Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum — Hringið í síma 12323 43. tbl. — Miðvikudagur 21. febrúar 1962 — 46 árg. Fólk er beðið að ' athuga, að kvöldsími blaðamanna er 1 8303 NTB—Kanaveralhöfði, 20. febrúar. John Glenn, hershöfð- ingi og geimfari, lenti klukkan 18,43 í kvöld eft ir íslenzkum tíma heilu og höldnu í Atlantshafinu eft- ir þriggja hringa geim- ferð umhverfis jörðina. — Hann lenti nákvæm- lega fjórum stundum og 56 mínútum eftir að hon- um og geimfari hans Vin- áttu VII var skotið á loft í broddi risastórrar Atlas- eldflaugar frá Kanaveral- höfða. — Allt gekk eins og I sögu alla leiðina, nema hvað sjálfstýringin brásf eitthvað. svo að Glenn varð sjálfur að stjórna geimfarinu meira TÍMINN fékk þessa mynd símsenda í gaer, en hún var tekln á Canaveral hífða, þegar John Glenn, hershöfð- ingl, var aS fara upp i gelmskipið, sem flutti hann þrjá hrlngi umhverf. is jörð og skilaði honum heilum til mannheima. Margar hendur voru á lofti til að hjálpa honum upp i geim farið og margar hendur tóku við honum, þegar hann var kominn um borð í tundurspillinn Noah, en hon- um var lyft um borð í geimhylkinu. Frumvarp hgt fyrir Alþingi bráilega Telja má nú fullvíst, að áð- ur en langt líður verði stofn- aður samvinnubanki og verð- ur frumvarp um það flutt á Alþingi fljótlega. Mun Sam- vinnusparisjóðurinn þá breyt- ast í Samvinnubanka. Er með því náð mikilvægum áfanga í ?amvinnumálum hér á landi. Stjórn og framkvæmdastjórn áambands ísl. samvinnufélaga hélt fund í gær, og þar las Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, bréf, sem borizt hafði frá ríkisstjórn- inni, þar sem hún tilkynnir, að hún hafi ákveðið að verða við þeirri ósk stjórnar Samvinnuspari sjóðsins, að beita sér fyrir lög- gjöf um stofnun Samvinnubanka íslands. osr mnni rfkisst.iórnin bera fram frumvarp til laga um þetta bráðlega. sízt á þessum tímamótum í sögu ; samvinnuhreyfingarinnar, að þess jskuli senn að vænta, að Samvinnu i sparisjóðurinn verði alhliða banka stofnun. Þar sem bankar landsins , hafa flestir sérsvið, er það brýn nauðsyn, að upp rísi banki, sem [sérstaklega sé studdur af sam- ivinnumönnum í landinu og sinm j þörfum samvinnufélaganna öðru Er það mikið fagnaðarefni. ekki I íramiir Samvinnusparisjóðurinn hefur starfað nokkur ár, og hefur vöxt- ur haus orðið jafn og öruggur, svo að hann er nú traust peningasfofn un. Sparisjóðsstjóri er Einar Ag- ústsson. en helming leiðarinnar, sem honum fórst vel úr hendi. — Lendingin tókst einnig prýöilega, og það ríkti mikill fögnuður á (Framhald á 3. siðu.) r Milljón tilrann sókna í tilefni af 60 ára afmæli Sambands ísl samvinnu- félaga í gær, ákvað stjórn Sambandsins á fundi sínum að flytja á næsta aðalfundi Sam- bandsins tillögu um að það leggi fram eina millj ón króna til styrktar jarð vegsrannsóknum í þágu landbúnaðarins, og greið ist framlag þetta á fimm árum. Meö framlagi þessu leggja samvinnumenn fram góðan ikerf til framfaramáls, sem er mjög brýnt, og miðar í senn að alhliða gróðurbótum i landinu og stuðningi við þann grundvallaratvinnuveg sem landbúnaðurinn er. Gat samvinnuhreyfingin varla minnzt merkisafmælis síns með betri eða táknrænni hætti en þessu myndarlega framlagi til að bæta landið. TVÖ NÝ SKIP baksíðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.