.
í mótinu taka þátt 31 lið og eru
þátttakendur rúmlega 300 eða
miklu fleiri en nokkru sinni fyrr.
Keppt er í fimm karlaflokkum og
tveimur kvennaflokkum. ÍR og KR
senda átta lið í mótið, KFR fimm,
og Ármann einnig fimm, ÍFK tvo,
ÍS tvo, og fimleikafélagið Björk
í Hafnarfirði einn kvennaflokk og
er það í fyrsta skipti, sem það
félag sendir þátttakendur á körfu
knattleiksmótið. Mólið heldur á-
fram á sunnudagskvöld.
1&
T í MIN N, laugardaginn 10. fcbriiar 1962