Tíminn - 01.03.1962, Síða 3
ullt umboð veitt, en
hámark hryðjuverkanna
NTB — París og Algeirsborg,
28. febrúar.
Serkneska byltingarráðið
samþykkti í morgun að gefa
uppreisnarsi jórninni (FLN)
fullt umboð til að leggja síð-
ustu hönd á samningana við
frönsku stjórnina um vopna-
hlé og sjálfstæði Alsír, án
þess að ráðfæra sig meira við
byltingarráðið. Er þá endan-
leaa séð fyrir enda Alsírstyrj-
aldarinnar. — Samtímis frétt-
ist frá Alsírborg, að hryðju-
verk OAS í Alsír hefðu náð há-
marki í dag, svo að jafnvægið
( stórborgunum hékk á blá-
þræði.
Fregnin um, að byltingarráðið
ihefði gefið' FLN frjálsar hendur í
sammingaviðræðunum, varpaði
þungum steini af hjarta margra
stjórnmálamanna í Frakklandi.
Margir franskir forystumenn lótu
í Ijós þ£ skoðun, að 28. febrúar
miini framvegis verða talinn merk
isdagur, ekki bara í sögu Frakk-
lands, heldur einnig í mannkyns-
sögunni.
Enn einn leynifundur
Enn mun vera eftir að leggja
síðustu hönd á nokkur atriði samn-
ings frönsku stjómarinnar og upp-
reisnarstjórnarinnar FLN. Talið
er, að FLN muni fara fram á enn
einin leynifund með fulltrúum
frönsku stjórnarinnar, áður en hin
opinbera lokaráðstefna hefst. Því
er ektyi vitað, hvenær lokaráðstefna
getur hafizt, en í París er almennt
álitið, að það verði einhvern tíma
í næstu viku.
Hvenær það verður skiptir ekki
eins miklu máli og, að nú er tek
inn af allur vafi um endanlegan
árangur friðarsamninganna. Hjns
vegar mun reynt að flýta eftir
föngum endanlegri undirskrift
samningamna.
Franskir stjómmálamenn búa
sig nú undir að mæta á þinginu,
sem verður eennilega kallað til
aukafundar innan 12 daga til þess
að taka friðarsamninga til með-
ferðar.
Ríkisstjórnin mun hafa í hyggju
að framkvæma Alsír-stefnu sína í
tveimur þrepum. Fyrst verður hald
in þjóðaratkvæðagreiðsla í Alsír,
þar sem greidd verða atkvæði með
eða móti friðarsamningunum. Það
verður sennilega gert í apríl. Síð-
an verða nýjar kosningar um end
anlega stjórnskipan Alsír. Þær
kosningar verða að öllum líkind-
um haldnar fyrri hluta maí.
Útrýma OAS
Hinn gamalkunni stjórnmálamað
Sænski klúbburinn fær
NTB—Stokkhólmi, 28. febr.
Yfirlýsing sænsku ríkis-
stjórnarinnar um, að hún sé
fús til að vera með í kjarn-
orkuvopnalausu svæði í Evr-
ópu, ef unnt verði að komast
að fullnægjandi samkomulagi
um það, hefur vakið geysilegt
umtal á Norðurlöndunum. í
þeim löndum, sem eru í NATO
hafa undirtektirnar yfirleitt
verið neikvæðar.
Blað jafnaðarmanna, Stockholms
tidningen, segir í dag, að það
mundi ekki vera ósamrýmanlegt
skyldum Noregs gagnvart NATO,
ef stjórnin þar samþykkti sænsku
tillöguna um „kjarnorkuvopna-
lausa klúbbinn“ í Evrópu, eins og
haldið hefur verið fram í Noregi.
Þess vegna komi hin algera höfn-
un Lange, utanríkisr’áðherra Nor-
egs, á tillögunni mjög á óvart.
Bendir blaðið í því sambandi á, að
Lange lagðist fyrir stuttu opinber-
lega gegn því, að NATO yrði gert
' að fjórða kjarnorkuveldinu.
Lík Rapacki-tillögunni
Blað frjálslyndra, Dagens Ny-
heter, er á öðru máli. Það segir,
að tillagan só til þess eins fallin
, að koma löndum eins og Noregi í
slæma aðstöðu innan NATO. Blað-
1 ið bendir einnig á, hversu geysi-
'vel kommúnistar hafa tekið þess-
ari tillögu Unden, utanrikisráð-
herra Svíþjóðar, en margir telja
tillöguna um „kjarnorkuvopna-
lausa klúbbinn" vera í ætt við hina
pólsku Rapacki-tillögu, sem kom
fram á árunum.
Prófessorar mótmæla
í Noregí hefur tillaga Unden
yfirleitt vakið mcgna óánægju.
