Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 12
r ' ■ ili ili fiii 1R ífcaRT il Hil! ' 'q , , , r-*r IJV llll , ' ' mJ C :ý: II* iiiii r • 0$ . RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Leikur Fram og Vals í meist araflokki karla, 1. deild á sunnudagskvöldin var aldrei spennandi, því að yfirburðir Fram voru miklir, þegar frá byrjun og í fyrri hálfleik hrúg uðust mörkin upp hjá Val, en hins vegar tókst leikmöiinum Vals sárasjaldan að skora. En þótt leikurinn væri afgerður fyrir hlé. var það engin afsök un fyrir hinum frámunalega lélega síðari hálfleik — og þar eiga leikmenn Fram meiri sök, því að þeirra er getan. Bergur Guðnason skoraði fyrsta markið í leiknum fyrir Val, en síðan tók Ingólfur Óskarsson, hinn skotharð'i leikmaður Fram við, og skoraði þrjú næstu mörk, en alls skoraði hann tíu mörk í fyrri hálf- leik og 14 mörk í leiknum. Val tókst þó að jafna þennan mun, en síðan seig stöðugt meir á ógæfu- hliðina fyrir Val. Fram skoraði sex næstu mörk — og á þessu tímabili fékk Fram einnig tvö vítaköst, sem Egill Árnason, markvörður Vals, varði. Valsmönnum tókst af og til að stinga inn marki, en um miðjan hálfleikiun skoraði Fram aftúr fimm mörk í röð og markatalan var þá orðin 15—5 fyrir Fram. í hálfleik varð staðan 20—8. Fram lék á þessu tímabili oft 'ágætan handknattlcik — og línu- i gegn i Það var 18 ára Svíi, sem sló í gegn í heimsmeistarakeppn- inni í skautahlaupum í Moskvu um helgina, Johnny Nilsson að nafni, þótt hann sigraði pkki samanlagt. Johnnv var algerlega óþekkt- ur fyrir keppnina, en í 10000 m. hlaupinu setti hann nýtt meistaramótsmet og varð ann ar í 5000 metra hlaupinu. Eins og við skýrðum frá í gær varð Victor Kotsitsjkin heimsmeist- ari, hlaut 188.340 stig. Næstur varð van der Grift með 189.143 stig og þriðji Ivar Nilsson með 189.316 stig. Boris Stenin varð fjórði með 189.915 stig, og sýna þessar tölur hezt. hve keppnin var jöfn og hörð og árangur góður, þrátt fyrir slæm ar aðstæður í Moskvu Tveir Kín- verjar voru í 5. og 6. sæti, Knud Johannesen 7, Kouprianoff. Frakk- landi nr. 8, Evrópumeistarinn Merkulov nr. 9 og Johnny Nilsson nr. 10 samanlagt. I 1500 m. hlaupinu sigraði Stenin á 2:13.5 mín. Grift varð ann- ar á 2:13.9 mín. Wang, Kína, þriðji á 2:16.6 mín. Landi hans Lo fjórði á 2:17.1 mín. Ivar Nilsson fimmti á 2:17.3 og Merkulov sjötti á 2:17.4. í 5000 m. hlaupinu sigraði Ivar Nilsson á 8:03.2 mín. Johnny Nils- son varð annar á 8:04.2 og Knud Johannesen þriðji á 8:04.4. Fjórði varð Kositsjkin á 8:4.9 mín., en þessir fjórir hlauparar voru alveg í sérflokki. Norðmaðurinn Maier varð fimmti á 8:15.3 fnín. í 10000 m. hlaupinu kom svo bomban. Johnny Nilsson sigraði á 16:29.4 mín., sem er lang bezti tími, sem hefur náðst á láglandabraut. Ivar Nilsson varð annar á 16:44.6. Þrið'jiKositsjkin á 16:45.0 mín., en hinn jafni árangur hans í öllum hlaupunum gerði hann að heims- meistara. Maier varð fjórði á 17:01.1 mín. Johannéssen lagði ekki að sér og varð aðeins sjötti. Van der Grift missti heimsmeistaratit- ilinn í þessu hlaupi. Hann varð að- eins í 8. sæti' á 17:15.mín. — eða hálfri mínútu á eftir nýja heims- meistaranum. spilið var til fyrirmyndar. Guðjón Jónsson átti þar mestan þátt og sumar sendingar hans til línu- mannanna vöktu mikla aðdáun. Um síðari hálfleikinn er bezt að ræða sem minnst, en leikur beggja liða var þá mjög slakur. Kæruleysi einkenndi leik Fram, jafnt í s-ókn sem vöm. Þetta varð til þess, að Valur skoraði fleiri mörk framanaf — en undir lokin tók Fram aftur leikinn í sínar hendur, mest