Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 3
Rottur herja í
Hamborg meðan
björgunarstörf
standa enn yfir
NTB — Hamborg, 20. febrúar.
Nú þegar hafa fumlizt 272
lík eftir flóðin miklu á Norð-
ursjávarströnd Þýzkalands og
þar af 253 í Hamborg. Búizt
er við, að opinberar tölur yfir
hina látnu hækki mikið, þeg-
ar lögregla og herlið byrja að
kemba úthverfi Hamborgar í
lcit að látnum eða hjálpar þurf
andi mönnum.
Verst er ástandið í útborg-
inni Wilhelmsburg, þar sem
myndin hér til hliðar er tekin.
Öll borgin lá undir vatni, ofsa-
legt eignatjón hafði oi'ðið og
fjöldi manns var enn einangr-
aður og beið björgunar.
Um 20,000 manns eru nú
heimilislausir í Hamborg, en
þúsundir annarra bíða og geta
ekki snúið aftur til heimila
sinna, sem liggja enn þá undir
vatni. Vatnshæðin fer nú ört
lækkandi.
Ekki er vitað um nein tilfelli
farsótta, en i öryggisskyni er
bólusetningunni gegn tauga-
veiki haldið áfram.
Hollendingar ætla að senda
sérstök skip í flýti til flóða-
svæðanna í Þýzkalandi með
stórvirkar dælur meðferðis til
að aðstoða við að þurrka upp Miklir herir rotta herjuðu í ar hafa ráð'izt á mörg líkin og
þau svæði innan flóðgarða, er dag á þeirn svæðum, þar sem dýrahræin, sem liggja um allt
hafa flætt. vatnið hafði sjatnað. Rotturn- á þessum stöðum.
J
GLENN I
(Framhald af 1. siðu).
Kanaveralhöfða, þegar
allt var komið í kring.
— GeimferÖ Glenn er tal-
in mikill sigur fyrir
bandarísk vísindi og geim
rannsóknir.
Geimfari Glenns hershöfðingja
var skotið á loft í Atlaseldflaug ná
kvæmlega kl. 13.47 eftir ís-lenzk-
um tíma, eða 17 sínútum síðar en
áætlað hafði verið. Örstuttu síðar
var geimfarið komið á braut um-
hverfis jörðu.
Eldflaugin jók stöðugt hraðann
og stefndi í norðaustur frá Kana-
veralhöfða i átt til Bermuda. Allar
fimm vélar hennar unnu eftir út-
reikningum og eftir eina mínútu
var hún komin í 120 kílómetra
hæð.
7,5 sinnum meiri
þrýstingur
Þegar eldflauginni var skotið á
loft, varð Glenn fyrir þrýstingi,
sem er 7.5 sinnum meiri en að-
dráttar'afl jarðar, en örfáum mín-
útum síðar reyndi hann hið gagn-
stæða — aigert þyngdarleysi. —
Þá tijkynnti Glenn, að þrýstingur-
inn í klefanum væri eðlilegur.
Geimskipið komst á braut sína
yfir Bermuda. Þá hafði það 28.000
kílómetra hraða á klukkustund.
Allan þennan tíma hafði Glenn
samband við jörð.
Stfórnaði sjálfur
Þegar Glenn fór yfir Indlands-
haf, voru 28 minútur liðnar frá
því hann fór af stað. Þá kom hann
inn í næturbeltið og stjórnaði þá
sjálfur flugi geimfarsins.
Það er í fyrsta skipti, sem geim
fari stjórnar sjálfur flugi sínu.
Bæði geimförum Gagaríns og Tít-
offs var stjórnað frá jörðu.
Yfir Zanzibar gaf Glenn fyrstu
nákvæmu tæknilegu skýrsluna um
ferðalagið. Síðan sendi hann á
hálftíma íresti slíkar skýrslur.
Fyrsta hálftímann fékk hann sér
lika að borða. Hann át kjötbúð-
ing og ávaxtamauk úr túbum.
Eftir 65 mínútna flug skýrði
Glenn frá því, að þyngdarleysið
væri ekkert óþægilegt. Stuttu síð-
ar sá hann sólarupprásina uppi yf-
ir strönd Kaliforníu.