Nokkrir prófessorar við Oslóarhá-
skóla skrifuðu stórþinginu bréf í
gær, þar sem m. a. segir, að áætl-
un Unden leysi alls ckki vánda-
málin, sem liggja að baki kalda
stríðsins, hina gagnkvæmu tor-
(Framhald á 11. síðu).
Paul Reynaud sagði í dag, að OAS
mundi ekki geta haldið andstöðu
sinni lengur en í nokkrar vikur
eftir friðarsamningana. Roger Frey
innanríkisráðherra sagði í dag, að
60 hryðjuverkamenn OAS hefðu
verið handteknir síðastliðna viku,
og að auki væri mikill fjöldi OAS-
manna undir nákvæmu eftirliti lög
reglunnar. Hann sagði, að ríkis-
stjórnin ætlaði sór að útrýma
leynihernum OAS gjörsamlega og
það væri ekki langt undan.
Bíllinn varð að dufti
Samtímis sem þetta fór fram í
Tripoli og París, náði hryðjuverka
aldan hámarki í Alsir. í borginni
Oran voru að minnsta kosti 30
Serkir drepnir og yfir 50 særðir í
tveimur ofsalegum sprengingum i
Serkjahverfinu.
Tímasprengjur ollu sprenging-
urn. Önnur var i fólksbíl, sem varð
gjörsamlega að dufti við spreng
inguna. Báðar sprungu við gang-
stéttarbrún, þar sem mikill fjöldi
Serkja á stöðuga leið um.
Franski herinn gerði strax eftir
sprenginguna harðar aðgerðir til
þess að koma í veg fyrir hefndar-
aðgerðir Serkja. Mikill æsingur
var í dag meðal Serkja, en herlið
ið lokaði öllu hverfinu og tókst að
hafa v'ald á fólkinu.
60.000 slógu upp herbúðum
í miðri Algeirsborg
Franskir herflokkar yfir 60.000
hermanna, sem hafa verið á varð
bergi utan Algeirsborgar, héldu í
dag inn í borgina. Þeir slógu upp
herbúð'um á aðaltorginu, og aðal-
gatan, Rue Miehelet, var þéttsetin
fallhlífaliði vopnuðu sjálfvirkum
vélbyssum. Vörubílar með vopn-
um, skotfærum og matarbirgðum
var raðað í hring utan um hreyfan
lega útvarpsstöð hersins.
Þetta er fjölmennasta herlið, er
verið hefur í Algeirsborg, og eru
heryfirvöldin hrædd um, að það
1 kunni að leiða til þess, að æsinga
seggir eigi auðveldara með að koma
af stað óeirðum. .
OAS-menn rændu í gær átta
banka í Alsír og höfðu með sér á
burtu fjárhæðir að verðmæti yfir
sex milljónir íslenzkra króna.
Rhodesía að nýju Alsír?
London, 28. febrúar.
Brezka stjórnin lýsti í dag
yfir nokkrum breytingum
é stjórnarskrá hins nýja ríkis í
MiS-Afríku, NorSur Rhodesíu.
Breytingarnar miSa aS því aS
halda sáttum í MiSafríkusam-
bandinu, sem þar meS leysist
upp. Óttast margir, aS á þess-
úm slóSum verSi nýtt Alsír,
þar sem fámennur minnihluti
hvítra manna heyi borgara-
styrjöld viS hina innfæddu
svertingja.
í Miðafríkusambandinu voru
Suður-Rhodesia, NorðurRhodesia
og Nyassaland. Af íbúum þessara
landa eru 7.9 milljónir svertingj-
ar, 300,000 Evrópumenn og 40,000
Asíumenn.
í Nyassalandi eru svertingjarn-
ir nærri einir um hituna og munu
þeir slíta sambandi við Miðafríku-
sambandið. Leiðtogi svertingjanna
þar er hinn kunni dr. Banda.
í Suður-Rhodesiu er mest um
hvítu mennina. Þeir ráða þar öllu
undir harðri forystu sir Roy Vel-
ensky, sem hefur barizt undanfar-
ið með hnúum og hnefum gegn
upplausn Miðafríkusambandsins.
Miðlunartillaga
Baráttan um stjórnarskrá Norð-
ur-Rhodesiu hefur staðið árum sam
an yfir. Bæði hinir svörtu og hin-
ir hvítu hafa verið óánægðir með
tillögur brezku stjórnarinnar.
Hin nýja breyting á stjórnar-
skránni gerir ráð fyrir, að á þingi
Norður-Rhodesiu verði 15 hvítir
og 15 svartir, en 15 þingmenn að
auki verði kosnir af báðum aðilum.
Þeir verða að hafa minnst 10% at-
kvæðamagns síns frá hinum and-
stæða kynflokki.