fyrir tilstilli Hilmars Ólafssonar, hins trausta leikmanns Fram, og Fram skoraði því einnig fleiri mörk í síðaii hálfl., 14—10 og sigraði því í leiknum með 34—18. Leikurinn var oft mjög grófur eins og sést á því, að einn leikmað- ur í hvoru liði varð að vera sjö mínútur utan vallar vegna brota. Dómarinn, Frímann Gunnlaugsson, var mjög ákveðinn í dómum sínum — og tók hart á öllum brotum. Mörk Fram í leiknum skoruðu Ingólfur 14, Hilmar 6, Erlingur 4, Guðjón, Tómas og Sigurður 3 hver, og Karl 1. Geir Hjartarson skor- aði 8 af mörkum Vals, Bergur 3, Örn, Gylfi og Stefán, tvö hver, og Sigurður 1. Á laugardaginn fóru fram nokkr- ir leikir í handknattleiksmótinu, og bar þá helzt til tíðinda að íslands- meistarar FH í kvepjyajlokký, fitju, í miklum erfiðleikupj, rn^ tVíI^ng, og mátti FH þakka fyrir jafntefli, 7—7. Ármann sigraði Fram í sama flo’kki með 12—7. í 2. flokki karla vann Fram Hauka með 13—7 og KR vann Þrótt með 17—10. Norrænt í Zakopane Heimsmeistarakeppnin í Zakopane í Póllandi í norræn- um greinum hefur verið hrein sigurganga fyrir Norðurlanda- þjóðirnar hingað til, nema í kvennagreinum, þar sem sov- ézku stúlkurnar hafa reynzt ó- sigrandi. í gær var keppt til úrslita í norrænni tvíkeppni og 15 km. göngu og varð dag- urinn fyrst og fremst Norð- manna. (Framh á 15 síðu. SlgurSur Ólafsson — hinn Uunni landsliðsmaSur í knattspyrnu — og Krlstián Benediktsson, til hægri, sigurvegarar í firmakeppninni. Olíufélagið sigraði í firmakeppninni Síðasthðinn laugardag voru háðir í íþróttahúsi Vals úr- slitaleikir í firmakeppni Tenn is- og Badmintonfélags Reykja víkur. Keppnin var mjög hörð og tvísýn frá upphafi til enda. Þau þrjú firmu, sem lengst komust, voru þessi: Olíufélag- ið h.f.; Húsgagnabólstrun Ein- ars og Sigsteins og Sportvöru- verzlunin Hellas. Kúsgagnabólstrun Ei»nars & Sig- sleins var þá komin til úrslita, en í undanúrslitum kepptu Olíufélagið h.f. og Sportvöruverzlunin Hellas. Varð sá leikur að útkljást með aukalotu. Harka var mikil í leik þessum, og má til sönnunar geta þess að hann stóð yfir á annan klukkutíma. Fyrir Olíufélagið kepptu Sigurð- ur Ólafsson og Kristján Benedikts- son, en fyrir Hellas Walter Hjalte- sted og Ragnar Georgsson. Að lok- um sigraði Olíufélagið h.f. og komst þar með til úrslita á móti Húsgagnabólstrun Einars & Sig steins, en fyrir það firma kepptu Einár' Jónsson og Gísli Guðlaugs- son. Þeir Kristján Benediktsson og Sigurður Ólafsson tóku leikinn strax í upphafi nokkuð örugglega í sinar hendur, og sigruðu í tveim- ur lotum. Var þó við ramman reip að draga, þar sem á móti lék hinn gamalreyndi badmintonkappi Einar Jónsson, ásamt Gísla Guðlaugssyni, sem stóð sig með hinni mestu prýði, þrátt fyrir litla keppnisreynslu. Kristján Benediktsson og Sigurð- ur Ólafsson léku alla sína fjóra leiki af miklu öryggi og þrótti. Greinilegt var að þeir eru þrek- menn báðir og taugasterkir, og þeir eiginleikar komu þeim að góðu haldi þennan dag. Þar að auki voru slaðsetningar þeirra á vellinum til mikillar fyrirmyndar, þrált fyrir það, að þeir eru óvanir að leika saman. Þeir færðu Olíufélaginu h.f. sigurinn, og gerðu það með glæsi- brag. Til gamans má geta þess, að Sigurður Ólafsson er ekki nýliði í íþróttalífinu hér. Hann er gamal- (Framhald á 15. slðu). Elns og sagt var frá hér í blaðinu gær var mikll þátttaka I afmæl- isskíðamótl ÍSÍ viS sklðaskálann í Hveradölum á sunnudaginn., — Þessa mynd tók Bjarr.lelfur af öll- um þátttakendun- um 12 TIMINN, miðvikuðuginn 21. febrúar 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.