Rétt eftir að hann hafði lokið
fyrsta hríngnum, skýrði hann frá
litlum, lýsandi hlutum, sem hann
sá við hliðina á geimfarinu. Fóru
þær með sama hraða og í sömu
átt og geimfarið.
Hálftíma eftir skotið var sagt
frá því í Moskvuútvarpinu bæði á
rússnesku og ensku.
Sjáifstýringin í ólagi
Aðra hringferðina fór geimfarið
aðeins sunnar en þá fyrstu. Þegar
Glenn var kominn yfir Zanzibar í
annað sinn, sagðist hann eiga í erf
iðleikum með sjálfstýringuna og
ætlaði sjálfur að annast stjórn
geimfarsins aftur. Gekk það að
óskum. Yfir Indlandshafi lifði
Glenn aðra nóttina á flugi sínu.
Hitinn í klefa Glenn varð srmám
saman meiri en reiknað hafði ver
ið með, m. a. vegna hins sterka
sólskins í háloftunum. Allt þar til
Glenn var langt kominn með aðra
hringferðina, var ekki útséð um,
þvoit hann færi tvær eða þrjár
hringferðir.
Fór samt þriðja
hringinn
Þessi vafi jókst, þegar Glenn
skýrði frá því, að hann ætti í erf
iðleikum með sjálfstýringuna, en
tilraunastjórnin á Kanaveralhöfða
ákvað, að hann skyldi samt sem
áður fara þriðja hringinn. Glenn
sagðist vel geta stjórnað geimfar-
inu sjálfur.
Nokkra stund var óttazt á Kana-
veralhöfða, að Glenn mundi ekki
hafa nóg brennsluefni fyrir heml-
unareldflaugarnar á niðurleiðinni,
þar sem geimfarið notaði meira
brennsluefni en þegar það var
sjálfstýrt.
Það kom í Ijós, að sá ótti var
ástæðulaus. Glenn voru gefnar nýj
ar tilskipanir um, hvenær hann
ætti að skjóta hemlunareldflaugun
um til þess að jafna hemlunina
eftir magni brennsluefnisins.
Stýrisklefinn
hringsnérist
Þegar Glenn hóf þriðja hring-
inn var hann í sambandi við einn
félaga sinn Wally Sehirra og sagði
honum, að hann hefði átt í erfið-
leikum með jafnvægisstjórn stýris-
klefans, sem hringsnérist stö<’'r't
en það hefði nú lagazt.
Um hálfsexleytið var Glenr ;
Indlandshafi í þriðja og síðasla
sinn. Hann var nokkru norðar en
í fyrri skiptin og stjórnaði nú geim
farinu sjálfur.
Glenn skaut hemlunareldflaug-
unum klukkan 18,20, er hann var
um 1000 kílómetrum vestan Los
Angeles. Hann skýrði þá frá, að
þrýstingsaukningin hefði orðið svo
ofsaleg, að honum fannst sér vera
kastað aftur alla leið til Hawaii.
Lenti rétt hjá
fundurspillinum
Geimfarið fór nú í bogabraut í
átt til Atlantshafsins. í 10.000 feta
hæð voru fallhlífar geimfarsins opn
aðar og frá skipunum, sem biðu
lendingarinnar undan strönd Flor-
ida, sást geimfarið greinilega á
skýlausum himninum.
Geimfarið lenti í sjónum sex sjó
mílum frá bandaríska tundurspill-
inum Noah, sem setti á fulla ferð
til þess. Fjöldi þyrla flaug einnig
til staðarins, þar sem geimfarið
svamlaði í sjónum.
Klukkan var nákvæmlega 18,43,
þegar geimfarið lenti, fjórum tím-
um og 56 mínútum eftir skotið. 18
mínútum síðar var geimfarið dreg-
ið upp á þilfar Noah, sem síðan
tók stefnuna t.il Bahama-eyja.
Við beztu heilsu
Þegar geimfarið var komið upp
á þilfar tundurspillisins, sagði
Glenn, að heilsa sín væri prýðileg.