Sir Roy hótaði valdbeitingu
Miklar og harðar deilur urðu í
brezka þinginu, þegar kunnugt var
um nýjustu breytinguna. Einn
þingmaður, Denis Healy, ákærði
sir Roy Velensky fyrir að hafa hót-
að styrjöld og vitnaði m. a. í þau
ummæli sir Roy, að hann mundi
beita öllum ráðum, valdi ef nauð-
synlegt væri, til þess að koma í
veg fyrir upplausn Miðafríkusam-
bandsins.
Sir Roy fór í gær flugleiðis til
London til þess að reyna að hindra
framgang hinnar nýju stjórnar-
skrár Norður-Rhodesiu. Hann
beitti fyrir sér hinum íhaldssam-
ari hluta íhaldsflokksins, þar sem
hanri hefur góð sambönd. Sárnar
íhaldsmönnum upplausn heimsveld
isins.
Sandys var 14 daga í
Rhodesíu
Duncan Sandys, samvcldisráð-
herra, var fyrir stuttu í tvær vik-
ur í Mið-Afríku til þess að reyna
að fá báða aðila til að fallast á hin
nýju áform brezku stjórnarinnar.
Greiiiilegt er, að honum hefur
ekki tekizt að sannfæra sir Roy,
en einnig getur farið svo, að
Kaunda, leiðtogi svertingja í Norð
ur-Rhodesiu, þyki stjórnar’skráin
ekki ganga nógu langt til móts
við svertingja.
Sir Roy hefur undanfarnar vik-
ur verið ofarlega á baugi, ekki að-
eins fyrir framgöngu sína í Norð-
ur-Rhodesiu, heldur einnig fyrir
afskipti sín af deilunni um Kat-
anga.
Frakkar óliprir við I
Breta og Bandaríkja* I
menn
NTB — London, 28. febr.
Couve de Muiville, utan-
ríkisráðherra Frakklands,
mun sennilega ekki verða
viðstaddur opnun afvopnun-
arráðstefnu 18-veldana í
Geneve 14. marz, sagði tals-
maður franska utanríkis-
ráðuneytisins í dag.
í London vildu embættis-
menn ekki segja álit sitt á
fjarveru Murville, en það
var greinilegt, að þessi af-
staða fr'önsku stjórnarinnar
hefur valdið miklum von-
brigðum í London. Menn
benda á, að hún sé í beinni
andstöðu við brezk-banda-
rísku tillöguna um, að ráð-
stefnan hefjist með utanrík-
isráðherrafundi.
Krústjoff og Ulbricht
á leynifundi
NTB — Moskvu, 28. febr.
Krústjoff og sovézk nefnd
hafa í tvo daga átt mjög víð-
tækar viðræður við Ulbricht
forseta Austur-Þýzkalands,
og sendinefnd þaðan. Við-
ræðurnar voru leynilegar,
en eftir þær var gefin út
opinber yfirlýsing, þar sem
segir, að fullkomin eining
riki milli Austur-Þýzkalands
og Sovétríkjanna í þeim mál
um, sem snerta þau sameig-
inlega.
Það er samt ekki talið, að
þar með sé von ó friðar-
samningi milli rikjanna á
næstunni, heldur leggja
menn meira upp úr því, að
þetta sé nýr leikur 1 vestur-
austur spilinu um Berlín,
einmitt á þeim tíma, þegar
Moskvn-viðræður þeirra
Gromyko og Thompson
standa sem lægst.
Powers geról sitt
bezta
NTB — Washington,
28. febrúar.
Lokið er rannsókninni á
atvikunum, sem leiddu til
þess að njósnaflugmaðurinn
Powers var tekinn til fanga
í Sovétrí'kjunum í fyira. —
Verður sennilega gefin út
yfirlýsing um árangurinn á
föstudaginn,
New York Times heldur
því fram, að rannsóknar-
nefndin hafi komizt að því,
að Powers hafi gert sitt
bezta til að fylgja fyrirmæl-
um sínum. Sprenging hafi
orðið í flugvél hans, hún
hafi síðan velzt, án þess að
hann gæti ýtt á takkann til
að sprengja flugvélina í
tætlur, svo að vegsummerki
sæjust ekki. Þess vegna hafi
hann náðst og allt komizt
upp.
Kongressflokkurinn
með svipaðan þing-
mannafjölda
NTB — Nýja Dehli,
28. febrúar.
Svo virðist sem Kongress-
flokkur Nehru muni næsta
kjörtímabil hafa völdin í öll
um 13 fylkjunum, þar sem
kosið var til þings um dag-
inn. í fimm þessara fyíkja
hefur flokkurinn tapað fylgi
en þar sem samvinna hægri
og vinstri flokkana gegn
Kongressflokknum er ó-
sennileg, er talið, að flokk-
uiinn verði áfram við völd.
Einnig var flokkurinn ör-
uggur um yfirgnæfandi
meirihluta á allsherjarþing-
inu í Nýju Dehli.
T í M I N N, fimmtudagur 1. marz 1962.
3