Þá var hafizt handa við að opna
geimfarið. Glenn reyndi sjálfur að
opna ventil, svo að hann gæti
skriðið út um mjórri enda geim-
farsrns, en þegar það gekk ekki,
opnaði hann neyðarventilinn.
Nokkrum mínútum síðar stóð
hann heill á hvifi á þilfari Noah.
Þegar honum hafði verið óskað
hamingju eftir ferðalagið, fór hann
í bráðabirgða læknisrannsókn. Síð-
an átti hann að f ara yfir í flugmóð-
urskipið Randolph, þar sem hann
átti að fara í ýtarlegri rannsóknir.
Glenn hafði verið í níu klukku-
iundir inni í geimfarinu.
Minnsta fjarlægð geimskipsins
iiá jörðu á ferðalaginu var 160
kílómetrar en mesta fjarlægðin
var 260 kílómetrar.
FrestaÖ hvað eftir
annaö
Geimferð Glenn hefur verið
frestað hvað eftir annað síðan í
desember. 27. janúar var hætt við
geimferðina aðeins 18 mínútum áð-
ur en hún átti að hefjast. Þá hafði
Glenn legið í fimm klukkustundir
í klefa geimfarsins. Áður en geim-
farinu var skotið á loft í dag, var
hvað eftir annað frestað sekúndu-
talningunni til skotsins, þar sem
ýmsir smágaJlar höfðu komið í ljós.
Alls beið Glenn í þrjá tíma í toppi
eldflaugarinnar.
Hörkukarl
John Glenn hershöfðingi er fer-
tugur að aldri, hertur í hættum og
spennu, mikinn hluta ævi sinnar.
Allt frá því er hann tók flugpróf
1942 hefur hann staðið við og við
augliti til auglitis við dauðann.
í seinni heimsstyrjöldinni var
Glenn orrustuflugmaður á Kyrrá-
hafi og fór í 50 árásarferðir gegn
Japönum. í Kóreustríðinu lenti
hann 100 sinnum i orrustu og skaut
m.a. síðustu níu daga stríðsins nið-
ur þrjár MIG-þotur óvinarins.
73 oröur fyrir hugrekkí
Fimm sinnum hefur Glenn hlotið
hina sérstæðu og virðulegu Flying'
Cross flugmannaorðu og 18 sinn-
um hefur haun fengið hugrekkis-
orðu bandaríska flughersins.
Glenn er kraftalega vaxinn, rauð
hærður og græneygður, Hann er
sagður þolinmóður og rólegur í tið-
inni. Hann var fyrsti varamaður
þeirra Grisson og Shepard, sem
fóru í stuttar geimferðir í fyrra.
Glenn-ihjónin eiga tvö börn, John
David, sem er 14 ára, og Carolyn,
13 ára. Fjölskyldan býr rétt utan
við Washington.
Til þess að halda sór heilbrigð-
um, hleypur Glenn þrjá kilómetra
á hverjum degi árið um kring.
Frægur fyrir fieira
Eftir Kóreustríðið var Glenn til-
raunaflugmaður í bandaríska land-
gönguliðinu. Hann komst í forsíðu-
fréttir blaðanna, þegar hann flaug
árið 1957 fyrstur manna frá Los
Angeles til New York með meiri
meðalhraða en hljóðið.
Glenn komst aftur síðar í fréttir,
þegar hann vann 25.000 dollara í
spurningakeppni í sjónvarpi.
Serkir á
fundi
NTB-Túnis og Alsír, 20 febr.
Þjóðarráð serknesku útlaga
stjórnarinnar kemur saman í
Tripoli síðdegis á fimmtudag-
inn eða snemma á föstudaginn
til þess að taka ákvörðun í
samningunum við frönsku
stjórnina um vopnahlé í Al-
sír og sjálfstæði landsins.
Þjóðarráðíð hefur æðsta vald í
málefnum serkneskra uppreisnar
manna, og verður bæði það og
(Frambald á 15. síðu i
TIMIN N, miðvikudaginn 21. f ebrúar 1962
3